Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Árni Sæberg Sextíu konur setja upp leiksýningu Ný símsvaraþjónusta hjá Veðurstofunni V eðurupplýsingar fyrir ferðamenn LOKAÆFING á leikriti, sem fjallar um kvennafrídaginn árið 1975 var haldin í fyrrakvöld. Leikritið á að sýna á kvennaráð- stefnunni Nordisk Forum, sem hefst nk. mánudag í Turku í Finnlandi. Tvö hundruð konur frá Alþýðusambandi Islands fara á ráðstefnuna en alls munu um 1.300 íslenskar konur fara á hana. Æfingar á leikritinu hafa staðið yfir í nokkra mánuði að sögn Bryndísar Hlöðversdótt- ur hjá ASI en Kolbrún Halldórs- dóttir er leikstjóri. Konurnar eru sextíu að tölu og á öllum aldri að sögn Bryndísar; tuttugu leika karlmenn en fjörutíu kven- menn. Undanfarið hafa þær æft þijá tíma á hverju kvöldi. Bryn- dís segjr að leikritið byggist aðeins að litlu leyti upp á sam- tölum til að það geti höfðað til sem flestra. Það tekur um hálf- tíma í flutningi. Bryndís segir að margar konur hafi lagt mikla vinnu í undirbúninginn fyrir þingið. VEÐURSTOFA íslands hefur tekið upp nýja símsvaraþjónustu einkum ætlaða ferðamönnum. Annars vegar er um að ræða veðurspá á ensku, en hins vegar veðurspá ásamt veð- urlýsingu frá nokkrum veðurathug- unarstöðvum, sem Iesin er á þann hátt að auðvelt á að vera að finna þann hluta veðurspárinnar sem á við tiltekna staði. Þessi þjónusta verður fáanleg það sem eftir er sumars að degi til, frá um kl 8 á morgnana til kl. 22.30 á kvöldin. Númer símsvara Veðurstofunnar er 990600 og er númerið hið sama um allt land, þ.e. grænt númer, án svæðisnúmers. Gjald fyrir þjón- ustuna er 16,60 kr. á mínútu auk grunnskrefs fyrir hvert símtal sem er 3,32 kr. Til að nálgast þessar nýju upplýsingar verður að nota tón- valssíma (takkasíma). Ýmsar aðrar upplýsingar á símsvaranum eru fáan- legar með skífuvalssíma, en um þær má lesa í símaskránni á bls. 8 í at- vinnuskrá. Veðurspáin á ensku fæst með því að hringja í 990600 og velja síðan 4 og aftur 4 um leið og svar heyrist. Veðurupplýsingar á íslensku ætlaðar ferðamönnum fást með því að velja 8 eftir að samband er fengið við sím- svarann. Þá heyrist lýsing á því hvernig velja skal milli iandsfjórð- unga og þegar landsfjórðungur hefur verið valinn heyrist hvernig velja skal veðurspásvæði. Kynningarbæklingur Til að auðvelda mönnum að nota þessa þjónustu hefur verið gerður kynningarbæklingur sem fáanlegur verður á upplýsingamiðstöðvum ferðamála og víðar. í honum er m.a. kort þar sem sjá má skiptingu lands- ins í spásvæði og tafla þar sem því er lýst hvemig finna má hentugustu veðurupplýsingar fyrir tiltekna ferðamannastaði víða um land. Einn- ig er skýrt hvernig unnt er að rekja sig milli spásvæða og finna að lokum veðurhorfur fyrir landið í heild til allt að fjögurra daga. Fulltrúar Alþjóða þingmannasambandsins til ríkja Júgóslavíu Geir H. Haarde einn þingmanna í nefndinni ÞRIGGJA manna sendinefnd á veg- um Alþjóða þingmannasambands- ins fer til lýðvelda fyrrum Jógóslav- íu á morgun, sunnudag, en öll ríkin utan Bosníu eiga aðild að samband- inu. Geir H. Haarde, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, er einn nefndarmanna í þessari ferð ásamt argentískum þingmanni, þingmanni frá Ástralíu sem var þingforseti þar til skamms tíma og einum starfs- manni sendinefndarinnar. Samein- uðu þjóðimar munu annast flutning nefndinnar innan svæðisins, jafnt flugleiðis og landleiðis, auk þess að greiða götu hennar á annan hátt, að sögn Geirs. Framkvæmdastjórn samtakanna gerði tillögu um skipan nefndarinn- ar, en ástralski þingmaðurinn á sæti í stjórninni. Argentíumaðurinn er sérfræðingur í mannréttindamál- um og hefur gegnt formennsku í nefnd innan sambandsins sem fjall- ar um mannréttindabrot á þing- mönnum og Geir er formaður hóps Vestrænna ríkja innan sambands- Safna upplýsing- um um ástandið á svæðinu ins. Nefndin heldur áleiðis til Zagreb á sunnudag þar sem hún mun dveijast í tvo daga. Þaðan heldur hún til Sarajevo ef aðstæður ieyfa, þar sem ætlað er að dvelja í hálfan annan dag og einnig til Pale, þar sem eru höfuðstöðvar Bosníu- Serba. Þaðan verður farið til Belgrad og loks snúið aftur til Genf- ar. Kynnast vandanum af eigin raun Að sögn Geirs er tilgangur ferð- arinnar að ræða við þingmenn á öllum þessum stöðum, fulltrúa stríðandi fylkinga sem hafa fallist á að hitta sendinefndina, og einnig aðra aðila, svo sem fulltrúa sátta- semjara, Rauða krossins og gæslu- liðs Sameinuðu þjóðanna. „Ætlunin er að athuga hvort og með hvaða hætti Alþjóða þingmannasamband- ið getur beitt sér til gagns í deilun- um á þessu svæði, auk þess að safna upplýsingum og gögnum sem við tökum síðan saman í skýrslu sem lögð verður fyrir þing sambandsins í Kaupmannahöfn í september næst komandi," segir Geir. Hann segir sambandið einn fárra alþjóðlegra vettvanga þar sem stjórnmálamenn geti hist og rætt saman í friðsemd þrátt fyrir óhag- stæðar ytri aðstæður, enda skapist utan þessa, tækifæri fyrir ópopin- berar umræður þingmanna ólíkra ríkja. Þannig hafi sambandið t.a.m. stuðlað að lausn í Falklandseyjadeil- unni milli Englands og Argentínu. „Ég veit að sjálfsögu ekki hvort að þessi ferð muni skila einhveijum áþreifanlegum árangri, en þyki per- sónulega afar spennandi að fara um þetta svæði og kynnast vanda- málunum af eigin raun, og er því ánægður með að vera valinn til ferð- arinnar,“ segir Geir. Vestur-íslensk og talar íslensku Eldra fólkið er íslenskara í sér en það yngra Svava Sæmundsson Eftir því sem árin líða teygist_ á böndunum milli íslendinga og Vestur-íslendinga. Margir af afkomendum þeirra sem fóru vestur um haf tala ekki íslensku. Það er því ekki á hverjum degi sem hægt er að rekast á Vestur- íslending, sem talar ís- lensku eins og hann hafí búið hér á iandi alla tíð. Þetta á við um Svövu Sæ- mundsson en hún er af fjórða ættlið Vestur-íslend- inga. Morgunblaðið náði tali af henni og lék forvitni á að vita af hveiju hún talaði ísiensku, hvað Þjóð- ræknisfélagið gerir en hún er jnjög virk í því, muninn á íslendingum og Vestur- íslendingum og hvort áhugi Vestur-íslendinga á íslandi sé alltaf jafn mikill. Bjó í einangruðu umhverfi á bóndabæ - Hvernig kemur það til að þú talar íslensku? „Ég bjó á bóndabæ nálægt bænum Arborg í Manitobafylki, þar sem ekki var mikið af öðru fólki en fjölskyldufólki í kringum mig. Mamma [Margrét Halldórs- dóttir] talaði íslensku og þessi einangrun hjálpaði mikið til við að ég lærði hana. Pabbi [Gunnar Sæmundsson] las mjög mikið um ísland og hafði mikinn áhuga á landi og þjóð og íslenskum bók- menntum. Þegar ég var tuttugu og þriggja ára kom ég til íslands og var hér í sex ár. Eg fór í ís- lensku fyrir erlenda stúdenta í háskólanum og var í henni í tvö ár. Svo ferðaðist ég mikið um landið; var í Reykjadal í Þin- geyjasýslu, tvo mánuði á Eski- firði, tæpa tvo mánuði í Búðar- dal. Ég bý núna í Árborg og börnin mín tala íslensku. Ég hef ekki komið til Islands í að ég held tíu ár.“ - Þú tengist eitthvað þjóð- ræknisfélaginu í Kanada ekki satt? Hvað gerir Þjóðræknisfé- lagið? „Jú. Ég er forseti þjóðræknis- félagsdeildarinnar Ésjunnar í Árborg og hef verið það í níu ár. Þjóðræknisfélagið reynir að varð- veita íslenska menningu og hjálpa fólki við að finna það sem það vill um ísland. Deildir félags- ins eru á mörgum stöðum og til dæmis eru fimm deildir í Man- itoba. Við höfum gefið út Fjall- konubókina og undanfarið hefur nefnd undir forystu Ólafs Narfa- sonar í samráði við Þjóðræknisfé- lagið haft með höndum að minnast skáldsins Guttorms J. Guttorms- sonar og er í ráði að reisa minnisvarða skemmtigarði River- ton-bæjar. Svo höldum við þorra- blót, spilakvöld og stöndum fyrir ýmsum atburðum. Þetta_ félag reynir að kynna Vestur-íslend- ingum ísland og reynir að halda áhuga fólks á því. Svo tökum við þó nokkuð oft á móti hópum frá Islandi, sem koma í heimstókn.“ Mikill áhugi á íslandsferðinni - Svo stóðuð þið fyrir þessari hópferð hingað til lands. „Já, og áhuginn var mjög mik- ill. Flugvélin sem við komum í var full og um níutíu manns voru ► Svava Sæmundsson er fædd árið 1954 í Kanada. Hún er lærð- ur leikskólakennari og stundaði um tíma nám í íslensku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla ís- lands. Hún starfaði meðal annars við íslenskar sumarbúðir í Kanada fyrir vestur-íslensk börn. Hún er forseti ])jóðræknis- félagsdeildarinnar í Árborg í Manitoba og var stödd hér á dögunum ásamt hópi Vestur- Islendinga. Hún á tvær dætur, sem báðar tala íslensku. á biðlista og komust ekki með. Þetta var fólk alls staðar að, aðallega þó frá Manitoba. Ráð- stefna Þjóðræknisfélagsins var haldin að Laugarvatni og margir tóku þátt í henni. Flestir voru þó að heimsækja ættingja og skoða landið. Margir af þeim sem komu núna voru að koma hingað í fyrsta sinn.“ - Er áhuginn jafn mikill með- al yngra fólksins og þess eldra? „Ég veit ekki hvað skal segja. Það eru alltaf einhveijir sem hafa meiri áhuga en aðrir. Samt finnst mér eins og áhuginn á íslandi sé heldur að minnka. í hópnum sem kom hingað til lands núna er aðallega eldra fólk. Þó komu 38 börn sem hafa farið í íslenskar sumarbúðir. Þar er þeim kennt eitthvað um ísland og nokkur orð í íslensku. Þessi börn ganga oft inn í félagsmál Þjóðræknisfélagsins." Líkari en hægt er að trúa - Er einhver munur á íslend- ingum og Vestur-íslendingum? „Nei, enginn munur. Islend- ingar, sem fara frá íslandi og kynnast Vestur-íslendingum finna fyrst mun. Vest- ur-íslendingar eru auðvitað aldir upp við aðrar aðstæður en fólkið sjálft hefur svip- aða kímnigáfu og seg- ir sögur hvert af öðru eins og íslendingar gera. Við erum líkari en hægt er að trúa. Þetta á að vísu aðallega við um eldra fólkið. Yngra fólkið er mjög blandað og ekki auðvelt að greina vestur- íslenska unglinga frá öðrum unglingum. Annars er umhverfi okkar mjög frábrugðið því sem maður á að venjast á íslandi. Landslagið er allt annað. Hjá okkur eru eintómar sléttur og mikil kornrækt. Nú til dags er líka á þessu svæði mjög blandað- ur þjóðfélagshópur en ekki eins einsleitur og á Islandi.“ Pabbinn hafði mikinn áhuga á landi og þjóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.