Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 3

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 3 Ólympíuleikarnir í eðlisfræði Islending- ur hlaut viður- kenningu Peking. Morgunblaðið. EINN íslensku þátttakendanna á 25. Ólympíuleikunum í eðlisfræði sem fram fóru í Peking í síðustu viku, Arnar Már Hrafnkelsson, fékk sér- staka viðurkenningu fyrir góðan árangur í verklega hluta keppninnar, en í þeim hluta lenti hann í 16. sæti af 229 keppendum. Verklegu æfing- arnar voru að þessu sinni úr ljós- fræði en einnig þurfti að giíma við svokallaðan „svartan kassa“, en í því verkefni var keppendum ætlað að finna óþekkta íhluti rásar með raf- fræðilegum aðferðum. Kínveijar náðu bestum árangri á leikunum. Heimamaðurinn Lian Yang varð í efsta sæti með 44,3 stig af 50 mögulegum. Þrír aðrir Kínveij- ar, einn Þjóðveiji og einn Breti hlutu einnig gullverðlaun en þau eru veitt ef keppendur ná að meðaltali 90% árangri í þremur bestu lausnunum. Ströng stigagjöf Stigagjöf kínversku dómaranna var mjög ströng og þess vegna fengu mjög fáir verðlaun. Auk gullverð- launahafanna 6 fengu 5 keppendur silfui-verðlaun og 22 brons í keppn- inni. Efst í óformlegri stigakeppni landanna voru Kína með 40,6 stig að meðaltali. -----»--»-■♦-- Margeir og Jón L. meðal þeirra efstu OPNA kanadíska mneistaramótinu í skák lauk á sunnudag í Winnipeg. Vladimir Tukmakov frá Úkraínu sigraði og hlaut 9 vinninga af 10 mögulegum. Hodgson, Englandi, hlaut 8 vinninga og varð í 2. sæti. Margeir Pétursson og Jón L. Árna- son voru í hópi þeirra sem hlutu 7,5 vinninga. Islendingarnir voru þeir einu sem gerðu jafntefli við Tukm- akov, sem vann alla aðra andstæð- inga sína. FRÉTTIR Færri komu á landsmót en vonast hafði verið til UM SJÖ þúsund manns voru á mótssvæðinu á Laugarvatni þegar mest var og hér sést stór hópur áhorfenda í brekkunni við nýja íþróttaleikvanginn að Laugarvatni þar sem keppni í fijálsum íþrótt- um, starfshlaupi og knattspyrnu fór fram. Landsmótsdögum lokið Morgunblaðið/Sigurður Jónsson FORSETI íslands frú Vigdís Finnbogadóttir heiðraði landsmótið með nærveru sinni á setningarhátíð 21. lands- móts UMFÍ að Laugarvatni á föstudaginn var. VEL heppnuðu Landsmóti Ung- mennaféiags íslands að Laugar- vatni var slitið á sunnudaginn við athöfn i nýja íþróttahúsinu að Laugarvatni. Að mati Þóris Haraldssonar, formanns lands- mótsnefndar, heppnaðist mótið í alla staði mjög vel. Iþróttakeppni hafi farið vel fram og mótið gengið að öllu leyti slysalaust fyrir sig. Þau vandamál sem upp hafi komið hafi verið það smá- vægileg að auðvelt reyndist að leysa úr þeim. „Aðsókn var vissulega minni en við vonuðumst til. Veðurguð- irnir voru okkur ekki sérlega hagstæðir að þessu sinni. Við vorum viðbúnir að taka á móti mun fleiri gestum,“ sagði Þórir í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann telur að um sjö þúsund manns hafi verið á mótssvæðinu þegar mest var en bjartsýnar spár gerðu ráð fyrir um 10-12 þúsund gestum. Þórir segist ekki hafa nákvæmar tölur um tekjur af mótshaldinu. „Ég óttast að endar nái ekki saman,“ sagði hann. „Ég vil þó umfram allt þakka öllum gestum fyrir góða viðkynningu og starfsfólki vel unnin störf. Hér hafa um 1.200 starfsmenn unnið dag og nótt og þeir hafa staðið sig frábærlega," sagði Þórir. Lið Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) fór með sigur af hólmi í heildarstigakeppni landsmótsins og hlaut það 628,5 stig. Sigurvegarar síðasta lands- móts, lið Ungmennasambands Kjalnesinga (UMSK), varð að láta sér lynda annað sætið með 524 stig. Alls voru sett 12 landsmóts- met að þessu sinni; þrjú í ein- staklingsgreinum í frjálsum íþróttum, tvö í boðhlaupum, þijú í einstaklingsgreinum í sundi og fjögur í boðsundum. Stigahæstu keppendurnir voru Eðvarð Þór Eðvarðsson, Ægir Sigurðsson og Vilborg Magnúsdóttir sem öll kepptu í sundi fyrir HSK og Fríða Rún Þórðardóttir sem keppti í frjálsum íþróttum fyrir UMSK. Fjórmenningarnir unnu allar þijár einstaklingsgreinarn- ar sem þeim var leyft að taka þátt í. ■ Landsmót UMFÍ/C8-C14 Lottó Einn með 15 millj- ónir IÐNAÐARMAÐUR á höfuð- borgarsvæðinu var einn með fimm tölur réttar í lottó 5/38 sl. laugardag þegar fyrsti vinn- ingurinn var fjórfaldur. Fékk hann í sinn hlut 15.539.387 kr. Skv. upplýsingum frá íslenskri getspá hafði slæmt atvinnu- ástand komið við hann undan- farið og vinningurinn því kær- komin búbót en vinningshafinn er fjögurra barna faðir. Miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni. Fjórtán voru með fjórar töiur réttar auk bónustölu og fékk hver þeirra 89.399 kr. 339 voru með Ijórar tölur réttar og fékk hver 6.368 kr. Þrjár tölur réttar voru 10.411 með og kom í hlut hvers þeirra 483 kr. Tölurnar sem komu upp voru 12, 24, 29, 30, 31 og bónustalan var 18. Ofninn kom- inn í fullan rekstur OFNINN sem bilaði í Járn- blendiverksmiðjunni á Grund- artanga í vor er svo til kominn í fullan rekstur að nýju. Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri verksmiðjunnar, sagði að það væri nokkuð flókið verkefni að koma svona ofni í gang aftur, en þetta verk hefði gengið prýði- lega fyrir sig. Bræðsla í ofninum stöðvaðist í um 9 vikur vegna bilunarinn- ar. Afköst verksmiðjunnar verða að öllum líkindum um 6.000 tonnum minni en þau hefðu annars orðið ef bilunin hefði ekki átt sér stað. Ekki liggur endanlega fyrir hvert, fjárhags- legt tjón Járnblendifélagsins er vegna þessa. Jón sagði að þær tölur sem hann væri með í hönd- unum núna bendi til að bilunin kosti félagið 100 milljónir króna í ver'ri rekstrarafkomu. Sé hins vegar litið á greiðsluafkomuna þýði bilunin líkast til um 200 milljóna verri afkomu. Fljiígið akið skoðið sjdið °g upplifið meira FLUG OG Vinsælasti ferðamátinn á ári fjölskyldunnar ► Amsterdam . flug og bíll v Verð frá 29.200 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja -11 ára. Frá 39.585 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* ► Lúxemborg flug og bíll Verð frá 27.465 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja -11 ára. Frá 36.150 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* Úrvals bílaleigubílar frá j Herczi m CS) SATXAS-® *Bókunarfyrirvari er 14 dagar. Allt verð er með flugvallarsköttum. ► Kaupmannahöfn flug og bíll Verð frá 30.565 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja - 11 ára. Frá 41.750 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* Hafðu samband við söluskrifstofúr okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofúrnar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 - 19 og á laugard. frá kl. 8 - 16.) FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.