Morgunblaðið - 12.07.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR12. JÚLÍ 1994 C 11
MEISTARAMÓT GOLFKLÚBBAIMIMA KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Frosti B. Eiðsson
Þórleifur Karlsson og Andrea Ásgrímsdóttir ánægð eftir sigurinn í meistaraf lokkum hjá Golf-
klúbbi Akureyrar enda full ásæða til því þau eru ung og eiga f ramtíðina fyrir sér.
Þórlerfur skaut þeim
eldri aftur fyrir sig
NÍTJÁN ára kylfingur, Þórleifur Karlsson, skaut eldri og reynd-
ari mönnum aftur fyrir sig á Akureyrarmótinu, Meistaramóti GA,
sem lauk á laugardag. Þórleifur lék hringina fjóra af miklu ör-
yggi og kom inn á 297 höggum. Hann hafði fimm högga forskot
á þá Viðar Þorsteinsson og Björn Axelsson fyrir sfðasta hringinn
og í lokin munaði níu höggum á Þórleifi og Viðari, sem hafnaði
íöðru sæti. Gamla kempan Björgvin Þorsteinsson, margfaldur
íslandsmeistari, sem er bróðir Viðars, klifraði upp úrsjöunda
sætinu í það þriðja lokadaginn, þegar hann lék á pari vallarins,
71 höggi og kom inn á 308 höggum.
Eg hef oft náð góðu skori á ein-
stökum hringjum en aldrei
leikið sjötíu og tvær holur svona
fsggggggggg vel. Ég er kannski
Frosti B ánægðastur með
Eiðsson það hve j afnir hring-
skrifar frá imir voru og að ég
Akureyri skyldi ekki leika
neinn þeirra á yfir 75 höggum,"
sagði Þórleifur í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég get ekki þakkað sig-
urinn auknum æfingum, ég æfí
ekki meira en í fyrra en höggin eru
beinni í sumar, það eru helst púttin
sem ég hef átt í vandræðum með,“
sagði meistarinn.
Tólf kylfmgar reyndu með sér í
meistaraflokki, þar af fjórir með
meistaraflokksforgjöf, fjóra eða
minna. Meistari síðustu tveggja
ára, Sigurpáll Sveinsson, var í
keppnisferð með unglingalandslið-
inu og því ófær um að veija titil
sinn.
Aðeins tvær stúlkur kepptu í
meistaraflokki kvenna. Andrea Ás-
grímsdóttir varð öruggur meistari
á 330 höggum en keppinautur
hennar, Erla Adolfsdóttir með sext-
án höggum meira. „Ég spilaði nær
ekkert í fyrra en í ár hefur mér
gengið mjög vel,“ sagði meistari
kvennaflokksins eftir mótið. Kepp-
endur voru alls um eitt hundrað
talsins í tíu flokkum og hafa ekki
verið færri á síðustu árum.
■ Úrslit / C14
Morgunblaðið/Frosti B. Eiðsson
Þrjár kynslóðir
ÞRJÁR kynslóðir kylfinga í Hafnarfirði. Önnur frá vinstri, í hvítri
treyju, er Kristín Pálsdóttir, þá meistarinn Þórdís Geirsdóttir og
til hægrf er Ólöf María Jónsdóttir, sem sá af titilinum til Þórdísar.
Þórdís endurheimti
titilinn hjá Keili
órdís Geirsdóttir endurheimti
titilinn í meistaraflokki
kvenna hjá Keili í Hafnarfirði. Þetta
var í ellefta sinn sem Þórdís hrósar
sigri, þeim fyrsta fagnaði hún árið
1980, en í fyrra sigraði hin unga
Anna María Jónsdóttir.
„Það er ekki hægt að láta ungu
stelpurnar sigra mörg ár í röð,“
sagði Þórdís eftir sigurinn. „Annars
hef ég ekki æft nógu mikið, enda
mjög erfitt þegar maður er með
þijá grislinga. Einhver verður að
hugsa um börnin,“ sagði hún.
Þórdís átti tvö högg á Ólöfu
Maríu eftir fyrsta dag keppninnar
og næsta hring léku þær báðar á
76 höggum þannig að enn munaði
tveimur höggum. A þriðja degi jók
Þórdís forystu sína um sex högg
og sigurinn því nokkuð öruggur
enda tapaði hún aðeins einu höggi
síðasta daginn og sigraði með sjö
höggum.
„Eg spilaði ágætlega alla dagana
nema þann síðasta. Ég setti smá
pressu á sjálfa mig og stefndi að
því að leika á undir 300 höggum
allt mótið en klúðraði því síðasta
daginn með því að leika á 79 högg-
um,“ sagði hin sigursæli kylfingur
úr Hafnarfirði.
0\
Morgunblaðið/Golli
Björn Knútsson athugar með
flug boltans undir lok mótsins.
Bikarinn í karlaflokki skipti einn-
ig um hendir. Úlfar Jónsson hefur
varðveitt hann en það kemur í hlut
Björns Knútssonar að geyma hann
næsta árið. Björn lék á 276 högg-
um, fimm höggum færra en Björg-
vin Sigurbergsson sem varð í öðru
sæti. Þetta er í fysta sinn sem Björn
verður klúbbmeistari Keiiis.
UMFG er í efsta sætinu...
Grindvíkingar eru á toppnum í
2. deild með hagstæðari
markamun en Leiftur frá Ólafs-
firði, eftir góðan sig-
Frímann ur á Þrótti frá Nes-
Ólafsson kaupstað 5:0.
skrifar frá „Maður getur
Grmdavik náttúrlega ekki ann-
að en verið ánægður með þennan
leik því strákarnir spiluðu góðan
fótbolta. Við erum komnir á toppinn
og ætlum okkur að vera þar,“ sagði
Pálmi Ingólfsson aðstoðarþjálfari
Grindvíkinga eftir leikinn.
Þrátt fyrir stóran sigur er ekki
þar með sagt að yfirburðir Grind-
víkinga hafi verið slíkir að þeir
hefðu átt að sigra með fímm marka
mun. Helsti munurinn á liðunum
var að Grindvíkingar nýttu færin
sem þeir fengu en Þrótturum voru
mjög mislagðar hendur í sókninni.
Einnig spiluðu Grindvíkingar mun
betur í vörninni en vörn gestanna
var mjög illa á verði í leiknum.
Haukur Bragason átti góðan leik
í marki Grindvíkinga en þeir Ingi
Sigurðsson og Grétar Einarsson
voru sprækir í framlínunni og skap-
aðist ávallt hætta þegar þeir voru
með boltann. Grétar er í miklu stuði
þessa dagana og skorar nánast í
hveijum leik. Þróttarar áttu ekki
góðan dag og var Sveinbjörn Há-
konarson þjálfari og leikmaður
þeirra ekki ánægður með sína
menn. „Menn unnu ekki eins og
fyrir þá var lagt en sigur Grindvík-
inga var allt of stór miðað við gang
leiksins. Mér fínnst samt leiðinlegt
að sjá hve mikla virðingu dómarar
virðast bera fyrir Lúkasi Kostic í
leikjum og ég er ekki einn um þá
skoðun,“ sagði hann í leikslok.
iviurguiiuiauiu/ uuui
Gunnar Gunnarsson, Þróttari, I baráttu viö Leiftursmennina
Mark Duffield, sem liggur á vellinum, og Einar Einarsson.
...en Leiftur jafn að stigum
Stefán
Stefánsson
skrífar
Eg er þokkalega sáttur við þessi
úrslit þó að við hefðum fengið
mörg færi á að skora fleiri mörk.
Við byijuðum vel en
vorum síðan alveg á
hælunum, sagði Páll
Einarsson úr Þrótti,
þegar lið hans gerði
1:1 jafntefli við Leiftur frá Ólafs-
firði í Sæviðarsundinu á laugardag-
inn. „Okkur var spáð slakri útkomu
og jafnvel falli í sumar en sýndum
að við erum ekkert slakari en Leift-
ursmenn. Úr því sem komið er,
ætlum við upp í fyrstu deild,“ bætti
Páll við en hann var bestur Þrótt-
ara í leiknum.
Heimamenn byijuðu af meiri
krafti og úr þriðja góða færinu sínu,
á 15. mínútu, skaut Óskar Árnason
óvænt utan teigs beint upp í efra
markhornið þegar Þorvaldur Jóns-
son markvörður Leifturs svaf á
verðinum. Eftir markið tóku Ólafs-
firðingar sig á og sóknir þeirra
þyngdust stöðugt þó Þróttara ættu
sín færi. Eftir þvögu inní vítateig
Þróttara á 26. mínútu sló Theódór
Jóhannsson boltann og dómarinn
dæmdi umsvifalaust vítaspymu
sem Pétur B. Jónsson skoraði úr.
Eftir markið dofnaði mikið yfir
leiknum og síðari hálfleikur var lít-
ið fyrir augað nema undir lokin
þegar menn mundu eftir mikilvægi
stiganna sem í boði vom. Að vísu
skallaði Gunnar Már Másson í mark
Þróttara í síðari hálfleik en dómari
leiksins var ekki í neinum vafa þeg-
ar hann dæmdi bakhrindingu á
Gunnar Má.
Þróttarar áttu fleiri færi og hefðu
með smáheppni getað gert útum
leikinn. Eins og áður sagði var
Páll þeirra besti maður, sívinnandi,
og Ágúst Hauksson varnaijaxl .stóð
að venju fyrir sínu.
„Okkur tókst ekki að komast af
stað og vorum á hælunum til að
byija með. Talsverður taugatitring-
ur var í báðum liðum því hvorugt
mátti við því að tapa stigum og
menn tóku eins litla áhættu og
hægt var,“ sagði Páll Guðmundsson
sem ásamt Einari Einarssyni var
besti maður Leifturs.
Enn sigrar Breidablik
BLIKASTÚLKUR héldu sigur-
göngu sinni áfram f 1. deildinni
þegar þær lögðu Stjörnustúlk-
ur að velli í Garðabænum á
laugardaginn með tveimur
mörkum gegn engu. Olga Fær-
seth skoraði bæði mörk Blika-
stúlkna og var hársbreidd frá
því að ná þrennu f leiknum.
Leikurinn var ekki nema sex
mínútna gamall þegar fyrsta
markið leit dagsljósið. Blikastúlkur
geystust upp miðj-
Guðmundur una, og eftir nokk-
Helgi urt hnoð við mark-
Þorsteinsson teiginn barst boltinn
skrilar fyrir fætur Olgu
Færseth sem þakkaði pent fyrir sig
og skoraði með hnitmiðuðu skoti.
Eftir því sem leið á hálfleikinn
komust Stjörnustúlkur meira inn í
leikinn, og þær virtust staðráðnar
í að jafna. Vörn Blikastúlkna var
hins vegar föst fyrir, og stóð af sér
öll áhlaup með Vöndu Sigurgeirs-
dóttur í fararbroddi, en hún var
öryggið uppmálað.
A 55. mínútu lagði Ásta B. Gunn-
laugsdóttir upp seinna mark Blika-
stúlkna eftir að hafa brotið sér leið
að endamörkum vítateigs Stjörn-
unnar. Þar náði hún að senda hár-
nákvæma sendingu á Olgu Færseth
sem var ein og óvölduð inn í mark-
teig og gat ekki annað en skorað.
Eftir markið dró smá saman af
Stjörnustúlkum og gestirnir voru
mun nær því að bæta við mörkum.
Sigur Breiðabliks var aldrei í hættu.
Þær voru kraftmeiri og einokuðu
miðjuna á köflum þar sem Margrét
Ólafsdóttir og Katrín Jónsdóttir létu
til sín taka, en hjá Stjörnunni áttu
systurnar Guðný og Gréta Guðna-
dætur ágæta spretti inn á milli.
■ Úrslit / C14
■ Stöður / C14