Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAU G ARDAGUR 9. JÚLÍ1994 27
BREF TIL BLAÐSINS
Stefnum að jákvæðum
og drengilegum
samskiptum
FRÉTTIR
Kátir dagar framundan
Þórshöfn. Morgunblaðið.
Frá Sveini Guðjónssyni:
MÉR ÞÓTTI vænt um að sjá í svar-
bréfi Haraldar Sturlaugssonar við
skrifum mínum um stuðningsmenn
Skagamanna nýverið, að ekki eru
allir Akurnesingar sáttir við leið-
indaatvik sem átti sér stað á áhorf-
endapöllum í Frostaskjóli á leik KR
og ÍA 24. júní sl. Reyndar átti ég
ekki von á öðru því það er auðvitað
laukrétt hjá Haraldi, að oftast eru
það nokkrir svartir sauðir sem
skemma fyrir öllum hinum. Ég vil
því leiðrétta þann misskilning að
ég hafí í bréfi mínu skellt skuldinni
á alla stuðningsmenn Skagamanna
enda veit ég af reynslu að í þeim
hópi eru margir góðir drengir og
skemmtilegt fólk. Tilgangurinn með
skrifum mínum var fyrst og fremst
sá, að vekja þá til umhugsunar sem
þarna áttu hlut að máli. Ég er líka
sammála Haraldi hvað varðar þátt
ákveðinna fjölmiðla í þessu máli og
tek heilshugar undir þau sjónarmið,
að í hópi blaðamanna er misjafn
sauður í mörgu fé.
Það er fátt skemmtilegra en að
fa'ra á völlinn þótt auðvitað geti
okkur fótboltaunnendum hlaupið
kapp í kinn í hita leiksins. Við ætt-
um þó að reyna að sameinast um
að láta ekki hatur eða illkvittni ná
yfirhöndinni. Það er engin goðgá
þótt leikmenn eða þjálfarar skipti
um félag. Það er þeirra mál og
þeir eiga að geta gert það án þess
að slíkt þurfi að hafa illindi í för
með sér, enda kemur alltaf maður
í manns stað.
Afskiptum mínum af þessu máli
er hér með lokið. Ég vil þó undir-
strika að tilgangurinn með skrifum
mínum var ekki sá að koma vissum
áróðri af stað um Akurnesinga. Ég
hef alla tíð borið mikla virðingu
fyrir knattspyrnuhefð Skaga-
manna, allar götur frá því er ég á
barnsaldri fór að fylgjast með Rikka
og félögum í harðvítugum, en jafn-
framt drengilegum viðureignum við
„mína menn“ á knattspyrnuvellin-
um. Vonandi verður atvikið á KR-
vellinum víti til varnaðar, ekki bara
fyrir viðkomandi stuðningsmenn
Skagamanna, heldur stuðnings-
menn allra félaga. Stefnum að já-
kvæðum og drengilegum samskipt-
um okkar í milli. Með því vinnum
við félaginu okkar og knattspyrn-
unni í heild mest gagn.
SVEINN GUÐJÓNSSON,
blaðamaður.
Menningarvaka sem ber heitið
„Kátir dagar við Langanes og Þistil-
fjörð“ er nýhafin á Þórshöfn og í
nærsveitum. Menningarvakan
stendur til sunnudagsins 10. júlí.
Reinhard Reynisson, sveitar-
stjóri, setti menningarvökuna en
þar verður ýmislegt verður til
skemmtunar. Má meðal annars
nefna kórsöng, málverkasýningar,
tóvinnusýningu, útimarkaði, tívolí
og margt fleira. Á laugardagskvöld
Þjóðminja-
dagurinn á
Arbæjarsafni
í TILEFNI þjóðminjadagsins 10.
júlí munu Margrét Hallgrímsdóttir,
borgarminjavörður og dr. Bjarni F.
Einarsson fjalla um fornleifarann-
sóknir í Viðey og Aðalstræti í máli
og myndum. Erindin heíjast kl.
15.30 í Komhúsinu.
Kl. 15 syngur Háskólakórinn
þjóðleg lög og er það í síðasta skipti
sem kórinn kemur fram á safninu
í sumar.
-----» *------
■ YFIR sjö þúsund gestir hafa
komið á samgöngusögusýninguna í
verður sælkerakvöld í félagsheimil-
inu, Þórsveri, þar sem sælkerar
geta glatt bragðlauka sína og endað
kvöldið á stórdansleik fram eftir
nóttu þar sem hljómsveitin Manna-
korn leikur fyrir dansi.
Krármenningin heldur innreið
sína í þorpið Erla Jóhannsdóttir og
Konráð Jóhannsson hafa opnað krá
sem nefnist Hafnarbarinn. Fram-
kvæmdastjóri undirbúningsnefndar
menningarvökunnar er Heiðrún
Óladóttir.
Geysishúsi í Reykjavík fram til
þessa og er það mesta aðsókn á
sýningu sem J>ar hefur verið haldin
frá upphafí. I tengslum við sýning-
una hafa verið útsýnisferðir í elsta
strætisvagni SVR á sunnudögum
kl. 13 og kl. 14. Á sunnudaginn
kemur verður komið við í Fjar-
skiptastöðinni í Gufunesi. Aðgang-
ur að sýningunni í Geysishúsi er
ókeypis og eins í skoðunarferðirnar.
■ FERJULEIÐIR í samvinnu við
Reykjavíkurhöfn standa fyrir sjó-
ferðum sunnudaginn 10. júlí frá
bryggju í Suðurbugt, neðan við
Hafnarbúðir. Ferðirnar taka um
þijá tíma hver. KI. 10 verður farið
í skemmtisiglingu um sundin blá
að eyjum á Kollafirði. Kl. 14 verður
farin skoðunarferð út í Engey. Kl.
22 verður farið út Engeyjarsund
og Hólmasund og að Akurey.
Útivist og
messuhald
í Viðey
GÖNGUFERÐ verður um Viðey á
laugardag, messa og síðan staðar-
skoðun á sunnudag. Tjaldstæði
verða leyfð í Viðey í sumar.
Það verður hefðbundin dagskrá
í Viðey um helgina. Að venju verð-
ur gönguferð á laugardag sem tek-
ur um eina og hálfa klukkustund.
Á sunnudag kl. 14 verður messa
í Viðeyjarkirkju. Sérstök bátsferð
verður með kirkjugestum kl. 13.30.
Eftir messu kl. 15.15 verður
staðarskoðun. Að henni lokinni mun
Örlygur Hálfdanarson veita leið-
sögn um ljósmyndasýningu í Við-
eyjarskóla. Síðan mun hann ganga
með gesti um rústir þorpsins á
Sundbakka.
RADAL'Gl YSINGAR
IÐUNN
• VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR •
Ertu atvinnulaus
eða vantar þig
meiri tekjur
Ef svo er gætum við á söludeild Iðunnar átt
erindi við. Við rekum kraftmikla söludeild,
sem náð hefur góðum árangri með þróun
nýrra aðferða við sölu og kynningu bóka.
Við viljum bæta við nokkrum sölumönnum í
þau verkefni sem nú eru í gangi.
Þetta gæti verið tækifæri fyrir þig.
Upplýsingar í síma 28787 í dag á milli kl. 14
og 17 og á morgun, Sunnudag, á sama tíma.
Matsveinn óskast
Vanur matsveinn óskast til starfa á vandað
og rótgróið veitingahús í Reykjavík.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar óskast sendar til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 14. júlí nk. merktar: „Vanur
matsveinn - 12794.“
Sjúkraþjálfarar!
Við sjúkrahúsið á Egilsstöðum er laus staða
sjúkraþjálfara frá 1. október nk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma
97-11386 eða 97-11073 á skrifstofutíma.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Vélstjórar
Vantar 1. vélstjóra á loðnubát.
Upplýsingar í síma 92-68107.
Sigluberg hf.
2ja herb. íbúð óskast
Tveir ungir skólapiltar að norðan óska eftir
að taka á leigu ódýra 2ja herb. íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu.
Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 96-27719 eftir kl. 15.00.
Einbýlishús við Mývatn
í Reykjahlíðarþorpi
Til sölu er einbýlishúsið að Birkihrauni 11.
Grunnflötur 174 fm, neðri hæð, 100 fm efri
hæð. Bílskúr 56 fm. Byggt 1982-’84. Eignin
telur: Á neðri hæð, 4 svefnherb., sjónv-
herb., stór stofa, eldhús, búr, 2 inngangar
og 2 snyrtingar. Efri hæð: Góð gistiaðstaða
fyrirferðafólk, þ.e. 3 rúmg. herb. ásamt setu-
stofu og eldunaraðstöðu.
Tilboðum óskast skilað fyrir 15. júlí nk.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar hjá Stefáni Þórhallssyni,
sími 96-44285, eftir kl. 16.00.
SmO auglýsingor
[Hallveigarstig 1 • sirni 614330
Dagsferðir sunnud. lO.júlí
Kl. 08.00 Hítardalur. Ekið I Hít-
ardal um Hvalfjörð og gengiö að
Hitarvatni. Til baka frá Akranesi
með ferjunni. Brottför frá BSÍ
bensinsölu, stansað við Árbæj-
arsafn og í Mosfellsbæ. Verð kr.
2.200/2.400.
Kl. 10.30 Lýðveldisgangan:
árið 1954. Ferðin hefst við Ing-
ólfstorg, rifjaðir upp atburðir
ársins 1954, siöan með Akra-
borginni upp á Skaga, þar sem
m.a. Byggðasafnið verður skoð-
að og farið í hressandi göngu
út frá bænum. Til baka með
Akraborginni.
Verð kr. 1.200/1.300.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 20.00. Raeöumenn Susan og
Gerald Nikirk.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur: Unglingasamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur: Bænasamkoma
kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Ferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 10. júlí:
1) Kl. 08.00: Þórsmörk - dags-
ferð. Verð kr. 2.700. Dvöl í Þórs-
mörk hjá Ferðafélaginu er ódýrt
sumarleyfi - kannið málið á skrif-
stofu F.l.
2) Kl. 09.00: Leggjabrjótur, göm-
ul þjóðleið. Gengið frá Þingvöll-
um sem leið liggur milli Búrfells
og Botnssúlna að Stóra Botni í
Hvalfirði. Verð kr. 1.200.
3) Kl. 13.00: Glymur i Botnsá -
Hvalfirði (hæsti foss landsins
198 m). Þægileg gönguleið upp
með Botnsá. Verð kr. 1.200.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörk-
inni 6.
Mánudag 11. júlíog
miðvikudag 13. júlf:
Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
2.700.
Ath.: Sumarleyfi í Þórsmörk er
sérstakt - ódýrt - ánægjulegt!
Kynnið ykkur hagstætt verð hjá
Ferðafélaginu.
Farmiðasala á skrifstofu F.f.
Ferðafélag íslands.
Þingvellir - Þjóðgarður
Gönguferðir og barna-
stundir um heigina
Laugardagur 9. júlf
Kl. 13: Ævintýri á gönguför:
Farið frá bílaplani neðan Öxarár-
foss. Náttúruskoðun með sögu-
ívafi. Tvær klst.
Kl. 14: Barnastund: Við Skálda-
reit austan Þingvallakirkju. Leikir
og listræn sköpun. Liðlega klst.
Kl. 14: Mínir Þingvellir: Sigurður
G. Tómasson fer um „sínar"
slóðir. Um tvær klst. Ferðin haf-
in á Þingplani (bílastæðið neðan
Almannagjár).
Kl. 17: Thingvellir - the sites
of the old Parliament. Guiding
in English. One hour. Starting
behind the Thingvellir Church.
Sunnudagur 10. júlí
Kl. 11: Barnastund i Hvannagjá.
Söngur, leikir, hugvekja. Klst.
Kl. 13: Gönguferð: Skógarkot og
Vatnskot. Farið frá Flosagjárbrú
(Péningagjá). Þrjár og hálf klst.
Kl. 14: Gönguferð: Vatnsbakki
Þingvallavatns, Vatnskot. Farið
frá Lambhagabílastæði. Þrjár klst.
Kl. 15: Gönguferð um Þing-
helgi: Farið frá Þingvallakirkju
og gengið um þingsvæðiö. Lið-
lega ein klukkustund.
Kl. 17: Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju.
Athugið að gönguferðir og
barnastundir verða aðeins ef
veður verður skaplegt. Þátttaka
í gönguferðum og barnastund-
um er ókeypis. Allar upplýsingar
og staösetningar fást í þjónustu-
miðstöð. Tjald- og veiðileyfi fást
einnig keypt þar.
Þjóðgarösvörður.