Morgunblaðið - 12.07.1994, Síða 16
ÍHáttHR
GOLF
HANDKNATTLEIKUR
Tæknilega óframkvæmanlegt að koma upp íþróttahúsi fyrir HM
Bráðabirgðahús eini
möguleikinn í stöðunni
- sagði Steinunn V. Óskarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur
STEINUNN V. Oskarsdóttir, formaður Iþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur, sagði við Morgunblaðið í gær að samkvæmt skýrslu,
sem Reykjavíkurborg hefði látið gera, næðist ekki að byggja nýtt
íþróttahús, sem nota mætti í heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik í maí á næsta ári. „Það er tæknilega óframkvæmanlegt
að koma upp íþróttahúsi eins og talað hefur verið um á 10 mánuð-
um,“ sagði hún vera niðurstöður skýrslunnar og bætti við að
eini möguleikinn væri að reisa bráðabirgðahús austan við Laugar-
dalshöll.
Umræða um byggingu nýs
íþróttahúss hefur verið í
gangi síðan Handknattleikssam-
band ísland sótti um að halda
heimsmeistarakeppnina og slík
bygging var ein af helstu forsend-
unum fyrir því að HSÍ fékk keppn-
ina. Engu að síður féllst Alþjóða
handknattleikssambandið á að not-
ast mætti við Laugardalshöll, sem
tæki um 4.200 áhorfendur, og út
frá því hefur verið gengið. Hins
vegar hefur framkvæmdanefnd HM
95 oft bent á að eftirspurn eftir
miðum verði mun meiri en framboð
og því lagt áherslu á að byggt verði
hús, sem taki um 7.000 áhorfend-
ur, en við það aukist tekjurnar af
miðasölu um 50 til 60 milljónir að
sögn Hákons Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra framkvæmdanefnd-
ar. í þessu sambandi hefur verið
rætt um að slá tvær flugur í einu
höggi og reisa mannvirki með lög-
legum knattspyrnuvelli, sem er eitt
helsta baráttumál KSÍ.
Byggingadeild borgarverkfræð-
ings fékk Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf. til að gera skýrslu
um hugsanlega möguleika og var
hún tekin fyrir á fundi ÍTR í gær,
en Steinunn sagði að skýrslan yrði
trúnaðarmál í nokkra daga. Samt
væri ljóst að kostnaður væri mun
hærri en áður hefði verið látið að
liggja og sennilega ekki undir 300
til 400 milljónir króna fyrir bráða-
birgðahúsnæði. Farið yrði nánar í
kostnaðarhliðina næstu daga og
ákvörðun tekin í framhaldi af þeirri
athugun.
Hákon sagði við Morgunblaðið
að framkvæmdanefnd HM fylgdist
spennt með þróun mála, en hún
gæti ekki heimtað hús. „hins vegar
er mjög ánægjulegt að sjá að stærð-
argráðan á þessum viðburði sem
HM er er að renna upp fyrir mönn-
um, en við höfum alltaf bent á hana
og haldið henni fram.“
Getum reist knattspymu-
höll fyrir um400 milljónir
- segir Kristófer Magnússon, tæknifræðingur hjá Garðasmiðjunni
KRISTÓFER Magnússon, tæknifræðingur hjá Garðasmiðjunni
í Garðabæ, sagði við Morgunblaðið í gær að fyrirtækið gæti
reist knattspyrnuhöll í Laugardal, sem yrði tilbúin fyrir HM í
handknattleik í maí á næsta ári, en heildarkostnaður fyrir
utan byggingargjöld, opinber gjöld og kostnað vegna jarð-
vinnslu yrði um 400 milljónir króna.
J^ristófer sagði að fyrirtækið lega 10.000 fermetra mannvirki,
hefði sent Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf. upplýs-
ingar um afgreiðslutíma á fram-
leiðslu á stálgrindahúsi frá Star
Building í Bandaríkjunum og væri
ekkert því til fyrirstöðu að ljúka
framkvæmdinni á tilsettum tíma
fyrir HM. Um væri að ræða tæp-
115 m löngu, 86 m breiðu og 10
til 25 m háu húsi og 860 fer-
metra viðbyggingu. Fyrir utan
jarðvinnu, asfalt, gólfefni og sæti
væri verðið um 240 milljónir.
Sætin kostuðu um 50 milljónir,
áætluð jarðvinna væri 40 til 50
milljónir og gólfið kostaði um 20
til 25 milljónir. „Raunhæfur
kostnaður með öllu, búningsher-
bergjum og fleiru, er um 400
milljónir," sagði Kristófer.
Hann sagði að úr því sem kom-
ið væri væri ekki hægt að byija
á byggingunni fyrr en í desem-
ber, en ekki þyrfti nema 12 góða
daga í janúar, febrúar og mars
til að reisa mannvirkið fyrir 1.
apríl. Hins vegar mætti strax
hefja jarðvinnu og ljúka henni í
október, en vegna afgreiðslutíma
efnisins frá Bandaríkjunum væri
ekki hægt að byija að reisa húsið
fyrr en í desember. „Tæknilega
séð sé ég ekkert sem mælir gegn
því að reisa svona mannvirki á
tilsettum tíma,“ sagði Kristófer.
í áætlun Garðasmiðjunnar er
gert ráð fyrir 109 m löngum og
68 m breiðum knattspyrnuvelli
með leirgólfi inni í húsinu og á
hluta hans yrði malbikaður hand-
knattleiksvöllur, sem síðan yrði
sett gólf á vegna leikja. Höllina
mætti síðan nota fyrir sýningar
og þá væri auðvelt að fjarlægja
leirinn ofan af malbikinu að sögn
Kristófers.
HESTAR
ÚKar
dattút
Ufar Jónsson kylfingur úr Keili
datt út í Opna finnska meist-
aramótinu, sem er hluti af skandin-
avísku mótaröðinni. Eftir tvo daga
var keppendum fækkað úr 150 í 50
og „það er skemmst frá því að segja
að ég missti af lestinni,“ sagði Ulfar
í samtali við Morgunblaðið.
Úlfar lék illa, báða dagana lék
hann á 78 höggum en par vallarins
er 72 þannig að hann var 12 högg
yfir pari en þó aðeins fimm höggum
frá því að komast áfram. „Ég held
ég hafi aldrei verið svona óheppinn.
Tvisvar sló ég út af vellinum, boltinn
stoppaði á línunni, en var dæmdur
úti. Svo missti ég sex pútt sem voru
innan við metri þannig að skorið var
fljótt að fara upp,“ sagði Úlfar.
Ekkert gekk hjá piltunum
íslensku landsliðin í golfi pilta,
19-21 árs og 18 ára og yngri, riðu
ekki feitum hesti frá Evrópumótun-
um sem lauk um helgina. Eldra lið-
ið, sem keppti í Danmörku, tapaði
síðasta leik sínum gegn Sviss 4,5
gegn 0,5. Allir leikirnir voru þó jafn-
ir Tómas og Vilhjálmur töpuðu 1-0
eins og Þórður og Sigurpáll, en Örn
tapaði 2-1. Tryggvi samdi hins veg-
ar um jafntefli á 17. holu.
Yngra liðið hafnaði í 13. sæti eft-
ir 3-2 sigur á Finnum í síðasta leik.
Birgir Leifur vann 1-0 eins og Snorri
og þeir Birgir og Friðbjörn unnu 5-4.
SKOTFIMI
Jóhannes
bikarmeistari
Jóhannes Jensson úr Skotfélagi
Reykjavíkur tryggði sér um helg-
ina bikarmeistaratitilinn í skotfimi
er hann varð í fjórða sæti á síðasta
mótinu til bikarmeistaratitils. Hann
hafði áður sigrað í þremur mótum
og hlaut því 104 stig samtals. Annar
varð Reynir Þór Reynisson úr Skotfé-
lagi Keflavíkur með 94 stig, en hann
sigraði um helgina og var aðeins einu
stigi frá íslandsmeti og þremur stig-
um frá Ólympíulágmarki. Hann hlaut
133 stig.
Skotfélag Keflavíkur sigraði í svei-
takeppninni um helgina, hlaut 311
stig, Skotfélag Akureyrar varð í öðru
sæti með 293 stig og Skotfélag
Reykjavíkur í þriðja sæti með 279
stig. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá formanni Skotsam-
bandins.
Verðmæti Orra frá Þúfu fjórfaldast
SVO virðist sem söluverðmæti stóðhestsins Orra frá Þúfu gæti
verið á biiinu 20 til 30 milljónir með virðisaukaskatti ef mið er
tekið af söluverðmæti tveggja hluta sem seldir hafa verið eða
til stendur að selja. Fyrir landsmót var einn hlutur seldur á rétt
tæpa hálfa milljón með virðisaukaskatti en alls eru hlutirnir sex-
tíu. Þá hefur heildarverð hestsins verið rétt tæpar 30 milljónir.
Skömmu eftir landsmót kom
fram tilboð í einn hlut upp á
375 þúsund með virðisauka þannig
að þá hefur verðið
lækkað all verulega.
Þannig má gera ráð
fyrir að heildarverð-
mæti hestsins rokki
þetta á bilinu 20 til 30 milljónir ef
miðað er við söluverðmæti þessara
tveggja hluta sem um getur. Hingað
til hafa hlutir í hestinum ekki geng-
ið kaupum og sölum en aftur verið
Valdimar
Kristinsson
skrifar
ýmsar ágiskanir í gangi með hugs-
anlegt verð á honum eða hlutum í
honum. Hinsvegar mætti ætla að ef
hesturinn yrði seldur einum aðila eða
þá að allir hlutirnir yrðu boðnir falir
myndi heildarverð hestsins lækka
verulega í samræmi við lögmál
markaðarins. Svipað og gerist á
hlutabréfamörkuðum.
Ekki er vitað til að fleiri hlutir
séu falir um þessar mundir en upp-
haflegt kaupverð hvers hlutar var
100 þúsund krónur fyrir utan virðis-
auka þannig að þegar best lét hefur
hlutur selst á ríflega fjórföldu nafn-
verði sem verður að teljast nokkuð
góð fjárfesting. Þess má geta að
folatollurinn undir Orra er í ár seld-
ur á 46 þúsund krónur. Hleypt er
10 hryssum undir hestinn auk þeirra
60 uppáferða sem eigendur eða hlut-
hafar hafa heimild til ráðstöfunar
ár hvert. Þessir tíu folatollar eru
notaðir til að reka hestinn en þar
fara að minnsta kosti tæplega 300
þúsund krónur í tryggingar á hestin-
um. Stærstu hluthafar í hestinum
eru Indriði Ólafsson bóndi í Þúfu en
Orri er einmitt fæddur honum, með
sex hluti eða 10% og Sigurður Sæ-
mundsson bóndi í Holtsmúla, með 7
hluti eða tæplega 12% eignarhlut-
deild.
Elgnarhlutlrnlr í Orra frá Þúfu hafa fjórfaldast frá því hlutafélagið
stofnað var um hann var stofnað.
: