Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 1

Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 1
184. TBL. 82. ÁRG. Hitabylgja í Japan YUKO Katsumura járnbrautar- starfsmaður kælir kollinn á ís- klumpi, sem komið hefur verið fyrir við eina járnbrautarstöðina i Tókýó. Hitabylgja gengur nú yfir Japan og fór hitinn yfir 39° fyrir fáeinum dögum. I gær til- kynnti japanskt fyrirtæki að það hygðist flylja inn vatn, þar sem vatnsskorts gætir víða en dregið hefur úr vatnsbirgðum höfuð- borgarinnar um þriðjung vegna þurrka. Ekki er spáð rigningu fyrr en í byrjun september. Smygl á plútoni Rússar segjast rægðir Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter. EMBÆTTISMENN i Moskvu sökuðu í gær Vesturveldin um að rægja Rússa og rússneskan kjamorkuiðnað með því að full- yrða að smyglað plúton-239, sem þýska lögreglan hefur klófest síðustu mánuði, sé frá Rúss- landi. „Fram til þessa hefur ein- göngu verið um áróður að ræða,“ sagði Vladímír Tomarovskí, tals- maður gagnnjósnaþjónustunnar, í gær. Talsmaður rússneska utanrík- isráðuneytisins sagði að engar sannanir væru fyrir því að efnið kæmi frá Rússlandi. Ýmsir ráða- menn löggæslu á Vesturlöndum, þ. á m. yfírmaður bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), hafa bent á hættuna sem stafaði af því að illa launaðir kjarnorkuvís- indamenn í fyrrverandi sovétlýð- veldum reyndu að selja efni í kjarnasprengjur á svörtum markaði. ■ Fjórða plútonsmyglið/14 Japan og Bandaríkín Samið um hugverk Tókýó, Washington. Reuter. JAPANIR og Bandaríkjamenn undir- rituðu í Washington í gær samkomu- lag sem tryggir höfundarrétt á hug- verkum. Að sögn talsmanns japanska utanríkisráðuneytisins, er samningur þessi þó aðeins lítill hluti tvíhliða viðræðna, sem staðið hafa síðustu 13 mánuði og miða að því að leysa viðskiptadeilu þjóðanna og stuðla að fijálsari viðskiptum. Höfundarréttur á hugverkum hef- ur ekki verið eitt af forgangsverkefn- um samningamanna Japana og Bandaríkjamanna en samningurinn er sá fyrsti sem þjóðirnar hafa náð í viðræðunum. Samningurinn kveður m.a. á um að Japanir flýti því seinlega ferli sem skráning höfundarréttar er. Þá felur hann í sér að Bandaríkjamenn láti uppiskátt í hveiju einkaleyfi felast til að koma í veg fyrir óafvitandi brot á þeim. 56 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Norska hafrannsóknastofnunin Lagt til að selja Islendingum kvóta í Smugunni FORSTJÓRI hafrannsóknastofnunarinnar norsku, Johannes Hamre, hefur lagt til að Norðmenn semji við íslendinga um kvóta í Smug- unni. Hann hefur margoft lagt til að leitað verði nýrra leiða til að koma í veg fyrir veiðar utan kvóta á alþjóðlegum hafsvæðum, og segir að Norðmenn eigi að selja öllum þeim kvóta, sem hann vilja kaupa. Otto Gregussen, ráðuneytisstjóri í norska sjávarútvegsráðu- neytinu, segir hins vegar að tillögur Hamres séu fráleitar og að ekki eigi að verðlauna neina þjóð fyrir að fara sínu fram og veiða úr norsk-rússneska þorskkvótanum. Að sögn NTB-fréttastofunnar leggur Hamre til að Norðmenn hefji nú þegar samningaviðræður við íslendinga um kvóta þeim til handa í Smugunni. Segir Hamre þjóðirnar ekki eiga að standa í rifrildi á sama tíma og gengið sé á þorskstofninn. Vandinn í Smug- unni sé sá að hún sé alþjóðlegt hafsvæði en þorskurinn hins vegar hluti af norsk-rússneska stofnin- um. Því eigi Norðmenn að vinna að því að gera þeim útgerðum sem áhuga hafa á að veiða, kleift að kaupa kvóta úr hluta stofnsins. Telur Hamre að selja mætti um 5-10% af heildarkvótanum á svæð- inu. Þeir sem kaupi kvótann skuld- bindi sig til að veiða ekki umfram hann. Peningana sem fáist fyrir kvótasöluna eigi við að nota í rann- sóknir og framkvæmdir á svæðinu. Illræmdasti hryðjuverkamaður heirns í varðhald Carlos borubrattur og gantaðist við dómarann Reuter STRÖNG öryggisgæsla var er hryðjuverkamaðurinn Carlos var fluttur til dómshúss í París I gær. París. The Daily Telegrapb. „SJAKALINN Carlos“, illræmd- asti hermdarverkamaður heims, var sjálfsöruggur og borubrattur þegar hann var leiddur fyrir franskan dómara í gær eftir 20 ára flótta undan réttvísinni. Hann gerði að gamni sínu við verði sína og dómarann, sem dæmdi hann í gæs.luvarðhald meðan mál hans er rannsakað. Fimm verðir, vopnaðir byssum, fylgdust með Carlos í réttarsaln- um. Eftir að hafa rætt við þá um vopnin sem þeir báru heilsaði hann dómaranum, Jean-Louis Bruguire, á frönsku: „Herra dómari, hvernig hafið þér það?“ „Hvernig hafið þér það?“ svar- aði dómarinn. „Lifi enn - og á enn mikið eftir,“ sagði þá „Sjakalinn Carlos“, sem varð goðsögn í lif- anda lífi vegna hermdarverka sinna. Hann sneri sér síðan að vörðunum og sagði: „Þessi maður er stjarna." Engin áhætta var tekin á 10 mínútna ökuleiðinni frá fangelsinu til dómhússins í París. Bifreiðar á bílastæðunum voru dregnar í buitu og vegatálmar reistir. Klukkustund síðar umkringdu lög- reglubílar og vélhjól brynvarða bifreið sem flutti Carlos í dómhús- ið. Inngangurinn í húsið var aðeins opinn í hálfa mínútu meðan bif- reiðinni var ekið inn, umkringd öryggisvörðum sem héldu á sjálf- virkum byssum. Bruguire yfirheyrði Carlos fyrir luktum dyrum í tvær klukkustund- ir og hermdarverkamaðurinn var síðan ákærður fyrir sprengjutil- ræði í París árið 1982, sem varð einum manni að bana og særði 63. Talið er að hann beri ábyrgð á fimm sprengjutilræðum í Frakk- landi, sem kostuðu alls 15 manns lífið og særðu um 200. Dómstóll í París hafði dæmt hann í lífstíðar- fangelsi árið 1992, að honum fjar- stöddum, fyrir dráp á tveimur frönskum leyniþjónustumönnum. Samkvæmt frönskum lögum verð- ur sérstakur dómstóll, sem fjallar eingöngu um hryðjuverk, að taka það mál upp að nýju. Lögfræðingur Carlosar sagði að hann hefði verið keflaður og sprautaður með deyfilyfjum þegar hann var handtekinn í Súdan á sunnudag. Hann sakaði frönsku stjórnina ennfremur um að hafa greitt herforingjastjórninni í Súd- an miklar fjárhæðir fyrir að fram- selja Carlos. Sigur fyrir Pasqua í frönskum fjölmiðlum er ijallað um handtökuna sem mikinn sigur fyrir Charles Pasqua, innanríkis- ráðherra Frakklands, og DST, franska leyniþjónustusveit sem fæst við starfsemi hi-yðjuverka, þótt Carlos sé reyndar lýst sem „manni fortíðarinnar". Handtakan er ennfremur sögð sætur sigur fyrir Philippe Rondot, 58 ára gamlan sérfræðing í mál- efnum Miðausturlanda, sem stjórnaði leit DST. Rondot gengur undir nafninu „Arabíu-Lárus“, tal- ar arabísku reiprennandi, og hefur mikla þekkingu á íslömskum fræð- um. Síðast þegar Pasqua var inn- anríkisráðherra, árið 1986, mun Rondot hafa samið við múslimska öfgamenn í Beirút um lausn fran- skra gísla skömmu fyrir þingkosn- ingar. ■ Handtakan sögð árangur/14 Notagildi Sjakalans/21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.