Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 ÍSL
inds við
Cvrópu
Hlutafé Samskipa 800 til 900 milliónir í árslok
S VERRIR Hermannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson a takast í hendur að undirskrift lokinni.
Nýju lífi bíásið
í Samskip í gær
Kaflaskipti urðu í sögu Samskipa í gær,
þegar undirritaðir voru í Landsbanka Islands
samningar um hlutaflárkaup átta íslenskra
aðila og eins erlends í fyrirtækinu, fyrir 510
milljónir króna. Agnes Bragadóttir lýsir hér
samningunum og hvað tekur við hjá
fyrirtækinu með nýjum eigendum.
<ERFI í EVRÓPU
B að jafnstraumskerfi sem teng-
aði Evrópu.
MYND 3 - Tenging við Noreg
gæti aukið hagkvæmni orku-
sölu til Bretlands og megin-
landsins.
stóriðja hér á landi taki nema lítinn
hluta þessarar orku á næstu áratug-
um. Jafnvel með tíföldun á fram-
leiðslu stóriðju frá því sem nú er
mundi hún ekki nýta nema um 40%
af óbeislaðri orku landsins. Það er
því ekkert því til fyrirstöðu að hvort
tveggja geti gerst, áframhaldandi
þróun orkufreks iðnaðar eftir því
sem aðstæður frekast leyfa og lagn-
ing tveggja til þriggja sæstrengja
milli íslands og Evrópu.
4. Hver verður
samningsstaðan?
Samningsstaða okkar, þegar
kemur að raunhæfum samningum
um þessi mál við erlenda aðila, mun
ráðast af því hve vel við höfum
vandað tæknilegan og fjárhagsleg-
an undirbúning málsins, og af þekk-
ingu okkar á þeim mörkuðum þar
sem orkan yrði seld. Því skal þó
ekki á móti mælt, að að það verður
vandaverk að búa svo um hnúta,
að íslendingum verði bæði tryggður
sanngjarn arður af raforkuútflutn-
ingi og það öryggi, sem nauðsynlegt
er til að hægt sé að ráðast í slíkar
framkvæmdir. Hér koma margar
leiðir til greina, sem enn hafa ekki
verið kannaðar að neinu gagni, og
tel ég alveg fráleitt að slá því föstu
á þessu stigi málsins, að ekki sé
hægt að finna það skipulag og fjár-
hagsuppbyggingu, sem geri slíkt
verkefni álitlegt frá sjónarmiði ís-
lendinga.
Nýtt raforkukerfi í Evrópu
Ýmsar hugmyndir sem nú eru
að fæðast gætu haft mikla þýðingu
fyrir íslendinga í framtíðinni og
má t.d. nefna sameiginlegan orku-
markað Evrópu gegnum samtengt
net raflína og gasleiðslna, en þessi
hugmynd, sem á ensku hefur verið
nefnd „Trans European Energy
Networks, (TENs)“, er nú til um-
ræðu og búa stórfyrirtæki Evrópu
sig undir verkefni á þessu sviði
(mynd 2). Þannig hefur einn stærsti
framleiðandi rafbúnaðar í Evrópu,
stórfyrirtækið ABB sett fram hug-
myndir um jafnstraumskerfí, sem
tengir alla helstu orkumarkaði Evr-
ópu innbyrðis og nær alla leið til
íslands. Tilgangur slíks kerfis væri
að ná þeirri hagkvæmni, sem sam-
tenging ólíkra orkukerfa hefur í för
með sér og koma á samkeppnis-
markaði fyrir raforku, er næði til
allrar Evrópu. Ef alþjóðlegt sam-
starf næst um flutningskerfi af
þessu tagi, má búast við því, að
áhersla verði lögð á jafna stöðu allra
þjóða, sem við það tengjast. Þá er
áhugaverður sá möguleiki að tengja
sæstreng frá íslandi við orkukerfi
Noregs, þar sem nægt afl og miðl-
anir eru fyrir hendi til að tryggja
afhendingaröryggi orkunnar og
auka þannig verðmæti hennar
(mynd 3).
Óll er þessi umræða enn á frum-
stigi, en margt bendir til mjög vax-
andi áhuga á þeim miklu tækifærum
til aukinnar hagkvæmni sem í þeim
felast.
Niðurstöður
Þótt kalla megi hugmyndir um
orkunet Evrópu aðeins framtíðar-
drauma á þessu stigi máls, eru þær
engu að síður dæmi um þær bylting-
arkenndu breytingar sem framtíðin
kann að bera í skauti sér fyrir orku-
mál íslendinga. Eftir því sem séð
verður, er ástæða til að ætla, að
svör verði jákvæð við öllum þeim
fjórum grundvallarspurningunum
sem settar voru fram í upphafi.
Vissulega verður að fara með gát
í svo veigamiklu máli og taka öll
varnaðarorð alvarlega. En í þeim
athugunum sem gerðar hafa verið,
hefur ennþá ekkert það komið ljós
sem bendir til, að þau vandkvæði
sem um hefur verið rætt séu óyfir-
stíganleg. Þvert á móti virðist málið
verða eftir því álitlegra sem tækni
fleygir meira fram, aðrar orkulindir
fara þverrandi og mengun frá bruna
eldsneytis og kjarnorkuverum veld-
ur þyngri áhyggjum. Öll rök hníga
því að áframhaldandi könnun máls-
ins, en jafn sjálfsagt er að hafa
gagnrökin ætíð í huga og veija
ekki fé á þessu stigi til annars en
undirbúningsathugana, sem ekki
kosta nema tiltölulega lítið fé. Eng-
um ætti að blandast hugur um, að
íslendingar verða að fylgjast af
vakandi áhuga með öllu sem gerist
á þessum vettvangi og halda áfram
þeim athugunum og kynningar-
starfi sem nauðsynlegt er til að
tryggja hagsmuni þjóðarinnar á
þessu sviði í framtíðinni.
Höfundur er stjórnnrformadur
Lnndsvirkjunnnr.
SÖGULEGUR fundur var haldinn í
húsakynnum Landsbanka íslands
klukkan 14 í gær, þar sem nýir hlut-
hafar í Samskipum hf. komu til fund-
ar við Sverri Hermannsson, banka-
stjóra Landsbankans, Jakob Bjarna-
son, formann Hamla hf. eignarhalds-
félags Landsbankans um eigur Sam-
bandsins, og Ólaf Ólafsson, forstjóra
Samskipa. Tilefni fundarins var undir-
ritun samninga um hlutafjárkaup nýju
hluthafanna í Samskipum, og er þar
með lokið margra mánaða undirbún-
ingsvinnu við endurfjármögnun þessa
fyrirtækis sem á að fullu að verða
lokið í árslok, en þeirri 510 milljóna
króna fjármögnun sem undirrituð var
í gær, fyrir lok ágústmánaðar. Eigin-
fjárstaða Samskipa á, samkvæmt því
að hlutafé fyrirtækisins verði 900
milljónir króna í árslok, að vera í
kringum 25%. Nýir hluthafar í Sam-
skipum verða Hagkaup, Samheiji hf.,
Akureyri, Fóðurblandan hf., Vinnslu-
stöðin hf. í Vestmannaeyjum, þýska
skipafyrirtækið Bruno Bischoff Re-
ederei sem er í eigu Bischoff Group,
Olíufélagið hf., Vátryggingafélag ís-
lands, Samvimvylífeyrissjóðurinn og
stjórnendur Samskipa.
Geta aukið hlutafé
Þannig lauk með formlegum hætti
í gær samningum á milli Landsbanka
íslands og nýrra hluthafa um þátttöku
í hlutafjáraukningu Samskipa, sem
Landsbankinn tekur að sér að fjár-
magna að vissu marki hjá innlendu
aðilunum. Hlutafé fyrirtækisins verð-
ur aukið nú um 510 milljónir króna.
Samningurinn við Bruno Bischoff er
með sérstöku ákvæði í þá veru að
Þjóðveijamir hafa valmöguleika á því
að hækka hlutafjárframlag sitt, sem
verður í upphafi 85 milljónir króna,
um 190 milljónir króna fyrir árslok.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
yfírgnæfandi líkur séu á því að Þjóð-
veijarnir hækki sig um 190 milljónir
nú á næstunni. Þannig gæti hlutafjár-
aukning Samskipa numið allt að 900
milljónum króna.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær, að ef Þjóðverjarnir ákveða
að notfæra sér ekki valmöguleikann
um aukið hlutafé, komi aðrir íslenskir
aðilar inn í fyrirtækið sem hluthafar
fyrir a.m.k. 100 milljónum króna, til
þess að 800 milljóna króna markinu
verði náð.
Samheiji er skráður fyrir 60 millj-
ónum króna, Hagkaup fyrir 40 millj-
ónum króna, Fóðurblandan (í eigu
þeirra Ásmundarstaðabræðra, Garð-
ars og Gunnars Jóhannssonar) fyrir
100 milljónum króna og Vinnslustöðin
fyrir 12 milljónum króna. Vátrygg-
ingafélag íslands, Olíufélagið hf. og
Samvinnulífeyrissjóðurinn eru hvert
um sig skráð fyrir 50 milljónum króna,
Bruno Bischoff fyrir 85 milljónum
króna og stjómendur Samskipa fyrir
allt að 15 milljónum króna. Lands-
bankinn mun eiga 164 milljóna króna
hlut í fyrirtækinu til að byija með,
en eins og áður hefur komið fram,
þá færði Landsbankinn niður hlutafé
í Samskipum úr 500 milljónum króna
í 200 milljónir króna, þegar ákveðið
var að ráðast í ofangreinda hlutafjár-
aukningu fyrirtækisins.
Stjórn Samskipa kom saman til
fundar árdegis á miðvikudag, þar sem
samþykkt var ofangreind hlutafjár-
aukning, auk þess sem stjóminni var
veitt umboð til þess að selja bréfin
öðrum en hluthöfum, sem ekki hafa
neytt forkaupsréttar. Þessi samþykkt
var m.a. forsenda þess að hægt væri
að ganga frá undirritun á fundinum
í Landsbankanum í gær.
Engar kvaðir fylgja hlutafjárkaup-
um nýju eigendanna í þá veru að þeir
beini viðskiptum sínum j auknum
mæli til Samskipa. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins mun þess þó
að vænta að fyrirtækin notfæri sér
flutningaþjónustu Samskipa í auknum
mæli hér eftir. Olíufélagið, VÍS, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Landsbank-
inn eiga um 50% í íslenskum sjávaraf-
urðum, og í ljósi þess er talið líklegt
að Islenskar sjávarafurðir muni nú
auka viðskipti sín við Samskip. Sam-
heiji flytur um 60% af útflutningi sín-
um með Samskipum og er búist við
að í kjölfar þessa muni það hlutfall
hækka. Sömu sögu er að segja af
Vinnslustöðinni og Hagkaup en Sam-
skip flytja um 20% fyrir Hagkaup nú.
Þátttaka Bruno Bischoff
nrikilvæg
Mikil ánægja ríkir innan hluthafa-
hópsins með þátttöku þýska skipafé-
lagsins Bruno Bischoff í Samskipum
og gera menn sér miklar vonir um að
samstarf fyrirtækjanna tveggja og
dótturfyrirtækis Bruno Bischoff, Team
Line, muni skila báðum aðilum aukinni
hagkvæmni og auknum tekjum.
Helsta ástæða þess að þeir sem
stóðu í samningum við aðila um hlut- ^
afjárkaup, lögðu mikið kapp á að
tryggja samninga við Þjóðveijana, er
sú að með samvinnu milli Samskipa
og dótturfyrirtækis Bruno Bischoff,
Team Line, á styttri siglingaleiðum
innan Evrópu náist til muna betri
nýting gámapláss hjá Samskipum en
náðst hefur í rekstrinum fram til
þessa. Með nýju fyrirkomulagi takist
að auka tekjur fyrirtækisins til muna,
m.a. með því að selja sama stæðið í
gámi oft. Svo dæmi sé tekið, verði
selt flutningsstæði frá íslandi til Fær-
eyja, og svo aftur þaðan til Englands*-*-
og áfram á milli mismunandi hafna í
Evrópu.
Pólitískir múrar
viðskiptalífsins
Nýir hluthafar í Samskipum telja
jafnframt, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, að samsetning ís-
lenska hluthafahópsins sé mjög sterk.
Annars vegar séu fyrirtæki sem fýrr-
um hafí tengst beint eða óbeint Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga og
hafi mikla fjárhagslega burði og hins
vegar séu öflug einkafyrirtæki, sem
séu á margan háti lifandi ímynd
einkaframtaksins, eins og Hagkaup
og Samheiji- Því var þannig lýst af
einum nýja hluthafanum, að með þess-T _
ari eigendasamsetningu mætti segja
að pólitískir múrar í viðskiptalífinu,
sem löngum hefðu aðskilið Sambands-
fyrirtæki og einkaframtakið, væru
fallnir.
Sverrir Hermannsson sagði að
afloknum undirskrift í gær: „Það er
ótrúlegur léttir fyrir Landsbankann
að þetta skuli hafa gengið fram. Þetta
eru mikil tímamót og gleðileg og vona
að þetta verði íslensku atvinnulífi til
góðs. Ég hef mikið traust á þeim aðil-
um sem koma að málum. Þetta eru
öflugir menn og þeim er full alvara.
Landsbankinn kemst með sóma frá
þessu máli. Hann mun ekki eiga mann
í stjórn fyrirtækisins eða hafa nein
afskipti af fyrirtækinu, eftir að end-
urfjármögnun er lokið.“ *♦"
„Skilaboðin til fólksins í landinu
með þessari niðurstöðu eru þau, að
hér verður fyrir hendi alvöru sam-
keppni tveggja skipafélaga og menn
munu þar af leiðandi hafa valkosti
um flutninga. Menn eru alveg klárir
á mikilvægi samkeppninnar, ekki síst
þeir sem tóku sig saman um þessa
endurfjármögnun Samskipa," sagði
Ólafur Ólafsson. Hann sagði í gær
að rekstraráætlanir Samskipa fyrir
næsta ár, eftir að enduifjármögnun
er lokið, gerðu ráð fyrir því að hagnað-
ur af rekstri yrði a.m.k. 100 milljónir^
króna. Áætlanir fyrir árið í ár gera
ráð fyrir nokkrum tuga milljóna króna .
taprekstri.
Smiðshöggið verður svo rekið á
endurfjármögnunarstarf Samskipa á
framhaldsaðalfundi Samskipa, sem
haldinn verður 4. ágúst næstkom-
andi, þar sein ofangreindar ákvarðan-
ir verða staðfestar og félagið kýs sér
nýja stjórn.