Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
EINSÖNGVARARNIR Marta G. Halldórsdóttir, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, Snorri og Heimir Wium, ásamt stjórnanda
flutningsins, Herði Áskelssyni
Óratorían Sál
frumfiutt á Islandi
ÓRATORÍAN Sál, eftir H‘‘andel,
verður flutt í fyrsta sinn á íslandi
nú um helgina á tvennum tónleik-
um. Fyrri tónleikarnir verða í Skál-
holtskirkju laugardaginn 20. ág-
úst, klukkan* 14.00 og seinni tón-
leikarnir í Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 21. ágúst, klukkan 20.30.
Um níutíu manns munu taka þátt
í flutningnum; átta einsöngvarar,
þijátíu manna hljómsveit og um
fimmtíu manna kór.
Titilhlutverkið er sungið af
Andreas Schmidt, barítónsöngvara
og hlutverk Davíðs syngur Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir, alt. Önnur
hlutverk eru sungin af Karl Heinz
Brandt, Margréti Bóasdóttur, Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur, MÖrtu Guð-
rúnu Halldórsdóttur, Snorra Wium
og Heimi Wium.
Hljóðfæraskipanin er óvanalega
fjölbreytileg miðað við tímann sem
tónlistin er skrifuð á. Auk hefð-
bundinna strengja, óbós og fag-
otts, heyrist í trompetum, básúnum
og pákum, lítilli flautu og klukku-
spili. Þá eru í verkinu hljómsveitar-
kaflar og einleikskaflar fyrir
hörpu, sem Eiísabet Waage leikur
á, og orgelkaflar sem Hannfried
Lucke flytur. Verkið er þannig
stórt í sniðum en það verður flutt
óstytt. Konsertmeistari hljómsveit-
arinnar er Rut Ingólfsdóttir. Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur
kórkaflana og fer með hlutverk
ísraelsþjóðar. Stjórnandi á tónleik-
unum er Hörður Áskelsson.
Texti óratóríunnar er eftir Char-
les Jennens og byggir á frásögn
Fyrri Samúelsbókar Gamla testa-
mentisins. ísraelsmenn eiga í stríði
við Fílista. Drengurinn Davíð frels-
ar ísraelsmenn úr herkví þegar
hann slöngvar steinvölu og fellir
risann Golíat, sem ógnin hafði
staðið af. Davíð uppsker í fyrstu
hylli Sáls en tilfinningar konungs-
ins snúast síðar upp í öfund og
hatur. Óratórían Sál er lofgjörð til
Guðs og fjallar á dramatískan hátt
um samskipti Sáls og Davíðs. Tón-
listin endurspeglar viðfangsefnið;
tilfínningar, lof og átök.
Miðasala á óratoríuna Sál er
þegar hafin og að sögn forsvars-
manna Mótettukórsins eru fáir
miðar eftir á Skálholtstónleikana.
Miðar eru seldir í Hallgrímskirkju
og Skálholti og kosta kr. 1.500.
Fyrir eldri borgara og námsmenn
er verðið kr. 1.200.
Þriggja. þrepa ljóð
BÖKMENNTIR
Ljóö
ÞRJÁR ÓÐARSLÓÐIR
eftir Böðvar Guðmundsson
Almenna bókafélagið, 1994
- 327 síður
ÞESSI ljóðabók er að yfirbragði
og efni mjög sérstök. í henni eru 37
titiilaus ljóð, misjafnlega löng. Efst á
hverri síðu er teikning eftir Guðjón
Ketilsson sem gefur hugmynd um
efni hvers ljóðs. í lok sumra ljóða er
bænarbútur á latínu sem ýmist eykur
hressilega við inntakið eða undirstrik-
ar fáránleika og böl þess sem um er
rætt. Með öðrum orðum: Hér þræðir
óðurinn þijár óðar slóðir og skekur
mann eins og kalt bað á heitum degi
eða heitt kaffí á köldum morgni.
Bækur Böðvars, jafnt ljóðabækur
sem sögubækur, eru miklu oftar
fyndnar en ekki. Þessi hér er engin
undantekning. Fyndnin er samt
kannski dálítið duldari nú en oft
áður. Hann vefur hana listilega inn
í myndmál tengt athöfnum sem allt-
of oft vill verða klámfengið. Einnig
er húmorinn hér grárri en oft áður,
broddurinn sársaukafullur.
Sýndarmennska, værukærð og
sjálfsánægja fær duglegt spark. I
einu ljóðinu afhjúpar Böðvar gamla
og margþvælda tuggu:
Heill yður öfugmælaskáld
sem sögðuð meðal annars
það er hollt íyrir þyrstan mann
að þamba kopar heitan
°S .
til er á Islandi orð
um allt sem var hugsað á jörðu
heill yður skemmtilegu
stórlygarar
og brandarakarlar
sem vissuð vel
að það er banvænt að
þamba bræddan kopar
og
til er á útlensku orð
um allt sem var hugsað á
Fróni
Það eru nefnilega til
hugsanir og gjörðir sem
ná út fyrir allan orða-
forða og raunar út fyrir
ramma hins ímyndaða. Böðvar
Stundum breytist Guðmundsson
fíngerð fyndnin í tauga-
veiklaðan stórkarlahúmor þegar
mælandinn bregst með öfgakenndum
hætti við óskiljanlegum hörmungum
tilve'runnar. Möguleikar alls virðast
takmarkalausir. Textinn er á köflum
eins og eitt öskrandi spumingar-
merki: Hversu grimmir geta menn
orðið? Hversu lágt geta þeir lagst?
Hversu sárt getur söknuðurinn leikið
mann? Og hversu fallvaltur getur
fallvaltleikinn orðið?
Margbreytileiki þeirrar tilveru sem
birtist í þessari ljóðabók Böðvars er
ekki lofsverður. Serbamir drýgja
dauðasynd til þess að „duga frelsis-
og framfaraþjóðum / í algilda óvinar-
mynd.“ Þvert ofan í óhugnaðinn
hljómar latneska bænin líkt og grego-
rískur söngur, til dýrðar Guði skapara
himins og jarðar - og eftir því sem
lesa má í þessari bók: skapara hörm-
unga, misskilnings, öngþveitis og
dauða. Auðveldlega má setja út á
þessa heimsmynd því að það verður
að teljast orðið furðu þreytt að kalla
skaparann til ábyrgðar
fyrir allt það sem miður
fer. Sjálfsábyrgð manna
er nefnilega ekki gengin
úr gildi. En - þetta er
aukaatriði.
Aðalatriðið í þessari
ljóðabók Böðvars sýnist
mér vera hve einlæg við-
brögð eru sýnd við
óskiljanleika tilverunn-
ar. Eg hallast að því að
lesa Þijár óðarslóðir sem
trúaijátningu, sem ákall
þess sem biður einlæg-
lega um að gæskan fái
sigrað illskuna. Hún
kemur mér fyrir sjónir
sem hamslaust ákall um
miskunn í hamslausum
heimi. Villidýrið er í okkur öllum, í
okkur öllum leynist bróðurmorðing-
inn. Einlæg bænin er ekki einu sinni
laus við þá illsku sem beðið er um
að hverfi, þannig er stundum eins og
heyrist skerandi tónn úr herskáum
Davíðssálmi:
afmáðu óþjóðalýðinn og gæðastálið
frelsa oss frá tilgangslausum hrottaskap
dauðans
frelsa oss frá serbum
miskunna höpadætrum
et miserere nobis ef þú getur.
Það er enginn vafí á því að höf-
undurinn hefur gefíð sig óskiptan í
þessa bók. Með frumlegum hætti
tekst honum að bregðast á sannfær-
andi hátt við nýrri heimsmynd sem
blasir við okkur á þessum öfgafullu
tímum eftir fall múrsins. Þessi bók
kom mér á óvart.
Ingi Bogi Bogason
Norræn alþýðutónlistarhátíð
NORRÆN alþýðutónlistarhátíð
verður haldin í Reykjavík dagana
19-21. ágúst. Að hátíðinni standa
ISAT (íslensk samtök alþýðutónlist-
arfólks og NF (Nordisk folkmusikk
kommité).
Til hátíðarinnar er boðið ungum
tónlistarmönnum á sviði alþýðutón-
listar frá Noregi, Svíðþjóð, Finnlandi
og Danmörku auk þess sem íslenskir
tónlistarmenn munu koma fram.
Hátíðin verður sett í Norræna
húsinu föstudaginn 19. ágúst klukk-
an 20.00. Síðan verða tónleikar til
klukkan 21.40 og verður þá dansað
fram eftir kvöldi, þ.e. gömlu dans-
arnir og þjóðdansar. Aðgangseyrir
er kr. 500.
Laugardaginn 20. ágúst, verður
spilað fyrir gesti og gangandi í
Reykjavík og Hafnarfirði, auk þess
sem tónleikar verða í Norræna hús-
inu klukkan 20. Frá 21.30 verður
síðan létt kráarstemmning og dans.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Sunnudaginn 21. ágúst verða há-
tíðartónleikar á Hótel Sögu frá
21-23. Þá verður hátíðinni slitið og
verður síðan dans við udnirleik nor-
rænna tónlistarmanna. Aðgangseyr-
ir er kr. 1000.
Forsala aðgangsmiða er í Nor-
ræna húsinu.
Gott íbúðarhótel á
Benidorm
aðeins kr. 39.900
Nú er allt uppselt út ágústmánuð til Benidorm og við seljum síðustu sætin til
Benidorm 7. og 14. september. Viðbótaríbúðirnar okkar á Flamingo Park
seldust strax upp og nú seljum við síðustu stúdíóin á Acuarium og síðustu
2 íbúðirnar á San Francisco. Njóttu einstaks veðurs á Benidorm í september
við góðan aðbúnað á frábæru verði með Heimsferðum.
Verðl<r39.ÍMK)
pr. mann m.v. hjón
með 2 börn, 2 vikur,
í San Francisco.
Verð kr.
49.900
pr. mann m.v. 2
í stúdíó, Acuarium 2.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
i Flugvallaskattar og forfallagjöld kr. 3.660 f. fullorðna, kr. 2.405 f. börn, ekki innifalið
Uti að aka
Kvikmyiulir
Bíóborgin
HOLD OG BLÓÐ („FLESH
AND BONE“) ★ </2
Leikstjóri og handritshöfundur
Steve Kloves. Kvikmyndatökustjóri
Philippe RousseloL Aðalleikendur
Dennis Quaid, Meg Ryan, James
Caan, Scott Wilson, Gwyneth
Paltrow. Bandarísk. Paramount
1993.
í MYNDARBYRJUN kemur lít-
ill drengur utanúr myrkrinu og fær
gistingu hjá vinsamlegu fólki á
bóndabæ. Segist hafa villst. Er í
rauninni verkfæri þjófsins, föður
síns (James Caan), sem vokir útí
nóttinni uns ljós hafa verið slökkt.
Þá opnar drengurinn dyrnar og
þeir láta greipar sópa en allt fer á
annan veg; heimilisfólkið vaknar
og fellur allt fyrir byssu innbrots-
þjófsins utan stúlkubam í vöggu.
Síðan færist myndin til nútímans.
Á sléttunum miklu hefur sölumað-
urinn Dennis Quaid þann starfa að
fylla á sjalfsala í nokkrum byggðar-
lögum. í einni ferð sinni kynnist
hann konu (Meg Ryan) sem er í
þann mund að skilja við mann sinn
og gerist félagi hans á þjóðveginum
um sinn. Áður en langt um líður
er ljóst að sölumaðurinn er fyrrum
handbendið hans föður síns og kon-
an stúlkan sem var þyrmt. Og von
bráðar verða þau á vegi ódæðis-
mannsins og uppgjör óumflýjanlegt
milli feðganna.
Hugmyndin er góð og hefði sjálf-
sagt nýst vel í smásögu en gengur
ekki upp í kvikmyndinni. Söguflétt-
an liggur í augum uppi strax eftir
að persónurnar koma til sögunnar,
þannig að öll spenna er fyrir bí.
Persónurnar ekki skárri, enginn
raunverulegur, mannskapurinn
gjörsamlega í lausu lofti, kemur
utanaf þjóðveginum með misjafn-
lega bölvaða fortíð á bakinu, hver
og einn í sínum eigin lokaða heimi,
tjáningaskipti yfirborðskennd, text-
inn bókmennta- og þunnildislegur
að undanskildum örfáum setning-
um. Endirinn afar ófullnægjandi.
Þó vantar ekki metnaðinn, leikstjór-
inn og handritshöfundurinn Steve
Kloves, sem á eina, en ágæta mynd
að baki (The Fabulous Baker Boys,
virðist leggja hart að sér að skapa
frumlegt, duiarfullt og seiðmagnað
verk í anda Film noir myndanna
en án nokkurs árangurs. Utkoman
langdregið óæti fyrir sálina en ekki
augað því það eina sem stendur
uppúr er iistileg kvikmyndataka
frakkans Philippe Rousselot, sem
er í allt öðrum gæðaflokki en annað
í þessari meingölluðu mynd. Áhuga-
verður leikhópur fær engu bjargað
með þennan texta innanborðs.
Arnaldur Indriðason