Morgunblaðið - 17.08.1994, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ice-T er bar-
áttumaður fyrir
friði í LA
► SÖNGVARINN Ice-T sem
undanfarið hefur reynt fyrir sér
í kvikmyndum er ötull baráttu-
maður fyrir friði í Los Angeles.
Þar hefur lengi geisað stríð
milli klíkuhópa blökkumanna
sem náði hámarki í óeirðunum
árið 1992. Hann segir að það
hafi tekið Los Angeles tuttugu
ár að þróast í þetta ófriðar-
ástand: „Flestir vissu ekki af
þessu fyrr en kvikmyndin „Col-
ors“ með Sean Penn var tekin
til sýninga. Sama ár og fólk
spurði í forundran: „Jahérna,
hafa þeir klíkur?“ voru 387
manns drepnir."
Eftir óeirðimar árið 1992 var
komið á vopnahléi í Los Angel-
es, en Ice-T segir að það sé tek-
ið alvarlega í aðeins þijátíu
prósent tilvika. „Við höfum
fundi með 10-15.000 manns
sem hrópa á frið, þannig að
ástandið horfir til batnaðar."
Hann segir að tónlist sín og
kvikmyndir, sem þykja ofbeldis-
fullar í meira lagi, hefji ofbeldi
ekki til skýjanna. Hann segist
aðeins leitast við að draga upp
mynd af ástandinu.
og glæpa-
segir hann.
„Þeir þéna mestu peningana
og keyra flottustu bílana,
þar til þeir eru drepnir.“
Ice-T er um þessar
mundir upptekinn við tök-
ur á kvikmyndinni „Tank
Girl“ í Arizona, en til skamms
tíma stóð til að Björk Guð-
mundsdóttir færi með aukahlut-
verk í myndinni.
Fyrsta
miðnætur-
sýning
á Hárinu
ÁHORFENDUR skemmta sér með leikurum í lok sýningar.
Morgunblaðið/Halldór
MÖGGURNAR þijár í sýn-
ingunni: Margrét Eir, Mar-
grét Sigurðardóttir og Mar-
grét Vilþjálmsdóttir.
SÖNGLEIKURINN Hárið hefur
gengið fyrir fullu húsi í allt sum-
ar. Síðastliðið laugardagskvöld var
haldin fyrsta miðnætursýningin
og var margt um óvæntar uppá-
komur. í hléi fóru leikarar út á
götu með kassagítar og slógu upp
partýi. Áhorfendur fylgdu leikur-
unum eftir og Ingólfsstræti lokað-
ist fyrir allri umferð á meðan. Það
leiddi til þess að lögreglan kom
og bað fólk um að rýma götuna.
Þá hófst sýningin aftur og í lok
sýningar ætlaði fagnaðarlátunum
aldrei að linna. Brugðu leikarar
þá á það ráð að slá upp partýi á
sviðinu með áhorfendum. Það var
því sannkölluð hippastemmning á
Hárinu síðastliðið laugardags-
kvöld. Þess má geta að um tíu
þúsund manns hafa séð Hárið í
sumarog uppseit hefur verið á þær
tuttugu og þijár sýningar sem
haldnar hafa verið.
INGVAR Sigurðsson
skiptir litum á sýning-
unni
FOLK
Stefanía
prinsessa og
Ducruet
í sumarleyfi
► STEFANÍ A prinsessa af
Mónakó fór í sumarleyfi með
unnusta sínum Daniel Ducruet
og tveimur börnum á eyjuna
La Reunion í Indlandshafi fyrir
skömmu. Móðir Daníels var
með í för og brá sér í
barnfóstruhlutverkið þegar
kærustuparið vildi vera í næði.
Ekki er að sjá annað en að
hamingjan blómstri hjá hjónale-
ysunum.
Robin Givens í
Foreign Student
► LEIKKONAN Robin Givens
leikur í væntanlegri kvikmynd
sem nefnist „Foreign Student“,
þar sem
hún dreg-
ur Marco
Hofsc-
hneider á
tálar.
Hann er í
hlutverki
fransks
skiptinema
sem hlýtur
námsstyrk
í úrvalshá-
skóla í
Suðurríkj-
unum. Giv-
ens komst
í fréttirnar nýverið þegar hún
fækkaði fötum á síðum banda-
ríska tímaritsins Playboy.
HASKOLABIO
SÍMl 22140
Háskólabíó
MEÐAL gesta voru Kristinn Ingólfsson og Ijós-
myndararnir Davíð Þorsteinsson og Bragi Þ. Jó-
sefsson.
Morgunblaðið/Golli
HILDUR Guðnadóttir, Friðrik Jóhannsson og
Einar Falur Ingólfsson.
ÞRJÚ skáldanna sem eiga Ijóð í sýningarskrá,
frá vinstri: Þorsteinn Joð, Sigfús Bjartmarsson
og Gyrðir Elíasson.
Sýning opnuð á
ferðalagamy ndum
Einars Fals
LJÓSMYNDASÝNING Einars Fals Ingólfssonar var opn-
uð í Galleri 11 síðastliðið föstudagskvöld. Sýningin nefn-
ist „Ferðalagamyndir" og eru frá ferðalögum Einars um
heiminn undanfarin sjö ár. Einar Falur segir um myndirn-
ar í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag: „Vonandi
leyfa þær fólki þá að sjá eitthvað nýtt við heiminn; sjá
eitthvað, sem það hefur ekki séð áður.“ Hann hefur
nýlokið mastersnámi í Ijósmyndun frá School of Visual
Arts í New York.