Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 9
Afleitt
ástand í
Dölunum
Það er ekki ofsögum sagt, að ástand-
ið í laxveiðiám vestur í Dölum er
hrikalegt. Þar hefur ekki komið úr-
komudropi sem heitið getur svo vik-
um skiptir, árnar eru komnar „ofan
í gijót“ eins og veiðimenn orða það
gjarnan. Lítið er af laxi og það sem
er gengið_ tekur illa við þessi bágu
I skilyrði. Ýmsir hafa séð laxahópa í
sjónum sem gætu verið að bíða eftir
betri gönguskilyrðum og raunar er
ein ánna í Dölunum, Laxá, fræg fyr-
ir stórar septembergöngur og þá
gjarnan af „þaraiegnum" laxi,
þ.e.a.s. laxi sem er með sjólús en
samt leginn eftir að hafa hangið á
leirunni vikum saman.
„Jú, þetta er sorgleg staðreynd.
Það er engu logið um ástandið hérna.
Síðasta holl var í tvo daga og fékk
( 8 laxa. Hópurinn á undan var í þrjá
daga og fékk 12 stykki. Alls eru
komnir um 350 laxar á land,“ sagði
Gunnar Björnsson kokkur í Þránd-
argili við Laxá í gærdag. Gunnar
sagðist búast við því að veiðin gæti
glæðst ef eitthvað rigndi, því slangur
væri af læxi í ánni og það litla sem
menn fengju kæmi bæði á fiugu og
maðk.
I Sama sagan...
j I dálki þessum var fyrir skömmu
greint frá gangi mála í Flekkudalsá
og Fáskrúð og líkt mun á komið með
Miðá í Dölum. Þar eru menn að reyta
upp lax og lax, en útgerðin gengur
KARL Björnsson t.v. og Ágúst Pétursson með hörkuveiði, tekna
á einni síðdegis- og kvöldvaktinni í Haffjarðará fyrir skemmstu.
betur þegar haldið er til hylja sem
sjóbleikjan hefur yfirráð yfir. Hún
er komin fyrir nokkru og ýmsir hafa
fengið góða veiði. Haukadalsá, hin
„stóra" áin í Dölunum hefur verið
enn lakari heldur en Laxá eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst. Inn-
an við 300 laxar eru komnir þar á
land og lítið um að vera. Menn hafa
gjarnan skellt skuldinni á hafbeitar-
stöðina í Hraunsfirði þegar illa geng-
ur í ánum og skal ekkert um það
sagt hér annað en að því er fleygt
að það gangi ekkert allt of vel að
heimta lax í Hraunsfirði fremur en
ánum þessa daganna.
Lifnar yfir
Laxá í Þingeyjarsýslu
Eiríkur S. Eiríksson, sem var að
koma af bökkum Laxár í Aðaldal
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
veiði hefði lifnað nokkuð í Laxá að
undanförnu og meðan hann dvaldi
þar hefðu menn verið að draga þetta
10 til 15 laxa á hverri vakt sem
væri hátíð hjá því sem verið hefði
lengst af í sumar. Sagði Eiríkur að
sumt af aflanum hefðu verið ný-
gengnir smálaxar. Erfitt er að fá
nákvæma heildartölu úr Laxá, en
ljóst að hún liggur einhvers staðar á
milli 800 og 900 laxar.
Álftá stendur
alltaf fyrir sínu
Álftá á Mýrum stendur vei fyrir sínu
þrátt fyrir vatnsleysi í þurrkunum.
Stöku rigningargusa hefur náð vest-
ur, en ekkert sem hefur náð að lyfta
vatnshæðinni. Engu að síður hefur
ailtaf verið að reytast úr ánni og vel
það og um helgina voru komnir 180
laxar og 80 sjóbirtingar á land að
sögn fulltrúa leigutakanna Dags
Garðarssonar. Hópurinn er einnig
með Brennuna í Borgarfirði og þar
hafa veiðst um 120 fiskar.
Tíu þúsund manns
, sóttu bændur lieim
BÆNDUR eru mjög ánægðir með
kynningarátakið „Bændur bjóða
heirn" en almenningur gat heimsótt
43 býli um land allt á sunnudaginn
var og kynnt sér daglegt líf í sveit-
inni. Bryndís Kjartansdóttir hjá Upp-
lýsingaþjónustu bænda áætlar að
nærri tíu þúsund manns hafi sótt
bændur heim. Hún segir að stefnt
I sé að því að bændadagur með svip-
uðu sniði verði árviss atburður.
í „Aðsókn var mest á bóndabýlum
nærri höfuðborgarsvæðinu annars
vegar og Akureyri hins vegar,“ sagði
Bryndís í spjalli við Morgunblaðið.
„Við erum þrátt fyrir það mjög
ánægð með dreifíngu gesta um allt
land. Víst er að mun fleiri komu í
heimsókn til bænda en við bjugg-
umst við,“ sagði hún. Aðspurð segir
Bryndís kynningu á borð við þessa
vænlega leið til að kynna íslenskan
landbúnað.
Dagurinn tókst ljómandi vel
Hjónin Rósa Finnsdóttir og Jón
Hólm Stefánsson á Gljúfri í Ólfusi
eru hæstánægð með daginn en í
heimsókn til þeirra komu líklega um
eitt þúsund manns. „Frá okkar bæj-
ardyrum séð tókst aílt ljómandi vel,“
sagði Rósa í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Rósa segir að óhemjumikið af fjöl-
skyldufólki hafí látið sjá sig og böm-
in hafi augsýnilega haft unun af
heimsókninni. „Vinsælast meðal
barnanna var að skoða dýrin í nátt-
úrulegu umhverfi sínu. Við höfðum
mikla ánægju af þessum degi og
vonum að fólkið hafi notið heimsókn-
arinnar," sagði hún og tók fram að
umgengni hafi verið til mikillar fyrir-
myndar.
Þau hjónin telja greinilegt að full
þörf sé á svona kynningardegi. „Ég
get sagt það að við hjónin erum
reiðubúin að taka þátt í svona degi
aftur," sagði Rósa Finnsdóttir.
LJtsala
Brún
Islenska Póstverslunin.
Útsala.
Smiðjuvegi 30 (rauð gata) (gegnt Axis)
Sími871400
Hjólbörur 8 01..........: 4.700 -
Baðskápur 200x65x18,5 sm..: 6.900-
Baðskápur 200x34x18,5 sm..: 4.900-
Baðskápur 83x65x18,5 sm....: 4.300-
Borðskápur 100x50 sm.....: 8.900-
Vöðlur nr. 41, 45, 47........
Garðbekkir plastjám.tré.....
Slökkvitæki, duft 1 kg......
Verkfæravagn.................
Trérennibekkur & skurðarjám
4.700-
3.500-
990-
4,800-
16.900-
Tjöld, bakpokar 30 - 65 lítra og svefnpokar - 13 gráður á
kostnaðarverði.
Einnig á frábæru verði:
Garðljós, útiljós m. hreyfiskynjara, verkfæri, loftverkfæri og fl.
Rimlagardínur, hvítar, plast og ál. Lægsta verð á landinu.
(Opið 9.00 -18.00. Laugardaga 11.00 -16.00^
Sendum í póstkröfu.
Skipuleggbu
eigin
fjármál
Þegar þú hefur reglulegan sparnað
með áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs færðu handhæga
áskriftarmöppu undir gögn um
sparnað fjölskyldunnar.
Mappan inniheldur einnig
eyðublöð fyrir greiðsluáætlun og.
heimilisbókhald og með þeim getur
þú skipulagt fjármál heimilisins
enn betur en áður.
Hringdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, pantaðu áskrift að
spariskírteinum ríkissjóðs og
fáðu senda möppuna
Sparnað heimilisins - Áskrift ab
spariskírteinum ríkissjóðs.
Nú getur þú skipulagt fjármál
heimilisins - og sparað um leið.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Blab allra landsmanna!
fttwigttitMafeife
-kjarni málsins!