Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aukinn áhugi á körfuknattleik hérlendis síðustu misseri
Samningar tókust á milli FÍH og ríkisins
Markvisst
leitað
að stórum
krökkum
KÖRFUBOLTAÍÞRÓTTIN hefur
verið í örum vexti hér á landi
undanfarin misserLI sumar fóru
leiðbeinendur á vegum Körfu-
knattleikssambandsins um landið
og héldu námskeið. A þessum
ferðum hafa fulltrúar KKÍ haft
augnn opin fyrir hávöxnum
krökkum og jafnvel skráð niður
lítil börn hávaxinna foreldra upp
á seinni tíma.
Auknar vinsældir íþróttagrein-
arinnar eru m.a. raktar þess er
útsendingar frá keppni I banda-
rísku körfuboltadeildinni NBA
hófust á Stöð 2. Auk þess hefur
KKI unnið að útbreiðslu íþróttar-
innar m.a. með öflugu fræðslu-
starfi. KKÍ leitar að stórum
krökkum eins og áður sagði og
hefur skipulagt æfingabúðir fyrir
stóra krakka þar sem þeim er
kenndur körfubolti, hreyfingar
stórra manna í körfubolta og þeir
sendir heim með æfingaáætlun til
að geta æft sig sjálfir.
Að sögn Péturs Sigurðssonar
framkvæmdastjóra KKÍ hafa
íþróttakennarar einnig verið
beðnir um að benda á stóra
krakka. „Við erum að leita að
landsliðsmönnum framtíðarinnar.
Við eigum bara tvo leikmenn sem
eru tveir metrar í íslenska lands-
liðinu. Okkur vantar leikmenn
sem verða 2,05-2,07 metrar á
hæð.“ Pétur segir að hafi hávaxn-
ir strákar og stelpur áhuga á að
taka þátt í æfingabúðum þá eigi
þau endilega að hafa samband við
KKÍ.
Körfubolti í Kolaportinu
Tuttugu körfuboltavellir fyrir
götubolta hafa verið settir upp í
nýja Kolaportinu. NBA-götubolta-
mót, sem stendur til 2. nóvember,
hófst þar í gær og fer keppni
fram á hverju miðvikudagskvöldi.
Keppt verður í fjórum aldurs-
flokkum karla og kvenna með
fyrirkomulaginu þremur á þrjá.
Fyrirhugað er að vellimir verði
leigðir út á þeim dögum sem ekki
er starfsemi í Kolaportinu.
Að sögn framkvæmdastjóra
KKÍ, Péturs Hrafns Sigurðssonar,
hefur orðið 25% aukning á þátt-
Hrefnu-
kjötið
rann út
„ÞAÐ ER búið að vera gífurlega
góð sala á hrefnukjötinu. Eg
hefði ekki trúað þessu að
óreyndu,“ sagði Ragnar Hauks-
son hjá Fiskbúð Hafliða, um
viðbrögð viðskiptavina við sölu
fyrirtækisins á hrefnukjöti.
Hrefnan flæktist í netum við
Eldey í fyrradag. Ragnar sagði
að hrefnukjötið væri að verða
uppselt. Það yrði hugsanlega
smávegis eftir í dag. •
Um 1.200-1.400 kíló af kjöti
fengust af hrefnunni. Ragnar
sagði að margir hefðu keypt sér
smábita til að smakka, en þó
nokkuð margir hefðu keypt
hrefnukjöt til að birgja sig upp.
Menn hefðu keypt allt upp 1 15
kílóa bita.
Ragnar sagði að það færi
ekki á milli mála að góður
markaður væri fyrir hrefnukjöt
hér á landi. Hann sagðist gjarn-
an vilja fá meira af þessu kjöt
til sölu.
Víða er að finna brennandi áhuga á körfubolta á meðal barna
og unglinga.
Morgunblaðið/Sverrir
Kolbeinn Pálsson, formaður
Körfuknattleikssambands ís-
lands, reyndi körfurnar í nýja
Kolaportinu.
töku félagsliða í Islandsmótinu í
körfubolta sl. fjögur ár. „Það hef-
ur orðið algjör sprenging í karla-
flokki. Við erum með 63-64 lið
sem taka þátt í meistaraflokki
karla og það er jafnmikið og í
fótboltanum. Svo eru sum lið bara
með yngri flokka,“ segir Pétur.
Körfuknattleikssambandið hef-
ur haldið 35 námskeið oggötu-
boltabót um allt land í sumar fyr-
ir krakka 12 ára og eldri og sam-
hliða þeim þjálfaranámskeið. Að
sögn Péturs hafa tæplega 900
börn tekið þátt í námskeiðunum
og um 60 manns fengið þjálfara-
fræðslu. Um síðustu helgi komu
sigurlið úr götuboltanámskeiðun-
um af öllu landinu saman í Laug-
ardalshöll og kepptu þar til úr-
slita.
Leikskólar fá körfur
Forsvarsmenn KKI hugsa mörg
ár fram í tímann. Til þess að vekja
áhuga á körfubolta hjá yngstu
börnum landsins hefur sambandið
gefið öllum leikskólum körfu-
boltaspjald og körfuboltakörfu í
samvinnu við markaðsnefnd
mjólkuriðnaðar. Pétur segir að
spjöldin og körfurnar fari í um
220 leikskóla um allt Iand, um 70
í Reykjavík og 150 út á land.
Þegar er búið að dreifa þeim í
Reykjavík. Hann segir að fóstrur
taki mjög vel í þetta og að með
þessu aukist möguleikar á að efla
hreyfiþroska barna.
Launahækkun
án breytinga
á launatöxtum
SAMNINGAR tókust í fyrrinótt
milli FÍH og samninganefndar ríkis-
ins og hefur verkfalli verið frestað,
en það átti að hefjast í gær. Samn-
ingarnir gera ekki ráð fyrir beinum
launahækkunum í formi hæ'kkaðra
launataxta, hins vegar er í þeim
tekið tillit til kostnaðar sem hljóm-
listarmenn hafa af vinnu sinni s.s.
vegna hljóðfæra og fatnaðar.
Björn Th. Árnason, formaður
Félags íslenskra hljómlistarmanna,
sagðist vera þokkalega sáttur við
niðurstöðuna og sagðist ætla að
mæla með því að samningarnir
verði samþykktir á fundi FÍH á
morgun. „Ég tel að miðað við þær
aðstæður sem eru i þjóðfélaginu
höfum við náð viðunandi samningi.
Samningurinn er ekki til langs tíma
þannig að. við ættum að geta náð
í skottið á öðrum ef aðstæður breyt-
ast.“
Björn vildi ekki svara því hvað
samningurinn fæli í sér miklar
launahækkanir. Hann sagði að
launataxti breyttiit ekki, en greitt
yrði fyrir kostnað sem hljómlistar-
menn bæru vegna tónlistarflutn-
ings. Borgað yrði fyrir notkun á
hljóðfærum og fyrir fatnað á sýn-
ingum. Þá væri yfirvinnutími færð-
ur til ^amræmis við aðra launþega,
en fram að þessu hefur yfirvinna
Helgi Ass
í ELLEFTU umferð heimsmeist-
aramóts skákmanna 20 ára og
yngri, sem haldið er j Matinhos,
Brasilíu, sigraði Helgi Áss Grétars-
son Georgiev frá Búlgaríu. Helgi
hafði svart.
Búlgarinn beitti Evans-bragði,
sem byggir á því að hvítur fórnar
peði í byijuninni fyrir sóknarfæri.
Helgi „fórnaði" peðinu fljótlega til
baka og náði örlítið betri stöðu.
Helgi tefldi svo miðtaflið af vand-
virkni og knúði Búlgarann til upp-
gjafar eftir 44 leiki, en þá hafði
Helgi þremur peðum meira.
Ónnur helstu úrslit voru:
Mariano - Sofía Polgar 0-1,
hljómlistannanna hafist klukkan
19. Samningurinn er til þriggja
mánaða og framlengist sjálfkrafa
til þriggja mánaða í einu ef honum
er ekki sagt upp.
Þungu fargi af okkur létt
„Það er þungu fargi af okkur
létt að þessir samningar skuli hafa
tekist. Þessi deila stefndi málum
hér í mikla hættu. Það var ekki
bara óperan sem var í hættu heldur
meira og minna sýningarnar í vet-
ur. Við gleðjumst því yfir því að
það skuli hafa náðst samningar, en
menn eru kannski aldrei fyllilega
ánægðir með samningana þegar
upp er staðið,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að samningarnir
hefðu í för með sér talsverð útgjöld
fyrir Þjóðleikhúsið. Hann sagði
óljóst hvað útgjaldaaukinn væri
mikill. Samningarnir næðu til
margra þátta og væru mjög flókn-
ir. Stefán sagði að Þjóðleikhúsið
myndi bera þessi auknu útgjöld.
Á morgun verður haldinn fundur
í FÍH þar sem samningarnir verða
kynntir og bornir undir atkvæði.
Verði þeir felldir hefst verkfall að
nýju sem að öllum líkindum raskar
frumsýningu á óperunni Valdi ör-
laganna á laugardag. Um 450-550
félagar eru í FÍH.
í 2.-7. sæti
Vescovi - Spangenberg V2-V2,
Iordanescu - Gabriel 0-1 og Kum-
aran - Miludanovic (ólokið, vænleg
biðskák á Kumaran).
Helgi er því í 2.-7. sæti ásamt
Mariano, Filippseyjum, Sofiu Polg-
ar, Ungveijalandi, Vescovi, Brasil-
íu, Gabriel, Þýskalandi, og væntan-
lega Miludanovic, Júgóslavíu, þ.e.
ef hann tapar biðskákinni. Öll eru
þau með Vh vinning. Englending-
urinn Kumaran verður því væntan-
lega einn efstur með 8 vinninga,
þ.e. ef hann vinnur biðskák sína
við Miludanovic, ef Miludanovic
nær jafntefli verður hann einn efst-
ur.
Kært fyrir brot á banni
við áfengisauglýsingiim
AUGLÝSING frá Viking Brugg
hf, sem birtist í Pressunni 30. júní
sL, hefur verið kærð til lögreglunn-
ar í Reykjavík og telur kærandinn,
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, að aug-
lýsingin bijóti í bága við ákvæði
áfengislaga þar sem áfengisaug-
lýsingar séu bannaðar.
„Það er bannað með lögum að
auglýsa áfengi en svo er farið í
kringum bannið villt og galið og
er þá ástæða til að hafa lög sem
engum dettur í hug að fara eftir?
Mér fannst ástæða til að athuga
það og hvernig kerfið tæki á svona
málum,“ sagði Sigurbjörg í sam-
tali við Morgunblaðið. í 4. mgr.
16. greinar áfengislaganna segir
að áfengisauglýsingar séu bannað-
ar.
Á auglýsingunni sem kærð var
er mynd af líkama bijóstaberrar
stúlku, sem heldur á flösku og
freyðir úr stútnum sem ber við
nakinn nafla. Yfir þvera myndina
er áletrunin: Freyðandi fullnæging.
I hægra horni auglýsingarinnar er
firmamerki fyrirtækisins Viking
brugg en bjórtegundir þær sem
fyrirtækið framleiðir eru hvergi
nefndar á nafn.
í kæru Sigurbjargar til lögregl-
unnar í Reykjavík kemur einnig
fram að hún telji a.m.k. umdeilan-
legt hvort auglýsingin bijóti í bága
við gildandi reglur um klám og
siðferðiiegt velsæmi. Sigurbjörg
sagði við Morgunblaðið að sér hefði
fundist auglýsingin einnig gefa til-
efni til þess að þetta yrði skoðað
sérstaklega.
Vekja athygli á firmanafni
Hinn 30. júní birtist einnig í
Eintaki auglýsing frá Viking
Brugg sem er eins og Pressuaug-
lýsingin að öðru leyti en því að þar
ber freyðandi flösku við klæðalaus-
an karlmannslíkama. Sigurbjörg
Ásgeirsdóttir sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki hafa vitað af
þeirri auglýsingu heldur aðeins séð
þá í Pressunni.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur tekið skýrslu af
Björgólfi Guðmundssyni fram-
kvæmdastjóra _ Viking Brugg
vegna málsins. í samtali við Morg-
unblaðið sagði Björgólfur að fyrir-
tækið hefði leyfi til að framleiða
áfengan og óáfengan bjór. Auglýs-
ingunni hefði verið ætlað það eitt
að vekja athygli á nafni fyrirtækis-
ins og hann teldi fráleitt að fyrir-
tæki í drvkkjarvöruframleiðslu
gæti gerst brotlegt við bann við
áfengisauglýsingum með því einu
að auglýsa firmanafn sitt. Björg-
ólfur sagði að auglýsingin hefði
haft áhrif og hefðu viðbrögð flestra
sem tjáð hefðu sig um hana verið
jákvæð.
-----» ♦.»----
Innbrot
í Borg-
arnesi
BROTIST var inn í sex fyrirtæki
í Borgarnesi á aðfaranótt þriðju-
dags. Stolið var nokkrum tugum
þúsunda króna í peningum og raf-
magnstækjum. Málið er í rann-
sókn.
Fyrirtækin sem brotist var inn
í voru Lúx hf., Skiltagerð Bjarna,
Rafblik, Skóbúðin Borg, Veitinga-
stofan hreiðrið og Fiskbúð Snorra.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
í Borgarnesi virðast innbrotsþjóf-
arnir aðallega hafa verið að leita
að peningum. Einnig var stolið
rafmagnsmælítækjum úr Lúx og
Rafbliki.
Að sögn lögreglu urðu ekki mikl-
ar skemmdir aðrar en þær sem
alltaf hljótast af því þegar brotist
er inn. Enn hefur enginn verið
handtekinn vegna innbrotanna.
Málið er í rannsókn og hefur lög-
reglan í Borgarnesi og Reykjavík
og RLR samvinnu um hana.