Morgunblaðið - 17.08.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 5
FRÉTTIR
FRÁ undirritun samningsins, Sighvatur Björgvinsson, til vinstri
og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs til hægri.
Verkefni um
fjárfestingar
SIGHVATUR Björgvinsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Jón Ásbergs-
son framkvæmdastjóri Útflutningsráðs undirrituðu í gær samning um
verkefni er miði að því að auka erlenda fjárfestingu hér á landi. Samning-
urinn er í fimm liðum og samkvæmt honum er iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytið verkkaupi og Útflutningsráð verksali og mun það veita almenna
þjónustu við þá erlendu aðila sem leita eftir upplýsingum um möguleika
á fjárfestingu hér á landi.
Útflutningsráði er einnig ætlað
að útbúa upplýsingaefni og und-
irbúa og stíga fyrstu skref í að
skipuleggja markvisst markaðs-
starf er beinist að erlendum aðilum.
Verkefnið verður unnið á tímabilinu
1. september 1994 til 15. mars
1995 og kostnaður við það verður
um fimm milljónir kr.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
mun skipa átta manna markaðs-
nefnd um erlenda fjárfestingu sem
verður til ráðuneytis á þessu sviði.
Átta fulltrúar
ímarkaðsnefnd
í henni verða einn fulltrúi iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytis, einn fulltrúi
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðu-
neytisins pg Landsvirkjunar, einn
fulltrúi Útflutningsráðs íslands,
tveir fulltrúar Sambands íslenskra
sveitarfélaga og einn fulltrúi sem
iðnaðar- og viðskiptaráðherra skip-
ar að höfðu samráði við hagsmuna-
samtök í atvinnulífinu.
Borhola bænda í A-Eyja-
fjallahreppi lofar góðu
FIMM bændur í Austur-Eyjafjalla-
hreppi hafa í sumar borað eftir
vatni skammt austan við bæinn
Þorvaldseyri með góðum árangri.
Kolbeinn Gissurarson, hreppstjóri
og einn framkvæmdaaðila, segir
að ekki sé búið að mæla hita vatns-
ins í holunni til hlítar. Hann segir
að ekki hafi enn fengist nógu lang-
ur mælir til mælinga í botni hol-
unnar en bráðabirgðatölur lofi hins
vegar góðu. „Áður en farið var að
blása holuna flæddu upp úr henni
sjö sekúndulítrar af 48,7 gráðu
heitu vatni. Á 667 metra dýpi náð-
um við síðan að mæla og þar var
hitinn 75,9 gráður.“Að sögn Kol-
beins þarf holan nokkra daga til
að jafna sig eftir blásturinn áður
en unnt verður að framkvæma
marktækar mælingar á hita vatns-
ins.
Áhættan borgaði sig
Kolbeinn segir að heitt vatn
hafi fundist víða í grennd við nýju
holuna og það hafi verið helsta
forsenda þeirrar bjartsýni sem
leiddi til framkvæmda. Markmið
bændanna mun hafa verið að
lækka útgjöld sín til orkumála.
Hann segir að ekki sé komið að
skuldadögum ennþá en þar sem
árangur hafi verið svo góður sé
engin ástæða til að örvænta.
„Áhættan var vissulega fyrir hendi
en hún virðist hafa borgað sig eins
og staðan er í dag.“ Að sögn Kol-
beins synjaði Orkusjóður bændun-
um um lán á þeim forsendum að
það yrði ódýrari kostur fyrir þá
að hita upp með óniðurgreiddu
rafmagni. Sjálfur hefur hann efa-
semdir um þá röksemdafærslu.
Það var fyrirtækið Jarðboranir
hf sem vann verkið fyrir hönd
bændanna og segir Kolbeinn full-
trúa þess hafa kvatt þá óspart til
dáða. Hann segir að frekari boran-
ir séu ekki á döfinni en útilokar
þó ekkert í þeim efnum. „Hér er
þéttbýlt og það væri þess vegua
hægt að halda áfram borun og
veita vatni ef það er til staðar,“
segir Kolbeinn og bendir á að jarð-
fræðingar telji líkur á vaxandi hita
eftir því sem neðar dregur.
Hjartalæknir kosinn í
stjórn Cleveland Clinic
GUÐMUNDUR Odds-
son, yfirlæknir hjarta-
lækningadeildar
Borgarspítala, hefur
verið kosinn í stjórn
Cleveland háskóla-
sjúkrahússins í Banda-
ríkjum, en það er með-
al virtustu sjúkrahúsa
í Bandarikjanna. í ný-
legri grein í U.S.News
er Cleveland Clinic í
öðru sæti yfir virtustu
sjúkrahúsa í lækning-
um á hjartasjúkdóm-
um.
Guðmundur stund-
aði nám við Cleveland
Clinic á sínum tíma. Þeir sem lok-
ið hafa þaðan námi eiga fulltrú í
stjórn spítalans og er Guðmundur
fulltrúi lækna frá Evrópu, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi og Suður-Afríku
sem stundað hafa nám við sjúkra-
húsið.
Guðmundur sagði
að þessi upphefð hefði
komið sér þægilega á
óvart. Hann sagði að
hlutverk þessara
stjórnar væri að halda
utan kennsluþáttinn í
starfsemi sjúkrahúss-
ins. Sjúkrahúsið hefði
að undanfömu unnið
að því að efla endur-
menntun á vegum
spítalans.
Guðmundur sagði
að stjórnin muni halda
áfram að vinna að
þessu verkefni og
hann komi m.a. til
með að annast miðlun upplýsinga
til þeirra sem stundað hafa nám
við skólann.
Guðmundur er kosinn í stjórn
Cleveland spítala til næstu fjögurra
ára. Stjórnarfundir eru haldnir
tvisvar á ári.
Guðmundur
Oddsson læknir
AdCall
Smáauglýsingar - Upplýsingar
1 - Upplýsingaþjónusta
Viðgerðir, vélar, verktakar, fjármál o.fl.
2 - Ferðaþjónusta
Flug, rútur, hótel, gisting, veitingahús o.fl.
3 - Smáauglýsingar
Heimilistæki, reiðhjól, barnavagnar, tölvuro.fl.
4 - Skemmtanir - afþreying
Kvikmyndahús, leikhús, andleg mál, stjörnuspeki o.fl.
5 - Félagastarfsemi
Félagasamtök, líknarfélög, trúfélög o.fl.
6 - Bílasala - farartæki
Fólksbílar, jeppar, mótorhjól, varahiutir o.fl.
7 - Uppboð, tilboð og markaður
Útsölur, sértilboð, Kolaportið, tjónaútboð o.fl.
8 - Fasteignir og fyrirtæki
Fasteignir í verðflokkum, iðnaðarhúsnæði o.fl.
9 - FaxCall væntanlegt.
Nýstárleg og þörf þjónusta allan sólarhringinn!