Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 8

Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 15. SEFTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fiskifræðingur um ástand þorskstofnsins við ísland að loknum seiðarannsóknum Tilviljun ef góður árgangur kemur HÆFRÓ Það verður að reyna að senda ykkur til hennar Jónu. Þetta er eitthvert kynlífsvandamál hjá ykkur ... * Islenskur söfnuður í S-Noregi Vestfirskur skelfiskur hf. Einkaleyfi til kúfiskvinnslu BISKUP íslands hr. Ólafur Skúla- son setur sr. Jón Dalbú Hróbjarts- son í embætti sendiráðsprests ís- lendinga við messu í Noregi í kvöld. Messað verður í Hövik-kirkju og að messu lokinni verður kjörin safnaðarstjórn. Að sögn Ólafs Eggertssonar, formanns íslendingafélagsins í Osló, eru íslendingar í Suður-Nor- egi ánægðir með að fá íslenskan prest til þjónustu. I ár verður hægt að halda íslenska jólamessu og segir Ólafur að íslendingar hafi þegar snúið sér til sr. Jóns Dalbú og beðið um kirkjulega þjónustu og sálgæslu. Ólafur taldi að auðvelt yrði að koma upp kirkjukór. Tveir kórar íslendinga eru í Osló og þar er einnig íslensk- ur organisti við nám, Þröstur Ei- ríksson sem einmitt var organisti Laugarneskirkju þar sem sr. Jón Dalbú þjónaði. Gildir frá Öndverðarnesi að Skagatá VESTFIRSKUR skelfiskur hf. á Flateyri hefur fengið einkaleyfi sjávarútvegsráðuneytisins til vinnslu á kúfiski sem veiðist á svæðinu frá Öndverðarnesi að vest- an og norður um að Skagatá. Leyf- ið var gefið út í desember í fyrra og gildir til ársloka 1994. Á sama tíma fá ekki aðrir aðilar leyfi til vinnslu á kúfiski sem veiddur er á svæðinu. Hafrannsóknastofnun vinnur nú að rannsóknum á áhrifum kúfisk- veiða á stofnstærð og viðkomu skeljarinnar. Niðurstöður þeirra rannsókna verða lagðar til grund- vallar frekari leyfisveitingum til veiða og vinnslu kúfisks á þessu svæði. Haft verður til viðmiðunar að Vestfirskum skelfiski hf. verði tryggt leyfi ti! vinnslu þess magns sem nauðsynlegt er til reksturs verksmiðju fyrirtækisins á Flateyri í fimm ár frá næstu áramótum. Afla þarf vinnsluleyfa vegna rækju, hörpudisks og kúskeljar. Samkvæmt upplýsingum úr sjávar- útvegsráðuneytinu þótti þessi leyf- isveiting eðlileg og nauðsynleg í ljósi þess að hér er um nýja vinnslu- grein að ræða og veiðistofn sem hefur nokkra sérstöðu. Kúskelin er mjög seinvaxin og er talið að meðalaldur skelja sé um 70 ár og að þær geti orðið allt að 200 ára. Miðin eru því lengi að endurnýja sig og því eru þessar veiðar líkari námagreftri en fiskveiðum þar sem nýliðun er ör. Heiðraður fyrir störf hjá Cleveland Clinic ÁSGEIR Theodórs, sérfræðingur í melt- ingarsjúkdómum, verður heiðraður fyrir störf sín sem varafor- seti nemendasam- bands Cleveland Clinic háskólasjúkrahússins í Ohio í Bandaríkjunum á fundi sambandsins í Cleveland nú í mánuð- inum. Ásgeir hefur gegnt þessu embætti í fjögur ár og þann tíma setið í stjórn Cleveland Clinic Foundation. Ásgeir hlaut þjálfun í meltingarsjúkdóma- Ásgeir Theodórs fræðum og krabba- meinslækningum í meltingarvegi við Cleveland Clinic, og sneri þaðan aftur heim til íslands 1981. Hann er yfirmaður speglun- ardeildar í íneltingar- sjúkdómum á Borgar- spítalanum og starfar sem meltingarsjúk- dómasérfræðingur hér á landi. Undanfarna mánuði hefur hann starfað á meltingarsj úkdóma- deild Cleveland Clinic Foundation og unnið að rannsóknum á krabbameini í ristli og endaþarmi. Ásgeir hefur verið varaforseti nemendasambands Cleveland Clinic í fjögur ár. Hann hefur verið full- trúi Evrópulanda, Ástralíu, Nýja Sjálands og Suður-Afríku. Er hann hlaut kjör í embættið beitti hann sér fyrir stofnun íslandsdeildar samtakanna, en um tíu íslenzkir læknar hafa verið við nám og störf við sjúkrahúsið. Jafnframt störfum fyrir nemendasambandið sat Ásgeir í stjórn sjúkrahússins, en annar ís- lenzkur læknir, Guðmundur Odds- son, sérfræðingur í hjartasjúkdóm- um, tekur við stjórnarsetu af hon- um. Islandsdeild Amnesty 20 ára Samviskufangi í rúm ellefu ár Mulugetta Mosisse Islandsdeild Amnesty International á 20 ára afmæli í dag, fimmtU- daginn 15. september. Af því tilefni efna samtökin, sem berjast fyrir verndun mannréttinda, til fjöl- breyttrar afmæiisdagskrár til að vekja athygli á starf- semi og markmiðum sínum. Eitt atriðið á afmælishátíð- inni er veggspjaldasýning í myndlistarsal Hafnarhúss- ins við Tryggvagötu. Við opnun hennar talar Mulu- getta Mosissa fyrrverandi samviskufangi frá Eþíópíu. Mosissa sat í 11 og hálft ár í fangelsi vegna þjóðern- isuppruna síns. Eiginkona Mosissa sat níu ár í fang- elsi. Fyrsta árið fæddi hún son þeirra og eyddi hann því tæpum níu fyrstu árum ævi sinnar í fangelsi. Mulugetta Mosissa segir að Oromo-ættbálkurinn sem fjöl- skyldan tilheyrir hafi um aldir búið við kúgun í heimalandi sínu. „Ekki minnkaði kúgunin þegar kommúnistar komust til valda árið 1974. Ofsóknirnar urðu blóð- ugri. Þúsundir voru teknar af lífi og líkin voru látin liggja á götun- um. Tilgangurinn var að hræða fólk frá því að taka þátt í póli- tískri starfsemi. Ég tók ekki þátt í ofbeldi. En barðist í orði fyrir frelsi og jafnrétti fólks míns.“ Hvernig bar handtöku þína að? „Einn dag árla morguns í fe- brúarmánuði árið 1980 réðust vopnaðir menn fyrirvaraiaust inn á heimili mitt. Eiginkona mín hafði farið í heimsókn til fjöl- skyldu sinnar. En þeir tóku mig með valdi og færðu mig til yfir- heyrslu. Þeir vildu að ég játaði á mig ofbeldisverk á vegum vopn- aðra samtaka OLF og pyntuðu mig látlaust andlega og líkam- lega. Þarna var mér haldið í stöð- ugum ótta og án annarrar fæðu en matarleifa í 10 mánuði. Eftir það var í fluttur í annað fangelsi í höfuðborginni Addis Ababa. Fyrir utan líkamlegar og sálarleg- ar pyntingar voru aðstæðurnar í fangelsinu hræðilegar. Tuttugu og fjögur herbergi voru yfirfull af fólki. Yfír 30 manns voru í hverju herbergi, allt frá 13 ára unglingum upp í gamalmenni, á um 16 fm fleti. Húsnæðið var skítug og stöðugur fnykur í loft- inu. Enga læknisþjónustu var að fá og einu tengslin við umheiminn fyrstu sex árin matarsendingar frá skyldmennum.*1 Voru pyntingar kerfísbundnar? „Þær gátu komið hvenær sem var. Fólk var jafnvel vakið upp á nóttunni og líflátið. Ég man eft- ir mörgum hræðilegum atvikum. Einn félagi minn lét til að mynda lífið eftir að verðirnir höfðu bundið hann upp á fótunum, lamið hann og að lokum skilið eftir til að fá sér kaffi. Ég minnist alltof margra óhugnanlegra atburða á borð við þennan. Engu að síður hélt ég í vonina um að ég myndi losna fyrstu sjö árin. Einn dag héldum við líka að komið væri að því. Skyndilega voru kölluðu upp nöfn fólks til að fara annað. Við vorum viss um að fólkinu yrði sleppt. En svo var ekki. Ekkert þessa fólks fannast aftur. Það var líflát- ið. Eftir atburðinn gaf ég upp vonina um að ég yrði nokkurn tíma látinn laus eða þangað til eiginkonu minni var að lokum sleppt eftir 9 ára fangavist. Ég öðlaðist nýja von þegar ég frétti að hún væri farin að vinna í mál- ►Mulugetta Mosisse er á fimmtugsaldri. Hann er hag- fræðingur frá háskólanum í Addis Ababa og var háttsettur embættismaður í matvæla- stofnun á vegum eþíópíska rík- isins þegar hann, Namat Issa eiginkona hans, og hundruð aðrir úr Oromo-ættbálknum, voru teknir höndum í febrúar- mánuði árið 1980. Hópurinn var grunaður um að hafa tek- ið þátt í ofbeldi á vegum vopn- aðra frelsissamtaka Ormo- ættbálksins, OLF. Sönnunar- gögn hafa ekki fundist. Eigin- konu Mosissa, sem starfað hafði í utanríkisráðuneyti Eþí- ópíu, og ungum syni þeirra var sleppt úr haldi í september- mánuði árið 1989. Hann losn- aði sjálfur úr haldi árið 1991. Fjölskyldan býr nú í HoIIandi. um mínum. Eftir rúm ellefu ár var mér svo að lokum sleppt úr haldi. Amnesty International hjálpaði fjölskyldunni að komast til Bretlands. Við komumst undir læknishendur og okkur var veittur stuðningur til að komast yfir af- leiðingar andlegrar pyntingar. Nú búum við í Hollandi. Hafði ekki fjölgað í fjölskyldunni þegar þú losnaðir úr fangelsinu ? „Jú, eiginkona mín hafði verið barnshafandi þegar hún var hneppt í fangelsi og alið son nokkrum mánuðum seinna. Raun- ar munaði minnstu að mjög illa færi því fæðingin virtist ekki ætla að ganga eðlilega fyrir sig og verðirnar neituðu að færa eig- inkonu mína á sjúkrahús. Á end- anum var hún þó flutt á sjúkra- deild í nokkra klukku- tíma og fæddi drenginn þar. Eftir það dvaldist hann 9 fyrstu ár ævi sinnar í fangelsi með móður sinni. Óvenjuleg og óskemmtileg reynsla það.“ Viljið þið flytjast aftur til Eþíópíu? „Við héldum í vonina um að með nýrri stjórn árið 1991 myndi ástandið batna. En svo reyndist ekki vera. Ofsóknirnar halda áfram og okkur er ekki vært í landinu. Engu að síður viljum við flytja til baka þegar okkur verður óhætt. Þess vegna reynum við eftir fremsta megni að stuðla að einhvern tíma verði raunverulegt lýðræði í landinu." Mosissa opnar veggspjaldasýn- inguna kl. 20.30 í kvöld. Kvik- myndahátíð Amnesty hefst hins vegar í Regnboganum á morgun, 16. september. Sýndar verða sjö kvikmyndir, fimm leiknar og tvær heimildarmyndir, og tengjast myndirnar allar mannréttindum. Tók ekki þátt í ofbeldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.