Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 17
LISTIR
Hið óendanlega
í stærð o g smæð
MYNDLIST
NýlisiasafniA
MÁLVERK
Amgunnur Yr Gylfadóttir/Kristín
María Ingimarsdóttir.
Opið alla daga 14-18 til 28. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
ÍSLENSKT listafólk hefur oft
dvalið um tíma erlendis i gegnum
árin, þó sambandið heim hafi ætíð
verið gott. Kaupmannahöfn hefur í
langan tíma verið slíkur útilegustað-
ur, og fjöldi myndlistarmanna hefur
dvalið lengur eða skemur í Hollandi.
San Francisco á vesturströnd Banda-
ríkjanna er hins vegar með fjarlæg-
ari stöðum sem hefur dregið að sér
hérlent listafólk til langdvalar, en
það er nú samt reyndin, sé litið til
þeirra tveggja listakvenna, sem nú
eru að sýna í Nýlistasafninu og báð-
ar hafa búið þar fyrir vestan um
margra ára skeið.
Arngunnur Ýr Gylfadóttir
Þrátt fyrir búsetu erlendis hefur
Amgunnur Ýr verið virkur þátttak-
andi í listalífinu hér síðustu ár; hún
hélt sína fyrstu einkasýningu að
Kjarvalsstöðum snemma árs 1991,
og aðra að Hulduhólum á síðasta
ári; báðar vöktu verðskuldaða at-
hygli, og því þess að vænta að marg-
ir vilji fylgjast með hvað hún hefur
fram að færa að þessu sinni.
Hringrás lífs og ljóss hefur verið
áberandi viðfangsefni listakonunnar
undanfarin ár. Með sýningunni nú
má segja að Amgunnur Ýr haldi
áfram þar sem frá var horfið á sýning-
unni á Hulduhólum, en í stað þess
að leita frekara samhengis í tíma og
rúmi lítur hún nánar til myndefnisins
sjálfs; hvað felst í því formspili, sem
reikar t.d. um himininn, en er aðeins
sýnilegt fyrir tilviljun birtunnar?
Það þarf ekki að koma á óvart,
að þær formmyndanir, sem birtast í
máiverkum listakonunnar, tengjast á
óendanlega ijölbreyttan hátt í ólíkum
efnum - skýjum, öldum, landslagi,
næturhimni og höndum mannsins -
alls staðar, í stóru sem smáu, má
finna sömu hrynjandi, eins og Arng-
unnur Ýr segir í inngangi:
„Ákveðin form endurtaka sig í
náttúrunni í örsmárri jafnt sem gríð-
arstórri mynd án upphafs og endis
en hluti af landslagi heildarinnar.
Þessi verk fjalla um hrynjandi, takt,
hreyfingu, breytileika, tímann, frosin
augnablik sem aldrei munu endur-
taka sig á nákvæmlega sama hátt.
Verkin tala í senn sín á milli og hvert
fyrir sig sem einstök eining.“
Þessu viðhorfi koma verkin á fram-
færi með samsvarandi fjölbreytni,
bæði hvað varðar stærðir (málverkin
eru allt frá því að vera lófastór upp
í nokkuð á þriðja fermetra) og efni
(olíulitir á striga eru ríkjandi, en einn-
ig má finna vax, tré, silki og léreft,
auk blandaðrar ljósmyndatækni).
Sem fyrr vinnur Ámgunnur Ýr í
nokkrum flokkum verka, sem hafa
til að bera skírskotanir sín á milli,
og verkunum er raðað upp með það
í huga. Málverkin „Flæmi“ eru mest
áberandi í stærri salnum niðri, enda
stór og hafa að geyma reglulegar
bylgjuhreyfingar hvert með sinni
stefnu; myndir sem heita „Landslag“
og „Himinn" eru hins vegar örlitlar,
og mynda því skemmtilegt mótvægi
við stóru fletina.
Myndaflokkurinn „Stilla" er unninn
með blandaðri ljósmyndatækni og
settur í neðsta sal safnsins, þar sem
hver mynd er baklýst. Þessi uppsetn-
ing er áhrifamikil; línuspil lófanna
magnast upp á sama hátt og línumar
í málverkunum, og tengslin verða
sterk á milli þessara heilda.
Sýning Arngunnar Ýr er rofin með
því að síðasti hluti hennar, mynda-
flokkurinn „Nótt“, er í efsta sal safns-
ins og sýning Kristínar Maríu þar á
milli; þetta er um sumt traflandi fyr-
ir samhengið. Myndimar í þessum
síðasta flokki eru sjö talsins, stórar
og ríkulegar; ský vaðandi í birtu
tunglsins, sem nýtur sín t.d. einkar
FINNST þér þetta ekki vel gert, spyr Halldóra Gyða.
Sækjum það heim
Húsavík - Farandsýning mynd-
verka 120 barna og unglinga víðs
vegar af landinu hefur verið í
Safnahúsinu á Húsavík síðastliðna
viku og verið vel sótt.
Þátttaka ungmennanna var
mjög mikil og tóku þátt í henni
tæp 20 þúsund börn og unglingar
frá 131 skóla. Þetta úrval lista-
verka sýnir fjölbreytt hugmynda-
flug þeirra og víða er listsköpunin
n\jög eftirtektarverð.
Þetta er sjötti staðurinn sem
fær að njóta þessarar sýningar en
næst á hún að fara til Egilsstaða.
ARNGUNNUR Ýr Gylfadóttir: Flæmi V. Olía á striga.
vel þar sem vaxið er notað í sinni
hreinustu mynd, eins og í „Nótt VII“
(nr. 26). Silkið kemur einnig ágætlega
út sem efni fýrir þann fínlega vefnað,
sem listakonan vinnur á flötinn.
Á þessari sýningu nálgast Amg-
unnur Ýr myndefnið úr fleiri áttum
en fýrr, og er athyglisvert að sjá
hvernig henni tekst að tengja þá
formgerð sem hún hefur notað við
ólíka þætti. Ljósmyndaverkin era
einna athyglisverðust í þessu sam-
hengi, og má vera að þar komi fram
þau formrænu viðfangsefni, sem hún
á eftir að nota í vaxandi mæli í fram-
tíðinni.
Listunnendur eru hvattir til að líta
inn í Nýlistasafnið á næstunni.
Kristín María Ingimarsdóttir
Kvikmyndagerð og listmálun eru
miðlar sem báðir fást við hið sýni-
lega, en eru þó jafn ólíkir í eðli sínu
og þeir virðast eiga margt sameigin-
legt við fyrstu sýn. Kristín María
skilgreinir muninn sem svo:
„Málverkið er fyrir framan áhorf-
andann í einni heild, en aftur á móti
sjáum við aldrei nema brot af kvik-
myndinni í einu. Kvikmyndin byggir
á þessum brotum. Þegar hún er sýnd
þá er það filman sjálf sem hreyfist
og er varpað fýrir sjónir áhorfand-
ans. Hún rennur áfram í þeirri lengd
og röð sem kvikmyndagerðarmaður-
inn ákvað.“
Þessar vangaveltur er rétt að hafa
í huga þegar myndir Kristínar Maríu
eru athugaðar. Hún stundaði fyrst
nám við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1982-84, en hélt síðan tii
San Francisco, þar sem hún lauk
fyrst BFA prófi og loks framhalds-
námi í kvikmyndagerð, enda hefur
hún unnið mikið í þann miðil síðustu
ár samhliða málun. Kristín María var
meðal þátttakenda á sýningunni
„Myndlistarmenn framtíðarinnar" á
Kjarvalsstöðum 1987, er. hefur frá
þeim tíma aðeins sýnt einu sinni hér
á landi (á M-hátíð í Borgarfirði 1991)
fram að þessu.
Kristín María sýnir nú sex verk,
misstór, í miðsal safnsins. Þetta era
vatnslitamyndir, og markast fyrst og
fremst af frjálsum leik með form í
fletinum. Stærsta verkið og það best
afmarkaða nefnist „Skroll" og vísar
til myndmáls kvikmyndanna, eins og
kemur fram hjá listakonunni:
„Málverkið er kyrrt en nú er það
augað sem hreyfist um myndflötinn
frá einu formi til annars, frá einni
mynd til þeirrar næstu. Áhorfandan-
um er í sjálfsvald sett hvort eða hvern-
ig hann raðar formunum saman í
huga sér eða hversu lengi hann dvel-
ur fyrir framan hveija mynd.“
Einingar þessa stóra verks era
skemmtilega útfærðar, þar sem mis-
munandi ráðandi litir og ólík form
leika um fletina, sem fýrir vikið virka
eins og filmulengjur, sem hægt væri
að tengja saman með mismunandi
hætti. Það gæti orðið áhugavert að
fylgjast með frekari tilraunum lista-
konunnar til að þætta saman eðli
þessara tveggja miðla í málverki síð-
ar.
Eiríkur Þorláksson
r Veldu \
verðlauna
. tæki! .
BLOMBERG eldunartækjunum fylgir námskeiö í meö-
ferð þeirra og matreiðslu í Matreiðsluskóla Drafnar.
BLOMBERG hlaut hin eftirsóttu,
alþjóðlegu IF hönnunarverðlaun
fyrir framúrskarandi glæsileg og
vönduð eldunartæki á stærstu
iðnsýningu Evrópu í Hannover í
Þýskalandi. 586 framleiðendur
frá 25 löndum kepptu um þessa
eftirsóttu viðurkenningu.
Komdu og kynnstu BLOMBERG af
eigin raun, hringdu eða skrifaðu og
fáðu sendan 60 síðna litprentaðan
bækling á íslensku. Við höfum
örugglega réttu lausnina fyrir þig!
Einar Farestveít & Co. hf.
Borgartúni 28 ‘B* 622901 og 622900
Varst þú að hugsa... Eða kanski... Ef ekki, hvað segirðu þá um...
um nám í ferðaráðgjöf, viðurkennt starfsmenntunarnám, til dæmis markaðsfræði? 250 stunda nám fyrir þá,
af IATA/UFTAA, sem eru alþjóða- skrifstofutækni, eða öll skemmtilegu sem setja sér markmið í iífinu og stefna hátt.
samtök flugfélaga og ferðaskrifstofa? og gagnlegu tölvunámskeiðin sem við Sölustjórnun eða sölutækni,
Nám fyrir fólk með áhuga á ferða- bjóðum upp á: Word og Excel fyrir námsskeið byggð á íslenskum aðstæðum.
málum. Windows, Access, Power Point Rekstrartækni, fyrir þá, er reka eða hafa
og fleira? hug á stofnun fyrirtækis.
. % Ferðamálaskóli íslands _ >
The Icelandic School of Travel and Tourism f Tölvuskoli Islands j§3 Stjómtækniskóli Islands
Höfðabakka 9. Höfðabakka 9. ™ Höfðabakka 9.
Slmi 671466. Sfmi 671466. Sími 671466.
STARFSMENNTUN - FJÁRFESTING TIL FRAMTÍÐAR