Morgunblaðið - 09.07.1994, Page 26

Morgunblaðið - 09.07.1994, Page 26
26 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand A HAMLET 15 A 5MALL VILLA6E WITH A P0PULAT10N OF /MAYBE A FEW HUNDRED, AND.. Þetta er ritgerðin Hamlet er lítið þorp með Kennari? mín um Hamlet ... kannski nokkur hundruð íbúa og ... Langsamlega, herra, ein mesta til- raun allra tíma! Ég þoli þetta ekki ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Stækka þarf glasa- frj ó vgunardeildina Frá Jennifer Ágústu Arnold: MIG langar til að skrifa nokkur orð um deild G-F, glasafijóvgunar- deild Landspítalans. Eins og svo margir aðrir höfum við hjónin þurft að snúa okkur til Þórðar Óskars- sonar yfirlæknis deildarinnar og ágætra starfsmanna hans með beiðni um hjálp. Það kom okk- ur þægilega á óvart þegar meðferðin hófst hve viðmót starfsfólksins var hlýlegt og vinsamlegt. Við vorum með- höndluð sem fólk en ekki núm- er, eins og því miður er orðið of algengt í þjóðfélaginu. Hins vegar kom það okkur illa á óvart hversu lítið rými þetta hæfa fólk hefur til að sinna starfi sínu. Það er greinielga ekki vanþörf á að deildin fái stærra húsnæði. Ég veit að hún átti að fá Fæðingarheimil- ið til afnota en af því varð ekki. Við hjónin þurftum að bíða í tvö ár eftir því að komast að. Ekki veit ég hvað biðtíminn er orðinn langur í dag. Það, að geta ekki orðið ófrísk með „eðlilegum“ hætti, er mjög viðkvæmt mál og þá sér- staklega þegar konur eru orðnar 37 - 40 ára. Hafa þær tvö ár eða lengri tíma til stefnu? Áður þurftu hjón að fara til útlanda í glasa- fijóvgun en sem betur fer er nú hægt að fá þetta gert hér heima. En deildin er í alltof litlu húsnæði og þarf meira og betra pláss og aðstöðu til að geta annað eftir- spum. Eins og ég vék að er glasafijóvg- un mjög viðkvæmt mál og konur taka meðferðina nærri sér, enda stendur hún vikum saman. Stund- um tekst þetta og stundum ekki. Og ef konan verður ekki ófrísk þá vaknar spurningin hvort reyna eigi aftur. Það eru margar fleiri spurn- ingar sem vakna þegar glasafijóvg- un er annars vegar og því þyrfti deildin að hafa starfandi ráðgjafa. Vissulega sinna starfsmenn ráðgjöf eftir mætti en það hlýtur að vera erfítt að vera ljósmóðir, félagsráð- gjafí og huggari í senn. Ég vil þakka starfsfólki glasa- fijóvgunardeildar fyrir þær góðu móttökur sem við hjónin fengum og alla þá alúð sem við nutum. Þetta gerir okkur sem þurfum að koma aftur, og þeim sem eru á biðlista, léttara um vik. Að lokum vil ég skora á stjórnvöld að gefa starfsemi deildarinnar meiri gaum og sjá til þess að hún fái sem allra fyrst viðunandi aðstöðu til að sinna sínu mikilvæga hlutverki. JENNIFER ÁGÚSTA ARNOLD, Hraunbrún 32, Hafnarfírði. Glasafrjóvgunardeildin er í alltof litlu húsnæði og þarf meira og betra pláss og aðstöðu til að geta annað eftirspurn, segir í greininni. Hafa skal það sem sannara reynist Frá Kristjáni E. Guðmundssyni: FIMMTUDAGINN 23. júní sl. ritar Ámi Jónsson tannlæknir og læknir, bréf til blaðsins í tilefni af deilum íslendinga og Norðmanna um físk- veiðar við Svalbarða. Þar er rétti- lega bent á langa vináttu þessara þjóða og ýmislegt sem Norðmenn hafa gert til að rækta vinskap við okkur íslendinga. Að einu leyti kemur fram í bréfí Árna viss mis- skilningur eða vanþekking. í bréf- inu segir hann m.a. er hann rekur gjafír Normanna til íslendinga: „Auk þess gáfu þeir okkur íslend- ingum hús á vinsælum ferðamanna- stað, sem mikið er notað." Ég geri ráð fyrir að hér sé átt við „íslend- ingahúsið" við Norfjell í Buskerud- fylki norðvestur af Oslo. Þar sem ég hef orðið var við þann misskiln- ing meðal margra Islendinga, að Norðmenn hafí fært íslendingum þetta hús að gjöf, vil ég koma hér leiðréttingu á framfæri. Hús þetta, sem er gamalt skólahús, er í eigu íslendingafélagsins í Osló. Það var keypt í árslok 1966 með peningum úr „húsbyggingasjóði" íslendinga- félagsins í Ósló. Sá sjóður hafði verið stofnaður 1923 fyrir tilstuðlan Ingimundar Eyjólfssonar, íslensks ljósmyndara sem búsettur var í Osló. Á næstu árum var safnað í þennan sjóð með ýmsum hætti. Þess ber þó að geta að 1927 hét Óslóborg nokkru framlagi í sjóðinn. Það var svo greitt er gengið var eftir því við kaup hússins 1966. Hússjóður þessi fór reyndar á nokk- uð flakk til íslands er Guðrún Bun- borg fékk hann lánaðan, en sú saga skal ekki rakin hér. Húsið var í mikilli niðurníðslu er það var keypt og þurfti_ mikilla breytinga við. Síð- an hafa íslendingar, búsettir í Ósló, gert miklar breytingar á húsinu og umhverfi þess, ýmist með sjálfboða- vinnu eða aðkeyptum iðnaðarmönn- um. Nokkur breyting og lagfæring var þó gerð af Rauðakrossi Noregs en þeir fengu húsið leigt til að hafa þar sumarbúðir fýrir böm frá Vest- mannaeyjum sumarið 1974. Var sú lagfæring gerð fyrir afnot af hús- inu. Þó að ég vilji ekki gera lítið úr vinskap og gjöfum frænda okkar, Norðmanna, vil ég koma þessum upplýsingum hér á framfæri í anda Ara fróða; að hafa heldur það er sannara reynist. Að öðru leyti vona ég að þessum þjóðum takist að semja um ágreiningsefni sín, eins og siðuðu fólki sæmir. KRISTJÁN E. GUÐMUNDSSON, Óðinsgötu 14a, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.