Morgunblaðið - 21.08.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994 15
ur,“ svara ég. „Það er með öllu
ómerkt. Nú býð ég þér að koma
hingað um borð til mín og sýna
mér merki ykkar á því. Ef þú
getur gert það, skal ég á auga-
bragði setja baujuna á sinn stað
aftur.“
Þessu er ekki svarað; ég bíð í
stundarfjórðung; held þá af stað,
því að þetta mál er sýnilega úr
sögunni.
En Baujustríðið heldur áfram.
Nokkru síðar er ég út af Haga-
nesvík. Þar er hópur breskra tog-
ara, og Anderson vakkar hjá þeim.
Það er ljómandi veður, logn og
blíða. Allt í einu sé ég hvar dufl
liggur úti. Ég skoða það, en fer i
ekki nær því en á að giska hundr-
að metra. Og þá getur heldur en
ekki á að líta. Efst á baujustöng-
inni, þar sem venjulega voru hafð-
ar bláar eða rauðar dulur, blaktir
breski alríkisfáninn, hvorki versl-
unarflaggið né herfáninn, heldur
krúnuflaggið sjálft!
Nú er verið að leggja fyrir mig
gildru, hugsa ég með mér. Þetta
dufl get ég ekki tekið. En þá er
að gera eitthvað annað.
Frá þessari bauju er gengið á
annan veg en ég hafði nokkurn
tíma áður séð. í staðinn fyrir belgi
er gríðarmikil stáltunna, tvöföld á
stærð að ég hygg.
Mér dettur í hug að skjóta í
hana þannig að duflið sökkvi;
sæki óðara riffil og skotfæri, sem
ég hafði notað til að eyðileggja
tundurdufl á stríðsárunum, og
geri ráðstafanir svo að hvellurinn
heyrist ekki. Ég læt loka öllum
gluggum á brúnni, hef dyrnar
bakborðsmegin opnar og opna
sömuleiðis niður í gang á skipinu
og inn í loftskeytaherbergið.
Svo sigli ég milli baujunnar og
togaranna, og mér lánast þetta
prýðilega; fyrst skýt ég tunnuna
í sjónmálslínu, en síðan í toppinn
á henni til að hleypa loftinu út.
Hægt og hægt sekkur tunnan
og dregur baujuna.með sér, og
við fylgjumst með því glottandi,
ég og skipshöfnin sem stendur í
hnapp umhverfis mig. En um leið
og breska krúnuflaggið hverfur í
hafdjúpið, gera strákarnir mér
þann grikk að reka upp siguróp
eitt mikið.
Bresku togaraskipstjórarnir
heyra ópið, sjá að baujan er horf-
in, klaga mig undir eins fyrir And-
erson og segja:
„Þeir eru búnir að stela duflinu!“
Örskömmu síðar berst mér
harðort skeyti frá Anderson:
„Ef þú skilar ekki duflinu á sinn
stað innan tíu mínútna, skaltu
hafa verra af!“
Ég svara um hæl og segi —
eins og satt er:
„Ég hef ekkert dufl tekið og
get þar af leiðandi engu skilað.“
Ég heyri í talstöðinni að Ander-
son ber málið á ný undir togara-
skipstjórana, en þeir svara enn á
sömu lund:
„Það er öruggt að þeir hafa
stolið duflinu."
Anderson segist hins vegar vera
farinn að þekkja mig það vel nú-
orðið að ef ég segist ekki hafa
tekið baujuna, sé það að öllum lík-
indum satt.
„En hvern fjandann hefur hann
þá gert?“ bætir hann við og stynur
þungan.
Loks hefur hann aftur samband
við mig og spyr:
„Komstu ekki nálægt duflinu?"
„Ja, nálægt og ekki nálægt,"
svara ég. „Ég renndi á lítilli ferð
framhjá því í á að giska hundrað
metra fjarlægð, en það var nú ein-
göngu til þess að sýna breska
krúnuflagginu tilhlýðilega virð-
ingu!“
Þá hnussar í Anderson, og hann
flýtir sér að segja:
„Við látum málið falla niðúr.“
-gisting og
góður matur
Nuddskóli Rafms Qeirdals
NUDDNAM
hefst 1. september næstkomandi.
Hægt er að velja um dagnám
eða kvöld- og helgamám.
Upplýsingar og skráning
í símum 676612 og 876612
Smiðshöfða 10, 112Reykjavík
alla virka daga.
Colt 1300 GLi
1.095.000.
Lancer 1600 GLXi, sjálfskiptur
1.484.000.-
Afmælisafsláttur
á Mitsubishi
r
I tilefni 15 ára afmælis Mitsubishi
r
á Islandi seljum við á næstunni
takmarkað magn Mitsubishi
bíla á hreint frábæru verði!
Tryggðu þér bíl í tíma.
Allt að 48 mánaða greiðslutími.
*/sHl Á
Lancer GLXi 4x4, með sítengdu aldrifi.
1.790.000.-
HEKLA
Laugavegi 170 - 174 • Sími 69 55 00
A
MITSUBISHl
í • Qími rq ck nn MOTORS