Morgunblaðið - 12.07.1994, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 C 3
HJOLREIÐAR
Indurain
kominn á
toppinn í
„Túmum“
SPÁNVERJINN Miguel Indura-
in náði forystu í Frakkiand-
skeppninni í hjólreiðum í gær,
þegar hann sigraði með yfir-
burðum í 64 km langri tíma-
keppni. Hann kom í mark
tveimur mínútum á undan
næsta manni, Tony Rominger,
og hefur nú tæplega tveggja
og hálfrar mínútu forskot i
heildarkeppninni.
Mér leið vel og ég gerði það
sem ég gat, en Miguel er
einfaldlega sterkari en ég og það
eina sem ég get gert er að kyngja
því,“ sagði Tony Rominger þegar
úrslitin voru ljós. Eina von Romin-
ger eru fjöllin, en þar segist hann
líklega vera aðeins sterkari.
Indurain blés á allar gagnrýnis-
raddir með frammistöðunni í gær
og var ánægður. „Tímabilið byijaði
erfiðlega hjá mér og ég var ekki
alveg í toppformi þegar keppnin
byijaði, en nú er ég kominn í gang,“
sagði Indurain
7. leggur laugardag:
259 km frá Rennes til Futuroscope klst.
1. Jan Svorada (Sló.) Lampre.....5:56.50
2. D. Abdopjaparov (Úsb.) Polti
3.0. Ludwig(Þý.)Telekom á sama tíma
8. leggur laugardag:
218,5 km frá Poitiers til Trelissac klst.
1. Bo Hamburger (Da.) TVM........5:09.27
2.A. Camargo(Kól.)Kelme....l sek. á eftir
3. Rolf Aldag (Þý.) Telekom.......5
9. leggur mánudag:
64 km tímakeppni frá Perigueux til
Bergerac klst.
1. Miguel Indurain (Sp.) Banesto.1:15.58
2. T. Rominger (Sv.) M.Clas.2 m. á eftir
3. A.De Las Cuevas (Fr.) Castorama.4.22
4. Thierry Marie (Fr.) Castorama...4.45
5. Chris Boardman (Br.) Gan....5.27
6. Bjarne Riis (Da.) G.Ballan..5.33
7. Thomas Davy (Fr.) Castorama.....5.35
8. Abraham Tolano (Sp.) Mapei Clas.5.45
9. Arturas Kasputis (Ut.) Chazal...6.01
10. PiotrUgrumov (Let.) G.Ballan.6.04
Staðan eftir níu leggi: klst.
1. Miguel Indurain (Sp.) Banesto....41:19.13
2. T.Rominger (Sv.)M.C.2.28 m.á eftir
3. A.De Las Cuevas (Fr.) Castorama.4.40
4. Gianluca Bortolami (ít.) Mapei Clas...5.47
5. Thierry Marie (Fr.) Catorama...5.51
6. Thomas Davy (Fr.) Castorama....6.04
7. Christopher Boardman (Br.) Gan.6.06
8. Sean Yates (Br.) Motorola......6.30
9. Abraham Olano (Sp.) Mapei Clas.6.31
10. Lance Armstrong Motorola......6.35
11. BjarneRiis (Da.) G.Ballan.....6.40
12. D. Abdoujaparov (Úsb.) Polti..6.45
13. J.Museeuw (Be.) GBMG..........6.46
14. Flavio Vanzella (ít.) GBMG....6.59
15. Piotr Ugrumov (Let.) G.Ballan.7.08
16. Luc Leblanc (Fr.) Festina.....8.37
17. Andrea Peron (ít.) Polti......9.10
18. V. Ekimov (Rú.) Wordperfect...9.21
19. Vladimir Poulnikov (Rú.) Carrera....9.40
20. Enrico Zaina (ít.) Gewiss-Ballan..9.41
Reuter
í þá gulu
MIGUEL Indurain náði topp-
sætinu í Frakklandskeppninni í
hjólreiðum í gær, og bregður
sér hér í gulu treyjuna sem sá
kiæðist, sem hefur forystu.
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA / HM
Varamenn brasilíska landsliðsins fagna Branco, sem er fyrir miðri mynd, eftir frábært sigur-
mark hans með föstu skoti beint úr aukaspyrnu gegn Hollandi á laugardaginn.
Brasilía leikur ekki
evrópska knattspymu
- segir þjálfari Brasilíumanna, Carlos Alberto Parreira
CARLOS Alberto Parreira, þjálfari Brasiliu, furðar sig á skiln-
ingsleysi fólks, sem stöðugt klifar á því að Brasilía leiki ekki
eins og áður heldur hafi aðlagað leik sinn að því sem við-
gengst í Evrópu. „Hér er ótrúiega mikill misskilningur á ferð,“
sagði hann eftir 3:2 sigur Brasilíu gegn Hollandi íátta liða
úrslitum. „Við höfum aldrei leikið eða reynt að leika evrópska
knattspyrnu. Við spilum með fjóra íflatri vörn, höldum boltan-
um á jörðinni, erum ekki með „svíper“ og forðumst iangar
sendingar. Eg skil ekki hvernig
þessu ekki.“
arreira er þegar kominn
lengra með lið Brasilíu en
tekist hefur síðan 1978, en engu
að síður hefur hann þurft að sitja
undir stöðugri gagnrýni og spurn-
ingum vegna leikskipulagsins.
„Eins og öll önnur lið, sem komu
hingað, viljum við sigra, verða
heimsmeistarar, og það gerum við
ekki nema með því að gefa mót-
heijunum ekki frið, þegar þeir eru
með boltann. Tilfellið er að það
er stöðugleiki í liðinu. Við leikum
ekki leiðinlegan fótbolta og förum
í hvern leik með því hugarfari að
sækja.“
Helsta vandamál Brasilíu í
keppninni hefur verið hugmynda-
því stendur að fólk nær
leysi á miðjunni, sem kom berlega
í ljós gegn Hollendingum. Enginn
miðjumannanna átti beint þátt í
mörkunum og liðið stendur og fell-
ur með miðheijunum Bebeto og
Romario, sem hafa gert sjö af 10
mörkum Brasilíu í keppninni til
þessa. Reyndar kvartaði Romario
yfir því í síðustu viku að hann
þyrfti oft að sækja boltann aftur
á miðjuna. í síðustu tveimur leikj-
um hefur Mazinho tekið stöðu Rai
fyrirliða á miðjunni, en það hefur
ekki bætt miðjuspilið og Parreira
neyðist sennilega til að breyta aft-
ur og láta fyrrum fyrirliðann byija
í undanúrslitunum á morgun.
„Einhverra hluta vegna eru ekki
til nógu margir frábærir miðju-
menn í Brasilíu um þessar mund-
ir,“ sagði Parreira.
Brasilía hefur státað af frábær-
um miðjumönnum í gegnum tíð-
ina, mönnum eins og Gerson, Zico,
Socrates og Rivelino, en þrátt fyr-
ir að vera ekki með jafnoka þeirra
hefur liðið sýnt mikjnn baráttuvilja
og gott skipulag. í undanförnum
HM-mótum hefur liðsandinn ekki
alltaf verið upp á það besta, fyrst
og fremst vegna deilna um pen-
ingagreiðslur fyrir árangur, en
Parreira er stoltur yfir því að nú
er ekki um nein slík vandamál að
ræða. „Við höfum sýnt að sigur-
viljinn er fyrir hendi og við höfum
kraftinn til að rífa okkur upp eins
og sést hefur í þremur leikjum.
Við vorum undir gegn Svíum en
náðum að jafna metin, okkur tókst
að bijóta ísinn með 10 mönnum
gegn Bandaríkjamönnum og rétt-
um úr kútnum gegn Hollending-
um. Mörg lið hefðu brotnað eftir
að hafa misst niður tveggja marka
forystu."
Búlgarir
mæta enn
fyrrum
meisturum
Búlgaría hefur haft betur gegn
fyrrum heimsmeisturum
Þýskalands og Argentínu í HM og
mætir næst fyrrum heimsmeisturum
Ítalíu í undanúrslitum. „Við eigum
mikla möguleika á sigri gegn liði
Ítaiíu, því það er ekki eins gott og
lið Þýskalands," sagði Borislav
Mihailov, markvörður og fyrirliði
Búlgaríu. Varamaðurinn Ivaylo
Yordanov, sem kom inn á fyrir
Hristo Stoichkov, gegn íjóðveijum
á sunnudaginn vegna þess að hann
var kominn með gult spjald, sagði
að Þjóðveijar hefðu vanmetið mót-
heijana. „Þjóðveijar voru hræddir
við okkur, en það er engin spurning
að við vorum betri. Nú höfum við
sigrað tvö heimsmeistaralið og bíð-
um eftir því þriðja.“
Stoichkov og Emil Kostadinov
hafa verið mjög öflugir í fremstu röð
hjá Búlgörum í keppninni, en Yordan
Lechkov og Krasimir Balakov hafa
sprungið út og verið mikilvægir
hlekkir. Penev þiálfari sagði að
þekking Lechkovs á þýsku leikmönn-
unum hefði haft mikið að segja, en
Lechkov leikur með Hamborg. „Frá
því að undankeppnin hófst höfum
við reynt að byggja liðið í kringum
leikmenn, sem leika með erlendum
liðum,“ sagði þjálfarinn, sem lék 90
landsleiki fyrir Búlgaríu.
Framan af keppninni í Bandaríkj-
unum gengu tröllasögur um ósætti
í landsliðshópi Búlgaríu; þar væri
hver höndin upp á móti annari og
Stoichkov réði nánast öllu, jafnvel
því hvernig liðið væri skipað. Hann
bar þetta til baka, og Letchkov, sem
gerði sigurmarkið um helgina, segir
andrúmsloftið í herbúðum Búlgaríu
gott. Leikmenn hafa m.a.s. verið
mjög fijálsir og hafa fagnað sigrum
vel og lengi fram eftir nóttu, þar sem
dreypt hefur verið á áfengi í meira
magni en flestar telja heppilegt við
þessar kringumstæður. „Aður fyrr
fengum við aldrei að fagna svona,
en nú erum við frjálsir og líður vel,“
sagði Letchkov.
Opið bréf til Ung-
mennafélags íslands
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi bréf til Ungmennafélags
íslands frá Bryndísi Ólafsdóttur
sundkonu, með ósk um birtingu:
„Ástæða þess að ég sting niður
penna á íþróttasíðu Morgunblaðs-
ins er sú að Ungmennafélag ís-
lands meinar mér að keppa á
Landsmóti þess sem haldið verður
á Laugan/atni.
Til grundvallar ákvörðun sinni
segja talsmenn UMFÍ að þar sem
ég æfí íþróttagrein mína, sund,
með félagsliði í Reykjavík en ekki
með gamla félaginu mínu, HSK í
Þorlákshöfn, hafí ég fyrirgert rétti
mínum til að ljá síðarnefnda félag-
inu lið. Þetta tel ég vera fráleitt
og vísa til svokallaðrar eins-mán-
aðarreglu Sundsambands Islands
en skv. henni er sundmönnum
heimilt að færa sig milli félaga
með eins mánaðar fyrirvara, en á
þeim tíma, þessum eina mánuði,
er viðkomandi sundmanni óheimilt
að keppa. Þetta virðist UMFÍ ekki
viðurkenna og tel ég þá afstöðu
ósanngjarna og í raun vanhugs-
aða. Greinilegt er að UMFI virðir
ekki reglur sérsambanda Íþrótta-
sambands íslands og finnst mér
það rangt!
Afreksmenn í íþróttum, sem búa
úti á landi við upphaf ferils síns,
verða oft að leita þjálfunar út fyr-
ir heimahérað ef ekki er aðstaða
þar eða þjálfarar sem íþróttamað-
urinn telur að geti fullnægt þörfum
sínum. í mínu tilfelli, en ég er í
landsliðinu í sundi, á ég engra
kosta völ annarra en þeirra að æfa
í Reykjavík. Til þess þarf ég áð
æfa með einhveiju félagsliðanna í
Reykjavík, og eðlilega tekur ekkert
lið við sundmanni utan af landi án
þess að óska þess að hann gerist
félagi í viðkomandi liði. Fyrir því
liggja margar ástæður sem ég tel
ekki rétt að tíunda hér en í mínu
tilviki hóf ég að synda hjá Sundfé-
laginu Ægi og kemur það nú í veg
fyrir að ég geti ljáð HSK liðsinni
mitt á Landsmótinu.
Ég tel þetta vera mjög ósann:
gjarna afstöðu af hendi UMFÍ
vegna fyrrgreindrar eins-mánað-
arreglu en þó ekki síst vegna þess
að ég of systkini mín höfum ætíð
litíð á okkur sem félaga í HSK
þótt við höfum þurft að æfa ann-
ars stðar um skeið. Spyija má
hvort refsa eigi íþróttamönnum af
landsbyggðinni sem æfa í Reykja-
vík? Einnig má spyija hvort hags-
munum íþróttanna sé þjónað á
réttan hátt með afstöðu eins og
þeirri sem ég hef lýst hér í þessu
stutta greinarkorni.
Bryndís Ólafsdóttir. “
HVAMMSVIK
Golfparadís í Kjós
Opið golfmót fyrir þá, sem eru með forgjöf 20
og hærri, verður haldið í Hvammsvík laugar-
daginn 16. júlí og hefst kl. 9.00 f.h.
Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar.
Stórglæsileg verðlaun, m.a. Slazinger golfsett,
Goretex golfskór, Goretex peysur og fleira frá
golfverslun Sigurðar Péturssonar. Ameríkuferð
eða ferð með Flugleiðum til annarra áfanga-
staða þeirra fyrir þann, sem fer holu í höggi á
9. braut.
Skráning í síma 667023. Mótsgjald kr. 1.500
fyrir manninn. Golfarar, takið fjölskylduna með.
Góð aðstaða til útivistar á staðnum s.s. veiði,
hestaleiga, úti- og innigrill o.fl. Veitingasala.
Hægt er að spila til forgjafar í Hvammsvík.
Ath: Kylfingar þurfa ekki að vera skráðir í golf-
klúbbum.
.HVAMMSVIK .
vmn «l.nu ♦ HJMAUH.A * UliVHU
Allar nánari
Blab allra landsmanna!
-kjarnimálsins!