Morgunblaðið - 21.08.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994 23
Landið
í vatns-
litum
MYNDOST
Stöölakot
VATNSLITAMYNDIR
Hrefna Lárusdóttir. Opið alla daga
kl. 14-18 til 21. ágúst. Aðgangur
ókeypis.
Ljóðatónleikar Gerðu-
bergs endurteknir
LJOÐATONLEIKAR Gerðubergs, Is-
lenska einsöngslagið, verða endur-
teknir í borgarleikhúsinu, mánudaginn
22. ágúst klukkan 20.30 og í íslensku
óperunni, þriðjudaginn 23. ágúst -
einnig klukkan 20.30. Uppselt var á
Ljóðatónleikana á afmæli Reykjavíkur
fímmtudaginn 18. ágúst sl. og var því
ákveðið að endurtaka tónleikana á
mánudagskvöld. Þar sem ljóst var, að
sögn forsvarsmanna Gerðubergs, að
færri myndu komast að en vildu, var
ákveðið að endurtaka tónleikana í
þriðja og seinasta skipti í íslensku
óperunni á þriðjudegnum.
í fréttatilkynningu segir að þ_að
megi teljast sérstakur viðburður á Is-
landi að svo einstakir listamenn sem
Garðar Cortes, Kolbeinn Ketilsson,
Kristinn Sigmundsson, Rannveig
Fríða Bragadóttir, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Sólrún Bragadóttir og Sverrir
Guðjónsson komi saman á einum tón-
leikum til að syngja íslensk einsöngs-
lög. Á efnisskrá tónleikanna eru lög
eftir um flörtíu íslensk tónskáld. Jónas
Ingimundarson, píanóleikari og um-
sjónarmaður íslenska einsöngslagsins,
spilar með á píanó.
Ljóðatónleikarnir eru liður j menn-
ingardagskrá sem er tileinkuð íslenska
einsöngslaginu og Gerðuberg stendur
fyrir á fimmtíu ára afmæli íslenska
lýðveldisins. Miðasala og miðapantanir
eru í Borgarleikhúsinu.
HREFNA Lárusdóttir hefur búið
í Lúxemborg í um tvo áratugi, og
naut kennslu í litameðferð í Trier
í Þýskalandi; hún hefur verið dijúg
við sýningarhald frá því hún hélt
sína fyrstu sýningu fyrir tíu árum,
og sýnt bæði í Þýskalandi og
Lúxemborg, auk þess sem hún hef-
ur tvívegis hengt verk sín á Mokka-
kaffi.
Myndefnin í málverkin hér sækir
Hrefna til ferða um ísland, og má
meðal þeirra kenna ýmsa þekkta
staði, svo sem Snæfell, Almanna-
skarð, Eyjafjallajökul, Jarlhettur
og Rauðasand. Myndbygging er oft
markviss og skýr í stærri verkun-
um, en minnstu myndirnar eru allt
of litlar til að efnið fái notið sín
sem skyldi; slík póstkorta-stærð
hentar því engan veginn. Á sama
tíma og beiting litanna er oft með
ágætum í landslagsmyndunum, þá
er teikningin hins vegar ekki nægi-
lega leikandi þegar persónur eða
dýr koma inn í landið, og viðfangs-
efnið verður óþarflega stíft í fletin-
um.
Hrefnu tekst best upp þar sem
myndbyggingin er einföld og
sjónarhornið ekki of þröngt, og
hreinir litir fá að njóta sín. Þannig
eru „Frá Rauðasandi" (nr. 4) og
„Séð frá Almannaskarði“ (nr. 12)
í góðu jafnvægi, og hinir tæru tón-
ar loftsins í fjarlægð marka þá sýn
á landið, sem listakonan leitar eftir
að koma til skila.
Vatnslitir eru vandmeðfarinn
miðill, sem þó er hægt að læra að
meðhöndla af ögun og smekkvísi,
eins og sést á þessum myndum.
Hins vegar skortir hér þá dirfsku
og flæði í litameðferðinni, sem er
nauðsynleg til að gera myndir af
þessu tagi eftirminnilegar. Lands-
lagsmálverkið á sér afar ríka hefð,
sem þarf að nálgast á nýjan hátt,
eða jafnvel bijóta gegn, til að hægt
sé að tala um fijóa listsköpun
hvetju sinni.
Slík opnun viðfangsefnisins hlýt-
ur að vera nauðsynlegt markmið
skapandi listar, fremur en að lista-
maðurinn láti sér nægja dægilega
eftirmyndun þess sem fyrir augu
ber.
Eiríkur Þorláksson
------♦-•»-♦-----
Egilsstaðir
>
Island
sækjum
það heim
SÝNING á 120 úrvalsverkum úr
myndlistarverkefni barna og ungl-
inga á vegum ferðaátaksverkefnis-
ins ísland sækjum það heim hófst
á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
föstudaginn 19. ágúst sl. Sýningin
er farandsýning og er sýningin á
Egilsstöðum sú sjöunda í sumar en
hún stendur til 28. ágúst. Hún er
opin alla daga frá kl. 14-19.
|f»Skólinn er aö byrja
Frábær skólafatnaður á börnin í miklu úrvali.
LOKSIIMS
H&M Rowells
í Húsi verslunarinnar
RCWELLS
Þúsundir íslendinga þekkja gæði
fatnaðarins frá H&M Rowells. Þeirvita
að í H&M Rowells fá þeir fallegan og
góðan fatnað á dömur, herra og börn
á mjög hagstæðu verði. Verslun okkar
er í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
þ Póstverslun Hennes & Mauritz
Náðu þér í nýja haust- og vetrarbæklinginn
frá H&M Rowells. 300 blaðsíður af fallegum
fatnaði.
Hringdu í síma
91-884422
og við sendum þér bæklinginn um hæl gegn
350 kr. greiðslu.
►FJOLSKYLDUNNI I