Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Farþegum í millilandaflugi fyrri hluta ársins hefur fjölgað verulega
Farþegar 9% fleiri
en búist var við
FARÞEGAR í Evrópuflugi Flugleiða
voru 26,8% fleiri íjúní sl. en í sama
mánuði í fyrra. í Norður-Atlants-
hafsfluginu er fjölgunin 14,2%. í
áætlunum Flugleiða var gert ráð
fyrir að heildarfarþegafjöldinn
myndi aukast, en fjölgunin varð 9%
meiri en þær áætlanir gerðu ráð
fyrir.
43,2% fjölgun í Evrópuflugi
Farþegum í millilandaflugi fyrri
hluta þessa árs hefur fjölgað veru-
lega. Ef litið er til fyrstu sex mán-
aða ársins hefur farþegum í Norður-
Atlantshafsfluginu fjölgað um
13,9%, en farþegum í Evrópufluginu
hefur fjölgað enn frekar, eða um
43,2%.
Pétur Ómar Ágústsson, sölustjóri
hjá Flugleiðum, segir að erlendum
ferðamönnum til landsins hafi fjölg-
að veruiega, en ekki sé um íjölgun
utanlandsferða íslendinga að ræða.
„Þá hefur orðið töluverð íjölgun
farþega milli Skandinavíu og Amer-
íku og sem dæmi má nefna að nú
í júní voru margir farþegar á þeirri
leið að fara á heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu. Flugleiðin Ham-
borg-Kaupmannahöfn hefur einnig
reynst vel í Evrópufluginu.“
Pétur Ómar sagði að þessi fjölgun
farþega kristallaðist ekki endilega
í hærri tekjum. „Auðvitað skiiar svo
mikil aukning sér, en fargjöld hafa
lækkað frá síðasta ári, svo tekju-
aukningin er ekki eins mikil og ella.“
Farþegar Fiugleiða í millilandaflugi
í janúar til júní og í júní 1993 og ’94 217 73g
Evrópuflug
Breyting
jan.-júní
'93-’94
43,2%
Breyting í
júní ’93-’94
26,8%
1993 1994
1993 1994
Stöð 2 notar sjónvarpsrás Sýnar meðan skipt er um myndlykla
Lyklaskipti
næsta haust
STEFNT er að því að skipti á
myndlyklum Stöðvar 2 hefjist
næsta haust, að sögn Bjarna Krist-
jánssonar, starfandi stjómvarps-
stjóra. Á meðan á skiptunum stend-
ur verður dagskrá Stöðvar 2 send
út á sjónvarpsrás Sýnar, þar sem
kerfi nýju myndlyklanna er frá-
brugðið eldra kerfinu. Þegar skipt-
in eru um garð gengin verður út-
sending eingöngu á rás Stöðvar 2.
50 þúsund myndlyklar
í nóvember í fyrra festi íslenska
útvarpsfélagið kaup á 50 þúsund
myndlyklum með samningi við eitt
af fyrirtækjum Philips í Frakk-
landi. Nýju lyklarnir verða í eigu
íslenska útvarpsfélagsins og lán-
aðir áskrifendum endurgjalds-
laust. í samtali við Morgunblaðið
í nóvember sagði Páll Magnússon,
þáverandi sjónvarpsstjóri, að
ástæður skiptanna væru þrjár. í
fyrsta lagi yrði erfiðara að njóta
góðs af dagskrá stöðvarinnar með
óheiðarlegum hætti, því þetta
myndlyklakerfi væri það öruggsta
sem byðist. í öðru lagi væru núver-
andi lyklar teknir að eldast og
bilanir í þeim tíðar og í þriðja lagi
væru gömlu lyklarnir að úreldast.
Með nýjum lyklum yrði nýtt lykil-
númer sent í gegnum loftið um
leið og greiðsla bærist hver mán-
aðamót og því óþarfi að stimpla
það inn.
í tengslum við fréttir undanfar-
ið af Islenska útvarpsfélaginu og
Sýn hefur komið fram, að samn-
ingur er milli félaganna um að
íslenska útvarpsfélagið fái afnot
af sjónvarpsrás Sýnar, á meðan á
myndlyklaskiptunum stendur.
Ástæða þessa er sú, að myndlykla-
kerfin tvö, hið gamla og hið nýja,
eru ólík og ekki er hægt að senda
út á einni rás merki sem báðar
gerðir myndlyklanna næmu. Ef
ekki væri farin þessi leið þyrfti
að skipta um alla myndlyklana á
mjög skömmum tíma, en slíku
fylgdi röskun á dagskrá, sem ótt-
ast er að fældi áskrifendur frá og
þýddi þannig tekjutap Stöðvar 2.
Búist er við að skiptin taki
nokkra mánuði, en þegar þau eru
um garð gengin verður eingöngu
sent út á rás íslenska útvarpsfé-
lagsins.
Bjartsýni fyrir
álfund í Canberra
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins kveðst hóflega bjart-
sýn á árangur af tilraunum til þess
að leysa vandamál vegna offram-
boðs á áli í heiminum, sem tekin
verða til umfjöllunar á fundi emb-
ættismanna í Canberra í Ástralíu á
fimmtudag.
Verð á áli er 1.542 dollarar tonn-
ið og hefur ekki verið eins hátt í
þijú ár. í nóvember var verðið 1.040
dollarar tonnið og hafði ekki verið
eins lágt í níu ár. Það var 1.700
dollarar þegar aukinn álflutningur
frá Rússlandi leiddi til verðhruns.
Ef verðið heldur áfram að hækka
kann það að draga úr áhuga álfram-
leiðenda á að takmarka afköstin.
Sex helztu álframleiðendur heims
samþykktu í marz að minnka fram-
leiðsluna um 10% eða allt að tvær
milljónir lesta á tveimur árum.
Rússar óánægðir
Samkvæmt heimildum í Moskvu
munu Rússar tilkynna að þeir muni
standa við áður gert samkomulag
um minni afköst, ef önnur ríki geri
slíkt hið sama. Að sögn Vladímírs
Kaltsjenkós, varaforstjóra Alúm-
íníj-samsteypunnar, eru Rússar
óánægðir með að nokkur álfram-
leiðslulönd takmarki ekki afköst,
fyrst og fremst við Venezúela og
Brazilíu, en einnig Kanada.
Forráðamenn Alumar-fyrirtæk-
isins í Brazilíu hafa sagt að þeir
muni auka framleiðsluna lítið eitt á
þessu ári. Álframleiðsla Venezúela
jókst um 5.4% í maí miðað við sama
mánuð í fyrra.
Kaltsjenkó segir að Rússar hafi
skorið niður framleiðsluna um
200.000 lestir til l.júlí. í janúar
samþykktu Rússar að minnka fram-
leiðsluna um 300.000 tonn í apríl
og um 200.000 tonn fyrir 1. júlí.
Rússneskir álframleiðendur segja
að dregizt hafi að minnka fram-
leiðsluna af tæknilegum ástæðum.
Fjölmiðlar
Fimmta sjónvarps-
rásin í Bretlandi
London. Reuter.
FIMMTA sjónvarpsrásin hefur
verið leyfð í Bretlandi og um
leið verða heimilaðar allt að 12
stafrænar stöðvar, sem sagt er
að eigi að auka val áhorfenda
og búa í haginn fyrir stafrænt
hátæknisjónvarp handa öllum.
Lokaákvörðun í málinu er
hins vegar í höndum sérstaks
sjónvarpsráðs, Independent
Television Commission, og það
hefur sitthvað við áætlun stjórn-
valda að athuga.
Peter Brooke útvarpsráð-
herra virðist telja stafrænt sjón-
varp lykilatriðið. Ef aðeins yrði
beitt ríkjandi tækni mundi rás
5 aðeins ná til tveggja þriðju
hluta brezku þjóðarinnar.
Eftirsótt rás
Ýmsir aðilar eru taldir hafa
áhuga á að reka rás 5, sem
gæti orðið „síðasta fijálsa rásin
í Vestur-Evrópu“. Mest hefur
heyrzt í fjölmiðlafyrirtækjunum
Pearson Plc, Time Wamer Inc
og MAI Plc.
Virgin-samsteypa athafna-
mannsins Richards Bransons
kveðst vera að móta með sér
„heildarhugmynd" og ræða við
aðra aðila.
Hæðir í SIS-
húsi óseldar
„ÞAÐ hefur ekkert komið út úr
samningaviðræðum við ríkið enn
sem komið er, en ég hef engar
áhyggjur af að ekki takist að
selja þessa eign, enda er hér besta
skrifstofuhúsnæði í bænum,“
sagði Margeir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnulífeyris-
sjóðsins, í samtali við Morg-
unblaðið. Sjóðurinn á fjórar hæð-
ir í SÍS-húsinu við Kirkjusand,
sem að sögn Margeirs eru metnar
á rúmar 500 milljónir króna, en
nýtir hluta af einni hæð sjálfur.
Margeir sagði að Samvinnulífeyr-
issjóðurinn hefði átt í viðræðum
við ríkið um kaup á húsnæðinu,
m.a. undir starfsemi Tryggingar-
stofnunar ríkisins. „Við höfum
einnig rætt við aðra aðila, en það
hefur ekkert komið út úr því
enn. Við þurfum ekki að ör-
vænta, sjóðurinn stendur ágæt-
lega, með tæplega 8 milljarða
eignir.“
Verð á
kakó
hækkar
London. Reuter.
VERÐ á kakó til afhendingar
í september hækkaði í gær
um 34 pund í 1,102 pund tonn-
ið.
Skýringin á hækkuninni var
sú að taugaóstyrkir fjárfestar
og framleiðendur kepptust um
að kaupa kakóbirgðir til þess
að afstýra spákaupmennsku á
við þá sem hefur stuðlað að
því að verð á kaffi hefur
hækkað um 80% á undanförn-
um vikum.
„Kaffi hefur greinilega
áhrif á verð á kakói," sagði
sérfræðingur nokkur. „Mörg
fyrirtæki, sem verzla með
kaffi, verzla einnig með kakó
og eru staðráðin í að láta ekki
koma sér í opna skjöldu, ef
kakóið hækkar einnig upp úr
öllu valdi."
Vegna betra veðurs á kaffi-
ræktarsvæðum í Brazilíu um
helgina lækkaði verð á kaffi
til afhendingar í september
um 28 dollara í gær í 3,800
tonnið.
Gosdrykkir
Colastríð
í algleymingi
í Japan
DÓTTURFYRIRTÆKI Coca
Cola í Japan hefur dregizt inn
í verðstríð og reynir að veija
markað sinn gegn ódýrari,
innlendum tegundum.
Vegna harðnandi sam-
keppni hefur fyrirtækið flutt
inn frá Bandaríkjunum
300.000 kassa af Coca Cola,
sem verða seldir á niðursettu
verði í stórverzlunum og á
skyndibitastöðum á Stór-
Tókýósvæðinu.
Colastríð er nýmæli í Japan,
en slík verðstríð hafa geisað
í Norður-Ameríku og Evrópu,
þar sem innlendar tegundir
mæta samkeppni frá ódýrari
tegundum.
Framleiða gosdrykki
í Japan hefur stórverzlana-
keðjan Iko-Yokado tekið upp
samvinnu við kanadíska fyrir-
tækið Cott og tvö bandarísk
fyrirtæki um framleiðslu gos-
drykkja. Smákaupmenn selja
354 millilítra dós á 78 jen, 29%
lægra verði en venjulega dós
með Coca Cola, en Daiei,
umsvifamesta stórverzlana-
fyrirtækið í Japan, hefur hafið
sölu á eigin cola-drykk, fram-
leiddum í Bandaríkjunum, á
39 jen.
Uppsagnir
hjá PepsiCo
New York. Reuter.
PEPSI COLA hyggst fækka
6.000 stjórnsýslustörfum í
gosdrykkjadeild fyrirtækisins
í Bandaríkjunum um 10-20%
að sögn Wall Street Journal.
Um fjórðungi 1.000 starfs-
manna í höfuðstöðvum gos-
drykkjadeildar fyrirtækisins í
Somers, New York-ríki, verð-
ur sagt upp að sögn blaðsins.
Stjórnendur jafnt sem ritarar
munu missa atvinnuna.