Morgunblaðið - 09.07.1994, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.07.1994, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir til allra er glöddu mig á afmœlisdaginn þann 3. júlí sl. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Veghúsum 31, Reykjavík. Tannlæknastofa Tannlæknastofan mín er flutt á Laugaveg 163, sími 20410. Ath. er ekki í símaskrá. Geymið auglýsinguna. Hreinn Aðalsteinsson, tannlæknir. Þingvallavatn Fólk, sem veiðir í Þingvallavatni, er vinsamlegast beðið um að hafa á sér gild veiðileyfi og geta sýnt eftirlitsmanni. Góða veiði og skemmtilega útivist. Stjórn veiðifélagsins og veiðieftirlitsmaður. Trjáplöntur - runnar Bjóðum eftirtaldar tegundir meðan birgðir endast á mjög lágu verði: Blátoppur kr. 190 Gljámlspill kr. 130 Blrki kr. 190 Hansarós kr. 350 Alparifs kr. 240 Runnamura kr. 290 Gljávíðir kr. 95 Viðja/Alaskavíðir kr. 69 Sunnukvistur Snjóber Berberis Reyniblaðka Aspir c10 Birkikvistur kr. 340 kr. 240, kr. 250 kr. 260 kr. 350 pr. metri kr. 290 Sýrennur, dverg- og fjallafurur með 25% afslætti. Sitkagreni og furur á sérstöku afsiáttarverði ásamt fjölda annarra tegunda. Verið velkomin! Trjáplöntusalan Núpum. Ölfusi. (beygt við Hveragerði). Símar 98-34388 og 98-34995. Trjáplöntur - runnar verðhrun Meðan birgðir endast bjóðum við eftirtaldar tegundir: Glæsitoppur kr. 310, rauðtoppur kr. 340, rifs kr. 450, broddhlynur kr. 490, álfur kr. 490, snækóróna kr. 450, sírennur kr. 490, blóðhöggur kr. 450, gullrifs kr. 330, sólber kr. 390, heggur kr. 450, sólbroddur kr. 330. Verið velkomin! Garðyrkjustöðin Grfmsstaðir, Heiðmörk 52, Hveragerði. Sími 98-34230. HVAMMSVÍK Útivistarparadís í Kjós Veiði, golf, hestaleiga, veitingar, útigrill, hlöðugrill og tjaldsvæði. Góðar gönguleiðir í fallegu landslagi sem liggur að sjó. Fjölbreytt dýra- og fuglalíf. Kynnist nátturunni í allri sinni dýrð, komið og finnið fyrir sumrinu í sveitinni. Aðeins 40 km. frá Reykjavík. ATH: Vegna mikillar aðsóknar sunnudaginn 10. júlí er uppselt í veiðina. Nánari upplýsingar og pantanir í síma 667023. - kjarni málsins! HVAMMSVIK I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 9-5 frá mánudegi til föstudags Póstþjónustan eða starfsmannahald ríkisins? GUÐRÚN Guðjónsdóttir hringdi og sagðist vilja fá skýr svör frá fjármála- ráðuneytinu eða póstþjón- ustunni í Kópavogi um það hverjum væri um að kenna að hún fengi ekki sendan heim launaseðil sinn, en hún er opinber starfsmað- ur. Þannig er mál með vexti að ekki hefur borist til hennar frumrit af launa- seðli og þegar hún fór að kanna málið hjá starfs- mannahaldinu á Sölvhóls- götu er henni sagt að allir seðlar hafi verið sendir út en líklega sé þar um að kenna póstburðarþjón- ustunni í Kópavogi. Þegar hún hafði svo samband við póstinn í Kópavogi er henni sagt að hafi þeir fengið seðlana senda frá fjármálaráðuneytinu væri búið að bera þá út, þannig að líklega hafi fjármála- ráðuneytið aldrei sent alla seðlana. Nú vill Guðrún fá skýr svör um það hvar launa- seðillinn hennar er og er orðin leið á þessum óskýru svörum hjá þessum tveim- ur stofnunum. Gæludýr Kettlingur óskast ÓSKA eftir kettlingi. Upp- lýsingar í síma 653918. Ingibjörg. Týndur köttur GRÁBRÖNDÓTT læða hvarf frá Laugalæk þriðju- daginn 21. júní sl. Hún er með gulbrúnar bröndur á fótum. Hún var með ól með merki um hálsinn, en gæti hafa týnt henni. Hafi einhvér orðið ferða hennar var er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 10169. Vakin er athygli á því að áður ■ hefur verið auglýst eftir þessum ketti og þá með mynd, en símanúmer- ið sem upp var gefið var ekki rétt. Tína er týnd BRÚNYRJÓTT tík með hvíta bringu, snögghærð og meðalstór, tapaðist frá Sandgerði fyrir tveimur vikum. Síðast sást til henn- ar í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Viti einhver hvað af henni hefur orðið er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 35316 Guðlaug, eða í síma 15463, Signý. Tapað/fundið Auglýst eftir Guðnýju GUÐNÝ sem hringdi sl. miðvikudag eftir auglýs- ingu í Velvakanda og sagðist hafa fundið gler- augu er vinsamlega beðin að hringja aftur í síma 78338. Kolbrún. Poki með ýmsu dóti HVÍTUR plastpoki sem í var ýmislegt dót, s.s. hand- klæði, pottaleppar, enskar bækur og segulstál á ís- skáp tapaðist líklega í strætisvagni nr. 12 eða 15 sl. miðvikudagskvöld. Finnandi vinsamlega hringi í síma 672154. Taska fannst SVÖRT og blá taska fannst fyrir utan Þórs- merkurrútu í Reykjavík sl. sunnudag. Upplýsingar I síma 658789. Lyklar töpuðust NOKKRIR lyklar á hring, þ.á m. bankahólfslykill, töpuðust 25. júní sl. Mögu- legir staðir eru við Espi- gerði 4, í Kringlunni eða í Foss vogskirkj ugarði. Finnandi vinsamlega hringi í síma 656528 eða vinnusíma 686322. Fund- arlaun. Reynir. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson ÞESSI STAÐA kom upp í viðureign tveggja Norð- manna á alþjóðlegu móti í Gausdal í vor. P. Stokstad (2.180) haðfí hvítt og átti leik, en alþjóðlegi meistarinn Ivar Bern (2.380) var með svart. stöðumynd 39. Hhxh7! — Del+og um leið og svartur lék þessum leik féll hann á tíma. Það breytti þó engu um úrslitin, því eftir 40. Kh2 er sama hvort hann tekur hrókinn á h7 eða drottninguna á e4. Hann er mát í báðum tilvik- um. Árlega eru haldin mörg alþjóðleg mót á háfjallahót- elinu í Gausdal. Næsta hrina hefst í lok júlí og er þess að vænta að Skákskóli Islands sendi nokkra unga og efni- lega skákmenn til leiks. COSPER Víkveiji "IVjóðhátíðarblaði Morgunblaðs- æt ins þann 17. júní síðastliðinn birtist heilsíðuauglýsing frá Mjólk- ursamsölunni undir fyrirsögninni „íslenska er okkar mál“. Var í textanum lögð á það áhersla, að Mjólkursamsalan vildi stuðla að málvöndun og málrækt og efla íslenska tungu í orði og verki. Framtaki eins og þessu ber að fagna. Fyrirtæki, félög og ein- staklingar eiga eftir mætti að hlúa að tungunni og leggja áherslu á gott málfar. Það skýtur hins vegar nokkuð skökku við, að nú fyrir skömmu birtist í Morgunblaðinu önnur auglýsing frá sama fyrir- tæki, þar sem kemur fram öllu minni ást og virðing fyrir móður- málinu en í hinni fyrri. Þar er fyrir- sögnin svohljóðandi: „Viltu kom- ast á „Kókó flipp til Köben“?“ Víkverji þykist nú skilja, við hvað er átt með þessari spurningu og vissulega má segja, að gælu- nafnið Köben hafi unnið sér hefð í talmáli. Hins vegar fer það illa á prenti, ekki sist þegar það er notað í sambandi við orðskrípi eins og „flipp“. Spyrja má forsvars- menn Mjólkursamsölunnar, sem auglýstu fyrir tæpum mánuði að íslenska væri þeirra mál, hvort þetta sé leið fyrirtækisins til að efla og styðja íslenska tungu. xxx Víkverji þarf blessunarlega ekki oft að leita sér læknisað- skrifar... stoðar. Þá sjaldan sem það gerist er honum stefnt ásamt fjölda ann- arra í byijun vinnudags á lækna- stofuna og þegar þangað er komið má hann bíða þar í þeirri röð sem sjúklingamir mæta á stofuna rétt í kringum umræddan opnunartíma stofunnar. Síðast þegar Víkveiji lenti í því að þurfa að leita læknis og mætti rétt í kringum opnunar- tímann voru nógu margir á undan honum til að hann þurfti að bíða nærri hálfa aðra klukkustund eftir að komast að. Sumir læknar eru meira að segja svo eftirsóttir að þegar til þeirra er leitað, kann læknaritar- inn að svara eitthvað á þá leið að svo margir séu þegar á biðlista að hætt sé að taka á móti og reyn- andi að byija panta tíma einhvem tiltekinn dag einhvem tíma allt að mánuði síðar. Þann ákveðna tíma tiltekinn dag verða sjúklingar að hringja án afláts við opnun í von um að tryggja sér tíma. xxx etta er auðvitað gjörsamlega úrelt og úr sér gengið fyrir- komulag. Þess vegna hvarflar það stundum að Víkveija að það kunni að hafa farið algjörlega framhjá læknastéttinni að þjóðfélagið hef- ur verið að breytast umtalsvert á síðustu árum og að okkar tímar hafa ekki einungis verið kenndir við upplýsingu heldur hefur einnig verið talað um samfélagsgerðina nú um stundir þjónustuþjóðfélag- ið. Það þýðir með öðrum orðum að viðskiptavinurinn er settur í öndvegi. Sjúklingar eru viðskipta- vinir læknanna. Þeim ætti þess vegna að bera skylda til að sýna tíma sjúklinga sinna tilhlíðilega virðingu og raða þeim niður á daginn nokkurn veginn í takt við þann tíma sem tekur að sinna hveijum sjúklingi að meðaltali. Tölvutæknin ætti þar fyrir utan að gera það kleift að ekki þurfi að etja saman einhveijum til- teknum fjölda sjúklinga eftirsótts læknis til að setjast við símtækið tiltekinn morgun, þar sem þeir reyna hver í kapp við annann að ná tíma hjá þeim hinum sama lækni. xxx Einhvem veginn hafa tann- læknar leyst þessi mál með mun neytendavinsamlegri hætti heldur en almennir læknar, og telst þó bókunarkerfí þeirra vart til fyrirmyndar á allan annan mælikvarða venjulegrar þjónustu- starfsemi. Það er því kannski tíma- bært að læknar fari að gefa gaum þeim fjölmörgu þjónustunám- skeiðum sem á boðstólum eru í nútíma samfélagi og fari að aðlaga sig slíkum þankagangi þegar í háskólanámi, líkt og flestar aðrar starfsgreinar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.