Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Sverrir
Dísarunnar í blóma
Fósturvísar úr
kúm til landsins
DÍSARUNNAR eru frægir fyrir
blómfegurð og bera langa allgilda
blómskúfa. Ein tegundin nefnist
bogsírena og kemur frá Kína. Ber
sá runni fremur granna hangandi
klasa af blómum, sem sögð eru
karmínurauð að utan og hvít að
innan, í blómabók Fjölva. Kol-
finna Bjarnadóttir er með þrjá
dísarunna í garðinum hjá sér sem
hún gróðursetti árið 1976. Ekki
segist hún hafa beitt sérstökum
brögðum til að fá runnana svona
háa og sé dugnaði plöntunnar ein-
um að þakka. Blómstra runnarnir
í byijun júlí ár hvert.
UM 20 fósturvísar af Aberdeen
Angus og Limousine nautgripastofn-
um komu til landsins frá Danmörku
í gær og verður þeim komið fyrir í
kúm í einangrunarstöðinnj í Hrísey
í dag. Að sögn Guðbjörns Arnasonar
starfsmanns Landssambands kúa-
bænda, sem flytur fóstui-vísana inn,
hefur undirbúningur þessa innflutn-
ings staðið lengi yfir. Tilgangurinn
með honum er að gefa neytendum
hér á landi fleiri valkosti hvað varð-
ar nautakjöt þegar fram líða stund-
ir. Guðbjörn sagði kostina við þessa
stöfna meðal annars vera þá að vaxt-
arhraði þeirra væri meiri en íslenska
nautgripastofnsins og einnig væru
gripirnir vöðvameiri.
Danskur dýaralæknir ásamt að-
stoðarmanni sínum var væntanlegur
til landsins í gærkvöldi, en hann
mun ásamt Aðalbjörgu Jónsdóttur
dýralækni í einangrunarstöðinni í
Hrísey koma fósturvísunum fyrir í
14 kúm sem fluttar voru í stöðina
sl. haust og jafnframt kúm af
Gallowaykyni sem í stöðinni eru.
Guðbjörn sagði þær tegundir fóstur-
vísa sem um ræðir hafa verið valdar
þar sem líkur væru á að' íslenskar
kýr gætu fætt kálfa af þessum stofn-
um vegna þess hve smávaxnir þeir
væru við fæðingu.
Afurðir á markað 1997
Að sögn Guðbjörns verður sæði
úr kálfunum sem fæðast næsta vor
flutt í land ári síðar þegar þeir verða
orðnir kynþroska og kýr af íslenska
stofninum sæddar með því. Afurðir
af þessum stofnum ættu því að vera
komnar á markað 1997. Hann sagði
að með þessu kynbótastarfi væri
Landssamband kúabænda að leggja
grunninn að því að gefa kost á fleiri
valmöguleikum.
Morgunblaðið/Sverrir
Fáni
Jörundar
við hún
HUNDADAGANA flaggar Sjó-
minjasafnið í Hafnarfirði fána
Jörundar hundadagakonungs.
Jörundur, sem réttu nafni hét
Jorgen Jorgensen, kom hingað
til lands árið 1809 og tók sér
öll völd á landinu og konungs-
nafnbót 25. júní að undirlagi
Samuels Phelps sápukaup-
manns og hélt þeim út hunda-
dagana til 22. ágúst.
Sérstakur þjóðfáni
Þeir lýstu því yfir 26. júní
að allur danskur myndugleiki
væri upphafinn og síðar um
daginn var tilkynnt að „ísland
væri laust og liðugt frá Dan-
merkur ríkisráðum“. íslending-
um var heitið sérstökum þjóð-
fána og í auglýsingu Jörundar
frá 11. júlí segir að íslenski
fáninn skuli vera blár með
þremur þorskfiskum í efsta
horni. Daginn eftir var slíkur
fáni dreginn að húni á Petræ-
usarvöruhúsi sem stóð við
Hafnarstræti sunnanvert. Birg-
ir Thorlacius hefur skrifað um
íslenska fánann og skjald-
armerki og hann fullyrðir í
grein sinni í Andvara árið 1964
að þessi fáni hafi verið „fyrsta
hugmyndin um sérstakan þjóð-
fána handa Islandi“.
Uffe Ellemann-Jensen um mögulega aðildarumsókn Islands að ESB
Viss áhætta er tekin með
því að tengia sig við Möltu
UFFE Ellemann-Jensen, formaður Venstre-
flokksins danska og fyrrverandi utanríkisráð-
herra, er sém fyrr þeirrar skoðunar að aðild að
Evrópska efnahagssvæðinu, EES, sé ekki full-
nægjandi lausn fyrir norrænu þjóðirnar, heppileg-
ast sé að þær sameini aila sína krafta í Evrópu-
sambandinu, ESB. Þetta kom fram á fundi Lands-
nefndar Alþjóða verzlunarráðsins í gær þar sem
hann fjallaði um þróun ESB og stöðu Norðurland-
anna. Hann telur varhugavert fyrir Island að
reyna að komast inn um leið og Malta og Kýpur.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir
að sæki íslendingar um á næsta ári verði það ekki
í samfloti með áðurnefndum eyríkjum heldur sem
síðasta EES-þjóðin er vilji aðild.
„Möltubúar leggja fram umsókn þar sem fram
kemur að þeir hyggjast vera undanþegnir þátt-
töku í ákveðnum stofnanaþáttum“, sagði Elle-
mann-Jensen í samtali við Morgunblaðið eftir
fundinn. „Þeir hyggjast t.d. ekki taka að sér for-
mennsku [í ráðherraráði sambandsins, æðstu
valdastofnuninni] og þess háttar. Ég tel að íslend-
ingar ættu ekki fyrirfram að gefa í skyn að þeir
vilji fá neins konar smáríkismeðhöndlun. Mér
finnst að ísland eigi að sækja um á jafnréttis-
grundvelli en að sjálfsögðu verðið þið sjálfir að
taka ákvörðun um þessi mál. Ég vek aðeins at-
hygli á því að það er tekin viss áhætta með því
að tengja sig við Möltu og mér fyndist það a.m.k.
virka nokkuð undarlegt".
íslendingar hafa sérstöðu
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
segir að mikilvægast sé að íslendingar geri upp
við sig hvort þeir vilji láta á að það reyna strax
á næsta ári hveija möguleika þeir hafi á viðun-
andi aðildarsamningum sem EES-ríki eða leiða
málið hjá sér næstu árin. Þá yrðum við að bíða
fram að aldamótum til að verða í samfloti með
Mið-Evrópuríkjunum. Á fundum utanríkisráð-
herra með ráðamönnum ESB hafi komið fram
að íslendingar myndu hafa sérstöðu að því leyti
að þeir uppfylltu ákvæði Maastricht-sáttmálans
og væru búnir að laga lög sín og reglur að regl-
um sambandsins.
Jón sagði að hingað til hefðu menn talið að
útilokað væri að samningar gætu tekist um ný
aðildarríki fyrir ríkjaráðstefnu ESB 1996. Leið-
togar sambandsins hefðu hins vegar sagt á Korfú-
fundinum nýverið að umsóknir eyríkjanna Kýpurs
og Möltu væru á dagskrá sem merkti að þær
yrðu teknar fyrir í janúar 1995. íslendingar ættu
einnig að geta hafið viðræður þá ef þeir kysu
það, ekki í samfloti með áðurnefndum eyþjóðum
heldur sem síðasta EES-þjóðin er sækti um aðild.
■ íslendingar taki skjótt ákvörðun/22
Langá óskipt boð-
in út í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Jón Sk. Ársælsson
Mokveiði í Ytri-Rangá
LANGÁ á Mýrum hefur verið aug-
lýst til leigu og er það í fyrsta skipti
sem áin er boðin út óskipt. Til þessa
hefur hún verið þrískipt, á neðsta
svæðinu, sem kennt er við Langár-
foss og Ánabrekku, er veitt með
fimm stöngum, á miðsvæðunum,
sem kennd eru við Jarðlangsstaði
og Stangarholt, er veitt með fjórum
stöngum, en á „Fjallinu" svokallaða,
sem kennt er við Grenja og Litla-
fjall, er veitt með þremur stöngum
eða alls 12 stöngum. Langá er í
hópi þekktustu og bestu laxveiðiáa
landsins.
Jóhannes Guðmundsson á Ána-
brekku, formaður Veiðifélags Lang-
ár sagði í samtali við Morgunblaðið
að óskir um heildarútboð hefðu kom-
ið upp af og til á aðalfundum félags-
ins í gegn tim árin, en loksins nú
hefði fengist meirihluti fyrir því að
reyna það. „Áin öll er í útboði, frá
ósi við Langavatn að ósi við sjó, all-
ir eru undir sama hatti. Hér neðst
í ánni hafa fastagestir veitt um langt
árabil og á miðsvæðunum er sömu
sögu að segja. Þetta fyrirkomulag
gæti raskast ef viðunandi heildarboð
fæst í veiðina. Veiðifélagið myndi
kannski ekki setja stólinn fyrir dyrn-
ar þótt einhver leigutaki vildi halda
þrískiptingunni, en við leggjum á
það ríka áherslu að áin sé fiskuð
jafnt. Nýtingin hefur lengst af verið
æði góð í Langá, en eins og víðar
hefur hún farið versnandi og verst
var ástandið í fyrra, sérstaklega í
ánni ofanverðri," sagði Jóhannes.
36 kílómetrar
Langá er 36 kílómetrar frá upp-
tökum til ósa og er áin öll laxgeng.
Óvíða hafa jafn umfangsmiklar
framkvæmdir verið í gangi til að
auka laxgengd og lengja veiðisvæði.
Til dæmis hafa alls fjórir laxastigar
verið gerðir í fossa í Langá, í
Skuggafoss nærri sjó og svo í þrjá
fossa á „Fjallinu", Sveðjufoss, Kota-
foss og Tófufoss.
Hellu - Morgunblaðið. Vel heppn-
uðum veiðitúr tíu Svisslendinga í
Ytri-Rangá lauk sl. sunnudag.
Þeir höfðu dvalist við veiðar í
ánni í viku og lönduðu alls 136
löxum á tímabilinu. Að sögn
Þrastar Elliðasonar, sem hefur
ána á leigu, hefur í dag veiðst
sextíu löxum meira en á sama
tíma metveiðisumarið 1990.
„Svisslendingarnir voru með allt
laxasvæði Ytri-Rangár og hluta
eystri árinnar, alls tíu stangir.
Af þessum 136 löxum veiddust 130
í Ytri-Rangá, eingöngu á flugu.
Megnið af þessu var eins árs lax,
þriggja til átta punda en inn á
milli stórir boltar, sá stærsti 19
pund,“ sagði Þröstur.
■ Eru þeir að fá’ann/8