Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 15
ERLENT
.
Tryggðu þér Hope strax í dag,
hafðu samband við söiumenn okkar í síma 614040
Eitt afnotagjald
fyrir 99 H HOPE símboða!
Með Hope símboðakerfinu þarf aðeins eina símalínu
fyrir allt að 99 símboða, í stað einnar línu fyrir hvern
símboða eins og nú er í eldri kerfum
c
Eitt símanúmer og 99 einkanúmer!
Með einkakóda berast skilaboðin einungis til þín, þótt þú
sért inni á sama símanúmeri og aðrir.
Eins býður Hope-símboðinn m.a. upp á:
■ MINNISHÓLF fyrir allt að 16x20 stafa skilaboð.
■ TÓNMERKJAVAL, þ.e. 3 mismunandi
hringingar/merki.
■ SÉR EINKENNI FYRIR ENDURTEKIN SKILABOÐ.
■ KLUKKA OG VEKJARI
■ RAFHLÖÐUAÐVÖRUN. Rafhlaðan endist rúmlega
600 klukkustundir og símboðinn
lætur vita þegar líður að skiptingu.
■ AÐVÖRUN UTAN ÞJÓNUSTUSVÆÐIS
■ TELJARI FYRIR INNKOMIN SKILABOÐ,
■ SJÁLFVIRK PRÓFUN. Símboðinn gerir sjálfu
prófanir og villuleitanir
stmnKKDm
Símtczfci fi.f.
Hátúni 6a, sími 614040
Bændur
í Belgíu
mótmæla
HUNDRUÐ reiðra bænda í
Belgíu lokuðu í gær vegum í
Flæmingjalandi til að mót-
mæla áformum stjórnarinnar
um aðgerðir til að draga úr
offramleiðslu á svína- og kúa-
skít sem hún segir menga
grunnvatn og stuðla að súru
regni. Bændurnir segjast
verða fyrir miklu tekjutapi og
margir verði að bregða búi
vegna aðgerðanna.
Áfall fyrir
Balladur
ALAIN Carignon, fjarskipta-
málaráðherra Frakklands,
sagði af sér á sunnudag vegna
spillingarmáls í Grenoble, þar
sem hann er borgarstjóri. Car-
ignon er náinn samstarfsmað-
ur Edouards Balladurs forsæt-
isráðherra og afsögnin er mik-
ið áfall fyrir hann.
Umhverfislýti
fjarlægt
BRESKA stjórnin tilkynnti í
gær að eitt af umhverfislýtum
miðborgarinnar í London,
þrjár turnbyggingar sem hýsa
umhverfis- og samgönguráðu-
neytin, verði rifíð niður. Bygg-
ingarnar eru 21 hæðar og
hafa gnæft yfír þinghúsið og
fleiri byggingar í Westminster
í 30 ár.
Höfundur
tölvuveira
handtekinn
BRESKA lögreglan kvaðst í
gær hafa handtekið mann sem
grunaður er um að hafa samið
þijár skaðlegar tölvuveirur,
sem eyða gögnum á hörðum
diskum og lama diskadrifin.
Þegar veiran kemst í tölvurnar
birtast eftirfarandi skilaboð á
ensku: „Reyktu handa mér rið-
lax, ég kem aftur í morgun-
verð. Því miður á það ekki við
um sum gögnin þín.“ Verið er
að rannsaka hversu miklum
skaða veirurnar ollu.
Meiri hiti
vegna gufu?
PIERRE Morrel, virtur lofts-
lagsfræðingur, sagði í gær að
aukin vatnsgufa vegna lofts-
lagsbreytinga á jörðinni myndi
auka skýjamyndunina og gæti
þannig stuðlað að enn meiri
hita. Hann sagði þetta þó ráð-
ast af því hvernig skýin mynd-
uðust; hitinn myndi aukast ef
skýin mynduðust ofarlega í
gufuhvolfínu en gæti minnkað
ef þau yrðu neðarlega.
Frakklands-
forseti
í aðgerð
París. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, forseti
Frakklands, gekkst undir skurðað-
gerð í gær og hún heppnaðist vel,
að sögn læknis hans.
Mitterrand gekkst undir aðgerð
vegna krabba-
meins í blöðru-
hálskirtli í sept-
ember 1992 og í
gær var hann
skorinn upp til að
losa stiflu í þva-
grásinni sem hafði
áhrif á nýrun.
Talsmaður rík-
issjúkrahúsa í París sagði að forset-
inn kynni fara af Cochin-sjúkrahús-
inu um næstu helgi og það tæki
hann tvo mánuði að ná sér að fullu
eftir aðgerðina.
Sumarleyfi franskra stjórnmála-
manna er nýhafíð og mesta anna-
tíma forsetans er lokið. Ekkert
bendir til þess að flýta verði forseta-
kosningunum, sem eiga að fara
fram í maí, vegna aðgerðarinnar.
Mitterrand
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig meÖ heimsóknum, gjöfum og kveÖjum á
60 ára afmœli mínu 2. júlí sl.
Þráintt Þorvaldsson.
Excel námskeið
94029
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Rúmlega milljarður manna hlýddi
á tenórana þrjá
Puccini og
Sinatra á
efnisskránni
Los Angeles. Reuter.
TENÓRARNIR þrír, Luciano
Pavarotti, Placido Domingo og
Jose Carreras, sungu bæði klass-
ískar óperuaríur og bandarísk
dægurlög fyrir 56 þúsund áheyr-
endur á Dodger-leikvanginum á
laugardagskvöldið, en búist er við
að alls hafí rúmlega milljarður
manna í 70 löndum fylgst með
beinum sjónvarpssendingum frá
tónleikunum. Meðal áheyrenda var
Frank Sinatra, og eftir að tenór-
arnir höfðu sungið „My Way“ -
líklega frægasta lag sem Sinatra
hefur sungið - stóð hann á fætur
og sendi þeim fingurkoss.
Tenóratríóið vatt sér síðan í
„Singing in the Rain“, til heiðurs
Gene Kelly, sem sat í fremstu röð
við hlið Sinatra, og „Moon River.“
Fótboltafíklar
Áheyrendurnir 56 þúsund, sem
troðfylltu leikfanginn, fögnuðu gíf-
urlega þegar tenórarnir sungu aríu
Puccinis, „Nessun Dorma“, eftir
fjórða uppklappið, en sú aría var
hámarkið á tónleikunum sem þeir
héldu í Róm fyrir fjórum árum.
Eins og stundum hefur verið tal-
að um „fimmta Bítilinn“, þá hefur
hljómsveitarstjórinn Zubin Metha
verið nefndur „fjórði“ maðurinn í
tríóinu, og á laugardagskvöldið
stýrði hann 104 manna Fílharmón-
Reuter
PLACIDO Domingo, Jose Carreras og Luciano Pavarotti syngja á Dodger-leikvanginum í Los
Angeles á laugardagskvöldið. Það var fátt sem benti til þess að leikvangurinn væri að upplagi
gerður fyrir hafnabolta, þegar tónleikar tenóranna þriggja fóru þar fram.
íuhljómsveit Los Angeles og 60
manna óperukór.
Tónleikarnir voru haldnir í
tengslum við Heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu, sem lauk nú um
helgina, og að sögn framkvæmda-
stjórans, Tibor Rudas, var það ekki
síst fótboltafíkn tenóranna sem
gerði tónleikana mögulega. „Ég
vissi að ef við myndum gera þetta
beinlínis tengt Heimsmeistara-
keppninni - fýrstu tónleikarnir [í
Róm fyrir fjórum árum] voru það
ekki, þetta var tilviljun - þá myndu
þeir vera tilbúnir til að vera með,“
sagði Rudas.
Hundrað og fimmtíu metra sviðs-
rnynd af regnskógi hafði verið reist
á leikvanginum, og tenórarnir komu
fram á sviði sem var umkringt 20
súlum að rómverskum hætti, en þær
voru búnar til í Ungveijalandi, sér-
staklega að þessu tilefni.
Meðal áheyrenda voru fyrrum
Bandaríkjaforseti, George Bush og
frú Barbara; núverandi varaforset-
afrú, Tipper Gore. Búist hafði verið
við að Ronald Reagan og frú Nancy
kæmu á tónleikana, en af því varð
ekki.