Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 29 Fyrirlestur um arkitektúr Þriðjudagskvöld kl. 20 hefst í Norræna húsinu fyrirlestur portúg- alska arkitektsins, Alvaro Siza á vegum ÍSARK, íslenska arkitekta- skólans, Alvaro Siza fæddist í Maronsinh- os nærri Porto árið 1933 og hafði náð að reisa fyrstu byggingu sína árið 1954. Hann hefur kennt við Ecole Plytecnique í Lausanne, há- skólann í Pennsylvaníu, Los Andes- háskólann í Bogota og Harvard- háskóla og jafnframt við arkitekta- skólann í Porto. Alvaro Siza er í hópi virtustu arkitekta nútímans og hefur hlotið margfaldar viðurkenningar fyrir framlag sitt sem arkitekt og fræði- maður. Árið 1988 fékk hann m.a. í sinn hlut Alvar Alto-verðlaunin, Prince of Wales-verðlaunin frá Har- vard-háskóla, Mics van der Rohe- verðlaunin, og árið 1992 fékk hann Pritzker-verðlaunin frá Hyatt- stofnuninni í Chicago. Portúgalska arkitektasambandið veitti honum heiðursverðlaun lands síns 1993. Alvaro Siza mun ræða kenningar sínar um stöðu nútímaarkitektsins en hann hefur glætt modernisma nýju lífi með fjölbreyttum sjónar- hornum heimspekilegrar skoðunar. _______FRETTIR_____ Kópavogssund hald ið í september HINN 4. september nk. fer fram í Sundlaug Kópavogs sundkeppni fyrir almenning. Keppnin hefur hlotið nafnið Kópavogssundið og er henni hrund- ið af stað með það fyrir augum að setja þeim fjölmörgu sem iðka sund sér til hressingar og heilsubótar markmið með sundiðkun sinni. Einnig er hér um að ræða kjörið tækifæri fyrir hina fjölmörgu sem stunda annars konar trimm, s.s. göngu, skokk, þolfimi o.fl., að auka á fjölbreytnina og æfa sig í sundi, með þátttöku í Kópavogssundinu að markmiði. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að þátttakendur skrá sig í Kópavogssundið og fá í hendur talningarkort. Þeir ganga síðan til laugar, afhenda talningarmanni kortið og hefja sundið. Hver þátt- takandi ákveður sjálfur hve langa vegalengd hann syndir. Engar tímatakmarkanir eru settar kepp- endum, aðrar en tímamörk keppn- innar, en hún stendur frá kl. 7 til 22. Keppendur fá verðlaun í sam- ræmi við þá vegalengd sem þeir synda, sem hér segir: Fyrir 500 m sund er veittur bronz-verðlauna- peningur, fyrir 1000 m sund er veittur silfur-verðlaunapeningur og fyrir 1.500 m sund er veittur gull- verðlaunapeningur. Allir þátttakendur fá skjal til staðfestingar þátttöku í keppninni, þar sem fram koma upplýsingar um þá vegalengd sem viðkomandi þátttakandi syndir. Einnig verða veitt sérstök verðlaun þeim sem synda lengstu vegalengdina í eftir- töldum aldursflokkum: Sveina- og meyjaflokki, keppendur fæddir 1982 og síðar, drengja- og telpna- flokki, keppendur fæddir 1978x1981, karla- og kvenna- flokki, keppendur fæddir 1977- 1945 og karla- og kvennaflokki, keppendur fæddir 1944 og fyrr. Þátttökugjald er 500 kr. fyrir fullorðna (fæddir 1978 og fyrr), en 300 kr. fyrir börn (fædd 1979 og síðar). Innifalið í þátttökugjaldinu er aðgangur að sundlauginni. Skráriing í Kópavogssundið 1994 er í afgreiðslu Sundlaugar Kópa- vogs. „IJtimót“ í skák Helgi Áss vann Hið hefðbundna „útimót" Skák- sambands íslands var að þessu sinni haldið í Kolaportinu laugardaginn 16. júlí sl. Mótið er firmakeppni og tóku 84 fyrirtæki þátt í mótinu. Sig- urvegari varð Óska-kaffi, Selfossi, keppandi Helgi Áss Grétarsson. í efstu sætum voru: Óska-kaffi, Selfossi (Helgi Áss Grét- arsson), Hitaveita Suðurnesja (Jó- hann Órn Sigurjónsson), Fossveitur, Selfossi (Mephisto Genius, tölvu- forr.), Tímaritið Skák (Haraldur Haraldsson), Varmi (Tómas Björns- son), Bónstöðin Akureyri (Jón Viktor Gunnarsson), Vogabær (Ásgeir Ás- björnsson), Optima (Haukur Angan- týsson), Ora hf. (Kristján Eðvarðs- son), Brauðver hf., Ólafsfirði (Arn- aldur Loftsson). ------♦ ♦ ------- ■ Smurapar leika miðvikudags- kvöldið 20. júlí á Kringlukránni. Aparnir leika bræðing af jassi og rokki sem stundum er kölluð fusi- ontónlist. Þeir eru kunnir tónlist- armenn sem leikið hafa sundur og saman í mörg ár og hafa að baki samanlagt eitthundruð ára reynslu í hljóðfæraleik. Víða er komið við á efnisskránni sem end- urspeglar reynslu þeirra. Vegna ákveðinna aðstæðna kjósa þeir félagar nafnleyndar. ■ Undirbúningsnámskeið fyrir verðandi mæður/feður Innritun í símum 12136 og 23141. Hulda Jensdóttir, Ijósmóðir. tölvur ■ Vinsælu barna- og unglinganámskeiðin Námskeið, sem veita börnum og ungling- um verðmætan undirbúning fyrir fram- tíðina. Eftirtalin námskeið eru í boði: 1) Tölvunám barna 5-6 ára. 2) Tölvunám bama 7-9 ára. 3) Tölvunám unglinga 10-15 ára. 4) Framhaldsnám ungl. 11-16 ára. Næstu námskeið hefjast 15. ágúst. Hringið og fáið nánari upplýsingar. STJÓRNUNARFÉLAOS ÍSLANDS A. 69 77 69 <Q> 6 2 10 66 NÝHERJI WtÆkWÞAUGL YSINGAR B FISKVINNSLUDEILDIN DALVÍK Deildarstjórastaða við Sjávarútvegsdeildina á Dalvík er laus til umsóknar. Umsóknir berist skólastjóra. Umsóknarfrestur er til 2. ágúst. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í símum 96-61162 og 96-61380. Sveitastörf Norsk stúlka, 21 árs, með þriggja og hálfs árs gamalt barn, óskar eftir vinnu á sveitabæ frá ágúst 1994 í ca. 6 mánuði. Hefur menntun á sviði landbúnaðar. Hafið samband við Tonje Filseth, Kremle- grenda 31, N-1352 Kolsás, Noregi, sími 90 47 67 13 41 24. Vélstjórar Óskum eftir að ráða vélstjóra, með full rétt- indi og reynslu, á skip okkar sem fyrst. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri. Samskip hf., Holtabakka v/Holtaveg, 104 Reykjavík, sími 698300. Stjórnandi barnakórs Hallgrímskirkja í Reykjavík hyggst ráða stjórn- anda barnakórs kirkjunnar frá 1. september nk. Um er að ræða 50% starf. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi menntun og reynslu í stjórn barnakórs. Nánari upplýsignar gefa sr. Karl Sigurbjörnsson og Hörður Áskelsson í síma 621475. Skriflegar umsóknir berist Hallgrímskirkju, póst- hólf 651, 121 Reykjavík, fyrir 2. ágúst nk. Uppeldismenntaðir t.d. leikskólakennarar, almennir kennarar, listgreinakennarar eða þroskaþjálfar, óskast til starfa á leikskóla í vesturbænum. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „L - 11755“. Góð 4ra herbergja íbúð eða ?tærri óskast fyrir fjögurra manna fjöl- skyldu helst á svæði svæði 108 eða ná- grenni. Annað kemur til greina. Upplýsingar á skrifstofu okkar í síma 627611, Rósa Steingrímsdóttir. Málflutningsskrifstofa Ragnar Aðalsteinsson, hrl., OtharÖrn Petersen, hrl., ViðarMár Matthíasson, hrl., Tryggvi Gunnarsson, hrl., Jónannes Sigurðsson, hrl, Borgartúni 24, sími 627611, fax 627186. Flugmenn! Almenn, leynileg atkvæðagreiðsla, sam- kvæmt b-lið 15. gr. laga nr. 80/1938, sbr. 14. gr. sömu laga, um að gefa félagsstjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna umboð til að taka ákvörðun um vinnustöðvun hjá flugrekstraraðilum, sem ósamið er við, fer fram á skrifstofu félagsins á Háaleitisbraut 68, Reykjavík, dagana 21. til 28. júlí 1994, að báðum dögum meðtöldum, milli kl. 9 og 13 dag hvern. Stjórn og trúnaðarráð Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Sýnishorn úr söluskrá: Heildverslanir, fyrirtæki í ferðaþjónustU, snyrtistofur, hársnyrtistofur, sólbaðsstofur, matsölustaðir, bílasölur og söluturnar. Firmasala Baldurs Garðarssonar, Hreyfilshúsinu við Grensásveg, sími 91-811313. TJLBOÐ — ÚTBOÐ ÚTBOÐ Hjúkrunaríbúðir við Hlíðarhús Byggingarnefnd Eirarhúss óskar hér með eftir tilboðum í jarðvinnu vegna nýbyggingar á lóð við Hlíðarhús í Reykjavík. Helstu magntölur eru: Gröftur 8.600 m3 Sprengingar 5.800 m3 Fyllingar 4.000 m3 Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík, gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Eirar, hjúkrun- arheimilis við Gagnveg í Reykjavík, þar sem þau verða opnuð þriðjudaginn 26. júlí 1994 kl. 11.00. VERKFIUZÐirrOM 8TEFÁNS OLAFSSONAR HT. FAV. Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími 621099 SHICI auglýsingar UTIVIST ÍHallveigarstig l • simi 614330 Helgarferftir 22.-24. júlí: 22. -24. júli Básar við Þórsmörk. Goðaland og Þórsmörk í feg- ursta sumarskrúða. Gist í skála eða tjöldum. Fararstjóri Anna Soffía Óskarsdóttir. 23. -24. júlí. Fimmvörðuháls. Fararstjóri Óli Þór Hilmarsson. Fullbókað er í ferðina. Ferðir um verslunarmanna- helgina, 29. júlí-1. ágúst: Núpstaðarskógur. Básar. Tröllaskagi. Fimmvörðuháls. Upplýsingar og miðasala á skrifstofu Útivistar. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Miðvikudagur 20. júlí: Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð - kr. 2.700. Ath.: Sumarleyfi í Þórsmörk er ódýrt - gefandi - skemmtilegt! Kl. 20.00 Seljadalur-Nessel (Miðdalsheiði). Ekið áleiðis í Seljadal og gengið þaðan. Brottför í dagsferðirnar er frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin og Mörkinni 6. Helgarferðir 22.-24. júlí: 1) Hringferð að Fjallabaki: Laugar - Eldgjá - Álftavatn. Gist í saeluhúsum. 2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. 3) 23.-24. júlí - kl. 08.00. Yfir Fimmvörðuháls (gengið frá Skógum). Gist í Þórsmörk. 4) Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi F.l. í Laugum. Ath.: Sjálfboðaliða vantar í vinnuferð að Álftavatni næstu helgi. Vinna f erfiðara lagi. Haf- ið samband við skrifstofu F.f. Ferðafélag (slands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.