Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 27 MIIMIMINGAR KARL BRAGASON + Karl Bragason var fæddur í Birkihlíð í Ljósa- vatnsskarði 12. mars 1936. Hann varð bráðkvaddur á ferðalagi á leið til Herðubreiðarlinda 8. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Bragi Ingjaldsson, bóndi Birkihlíð, áður að Oxará í Bárðardal og fædd- ur þar 2. febrúar 1902, dáinn á Akur- eyri 11. ágúst 1992, og eiginkona hans, Lára Bjarnadóttir, fædd á Kambsstöðum í Ljósavatns- skarði 4. júní 1904, andaðist á Akureyri 16. ágúst 1991. Systk- ini Karls voru Baldur, fæddur á Oxará 1. október 1933, nú bú- settur á Akureyri, og tvíbura- systur, fæddar í Birkihlíð 8. nóvember 1937, Elín Inga, hús- móðir á Akureyri, dáin 14. sept- ember 1993, og Þórhalla, hús- móðir á Birningsstöðum í Ljósa- vatnsskarði. Eftirlifandi sam- býliskona Karls er Margrét Ket- ilsdóttir frá Finnastöðum í Eyja- firði, fædd 6. desember 1933, en þau áttu ekki börn saman. Karl stundaði nám við smíða- deild Héraðsskólans á Laugum veturinn 1954-55, en starfaði eftir það um árabil á búi for- eldra sinna. Árið 1976 lauk hann sveinsprófi í húsasmíði við Iðn- skóla Akureyrar og vann að iðn sinni hjá ýmsum byggingarfyr- irtækjum á Akureyri til dauða- dags. Karl var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í gær. Kveðja frá Ferðafélagi Akureyrar FÖSTUDAGINN 8. júlí sl. var hópur fólks samankominn við skrifstofu Ferðafélags Akureyrar. Sumir voru að leggja upp í skemmtiferð á vegum félagsins, aðrir hugðu á vinnuferð til starfa á svæðum þess í Herðu- breiðarlindum og við Dyngjufjöll. Þróun ferðamála undanfarna ára- tugi hefur gert Ferðafélag Islands og deildir þess úti á landi atvinnurek- endur í ferðaþjónustu án þess samtök þessi hafi óskað eftir eða slík- ur hafi verið tilgangur þeirra í upphafi. fjalla- skálar sem upphaflega voru ætlaðir til þess _að greiða fyrir ferðum ís- lendinga um sitt eigið land hafa orðið gisti- staðir útlendinga og nánasta umhverfi þeirra tjaldsvæði fyrir ferða- hópa. Félögin hafa orðið að bregðast við þessum aðstæðum, bæta hús- næði og aðra aðstöðu og halda mannvirkjum þessum við. Slíkt er nær undantekn- ingarlaust unnið í sjálfboðavinnu fé- lagsmanna eða annarra er velvild- arhug bera til félaganna. Er ómælt það erfiði og ótaldar þær vinnustund- ir sem lagðar hafa verið fram af vinnufúsum höndum við þessi störf. í vinnuhópnum sem lagði upp þetta sinn var einn af forvígismönn- um Ferðafélags Akureyrar síðastlið- inn áratug og hinn traustasti félagi, Karl Bragason, húsasmiður. Þetta varð hans síðasta ferð þar sem hann varð bráðkvaddur sem farþegi í bíl er þá var staddur á Mývatnsheiði. Ferðafélag Akureyrar vill heiðra minningu hans með þessum línum og rekja að nokkru þau störf er hann tókst á hendur í þágu þess. Þá er þess fyrst að geta að hann tók sæti í ferðanefnd félagsins 1985 og starf- aði í henni óslitið til ársins 1992, þar af formaður árið 1987. Nefnd þessi er ein hin mikilvægasta þeirra er starfa á vegum félgsins. I hennar hiut kemur að semja ferðaáætlun, sem vinna þarf haustið fyrir hið kom- andi ferðaár, og fylgja síðan eftir framkvæmd áætlunarinnar. í tengsl- um við nefndarstörf þessi tókst hann á hendur fararstjórn, einkum í lengstu ferðum féiagsins, sumarleyf- isferðunum, þar sem mönnum vex gjaman í augum umfang ferðarinnar og tímalengd sú sem fer í hið ólaun- aða fararstjórastarf. Fararstjórn þessari sinnti hann einnig sl. sumar, 1993, þótt ekki ætti hann lengur sæti í nefndinni. í varastjórn félagsins kom hann inn 1987 og í aðalstjórn sat hann sem varaformaður 1988. 1991 tók hann sæti i nefnd þeirri er hin síð- ustu ár hefur borið nafnið Þorsteins- skála- og Strýtunefnd. Nafn þetta er sprottið af tveimur húsum er fé- lagið á í Herðubreiðarlindum. Þar er sennilega fjölsóttasti viðkomu- og gististaður ferðamanna á öræfum norðan jökla, gistinætur 5.000 - 10.000 á sumri nú um alllangt ára- bil. Framkvæmdir félagsins á þessum stað síðustu tvo áratugi eru umtals- verðar. Má þar til nefna auk bygg- inga og viðhalds húsa, viðunandi hreinlætisaðstöðu fyrir gesti, vatns- veitu og göngubrýr yfir lindir og ár. Fjármagn hefur í nokkrum mæli komið frá öðrum aðilum en verk þau sem vinna þarf leysa sjálfboðaliðar á vegum félagsins af hendi. Bygging göngubrúar yfir Lindaá, er auðveld- aði gangandi fólki að njóta náttúru- perlunnar Herðubreiðarlinda, var höfuðtilgangur þeirrar hinstu ferðar sem Karl heitinn lagði upp í. Að því verki ætlaði hann að leggja hagleik sinn og atorku eins og svo oft áður á einmitt þessum stað. Á enn einu sviði sem hér skal getið var samskon- ar framlag hans ómælt í þágu félags- ins. Um langt árabil hafði Ferðafélag Akureyrar búið við þröngt og aldeilis ófullnægjandi húsnæði, eitt með- alstórt skrifstofuherbergi. 1987 gafst félaginu kostur á mun rúm- betra leiguhúsnæði sem lagfæra þurfti svo að hentaði þörfum þess. Ekki lét Karl sinn hlut eftir liggja að það verkefni næði fram að ganga. 1989 festi félagið svo kaup á hús- næði er segja má að rúmi með all- góðu móti daglega starfsemi þess. Það var gamalt og hafði verið hag- nýtt til ýmissa óskyldra nota. Mikill- ar vinnu þurfti því við um breytingar og viðhald svo að hæfði hinu nýja hlutverki. Þar unnu margar hendur félagsmanna létt verk en ekki var hlutur Karls þar sístur enda nýttist menntun hans sem iðnaðarmanns og starfsþjálfun ti) fullnustu. Óvænt andlát manns, sem enn var á miðjum aldri, í fullu starfi og að því best var vitað við óbilaða heilsu, snertir þá sem kringum hann stóðu með öðru móti og sárara en þegar aldraður maður hnígur að moldu að loknu ævistarfi. Svo verður okkur, félögum Karls í Ferðafélagi Akur- eyrar. Við viljum að lokum samfylgd- ar hans með okkur votta aðstandend- um samúð við sviplegt fráfall hans og kveðja hann með þökk fyrir öll þau störf er hann af fúsum vilja innti af hendi í þágu félagsins. Guðmundur Gunnarsson. SVAVA SIGURÐARDÓTTIR + Svava Sigurðardóttir fædd- ist í Ystu-Vík í Grýtubakka- hreppi 7. júlí 1901. Hún lést á Droplaugarstöðum 7. júlí síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju í gær. Vegna mistaka í vinnslu varð eftirfarandi minningargrein um Svövu viðskila við greinina sem birtist í Morgunblaðinu á blaðsíðu 28 á sunnudaginn var og eru hlutaðeigendur innilega beðnir afsökunar á mistökun- um. Elsku amma. I HUGA minn koma margar góðar minningar er ég minnist samveru- stunda okkar og mun ég ætíð minn- ast þeirra með hlýjum hug og mikl- um söknuði. Hér á eftir koma vers úr erfiljóði um ömmu þína, Hólmfríði Einars- Vandaðar útfararskreytingar. Kransar, krossar, kistuskreytingar. Sími: 681222 dóttur, sem mér finnst alveg eins geta átt við um þig. Mitt skap varð hljótt, er heyrði ég, að horfin værir þú, sem hafðir unnið ævistarf af alúð, dygg og trú. Að kistu þinni kem ég því að kveðja og þakka nú. Og börnin uxu, urðu stór og endurguldu þá - hvern vinnudag og vökunótt, sem vöggu þeirra hjá þú sast og mildar bænir baðst og bægðir sorgum frá. .(Kr. Einarsson) Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðlxjrð íallegir salir og mjög góð þjónustiL l pplýsingar í súna 2 23 22 FLUGLEIÐIR HðTEL LOFTmHS Megir þú hvíla í friði og samein- ast afa og öðrum ástvinum sem á undan eru farnir. Blessuð sé minning þín. Þín Hrund. - Mi Krossar á leiði I viðarlit og m Mismunandi mynslur, Sfmi 91-35929 áloðir vönauo vinna. og 35735 Blómastoju Friöfinm Suðurfandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öil kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. % t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEORG SIGURÐSSON, Vörðustíg 5, Hafnarfirði, sem andaðist þann 13. júlí í St. Jósefs- spítala, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 20. júlí kl. 10.30. Sjöfn Georgsdóttir, Grétar Hinriksson, Sigurður Georgsson, Erla Georgsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, bróðir, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS SIGURLÁSSON frá Eyrarlandi, Þykkvabæ, Naustahlein 16, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, miðvikudaginn 20. júlí klukk- an 14. Blóm og kransar afþakkaðir. Guðjóna Friðriksdóttir, Magdalena Sigurþórsdóttir, Þórunn Sigurlásdóttir, Jón V. Magnússon, Hrafnhildur Bernharðsdóttir, Friðrik Magnússon, Hrafnhildur Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN GUÐMUNDSSON frá Sveinseyri, Tálknafirði, sem lést 13. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Stóra-Laugar- dalskirkju miðvikudaginn 20. júlf kl. 14. Hólmfríður Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Vinur minn og bróðir okkar, JÓN JÓNSSON húsasmíðameistari frá Patreksfirði, Hverfisgötu 74, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. júlí kl. 15.00. Þorgerður Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Kristján Jónsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést í Landspítalanum föstudaginn 8. júlí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum samúð og hlýhug vegna andlátsins. Einar G. Lárusson, Ragnar Kr. Helgason, Arnheiður Jónsdóttir, Karl A. Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, VIKTOR ÞORKELSSON frá Siglufirði, Sæviðarsundi 15, Reykjavik, sem lést 13. júlí sl., verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 20. júlí kl. 13.30. Ólöf A. Ólafsdóttir, Ólafur G. Viktorsson, Steinar Viktorsson, Bergljót Viktorsdóttir, Hafsteinn Viktorsson, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.