Morgunblaðið - 21.08.1994, Side 22
22 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍQIN hafa tekið til sýninga gamanmyndina Getting Even With Dad
með þeim Macaulay Caulkin og Ted Danson í aðalhlutverkum. Myndin Qallar um uppáflnn-
ingasaman strák sem beitir ýmsum klækjum til að fá pabba sinn til að gegna foðurhlutverkinu.
Pabbinn tekinn
föstum tökum
Ray Gleason (Ted
Danson) er smá-
krimmi sem er
betri kökugerðar-
maður en þjófur og því setur
hann á fót bakarí þegar hann
ætlar að reyna að snúa frá
villu síns vegar og lifa heið-
arlegu lífi. Seinasta afbrot
hans tók af allan vafa um
hæfni hans á glæpabraut-
inni, en þá stal hann stórri
sendingu af myndbands-
tækjum sem öll reyndust
vera af úreltri gerð og því
einskis virði. Þegar Ray leit-
ar leiða til að fjármagna
nýja fyrirtækið sitt virðist
hann hins vegar hafa gleymt
þessum mistökum sínum og
skipuleggur hann það sem á
að verða síðasta ránið hans.
En það er eitt sem hann tók
ekki með í reikninginn við
skipulagninguna og það er
að Timmy sonur hans (Mac-
aulay Caulkin) er skyndilega
skilinn eftir hjá honum í
óvæntri vikuiangri heim-
sókn.
Ray sekkur sér engu að
síður ofan í skipulagningu á
síðasta ráninu og gerir hann
þau mistök að sinna syni sín-
um ekki sem skildi á meðan.
Timmy kemst hins vegar
fyrr en varir að því hvað
pabbi hans er að bralla og
kemur hann auga á upp-
lagða leið til að snúa hiutun-
um sér í hag. Hann tekur
því sjálfur til við flókna
skipulagningu og er mark-
mið hans að fá pabba sinn
til að afplána tíma og það í
föðurhlutverkinu. Eftir viku-
langt ráðabrugg stráksins
sem leiðir þá feðga og
glæpafélaga pabbans um
alla helstu og markverðustu
staðina í San Francisco verð-
ur þeim svo báðum ljóst
FÉLAGAR pabbans á glæpabrautinni neyðast til
að taka þátt í hinum ýmsu uppátækjum sonarins.
SMÁKRIMMINN Ray Gleason (Ted Danson) hefur fullan hug á að snúa frá villu
síns vegar og gerast heiðarlegur kökugerðarmaður.
ýmislegt um gildi fjölskyld-
unnar.
Pabbar teknir fyrir
Það hefur nokkuð borið á
því upp á síðkastið í banda-
rískum kvikmyndum að
pabbar séu teknir rækilega
fyrir, og er Getting Even
With Dad aðeins ein af
mörgum myndum þess eðlis
sem frumsýndar hafa verið
undanfarið. Meðal þeirra
eru North, en í henni leikur
Elijah Wood strák sem skil-
ur við pabba sinn og
mömmu, When A Man
Loves A Woman þar sem
Andy Garcia er á fullu í
pabbahlutverkinu, My Fat-
her The Hero með Gérard
Depardieu í hlutverki pa-
bbans sem dóttirin hefur að
leiksoppi og loks I’ll Do
Anything með Nick Nolte
sem fær að kenna á klækj-
um sex ára sonar síns í
myndinni. Margir hafa velt
vöngum yfir því hvers vegna
föðurhlutverkið hefur verið
FEÐGARNIR eiga góðar stundir saman þegar smá-
krimminn fer í pabbaleik fyrir atbeina sonarins.
tekið þessum tökum í um-
ræddum Hollywoodmyndum
samtímans og hafa margir
hallast að því að helst sé
um að ræða leið til þess að
koma á framfæri bældri
reiði í garð manna í valda-
stöðum, eins og t.d. kvik-
myndaframleiðenda og for-
stjóra kvikmyndavera.
Vanur gerð
gamanmynda
Leikstjóri Getting Even
With Dad er Howard Deutch
sem vanur er gerð gaman-
mynda, en hann vakti þegar
mikla athygli með fyrstu
myndinni sem hann leik-
stýrði. Það var Pretty in Pink
með Molly Ringwald í aðal-
hlutverki, og var John Hug-
hes (Home Alone) framleið-
andi myndarinnar. Síðan
hefur Deutch leikstýrt
myndunum Some Kind of
Wonderful með Eric Stoltz
og Mary Stuart Masterson í
aðalhlutverkum, The Great
Outdoors með Dan Ackroyd
og John Candy og Article
99 með þeim Kiefer Suther-
land og Ray Liotta í aðal-
hlutverkum. Þá hefur hann
gert nokkra þætti í kapal-
sjónvarpsseríunni Tales
from the Crypt og hlotið
verðlaun fyrir og einnig
gerði hann fyrsta þáttinn í
þáttaröðinni um Melrose
Place.
Deutch er fæddur og upp-
alinn í New York og að loknu
námi við Ohio State Univers-
ity hóf hann feril sinn í
skemmtanaiðnaðinum með
gerð auglýsingamynda fyrir
kvikmyndir og tónlist-
armyndbönd. Hefur hann
gert tónlistarmyndbönd með
ýmsum þekktum tónlistar-
mönnum, en þar á meðal eru
þeir Billy Joel og Billy Idol.
Höfundar handritisins að
Getting Even With Dad eru
þau Katie Jacobs og Pierce
Gardner, en þau hófu eigin
kvikmyndagei-ð árið 1991.
Fyrsta verkefni þeirra var
gamanmyndin Fatal Instinct
sem MGM gerði og Carl Rein-
er leikstýrði. Jacobs er fædd
og uppalin í New York og
lauk hún prófi frá kvik-
myndaskóla New York Uni-
versity. Auk verkefna sem
hún hefur unnið að fyrir fyr-
irtæki þeirra Gardners var
hún meðframleiðandi að
spennumyndinni Consenting
Adults sem Alan J. Pakula
leikstýrði. Gardner er aftur á
móti ættaður frá Philadelphiu
og vann við almannatengsl
áður en hann fluttist til Los
Angeles. Meðal verkefna sem
þau Jacobs og Gardner vinna
nú að er framleiðsla myndar-
innar Dr. Jekyll and Mr.
Hyde fyrir Disney.
Fæddir í
hlutverkin
ÞAÐ fór vel á með þem Macaulay Culkin og Ted
Danson á meðan á tökum myndarinnar Getting
Even With Dad stóð.
að fór vel á með þeim
Macaulay Culkin og
Ted Danson á meðan á tök-
um kvikmyndarinnar Gett-
ing Even With Dad stóð.
Segir Danson að samband
þeirra hefði verið einna lík-
ast því sem um feðga væri
að ræða þó oft á tíðum hafi
verið erfítt að segja til um
hvor þeirra væri í föðurhlut-
verkinu. Þeir félagar þóttu
sem fæddir í aðalhlutverkin
í myndinni, en framleiðendur
myndarinnar höfðu frá byrj-
un augastað á Culkin í hlut-
verk sonarins, enda fannst
þeim einna líkast að það
hafi verið skrifað með hann
í huga. Danson, sem þekktur
er um allan heim fyrir leik
sinn í Staupasteini, var fljót-
ur að taka að sér hlutverk
pabbans þegar honum
bauðst það og urðu framleið-
endur myndarinnar himinlif-
andi, enda fannst þeim hann
búa yfir þeim þokka og hlýju
sem gæti gert persónuna
trúverðuga. Það spillti svo
ekki fyrir að Danson hafði
áður leikið í nokkrum kvik-
myndum sem höfðu notið
mikilla vinsælda og sem Sam
Malone í Staupasteini hafði
hann orðið heimilisvinur um
víða veröld.
Fyrir hlutverk sitt í
Staupasteini hafði Danson
hlotið tvenn Emmy verðlaun
og tvenn Golden Globe verð-
laun, en til beggja verðlaun-
anna hafði hann hlotið mun
fleiri tilnefningar. Fyrsta
kvikmyndahlutverk Dansons
var í löggudramanu The
Onion Field en sú mynd var
gerð e/tir sögu Joseph Wam-
baugh. Með svipað hlutverk
fór hann svo í spennumynd-
inni Body Heat, en með aðal-
hlutverk fór hann ekki fyrr
en í hinni geysivinsælu gam-
anmynd Three Men and a
Baby, en auk Dansons fóru
Steve Guttenberg og Tom
Selleck með aðalhlutverk í
myndinni. Svipaðra vinsælda
hlaut svo framhaldsmyndin
Three Men and a Little Lady.
Meðal annarra mynda sem
Danson hefur leikið í eru
Cousins, þar sem hann lék á
móti Isabellu Rosselini, Dad,
þar sem Jack Lemmon var
mótleikari hans, og loks
Made In America, en í henni
lék hann á móti Whoopi
Goldberg og leiddi það til
þess að þau rugluðu saman
reitum sínum um skeið.
Kominn í sama farið
Macaulay Caulkin sýndi á
sér nýja hlið þegar hann lék
í spennumyndinni The Good
Son sem Sambíón sýndu
síðastliðið haust, en fram til
þess hafði hann einkum leikið
í gamanmyndum á borð við
Getting Even With Dad.
Hann er þó þekktastur fyrir
leik sinn í Home Alone mynd-
unum, en sú fyrri af þeim
er meðal mest sóttu mynda
allra tíma.
Caulkin kom fyrst fram
opinberlega á sviði þegar
hann var fjögurra ára gam-
all, en það var í New York
þar sem hann er fæddur. Á
næstu árum kom hann fram
í ýmsum leikritum og þá
oftast nær í aðalhlutverki,
en fyrsta kvikmyndahlut-
verkið fékk hann árið 1987.
Það var í kvikmyndinni Roc-
ket Gibraltar þar sem hann
lék á móti Burt Lancaster,
en skömmu síðar lék hann
son Jeff Bridges og Farrah
Fawcett í mynd Alans J.
Pakulas, See You In The
Morning. Þá lék hann með
Tim Robbins í Jacob’s Ladd-
er og með John Candy í
Uncle Buck, en það var síðan
í Home Alone sem hann sló
í gegn fyrir alvöru.
Faðir Macaulay Culkin,
Kit Culkin, hefur ráðið miklu
um það hvaða hlutverk sonur
hans hefur tekið að sér, en
Kit Culkin þykir vera meðal
áhrifamestu manna í Holly-
wood og hefur velgengni
sonar hans og vinsældir átt
stærstan þátt í því. Hann
kom til því til leiðar að Mac-
aulay fékk hlutverkið í The
Good Son, en með því ætlaði
hann að opna dyrnar fyrir
hinn þrettán ára gamla son
sinn að fullorðinshlutverkum
i kvikmyndum. Kit Caulkin
hefur í krafti vinsælda son-
arins farið fram á geysiháar
greiðslur fyrir hans hönd, og
fékk hann til dæmis fimm
milljónir dollara fyrir að
leika í The Good Son.
Macaulay Culkin mun á
næstunni sjást í kvikmynd-
inni The Pagemaster og um
þessar mundir fer hann með
aðalhlutverkið í Richie Rich,
sem gerð er eftir handriti
þeirra sömu og skrifuðu
handritið að Getting Even
With Dad.