Morgunblaðið - 21.08.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994 39
I DAG
Arnað heilla
T7 A ÁRA afmæli. í dag,
| Vf 21. ágúst, er sjötug
Lilja Guðmundsdóttir,
Stóragerði 4, Reykjavík.
Hún verður að heiman á
afmælisdaginn.
BRIPS
Umsjón Guóm. Páll
A r n a r s « n
TIL AÐ mynda sveiflu upp
á 21 IMPa í einu spili þarf
2.500 stig. Slíkt gerist ekki
oft, en sást þó í bikarleik
Landsbréfa og Estherar Jak-
obsdóttur sl. miðvikudag.
Norður gefur, AV á
hættu. .. ,
Norour
♦ ÁDG86
7 G
♦ G87654
♦ 5
Vestur
♦ 9743
7 KD5
♦ 10
♦ ÁD764
Austur
♦ -
y Á983
♦ ÁD92
* KG1093
Suður
♦ K1052
y 107642
♦ K3
♦ 82
Mikill hasar var í sögnum
í opna salnum, en þar sátu
Hjördís Eyþórsdóttir og Ljós-
brá Baldursdóttir í sveit Est-
herar í NS gegn Jóni Baldurs-
syni og Sævari Þorbjörnssyni:
Vestur Norður Austur Suður
S.Þ. H.E. J.B. LB.
- 1 spaði Dobl 3 spaðar
5 lauf 5 spaðar 6 iauf Pass
Pass 6 spaðar Pass Pass
7 iauf Pass Pass Pass
Alslemman er borðleggj-
andi og gaf AV2140.
Sagnir í iokaða salnum
höfðu allt annan hljóm. Þar
virtist baráttan snúast um
bútinn, en ekki slemmur og
fómir. NS voru Þorlákur Jóns-
son og Guðm. P. Amarson,
en AV Esther og Anna Þóra
Jónsdóttir:
Vestur Norður Austur Suður
EJ. Þ.J. A.ÞJ. G.P.A.
- Pass 1 lauf 1 hjarta
Dobl* 1 spaði Pass Pass
2 lauf 2 tíglar 3 lauf 3 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
I'orlákur fékk níu slagi og 530.
Q A ÁRA afmæli. Á
*J\J morgun, 22. ágúst,
verður níræður Stefán
Guðnason, fv. trygginga-
yfirlæknir, Droplaugar-
stöðum við Snorrabraut,
Reykjavík. Eiginkona hans
var Elsa Krisljánsdóttir,
hjúkrunarkona, sem lést
1992. Stefán verður að
heiman á afmælisdaginn.
QQ ÁRA afmæli. í dag,
i/vf 21. ágúst, er níræð
Anna Grímsdóttir, Hjarð-
arhlíð 5, Egilsstöðum.
Eiginmaður hennar var Jón
Björnsson, en hann lést
árið 1986. Þau bjuggu á
Skeggjastöðum, Jökuldal.
Anna tekur á móti gestum
í dag á heimili sínu.
Ljósm. Bonni
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 18. júní sl. í Laugar-
neskirkju af sr. Pálma Matt-
híassyni, Indíana Stein-
grímsdóttir og Gunnar
Guðjónsson. Heimili þeima
er í Selvogsgrunni 11,
Reykjavík.
HOGNIHREKKVISI
//
HANN AÐL/EEA VIEÆKiPTI
ORÐABOKHM
Berast á banaspjót
ÉG BÝST við, að menn
kannist almennt við no.
banaspjót í ofangreindu
orðalagi, en hins vegar
mun nú algengt sagt og
ritað að berast á bana-
spjótum. Fyrir rúmu ári
tók Ari Páll Kristinsson
þetta til umfjöllunar í
Tungutaki, sem er vett-
vangur umræðna um
málfar í Ríkisútvarpinu.
Árni heitinn Böðvarsson
hleypti þessu litla, en
þarfa málgagni af
stokkunum. Þar sem það
er að vonum ekki þekkt
meðal almennings, hef
ég fengið góðfúslegt
leyfi Ara Páls til þess
að notfæra mér sitthvað
úr efni þess og koma á
framfæri við lesendur
Mbl. Ari Páll rekur þær
gerðir, sem til eru af
þessu orðtaki, en þær
eru allmargar. Þar bend-
ir hann á, að elzt muni
vera að berast á bana-
spjót, en merking þess
er sú „að sækjast hvor
eftir annars lífi“. Hér er
berast á notað gagn-
verkandi, þ.e. bera hvor
á annan, sbr. að slást,
þ.e. slá hvor annan.
Þannig er hugsunin sú,
að hvor ber banaspjót á
hinn, þeir beita vopni
hvor gegn öðrum. Hins
vegar hefur þetta fyrir
löngu verið misskilið og
menn ályktað sem svo,
að smáorðið á ætti að
stýra hér þágufalli.
Þannig hefur komið upp
orðtakið að berast á
banaspjótum. Trúlega er
sú gerðin orðin svo al-
menn, að lítt tjói við að
fást. Aftur á móti er
sjálfsagt að benda á hina
upprunalegu gerð orð-
taksins: að berast á
banaspjót.
J.A.J.
STJÖRNUSPA
cftir franccs Drakc
LJON
Afmælisbarn dagsins: Þú
vilt fjölbreytni í starfi og
hikar ekki við að taka
áhættu ef með þarf.
Hrútur.
(21. mars - 19. apríl) A*
Þú færð góðar hugmyndir
varðandi vinnuna sem vert
er að fylgja eftir. Reyndu að
komast hjá ágreiningi við
náinn félaga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að leysa smá heimil-
isvandamál fyrri hluta dags.
Félagi veitir þér góðan stuðn-
ing. Hlustaðu á góð ráð.
Tvíburar
(21. maí- 20.júní)
Þú gerir þér grein fyrir því
hvað ber að gera í dag, en
einhvetjar tafir geta orðið á
framkvæmdum. Þú þarft að
sýna þoiinmæði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu því sem að höndum ber
í dag. Það getur verið góð til-
breyting að gera eitthvað sem
ekki er fyrirfram ákveðið.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 23. júlí sl. í Kópa-
vogskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Sigrún S.
Jónsdóttir og Oddgeir
Már Sveinsson. Heimili
þeirra er á Tunguheiði 4,
Kópavogi.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þótt þú hafir í mörgu að snú-
ast heima í dag langar þig
að byrja á nýju og spennandi
verkefni. Farðu varlega í að
gagnrýna aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) $£
Taktu ekki mark á orðrómi
sem þér berst til eyma í dag.
Listrænir hæfileikar fá að
njóta sín og ástin er í háveg-
um í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Eitthvað kemur þér mjög
ánægjulega á óvart í dag. Þú
átt góðar stundir með fjöl-
skyldunni, en vinur er nokkuð
afundinn.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9Kj0
Ástvinir skreppa saman í
stutt ferðalag í dag. Þú nýtur
iifsins þótt eitthvað hafi farið
öðruvísi en ætlað var í vinn-
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Farðu eftir eigin sannfær-
ingu, því ráð sem þér em
gefin geta verið stórlega göll-
uð. Þú sinnir einkamálunum í
kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir ákveðið fyrirvara-
laust að skreppa í heimsókn
til gamalla vina. Nýjar upp-
lýsingar breyta fyrirætlunum
þínum í fjármálum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Málin þróast mjög þér í hag
á bak við tjöldin í dag. Þótt
félagar séu ekki sammála
ætti að vera auðvelt að finna
málamiðlun.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Hafðu hugann við það sem
þú ert að gera í dag og láttu
ekki smáatriði framhjá þér
fara. Þér berast góðar fréttir
frá vini.
Stjömuspdna d að lesa sem
dœgradvöl. Spdr af þessu tagi
byggjast ekki d traustum grunni
visindalegra stadreynda.
ÍTI111
lllii iiiii iiiii
lllll lllll ilill llin inn
lllll ■llll lllll lllll lllll ■■III lllll ■llll lllll lllll lllll lllll
III lllll lllll lllll lllll lllll III
BILHEIMAR
Fossháls 1 110 Reykjavík Sími 634000
NOTAÐIR BÍLAR
orgun byrjar