Morgunblaðið - 12.07.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKSTURSÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 C 13
■ GUNNAR Egilsson frá Selfossi
náði forystu í torfærunni í Jósepsd-
al. Hann er skipstjóri á eigin bát,
rekur bátaútgerð og er einn tilþrifa:
mesti ökumaður torfærunnar. í
áhorfendabæklingi keppninnar sagði
að hann væri stundum lofaður, ann-
ars frátekinn.
FOLK
,, Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Á flugi
ÍSLANDSMEISTARIIMN Gisli G. Jónsson fórnaði öllu til að ná
árangri og uppskar sigur í jafnri keppni. Sigurinn kostaði hann
þó kollsteypu í síðustu þrautinni, eins og sjá má á myndinni til
hægri. Árni Pálsson, sem er á myndinni að ofan, djarflega, en
skemmdi jeppa sinn illa eftir þetta stökk upp erfitt barð.
Loftfímleikar í Jósepsdal
r
Hrikaleg tilþrif í harðri keppni um Islandsmeistaratitilinn ítorfæru
FIMM ökumenn börðust af
mikilli hörku um efstu sætin i'
sérútbúna flokknum í torfæru-
keppni í Jósepsdal á laugar-
daginn. Keppnin skipti sköpum
fyrir nokkra ökumenn vegna
íslandsmótsins, m.a. varð ís-
landsmeistarinn Gísli G. Jóns-
son að vinna til að bæta slæma
stöðu sína í mótinu. Honum
tókst ætlunarverk sitt, vann
sigur, en ekki fyrr en eftir hrika-
leg tilþrif nokkurra ökumanna
sem iögðu allt í sölurnar til að
ná árangri. Velturnar og stökk-
in skiptu líka tugum f keppn-
inni. Með sigri íflokki götu-
jeppa er Ragnar með fullt hús
stiga, 80 stig til meistara, en
Kjartan Guðvarðarson er með
60 stig.
Urslitin í flokki sérútbúinna jeppa
eru engan vegin ráðin og það
sást á aksturslagi þeirra bestu.
■■■■■■ Mörgum þótti
Gunnlaugur reyndar nóg um að-
Rögnavldsson farir keppenda í
akrífar þrautum, sem sum-
ar voru bæði grófar
og illkleifar. Var farið að fara um
áhorfendur á lokasprettinum, þegar
ljóst þótti að hvergi yrði slegið af.
Eftir fyrstu þijár þrautinar munaði
aðeins 50 stigum á efstu fimm öku-
mönnunum og skipstjórinn Gunnar
Egilsson frá Selfossi var fyrstur
með 850 stig. Fast á hæla hans
voru Haraldur Pétursson úr Ölfusi
og Þorlákshafnarbúinn Gísli G.
Jónsson með 830 stig, og Akur-
eyringarnir Helgi Schiöth 825 og
Einar Gunnlaugsson með 800 stig.
í næstu þraut náði Gísli svo fimm
stiga forystu á Helga, jók hana síð-
an um tuttugu í þeirri næstu og
hélt forystu allt til loka. Á meðan
skiptust hinir fjórir kapparnir á
sætum, Haraldur gerði allt sem
hann kunni til að ná upp forskoti
Gísla, komst í annað sætið, en ekki
lengra, þrátt fyrir ævintýralegan
akstur í síðustu þraut. Þar reyndu
þeir báðir að komast upp bratta
þraut, en ultu báðir eftir tilþrifamik-
il stökk.
Eftir sex þrautir af átta voru
þrír jafnir þriðja sæti, slík var
keppnin. Helgi var í öðru sæti, en
varð að gefa silfrið eftir til Harald-
ar í síðustu tveimur þrautunum.
En þegar keppni var lokið, þá vár
Helgi með 2115 stig, Einar 2110
og Gunnar 2100 stig. Minni gat
munurinn ekki verið.
Efstu sætin kostuðu líka sitt.
Beyglaðir jeppar, brotnir öxlar og
harkalegar veltur var það sem
þurfti til að slást við þá bestu. „Ég
fórnaði hreinlega öllu til að vinna,
ekki síst í lokaþrautinni. Ég vissi
að ég gæti stokkið hátt á loft, en
var nokkuð viss að ég myndi velta
afturábak. Ég mátti ekki slaka á,
keppnin var það jöfn og ég vissi
ekki stöðuna nákvæmlega. Ég varð
að taka áhættuna á að fara koll-
hnís, til að skilja á milli min og
annara keppenda. Án sigurs hefði
ég getað gleymt titilvörninni," sagði
íslandsmeistarinn Gísli G. Jónsson
í samtali við Morgunblaðið. Harald-
ur hefur nú 60 stig til meistara,
Einar 57, Helgi 48 og Gísli 46.
Fimm torfærur af sex gilda til stiga,
en tvær eru eftir. Fyrir sigur fást
20 stig, annað sætið 15, þriðja 12
og fjórða 10.
„Ég verð að ná toppárangri í
næstu mótum, en læt þó ekki stöð-
una trufla mig of mikið. Ég hef
verið óheppinn í ár, bilanir hijáðu
jeppann á Akureyri og Egilsstöðum,
en ég hef tvisvar unnið. Ég tók
vélina í gegn fyrir þessa keppni og
það gekk allt vel, þar til sjálfskipt-
ing snuðaði í sjöttu braut og ég
braut síðan framöxul í þeirri næstu.
Ég var heppinn að komast í loka-
þrautina, því öxulbrotið var það
slæmt að við rétt náðum að koma
drifbúnaðinum saman. Ég var samt
ótrúlega rólegur fyrir síðustu þraut-
ina, en svona glannalegar þrautir
eru kannski fullmikið af því góða.
En ekki ætlaði ég að tapa á síðustu
þraut, sama hvað það kostaði. Það
kostaði kollhnís, en ég vann.
Glannalegt, en sigurinn í höfn,“
sagði Gísli.
■ UM nágranna Gunnars á Sel-
fossi, ökugarpinn Benedikt Eiríks-
son, sagði hinsvegar að hann væri
mjög lofaður. Flestir ökumenn
keppninnar eru lofaðir.
■ FYRRUM íslandsmeistari í sér-
útbúna flokknum, Selfyssingurinn
Magnús Bergsson, fylgdist með
keppninni og var aðstoðarmaður.
Honum leist illa á aðfarir keppenda,
þótti þeir djarfir. Hann hyggur á
.keppni, en sagði aðfarir og þrautim-
ar í Jósepsdal ekki ýta undir áhug-
an. Tilþrifin væru kannski glæsileg,
en kostuðu keppendur tjón og tals-
verð penmingaútlát.
■ SEINT virðist skipuleggjendum
móta ætla að takast að gæta al-
mennilega að öryggi áhorfenda.
Margsinnis voru áhorfendur á vappi
á varasömum stöðum á meðan
keppni stóð, bæði við þrautir og á
svæði, þar sem keppendur biðu þess
að komast í þrautir. Börn léku sums-
staðar lausum hala skammt frá tor-
færutækjunum og þrautum. Athug-
unarvert fyrir keppnisstjórnir á kom-
andi torfærum.
■ JEPPI Árna Pálssonur lenti
harkalega eftir flug í einni þraut og
bognaði grindinn og fjöðrunarkerfið
illa. Einn aðstoðarmanna hans kvað
jeppann líkjast kappakstursbíl frem-
ur en torfærutæki, því hæð undir
lægsta punkt hefði snarlækkað. Árni
er vaxandi ökumaður, sem sýndi góð
tilþrif, hvergi banginn.
■ KEPPENDUR í torfærunni
koma úr ýmsum áttum. Fimmeru
bifvélavirkjar, þrír bílstjórar, síðan
finnast í hópnum, bóndi, bílasali, iðn-
rekandi, vélvirki, hjólbarðasali og
skipstjóri. Tannlæknirinn á Jaxlin-
um var ekki með, er í spólfríi.
■ AKRANES verður næsti vett-
vangur torfærumanna, eftir hálfan
mánuð og síðan Grindavík. Mót Is-
landsmótsins fara fram í öllum
landsfjórðungum og ökumenn koma
sömuleiðis frá öllum landshornum.
Kvikmyndatökumenn frá BBC sjón-
varpsstöðinni munu taka upp keppn-
ina á Akranesi fyrir þátt um ís-
lenska bílamenningu.
Hill sigraði á heimavelli
Bretinn Damon Hill vann breska
kappaksturinn á sunnudaginn
á Williams bíl og stöðvaði því sigur-
göngu Þjóðveijans Michael Schum-
acher, sem hefur unnið sex mót á
árinu með Benetton liðinu. Schum-
acher varð annar, Frakkinn Jean
Alesi á Ferrari þriðji og Austurríkis-
maðurinn Gerhard Berger fjórði á
samskonar bíl.
„Þetta er stærsta stund lífs míns.
Föður mínum tókst aldrei að vinna
breska kappaksturinn og ég er því
að uppfylla eigin draum og fjöl-
skyldunnar,“ sagði Hill að lokinni
keppni. Graham Hill, faðir Damons
Hill varð tvívegis heimsmeistari í
Formula 1 kappakstri og vann 14
sigra á ferlinum, en hann ók 176
sinnum í keppni. Aldrei tókst hon-
um þó að vinna á sínum heimaslóð-
um. Hill náði besta tíma í tímatök-
um fyrir keppnina og var því
fremstur í rásröð, þeirra 26 bíla sem
hófu keppni á Silverstone.
Eknir voru 60 hringir á braut-
inni, en í fimmtánda hring náði
Berger forystunni af Hill á Ferrari
bílnum, þegar Hill fór á viðgerðar:
svæði til að láta skipta um dekk. í
upphitunarhring fyrir keppni óku
keppnisbílarnir í rásröð að rásmark-
Reuter
Heimasigur
Bretinn Damon Hill fagnaði
sfgri í breska kappakstrinum
inu, en þá gerði Schumacher sig
sekan um að taka framúr Hill
stundarkorn. Keppnisstjórn lét lið
hans vita að hann ætti að stöðva
bílinn í fimm sekúndur inn á við-
gerðarsvæði, sem refsingu, þegar
keppni hæfist. Þetta láðist liðinu
að gera fyrr en í 27. hring. Tapaði
Schumacher nærri þrjátíu sekúnd-
um á þessu brölti, með akstri inn
á og útúr viðgerðarsvæðinu og Hill
gat ekið af öryggi til enda, eftir
að hafa farið framúr Berger. Á
endanum munaði rúmum 18 sek-
úndum á Hill og Schumacher.
Schumacher var sem steinrunn-
inn eftir keppni, óánægður með
framgang mála hjá keppnisliði sínu
og eigin mistök. „Ég fór óvart fram-
úr Hill í upphituninni, vildi ekki
klossbremsa í einni beygjunni og
skemma dekkin, þegar Hill hægði
skyndilega á sér,“ sagði Schumac-
her um atvikið, sem reyndist honum
dýrkeypt. Á meðan fagnaði Hill
fimmta. sigrinum og því að hafa
unnið fyrir framan landa sína. Nig-
el Mansell ók ekki fyrir Williams í
þessari keppni, heldur Bretinn
David Coulthard, sem varð sjötti.
Þykir líklegt að Mansell hafi glætt.
Hill nýju lífi, eftir franska kapp-
aksturinn. Þá þótti Hill aka betur
en nokkru sinni fyrr, þó hann yrði
að sætta sig við annað sætið á eft-
ir Schumacher. Mansell ók þá í
sama liði og er líklegur til að taka
sæti Coulthards nokkrum sinnum á
árinu.