Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D
209. TBL. 82. ÁRG. FIMMTUDAGUR15. SEPTEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tíiniimhleyp-
ur frá stj óm-
iimiáHaítí
Washington. Reuter.
DEE Dee Myers blaðafulltrúi Bills Clintons Bandaríkjaforseta
varaði herstjórnina á Haítí við í gær og sagði að tíminn sem hún
hefði til að láta af völdum friðsamlega væri að hlaupa frá henni.
„Tími samninga er liðinn, við höfum engan áhuga á að semja við
harðstjóra, þeir verða að hverfa frá,“ saði Myers.
Bandaríska flugmóðurskipið
Eisenhower lagði úr höfn í Norfolk
með 2.000 hermenn og 50 árásar-
og flutningaþyrlur innanborðs og
sigldi áleiðis til Haítí. Búist er við
að þangað verði skipið komið um
og upp úr helgi ásamt um 30 öðr-
um herskipum. Bandarískir emb-
ættismenn hafa sagt, að þrátt fyr-
ir andstöðu á þingi og litlar undir-
tektir almennings í skoðanakönn-
unum muni um 20.000 manna inn-
rásarher láta til skarar skríða gegn
herstjórn Raouls Cedras innan
nokkurra daga.
Sjónvarpsávarp
Bill Clinton forseti mun flytja
sjónvarpsávarp í kvöld klukkan
eitt eftir miðnætti að íslenskum
tíma og útskýra nauðsyn aðgerð-
anna gegn herforingjastjórninni á
Haítí. Myers sagði Clinton enn til-
búinn að skoða friðsamlega lausn
deilunnar um Haítí, en samningar
við herforingjana kæmu ekki til
álita. William Perry varnarmála-
ráðherra varaði Cedras og herfor-
ingjastjórn hans við í gær og sagði
að fjölþjóðaherinn yrði tilbúinn til
atlögu gegn þeim mjög bráðlega.
Boðin hjálp
Strobe Talbott aðstoðarutanrík-
isráðherra sagði að fjölþjóðaherinn
myndi ganga á land til að halda
uppi lögum og reglu og tryggja
stöðugleika svo Jean-Bertrand Ar-
istide, lýðræðislega kjörinn forseti
sem herforingjarnir steyptu fyrir
þremur árum, gæti tekið aftur við
völdum.
Mike McCurry, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, bauð
Cedras og herforingjum hans að-
stoð við að koma þeim úr landi,
þeir þyrftu aðeins að láta vita hvert
þeir vildu fara. Færu þeir hvergi
og féllu í hendur innrásarliðinu yrðu
þeir framseldir stjórn Aristide.
Reuter
BANDARÍSKAR herflugvélar vörpuðu milljónum áróðursrita
yfir Port-au-Prince og tvær aðrar stórar borgir í gær. Þar var
hvatt til þess að Aristide tæki aftur við völdum.
Vísindin
skapa
risalax
Lundúnum. Reuter.
VÍSINDAMENN hafa skýrt
frá því að þeir hafi búið til risa-
stóran lax, sem er allt að 37
sinnum stæn-i en venjulegur
lax, í arfberatilraun sem gæti
haft mikla þýðingu fyrir fisk-
eldi.
í grein eftir vísindamennina
í vísindatímaritinu Nature, sem
kemur út í dag, kemur fram
að þeir bjuggu laxinn til með
því að koma ofvirku vaxt-
arhormónsgeni fyrir í hrognum
Kyrrahafslax. Nature sagði að
þetta væri árangursríkasta til-
raunin til þessa til að auka
vöxt dýra eða fiska með arf-
berarannsóknum.
Óx hraðar
Risalaxinn óx mun hraðar
og varð stærri en lax sem
ekki fékk arfberaefnið, sem
var fengið og þróað úr smá-
vöxnum Kyrrahafslaxi.
„Að meðaltali var laxinn
ellefu sinnum þyngri en við-
miðunarlaxinn, sumir laxarnir
uxu ekki hraðar en einn varð
37 sinnum stærri," sögðu vís-
indamennirnir, sem eru frá
Kanada, Bandaríkjunum og
Singapore.
Vísindamennimir létu ósagt
hvort þessi mikli vöxtur hefði
áhrif á bragð laxins.
Ný stjórn tekur
við í F æreyj um
Edmund Joensen verður lögmaður
^ Reuter
Ohult fyrir efnavopnum
í SUÐUR-Kóreu óttast margir styrjöld við frændurna í norðri
og verslanir, sem selja alls konar öryggisbúnað, þrífast vel. Hér
er sölumaður að dæla síuðu Iofti inn í loftþéttan barnavagn en
hann á að hlífa barninu geri Norðanmenn efnavopnaárás.
Kosið um kvenna- og skólamál í Svíþjóð
Hægrimenn vinna á
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ÁKVEÐIÐ var í gær að Edmund
Joensen formaður Sambands-
flokksins, sem leitt hefur stjórnar-
myndunarviðræður síðustu daga,
yrði næsti lögmaður Færeyja. Af-
þökkuðu bæði Bjorn á Heygum,
þingmaður Sambandsflokksins, og
Lisbet L. Petersen, bæjarstjóri í
Þórshöfn, boð um að fara með for-
ystuhlutverkið í landstjórninni.
Ný stjórn tekur við völdum á
þingfundi í dag en gengið var frá
ráðherraskipan í gær. Ráðherrar
Sambandsflokksins auk Joensens
lögmanns verða Ivan Johannesen
sjávarútvegsráðherra og Eilif
Samuelsen menntamálaráðherra.
Jafnaðarflokkurinn fær tvo ráð-
herra, Jóannes Ejdesgaard tekur
við flár- og efnahagsmálum en
hann var félags- og heilbrigðisráð-
herra í fráfarandi stjórn en flokks-
bróðir hans Andrias Petersen tekur
við því ráðuneyti. Hann er nýliði í
stjórnmálum, hefur verið starfandi
héraðslæknir í Austurey.
Edmund Ivan
Joensen Johannesen
Ráðherra Verkamannaflokksins
verður ÓIi Jacobsen og fær hann
iðnaðarráðuneytið í sinn hlut. Hann
er formaður samtaka færeysku
fiskvinnslunnar. Ráðherra Sjálfstý-
riflokksins, sem fær menningar-
málin, verður Sámal Petur í Grund.
Bjorn á Heygum afþakkaði lög-
mannsstarfið á þeirri forsendu að
hann væri ekki fyllilega sáttur við
stjórnarsáttmálann. Lisbet L. Pet-
ersen hafnaði starfinu einnig í gær
á þeirri forsendu að meirihluta-
flokkarnir í stjórn höfuðstaðarins
væru ekki sammála um eftirmann
hennar. Afsögn hennar hefði getað
leitt til nýrrar meirihlutamyndunar
í Þórshöfn.
Háleit markmið
Samkvæmt stjórnarsáttmála
Sambandsflokksins, Jafnaðar-
flokksins, Verkamannaflokksins og
Sjálfstýriflokksins er markmiðið að
tryggja stöðugleika og velferð í
landinu. Ætlunin er að koma á jafn-
vægi í efnahagslífinu, að auka
tekjuleiðir ríkissjóðs, stjórna nýt-
ingu fiskistofna við Færeyjar af
skynsemi og með framtíðarhags-
muni að leiðarljósi, að gera sjávar-
útveginn arðbæran, að bæta mark-
aðsaðstæður atvinnuveganna, að
tryggja afkomu iðnaðar, skapa ný
atvinnutækifæri, lækka jaðarskatt-
inn, bæta kjör fólks sem býr í eig-
in húsnæði, vernda umhverfi sjávar
og sveita og rækta og efla færeysk-
an menningararf.
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
FJÓRUM dögum fyrir kosningar
eru borgaraflokkarnir í Svíþjóð
næstum orðnir jafnstórir og
J afnaðarmannaflokkurinn sam-
kvæmt skoðanakönnun sem birtist
í sænska blaðinu Expressen í gær.
Það eru einkum skólamál og mál
er snerta konur sérstaklega sem
kjósendur veita athygli ef marka
má spurningar sem brenna á vörum
þeirra á framboðsfundum víða uin
land. Stóru línurnar í þjóðhagsmál-
unum eru einnig ræddar að
ógleymdri Evrópusambandsaðild.
■ Hartdeilt/17