Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 9 FRÉTTIR Visa Island gerir athugasemd við umræðu um korthafaskilmála VEGNA athugasemda Neytenda- samtakanna við athugasemdum Visa íslands sem birtust sl. laugar- dag, hefur Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa íslands, óskað eftir að eftirfarandi athuga- seind birtist í Morgunblaðinu: „I athugasemdum Neytendasam- takanna vegna viðbára Visa við kæru þeirra til Samkeppnisstofnun- ar um korthafaskilmála er því blá- kalt neitað að þau hafi átt þess kost að gefa umsögn um debet- kortaskilmála á undirbúningsstigi. Af því tilefni vill undirritaður upp- lýsa það að hann afhenti skilmálana í handriti formanni samtakanna, Jóhannesi Gunnarssyni, í eigin per- sónu á skrifstofu hans, snemma árs 1993 með þeim orðum að sjálfsagt væri að fá góðar ábendingar frá honum um það sem betur mætti fara frá sjónarmiði Neytendasam- takanna. Engin umsögn eða ábend- ingar bárust. Samkeppnisstofnun fékk skilmálana formlega til um- sagnar frá framkvæmdanefnd um RAS-þjónustu og debetkort áður en þeir voru gefnir út. Engin at- hugasemd barst á því stigi. Það var mishermt að orðalagið „vítavert gáleysi" kæmi fyrir í er- indi Neytendasamtakanna, heldur er þar talað um „einfalt gáleysi". Öll slík hugtök og önnur- áþekk, eins og það að aðilar í viðskiptum geti bakað sér ábyrgð ef þeir sýni ekki „eðlilega aðgæslu“, atriði sem stangast á við „ósett lög eða lög í öðrum löndum" í framtíðinni, er æskilegt að fá lögfræðilega eða málvísindalega skilgreiningu á. Aðrar athugasemdir bíða greinar- gerðar til Samkeppnisstofnunar þegar hennar er æskt.“ Alþjóðleg veisla í Viðey ALÞJÓÐLEG veisla var haldin í Viðey fyrir skömmu þar sem saman komu erlendir nemar á vegum fjögurra deildarfélaga í Háskóla Islands. AIls eru nem- arnir 40 talsins og koma þeir víðs vegar að úr heiminum. I veislunni var starfsemi félag- anna kynnt auk þess sem erlendu og innlendu nemunum gafst kost- ur á að kynna land sitt og þjóð. A myndinni sést kynningarbás fyrir Frakkland og ber hæst lík- an af Eiffel-turninum. Morgunblaðið/Sverrir 1 || 1 Útbob ríkisbréfa og ríkisvíxla fer fram mibvikudaginn 20. júlí RIKISBREF Um er a& ræða 3. fl. 1994 til 2ja ára. Útgáfudagur: 22. júlí 1994. Gjalddagi: 19. júlí 1996. Ríkisbréfin eru óverðtryggb og bera 6% fasta vexti sem leggjast við höfuðstól á 12 mánaða fresti. Ríkisbréfin verða gefin út í þremur verðgildum: 100.000, 1.000.000 og 10.000.000 kr. ab nafnvirði. Ríkisbréfin eru seld með tilboðs- fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa- fyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóbum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisbréfin skv. tiltekinni ávöxtunarkröfu. Lágmarkstilboð er kr. 5.000.000 að nafnvirði. RIKISVIXLAR Um er ab ræða 14. fl. 1994 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til 3ja mánaða með gjalddaga 21. október 1994. Ríkisvíxlarnir eru seldir með tilboös- fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa- fyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana. Lágmarkstilbob skv. tiltekinni ávöxtunarkröfu er kr. 5.000.000 og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er kr. 1.000.000. Abrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf og ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við ofangreinda aðila sem munu annast tilboðsgerö fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða ríkisvíxla (mebalávöxtun vegin með fjárhæö), en Seðlabanka íslands er einum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða í ríkisbréf. Ríkisbréfin og ríkisvíxlarnir verða skráðir á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki þeirra. Öll tilboð í ríkisbréf og ríkisvíxla þurfa ab hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14 á morgun, miðvikudaginn 20. júlí. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70. Ný sending af Dubin og Adidas bómullargöllum. Dubin útivistarfatnaður í miklu úrvaji. Sportbúð Kópavogs Hamraborg 20A - sími 641000 Nýjar haustvörur Útsala á sumarvörum TESS x: Neöst við Dunhaga, s: 622230 Opið virko daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 MOULINEX örbylgjuofnar meö snúningsdiski létta heimilisstörfin í ys og erli dagsins. MOULINEX örbylgjuofnar hraðvirk heimilisaðstoð. Fssst i naestu rc»ftPiRkiaverslun I. Guðmundsson & Co. hf. UMBOOS OG HEILDVERSLUN SfMI 91-24020 FAX 91-623145 Límbönd fyrir fagmenn heíur „SCOTCH" lírribönd fyiii ctlla sem þuifa að líma með límbandi... ...a pappu ...áplast ..ágler ...á málm ÁRVÍK ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 687222 • MYNDRITI687295

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.