Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 30

Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Julian er farið að lengja eftir milljörðunum sinum. Julian á í deilum við Yoko JULIAN Lennon og Yoko Ono eiga í miklum deilum um rúmlega fimm- tán milljarða eignir Johns Lennon heitins sem hann ánafnaði sonum sínum, Julian og Sean. Julian segist hafa átt að fá sinn hlut þegar hann næði þrítugsaldri en þrátt fyrir að vera orðinn 31 árs gamall, hann enn ekki séð sinn hluta af peningunum. í erfðaskránni var orðalagið afar loðið. Það var eitt- hvað á þann veg að Julian ætti að fá arfinn í sinn hlut þegar hann væri orðinn nægilega þroskaður. Lögfræðingar Yoko Ono segja að Julian hafi beðið um það á sínum tíma að hún passaði upp á pening- ána þar til hann yrði 35 ára gam- all, en hann hlær að því og segist hafa beðið um þá þegar á 25 ára afmæli sínu. John Lennon og Yoko Ono. Bannlögin bönnuð var öfunduð í æsku ► Mira Sorvino var öfunduðí æsku af því að vera dóttir leik- arans Paul Sor- vino. „Mér fannst það ekk- ert sérstakt sjálfri. En ef að ég sagði vinum mínum frá því að við hefðum verið sótt í lúx- us-bifreið og farið á frumsýningu og... þá var ég hötuð af öllum.“ ► PEARL Jam, Soundgarden og bassaleikari hljómsveitar- innar Nirvana voru drifkraftur- inn á bak við árangursríka bar- áttu gegn lögum Washington- fylkis, sem kváðu á um það að „dónaleg" tónlist fengi sérstaka merkimiða í plötubúðum. Sam- kvæmt lögunum átti ekki að spila tónlistina nema á stöðum sem væru einskorðaðir við full- orðið fólk og krakkar máttu ekki kaupa nema þeir sýndu skírteini sem sannaði að þeir væru nógu gamlir. Hæstiréttur Bandaríkjanna skar úr um að lögin, sem eru frá árinu 1992, stönguðust á við stjórnar- skránna. Tónlistareftirlitið hef- ur ekki gefist upp og hefur lýst því yfir að það muni koma í gegn endurskoðaðri útgáfu af lögum sem muni banna tónlist- ina aftur. Hljómsveitin Soundgarden, baráttunni er ekki lokið. FOLK Wayne og Garth um Björk þegar þeir völdu hana sem eina af TOP TEN MUCICAL BABES: „Strangely-monickered lcelandic babe in toyland. I'm sorry she's just not human. She's either an alien or an animatronic puppet created by Jim Henson's Creature Workshop. Garth says he'd like to Bjork her. I assume it was a suggestive reference to sexual intercourse." FÓLK í FRÉTTUM Deborah Harry samn- ingslaus ► DEBORAH Harry sem sló í gegn á sínum tíma með hljóm- sveitinni Blondie er samningslaus í dag. Samningur hennar við plötu- fyrirtækið Chry- salis var til sextán ára og er runninn út. Á tónleikum Síðasta plata með Blondie hennar nefndist árið 1978. „Debravation“ og seldist aðeins i 14.000 eintökum, þrátt fyrir að hún næði 24. sæti á vinsældarlist- um. Tónlistarmyndband við lag hennar „Strike Me Pink“ var ekki tekið til sýninga á sjón- varpsstöðvum, en þar söng Harry við hliðina á fiskabúri með drukknandi manni. „Jafnvel sjónvarpsþættir sem sýndir voru síðla nætur, vildu ekki taka mynd- bandið til sýn- inga,“ útskýrir talsmaður Chrysalis. Hann segir þó að henni hafi ekki verið sagt upp, heldur séu samn- ingavið- ræður í gangi. David Bowie lærði af Little Richard David Bowie var ekki hár í loftinu þegar hann ákvað að verða rokk- risi. ► DAVID Bowie segist hafa ákveðið hvað hann ætlaði að gera í framtíðinni þegar hann var átta ára gamall. „Faðir minn kom heim með fullt af plötum og sagði mér að velja og ég valdi nokkrar úr. Þar af var ein með Little Richard og eftir að hafa hlustað á hana var framtíðin ráðin. Ég hugsaði mér sjálfum mér „Guð, mig langar til að gera það sama og hann“. Reyndar var draumur minn þegar ég var níu eða tíu ára gamall að vera einn af saxafónleikurunum í hljómsveitinni hjá honum og um það leyti fékk ég fyrsta saxafóninn minn. Það var fall- egur Selmer-saxófónn og ég vann hjá slátraranum í hverf- inu sem sendisveinn til að borga fyrir HLAUPARARNIR forðuðu sér á harða- hlaupum undan nautshornunum. Það tókst þó ekki alltaf. A þessari mynd sést einn hlauparinn sýna mikla fífldirfsku þegar hann grípur um horn nautsins á hlaupum. ÞAU voru ekki árennileg nautin sem voru í hlaupinu. Mannfall í nautahlaupi EINN maður lést og fjórir slösuðust í nautahlaupi sem fram fór í bænum Pamplona á Spáni. Spánveijinn Jose Maria Luna var stangaður í kviðinn og lést á spítala eftir að hafa gengist undir aðgerð. Þetta var fyrsta nautahlaupið af átta sem eru á dagskrá og eru þau hluti af hátíðarhöldum bæjarins, sem Emest Hemingway gerði víðfræg með skáldsögu sinni „The Sun Also Rises“. Þijátíu og níu voru fluttir á spítala eftir að hafa stokkið af fimm metra hárri girðingu og var það líka hluti af hátíðarhöldunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.