Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Jakob Björnsson bæjarsljóri kom til starfa í gærmorgun
Ræddi við
samgöngu-
ráðherra
í GÆR var fyrsti starfsdagiir
Jakobs Björussonar, bæjarstjóra
á Akureyri. Hann sagðist að vísu
aðeins hafa komið við á bæjar-
skrifstofunum á laugardag, enda
væri hið fornkveðna að laugar-
dagur væri til lukku en mánu-
dagur til mæðu.
Fjöldi blómasendinga
Ekki virtist mánudagur til mæðu
hjá nýjum bæjarstjóra, að
minnsta kosti var veður gott til
að hefja starf, hiti ekki undir 20
stigum og kyrrt veður. Bæjar-
stjóri kvaðst hafa tekið á móti
fjölda blómasendinga og góðra
kveðja, gengið um og heilsað
starfsfólki og bæjarritari hefði
séð til þess að hafa veisluborð
með morgunkaffinu. Gárungarn-
ir hefðu talið að þetta yrði nýr
stíll nýs bæjarstjóra, en þeim
yrði tæplega að ósk sinni.
Bæjarstjóri sagðist á fyrsta degi
hafa fengist við ýmis mál sem á
borðum lægju, meðal annars hús
næðismál félags- og fræðslu-
sviðs, sem lengi hefðu beðið af-
greiðslu. Stefnt væri að því að
sameina félags- og fræðslusvið,
Svæðisstjórn fatlaðra og
Fræðsluskrifstofu Norðurlands
eystra í einu húsnæði á Glerár-
götu 26 og nú yrði kappkostað
að ganga frá samningum þess
efnis.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
, Síðari hluta dags átti bæjar-
stjóri fund með Halldóri Blöndal
samgönguráðherra og forstöðu-
mönnum hafnarmála á Akureyri
vegna fyrirhugaðra kaupa á
flotkví.
Jakob Björnsson sagði að við
fyrra starfi hans sem bókara hjá
Skinnaiðnaði hf. tækju nokkrir
starfsmenn sem þar væru fyrir,
ekki stæði til að ráða nýjan mann
til þess en með ýmsum tilfæring-
um færðist það á fleiri hendur.
1990 ’91 ’92 ’93 ’94 1990 ’91 ’92 ’93 '94 1990 ’91 ’92 '93 '94
Atvinnuleysi
meira en í fyrra
SAMKVÆMT skráningu atvinnu-
leysis á Akureyri í júnímánuði voru
atvinnuleysisdagar í mánuðinum
alls 10.249. í lok júní voru alls 435
skráðir atvinnulausir, 177 karlar
og 258 konur. Stærstu hópar at-
vinnulausra eru verkakonur (114),
verslunarkonur (72), verkamenn
(68), iðnverkakonur (40), versiun-
armenn (28) og iðnverkamenn (25).
Samkvæmt upplýsingum Ár-
manns Gylfasonar hjá Vinnumiðl-
unarskrifstofunni á Akureyri eru
ailmiklu fleiri atvinnulausir á Akur-
eyri nú en á sama tíma í fyrra. Þá
voru atvinnulausir alls 396, 175
karlar og 221 kona. Fjöldi atvinnu-
lausra karla er nokkurn veginn sá
sami í fyrra og nú en nú eru at-
vinnulausar konur nokkru fleiri.
Ármann gat þess að í þessum
tölum væri tii dæmis ekki nema
hluti skólafólks og þeirra sem ný-
komnir eru frá námi, en til að kom-
ast á atvinnuleysisskrá þarf fólk
að hafa að baki a.m.k. 425 stunda
vinnu á næstliðnum 12 mánuðum.
Ekki bjart framundan
Að sögn Guðmundar Stefánsson-
ar, formanns atvinnumálanefndar
Akureyrarbæjar, verður þetta
ástand að teljast bæði flæmt, og
alvarlegt, ekki síst í ljósi þess að
ekki eru í sjónmáli neinar þær
breytingar sem gætu slegið á at-
vinnuleysið svo um munaði.
Fram kom jafnframt að í átaks-
verkefnum á vegum Akureyrarbæj-
ar hefðu unnið 52 og auk þeirra
hefðu 19 verið í þess konar verkefn-
um á vegum einstaklinga og fyrir-
tækja.
Bamaskóla Akureyrar
vantar kennara til að annast sérkennslu og/eða almenna kennslu
næsta skólaár. Um er að ræða heila stöðu eða hlutastörf eftir því
sem um semst. Unnið er að því að skólinn verði einsetinn strax
næsta vetur og í gangi er mikill undirbúningur að lengingu
kertnslutíma og útvíkkaðri þjónustu við nemendur skólans og
fjölskyldur þeirra.
Upplýsingar gefa skólastjóri, Benedikt Sigurðarson, sími 96-24661
og aðstoðarskólastjóri Birgir Sveinbjömsson, sími 96-26747 og í
símum skólans 96-24449/24172, fax 96-11267.
Nýjar norð-
lenskar
kartöflur í
næstu viku
KARTÖFLUSPRETTA hefur verið
góð að undanförnu og nú hillir und-
ir að neytendur geti fengið nýjar
norðlenskar kartöflur í verslunum
um eða upp úr helgi.
Hjá Kartöflusölunni Svalbarðseyri
hf. á Akureyri fengust þær upplýs-
ingar að þar væri fyrstu premier-
kartaflnartna að vænta um eða upp
úr helginni. Þær hefðu sprottið
ágætlega og þeir sem hefðu laumast
til að fá sér í soðið úr görðum sínum
væru ánægðir með árangurinn. Hjá
Öngli hf. í Eyjaíjarðarsveit var sagt
að þaðan kæmu premier-kartöflur á
markað undir mánaðamót.
Hjá kartöfluumboðum kom fram
að ósviknar íslenskar kartöflur, eins
og vant er að flokka gullauga og
rauðar íslenskar, kæmu síðar á
markað en premier. Ekki liði á löngu
þar til gullauga birtist, það væri
spurning um fáar vikur. Hins vegar
kæmu rauðar enn síðar. Þær þyrftu
dimmar nætur tii að vaxa rækilega.
Lífrænt ræktaðar kartöflur
Hjá Kartöflusölunni Svalbarðseyri
hf. kom fram að í haust yrðu til
söiu lífrænt ræktaðar kartöflur. Á
síðasta vetri hefðu komið á markað
sérræktaðar kartöflur frá nokkrum
bændum. Allt væri unnið með hönd-
um og engar vélar væru notaðar,
hvorki við upptöku né flokkun. Þess-
ar scrræktuðu kartöflur voru seldar
í sérstökum pappírspokum, voru
nokkru dýrari en aðrar, en fólki lík-
aði þær mjög vel.
------•—*—«----
Vitni óskast
að árekstri
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Glerárgötu og Tryggva-
brautar á Akureyri um kl. 18 á
föstudag. Engan sakaði en bílarnir,
sem voru af gerðinni Saab og
Mazda, eru mikið skemmdir.
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir
vitnum að árekstrinum. Sérstaklega
vill hún ná tali af fólki sem ók um
gatnamótin á ljósleitum bíl þegar
áreksturinn varð. Þeirri bifreið var
ekið suður Hörgárbraut, suður yfir
Glerárbrú og beygði hún á gatna-
mótunum austur Tryggvagötu.
Síldarminja-
safn í Róalds-
brakka opnað
Siglufjörður - Síldarminjasafnið í
Róaldsbrakka á Siglufirði var form-
lega opnað laugardaginn 9. júlí sl.
að viðstöddu fjölmenni. Af því tilefni
var samkoma haldin á planinu fyrir
utan brakkann og tóku þar til máls
Örlygur Kristfinnsson, safnvörður,
sem m.a. rakti aðdragandann að
stofnun safnsins og uppbyggingu
þess, Þór Mágnússon, þjóðminjavörð-
ur, Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar Siglufjarðar, Snorri Sigfús-
son, gamall síldarsaltandi á Siglu-
firði, og að lokum Ólafur G. Einars-
son, menntamálaráðherra, sem form-
lega opnaði síldarminjasafnið á
Siglufirði.
Söfnun gamalla muna
Það eru u.þ.b. 35 ár liðin síðan
fyrst var farið að huga að söfnun
gamalla muna á Siglufirði. En árið
1977 fengu bæjaryfirvöld á Siglu-
firði ungan þjóðháttafræðing, Frosta
Jóhannesson, til að vinna að því að
koma upp minjasafni. Skipuleg söfn-
un hófst, gömul og merk hús voru
friðuð og áætlun um sérstakt síldar-
minjasafn fékk á sig ákveðna mynd.
Menn gerðu sér grein fyrir því að
saga staðarins á seinni tímum var í
nánu samhengi við sögu veiða og
vinnslu síldarinnar. En fljótt kom
babb í bátinn og áformin um safnið
sigldu í strand í árslok 1979.
Tíu ár liðu og farið var að tala
um að kveikja í öllu „bévítans drasl-
inu“ eða aka því hreinlega á haug-
aiia. Þá hóuðu sig saman áhugamenn
og stofnuðu féiag, sem yfirleitt geng-
ur undir nafninu „FÁUM“ þ.e.
skammstöfun fyrir Félag áhuga-
manna um minjasafn.
Til að gera langa sögu stutta, má
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Sungið, blásið og grillað
ÞAÐ var í mörg horn að líta við
undirbúning landsmóts ung-
mennafélaganna, sem fór fram á
Laugarvatni um helgina. Fjöl-
mennur sunnlenskur barnakór
kom fram á mótinu og í liðinni
viku æfði kórinn í íþróttamiðstöð-
inni í Þorlákshöfn ásamt Lúðra-
sveit Þorlákshafnar. Unnur Stef-
ánsdóttir skipulagði þessa samæf-
ingu og sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins að marga
enda þyrfti að hnýta til að hægt
væri að halda landsmót. Félagar
í Lionsklúbbi Þorlákshafnar tóku
vel á móti hópnum og grillaði
pylsur fyrir söngfuglana og
lúðrablásarana. *
Ovenjulegt j akabákn
Hnausum - Jökulsárlónið á
Breiðamerkursandi kemur stöð-
ugt á óvart. Fréttaritari kom þar
um daginn með því hugarfari að
nú tæki hann öngva mynd, en þar
var þá jakabákn óvenjulegt.
Jakinn svo þunnur að neðan, að
sólskinið náði þar í gegn á bletti,
Að öðru leyti var jakinn í fugls-
mynd, en vantaði þó höfuðið á
þann risafugl.