Morgunblaðið - 21.08.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994 7
FRÉTTIR
Einstakur heyþurrkur á
Suðurlandi síðustu daga
GUÐJÓN Birgir Þórisson sá um að garða heyið fyrir frænda
sinn, Þorvald bónda.
BÆNDUR og búaiið eru að leggja
lokahönd á heyskap um þessar
mundir. Þorvaldur Þórarinsson,
bóndi á Litlu-Reykjum í Hraun-
gerðishreppi, var í óða önn að
binda síðustu baggana á föstudag.
Hann sagði heyskap hafa gengið
nokkuð vel í sumar. Tún á Suður-
landi hafi almennt komið vel und-
an vetri og því hafi verið hægt
að taka sumarið snemma.
Heyskapur á Litlu-Reykjum
hófst um mánaðamótin júní-júlí.
Þorvaldur hefur þó eins og fleiri
bændur að mestu tekið bindivélina
úr umferð. Því báru stórir staflar
af heyrúllum glöggt vitni. Bónd-
inn á Litiu-Reykjum gerði ráð fyr-
ir að flestir bændur í nágrenninu
myndu ljúka heyskap um helgina.
„Síðustu dagar hafa verið ein-
staklega góðir. Reyndar hefur
viðrað mjög vel í sumar þrátt. fyr-
ir nokkra vætu.“ Að sögn Þorvald-
ar þurfa bændur ekki að kvarta
yfir heyskorti eftir þetta sumar
og sumstaðar hafi þeir hreinlega
of mikið hey til ráðstöfunar.
Lítill þurrkur
Halldór Guðmundsson, bóndi á
Nautaflötum í Olfusi, bar sumrinu
ekki jafn vel söguna og kvaðst
ekki muna eftir jafn erfiðu sumri
í heyskap síðan 1955. „Heyskapur
hefur gengið treglega þar til núna
síðustu daga. Það hefur verið mik-
il sprettutíð en þurrkurinn hefur
hins vegar ekki verið nógu mik-
ill.“ Hann sagði að besti þurrkur
sumarsins hafi verið í kringum
Landsmót hestamanna en þá hafði
hann ásamt fleiri hestamönnum
öðrum hnöppum að hneppa.
Halldór hefur yfirdrifið nóg hey
fyrir veturinn en þar sem það er
svo létt gerir hann ráð fyrir að
uppgrip verði hjá aðilum í fóð-
urbætissölu. Bóndinn á Nautaflöt-
um var að binda bagga fyrir hross
en kvaðst annars yfirleitt rúlla
heyið. „Ef rúllutæknin væri ekki
til staðar væru bændur ekki búnir
að heyja mikið núna.“ Hann átti
þó ekki langt í land með að Ijúka
heyskap þetta sumarið. „Ætli ég
klári ekki um helgina ef hann fer
ekki að rigna!“
-
Morgunblaðið/Golli
PÉTUR Guðmundsson og Charlotte Clausen aðstoðuðu Hall-
dór bónda á Nautaflötum við að hirða síðustu bagga sumarsins.
ÞORVALDUR bóndi á Litlu-Reykjum átti ekki marga bagga
eftir óbundna á föstudaginn. Yngsta kynslóðin lét ekki sitt
eftir liggja fremur en endranær þegar heyskapurinn er ann-
ars vegar.
Hvesrt föar bikarinn
fKápavog
VeBtíuilsælnn?
1 WM gF**. W
rfiSPÍKlir I
turliikerkeppni
kvenna er í dag!
í dag kl. 15:00 hefst á Laugardalsvelli
leikur ársins í íslenskri kvennaknattspyrnu
-sjálfur úrslitaleikurinn í Mjólkur-
bikarkeppninni. Tvö efstu lið 1. deildar
mætast í æsispennandi leik. Nú reynir á
styrk og úthald leikmanna og áhorfenda.
Hvar verður þú?
Sérstakur heiöursgestur
á leiknum verður
borgarstjórinn í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Dómari:
Bragi Bergmann.
Línuverðir:
Kári Gunnlaugsson og
Gísli H. Jóhannsson.
Eftirlitsmaður:
3ón R. flilmarsson.
j&SSSS