Morgunblaðið - 21.08.1994, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ótti við að gereyðingarvopn geti hafnað í höndum glæpaflokka
HORFT í HYLDÝPIÐ
Þjóðverjar hafa fundið í fórum smyglara
efni sem hægt er að nota við smíði kjam-
orkuvopna og er talið að efnin komi frá
fyrrverandi Sovétlýðveldum. Krislján
Jónsson fjallar um smygl á plútoni og
------------------------3-----------
ástæður þess að hmnið í austri eykur
kj amorkuhættuna
Alræmdasti hryðjuverka-
maður síðari ára,
„Sjakalinn“ Carlos, er
nú fangi Frakka. Ott-
inn við vinstrisinnaða öfgahópa,
eina af mörgum afurðum kalda
stríðsins, er nefndu sig borgar-
skæruliða, fer dvínandi. Hrun
kommúnismans hefur grafið
undan hugmyndum þeirra og
stuðningi. Það sem einkum veld-
ur ótta við að ný ógn geti tekið
við af kalda stríðinu er efnahags-
legt hrun í Rússlandi og Úkraínu
og ýmsar afleiðingar þess. Vest-
rænir ráðamenn óttast m.a. að
geislavirk efni, plúton eða úran,
til gerðar kjarnorkuvopna, sem
smyglað er frá Rússlandi, hafni
hjá einræðisríkjum í þriðja heim-
inum, öfgasinnuðum múslima-
hópum eða glæpasamtökum.
Þeir hafa hvatt Rússa til að efla
öryggiseftirlit sitt og samkvæmt
síðustu fréttum heita ráðamenn
í Moskvu nú bót og betrun.
Sérfræðingar telja að það muni
aldrei takast án þess að Rússar
fái aðstoð utan frá; birgðabókhald
hafi verið talið óþarft í kjarnorku-
stofnunum á sovétskeiðinu og
enginn viti hvað hafi verið til og
hve mikið sé horfið. Einnig er
bent á að alþjóðlegar eftirlits-
stofnanir fái ekkert að kynna sér
framleiðsluna hjá verksmiðjum og
rannsóknastofum hers-
ins en talið er að hluti
af smyglvarningnum
komi þaðan.
Að sögn danska
blaðsins Berlingske
Tidende gekk yfirmaður Gosa-
tomnadzor, kjarnorkueftirlits-
stofnunar rússneska ríkisins,
fram fyrir skjöldu í vor og sagði
að alger ringulreið ríkti í kjarn-
orkuiðnaði landsmanna. Starfs-
menn sínir hefðu fundið mörg
þúsund dæmi um brot á öryggis-
reglum en ekkert getað gert til
að ráða bót á þeim.
Leiðtogar Rússlands vilja vafa-
laust umbætur í þessum efnum
en agaleysið í landinu og uppi-
vöðslusemi herforingja gera þeim
óhægt um vik. Borís Jeltsín for-
seti og menn hans vita að það eru
ekki aðeins þriðjaheimsríki sem
sækjast eftir kjarnavopnum. Innri
fjendur Moskvustjórnarinnar í
uppreisnargjörnum héruðum og
mafíuleiðtogar gætu valdið gríð-
arlegum erfíðleikum ef þeir réðu
yfir einhvers konar kjarnavopnum
eða geislavirkum efnum.
Silfurhvítt og baneitrað
Plúton er notað í kjarnorkuiðn-
aði en auk þess er hægt að nota
það við framleiðslu kjarnorku-
vopna. Það fellur til sem úrgangur
í kjarnorkuverum en finnst aðeins
í örlitlu magni í náttúrunni, er
silfurhvítt á litinn og geislavirkt.
Efnið er svo baneitrað að einn
milljónasti hluti úr grammi af plú-
tonryki getur valdið dauða þess
sem andar því að sér. Helmingun-
artími plútons, þ. e. tíminn sem
það tekur geislunina að minnka
um helming, er 24.000 ár.
Þýska lögreglan gerði upptæk
um 300 grömm af efninu á flug-
vellinum í Munchen í liðinni viku,
þrír menn er ferðuðust með far-
þegavél frá Moskvu reyndu að
smygla því í farangri sínum.
Reiknað hefur verið út að magnið
dygði til að eitra allt drykkjarvatn
í Þýskalandi.
Hryðjuverkamenn myndu í
fyrstu reyna að nota geislavirku
efnin í pólitískum tilgangi, reyna
að kúga stjórnvöld til að láta und-
an kröfum sem gætu verið af
ýmsu tagi, allt frá því að heimta
fé til þess að láta aðra hryðju-
verkamenn lausa úr
fangelsi. Glæpamenn
gætu hótað að koma
plútonryki fyrir í
sprengju með hefð-
bundnu sprengiefni,
sagt að hún yrði sprengd yfir
kjarna milljónaborgar til að dreifa
geislavirkninni. Þótt takast mætti
að flytja íbúana á brott ef viðvör-
un kæmi í tæka tíð er Ijóst að
stórt svæði yrði óbyggilegt um
langa hríð því að mjög seinlegt
og dýrt yrði að hreinsa það.
360 tonn
Alls munu nú vera til um 360
tonn af plútoni í heiminum, þar
af um 100 tonn í kjarnorkuvopn-
um af ýmsum gerðum. Eitt kíló
af plútoni jafnast að sprengikrafti
á við 18.000 tonn af TNT-sprengi-
efni en aflið í atómsprengju með
plútonhleðslu færi mjög eftir því
Birgða-
bókhald
óþarft
ÞÝSKUR bankaræningi ógnar gísl með skammbyssu. Geta
glæpamenn komist yfir geislavirk efni eða jafnvel kjarnorku-
sprengjur?
hvernig hún væri að öðru leyti
hönnuð.
Hygðust hermdarverkamenn
búa til sprengju yrðu þeir að kom-
ast yfir svonefnt auðgað úran eða
auðgað plúton sem er miklu tor-
fengnara en megnið af því plútoni
sem reynt hefur verið að smygla.
Þetta hefur fram til þessa reynst
örðugasti hjallinn fyrir jafnt
glæpamenn, hryðjuverkaamtök
og þau ríki í þriðja heiminum sem
vitað er að reyna að koma sér upp
sprengju. Það vakti hins vegar
athygli þýskra sérfræðinga að
efnið sem fannst í Miinchen var
auðgað og sama er að segja um
fáein grömm sem gerð voru upp-
tæk í maí. Bandaríkjamenn munu
þó hafa látið í ljós efasemdir um
að það hafi verið nothæft í
sprengjur.
Til þess að búa til nothæfa
sprengju þarf að minnsta kosti 6
kílógrömm af plúton 239, það er
hnullungur á stærð við greipaldin
en færustu sérfræðingar geta þó
komist af með eitt kílógramm.
Ritgerð í skóla
Minnsta gerð af atómsprengju
er ekki stærri en svo að hægt er
að koma henni fyrir í litlum sendi-
bíl eða jafnvel rúmgóðri ferða-
tösku. Þekkingin á vopnasmíðinni
er víða til.
Árið 1976 vakti það þjóðarat-
hygli í Bandaríkjunum er nemandi
við Princeton-háskóla,
Aristotle Phillips, ritaði
grein þar sem hann
lýsti smíði atóm-
sprengju og sérfræð-
ingar lýstu því yfír að
ef farið væri eftir uppskriftinni
myndi vera hægt að búa til raun-
verulega sprengju.
Breskur verkfræðiráðgj a í'i,
John Large, sem ferðaðist um
Rússland í fyrra segir að háttsett-
ir embættismenn og stjórnendur
fyrirtækja í kjamorkuiðnaði
landsins hafí rætt við sig og beð-
ið um samstarf við vestrænar
rannsóknastofur sem kanna
skyldu fyrir þá sýnishorn af plú-
toni og úrani. Einn af þessum
mönnum hefði reyndar verið
handtekinn nokkru síðar. Large
segir ljóst að þeir hafi haft í huga
útflutning sem stangist á við
ákvæði í samningnum um bann
við útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Rússar eiga aðild að samningnum.
„Kjarnorkuiðnaður Rússa er allur
í reiðileysi, lekur eins og gata-
sigti“, sagði Large. Hann furðaði
sig ekkert á því að smyglað plú-
ton frá Rússlandi hefði fundist á
Vesturlöndum.
Tekjurnar drýgðar
Large telur að 250.000 -
500.000 dollarar (17 - 34 milljón-
ir króna) fáist á svartamarkaðn-
um fyrir eitt kíló af plútoni. Tug-
þúsundir starfsmanna, í mörgum
tilvikum sérfræðinga, í kjarnorku-
iðnaði gömlu Sovétlýðveldanna
beijast nú í bökkum. Oft dregst
að greiða laun í marga mánuði.
Atvinnuleysi og hvers kyns fé-
lagsleg eymd verða sárari en ella
vegna þess að þetta fólk naut
sérstakra vildarkjara í tíð komm-
únista. Margir freistast því til
þess að vinna sér inn eitthvað
aukreitis með því að smygla ör-
litlu plútoni út úr stofnunum og
fyrirtækjum kjarnorkuiðnaðarins.
Hvergi er skortur á lukkuriddur-
um og mafíuliðum sem vilja ólmir
gerast milligöngumenn og koma
þessari hættulegu vöru, sem þeir
verða að koma fyrir í traustum
stál- og blýhylkjum, á alþjóðlegan
svartamarkað.
Kjarnorkuváin hvarf ekki með
kalda stríðinu, engin leið er að
eyða hvarvetna þekkingunni sem
þarf til að smíða vopnin,
boð og bönn duga
skammt gegn þeim sem
engum alþjóðalögum
vilja hlíta. Rússland,
Evrópusambandið,
Bandaríkin og Japan hafa samein-
ast um að setja á laggirnar rann-
sóknarstofnun í Rússlandi þar
sem fyrrverandi starfsmenn her-
gagnaiðnaðarins geta fengið
vinnu. Heitið hefur verið 70 millj-
ónum dollara til þessa verkefnis
en ljóst er að það dugar skammt.
Umheimurinn getur aðeins
vonað að alþjóðlegt samstarf
dragi úr hættunni. Martröð, sem
spennusagnahöfundar hafa lýst
og notað til að kveikja sæluhroll
lesenda sinna með því að leyfa
þeim að horfa í sjálft hyldýpið,
gæti ella orðið að ísköldum veru-
leika.
„Lekur
eins og
gatasigti"
Finnsku fjárlögin
Engin
útgjalda-
aukning
Helsinki. Morgunblaðið.
„ÞESSI fjárlög eru einstök í sinni
röð“, sagði Esko Aho forsætisráð-
herra Finna (Miðfl.) á frétta-
mannafundi þegar fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar lá fyrir á
föstudaginn. Það dæmalausa í
frumvarpinu mun vera að ríkis-
stjórnarflokkarnir hafa ekki aukið
útgjöld ríkisins þó að kosningar
liggi fyrir í mars.
Að sögn Ahos sýnir frumvarpið
að ríkisstjórnin hafi ekki tekið það
til bragðs að kaupa sér fylgi en
þess í stað hafi hún sýnt hvernig
eigi að bera ábyrgð á efnahag þjóð-
arinnar. „Vonandi lýsa einnig kjós-
endur yfir stuðningi við fjáriagar
frumvarp sem er einstakt á þennart
hátt“, bætti Aho við.
S veitarsljórnarmenn
óánægðir
Fjárlagafrumvarpið • mun að
mestu leyti vera samið af Tiro
Viinanen fjármálaráðherra
(hægrim.) og aðstoðarmönnum
hans. Nokkrum dögum áður en
fjárlagafundur ríkisstjórnarinnar
hófst voru ráðherrar Miðflokks
með margar nýjar hugmyndir um
bætt félagsleg útgjöld, aðallega
með tilliti til kosninganna í vetur.
Frá þeim áformum hefur að mestu
leyti verið horfið.
Fjárlagafrumvarpið hljóðar upö
á 195 milljarða finnskra marka
(um 2600 milljarðar ísl.króna) en
60 milljarðar verða teknir að láni’.
Mestu átökin innan ríkisstjórnar-
innar urðu vegna fyrirhugaðs nið-
urskurðar á framlagi ríkissjóðs til
bæjar- og sveitarfélaga. Hefði það
bitnað á skóla- og heilbrigðiskerfi
sveitarfélaga. Frá því var að mestu
leyti horfið með því að minnka
framlög til atvinnufyrirtækja og
með því að stórhækka orkuskatta.
Sveitarfélög verða þó að fjár-
magna um 1 milljarð umfram það
sem var á þessu ári. Þýðir það að
útsvar muni hækka á mörgum
stöðum, enda gagnrýna sveitar-
stjórnarmenn ríkisstjórnina fyrir
að færa kostnað frá ríki yfir á
sveitarfélög.
Samtök iðnaðar og vinnuveiö
enda (TT) lýstu strax yfir ánægju
sinni með íjárlagafrumvarpiö
nema hvað varðar orkuskattimt
Að mati TT dregur orkuskatturinn
úr áhuga fyrirtækja á fjárfesting-
um. Hins vegar viðurkenna tals-
menn TT að samsvarandi skattaf
tíðkast einnig í aðildarríkjum Ev£
ópusambandsins. Þess vegna verði
menn að sætta sig við ákvörðun
ríkisstjórnarinnar.
------♦---------
Pauling allui?
Palo Alto. Reuter.
Dr. LINUS Paul-
ing, sem tvisvar
sinnum hlaut Nó-
belsverðlaun, lést
í gær í Kaliforníu.
Hann var 93 ára
að aldri.
Pauling hlaut
óskipt Nóbels-
verðlaun í efna-
fræði árið 1954
fyrir rannsóknir sínar á uppbygg-
ingu sameinda og síðar friðarverð-
launin 1962. Pauling tók mikinn
þátt í baráttu gegn kjarnorkuvopnj
um á sjötta og sjöunda áratugnurá
og var sagður hafa átt þátt í a*j
bann við tilraunum í andrúmsloftinij
var samþykkt 1963.
Pauling var mjög umdeildur fyrir
að mæla eindregið með því að fóllj
tæki að staðaldri stóra skammta
af C-vítamíni til að fyrirbyggja
ýmsa sjúkdóma, þ. á m. kvef.
Linus Pauling