Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 10

Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Akureyrarhöfn komið a framfæri við útgerðarmenn Smuguskipa Skilar sér inn í atvinnulífið Morgunblaðið/Rúnar Þór AKUREYRARHÖFN séð úr lofti, en hrundið hefur verið af stað markaðsátaki til að kynna þá kosti sem höfnin hefur uppá að bjóða. AKUREYRARHÖFN og ýmis fyrir- tæki á Akureyrar hafa hrundið af stað markaðsátaki til að kynna þá kosti sem höfnin og bærinn hafa upp á að bjóða, en m.a. er sjónum beint að þeim fískiskipum sem eru að veiðum norður í Barentshafí. Þegar hafa nokkur skip sem verið hafa þar að veiðum landað afla sín- um á Akureyri og áhafnir farið héðan til ýmissa áfangastaða. „Við erum að koma höfninni á framfæri sem alhliða þjónustu- og vöruhöfn, en höfnin hér liggur vel við þeim sem eru að veiða í Smug- unni. Akureyrarhöfn hefur um tíma tekið þátt í kynningarátaki ásamt Reykjavíkurhöfn varðandi komur skemmtiferðaskipa og það hefur skilað góðum árangri. Komum skemmtiferðaskipa hefur ijölgað, það er aukinn áhugi virðist vera á að sigla á norðlægar slóðir og við njótum góðs af,“ sagði Einar Sveinn Ólafsson, formaður hafnarstjómar Akureyrar. Ein með öllu „Þegar mikil veiði er í Smugunni munar um hvem dag, það hlýtur að vera kostur að landa hér, fljúga með áhafnimar til síns heima og síðan geta menn keypt hér alla þjón- ustu sem til þarf. Við segjum gjam- an að Akureyri sé ein með öllu, hér er gott sjúkrahús, flugvöllur sem getur þjónað millilandaflugi, öflug- ar verslanir, viðgerðarþjónusta fyrir skip og veiðarfæri og landfræðilega er höfnin mjög góð, menn þurfa ekki að óttast vond veður," sagði Einar Sveinn. Fyrirtæki í samvinnu við Akur- eyrarhöfn hafa tekið sig saman um að kynna höfnina sérstaklega og sagði Einar Sveinn ástæðuna þá að efla atvinnulífíð. „Við vonum auðvitað að þetta skili sér inn í atvinnulífíð og þess vegna hafa menn stilit saman strengina. Það munu allir hafa af þessu hag,“ sagði hann. Sigurður RE hefur landað á Ak- ureyri að undanfömu að sögn Ein- ars Sveins og áhöfnin flogið suður og þá kom Andvari úr Smugunni í vikunni og landaði á Akureyri. Þá hafa rækjuskip í einhveijum mæli legið við bryggju á Akureyri meðan áhafnir em í fríi heima. „Við emm að fara af stað með kynningu á höfninni og því sem bærinn hefur upp á að bjóða, þetta er upphafið, en við væntum þess að sjá aukna umferð skipa, við ætlum okkur stærri hlut,“ sagði Einar Sveinn. Sala að- gangskorta að hefjast SALA aðgangskorta fyrir næsta leik- ár hjá Leikfélagi Akureyrar hefst á morgun, föstudag, en þau gilda á þijár sýningar vetrarins, Ovænta heimsókn eftir J. B. Pristley sem fmmsýnt verður á jólum, Á svörtum fjöðrum, úr ljóðum Davíðs Stefáns- sonar sem er leikgerð Erlings Sigurð- arsonar sem hann hefur samið upp úr Ijóðum Davíðs og félagið fmmsýn- ir í tilefni aldarafmælis skáldsins frá Fagraskógi og loks Þar sem Djöfla- eyjan rís, leikgerð Kjartans Ragnars- sonar á sögum Einars Kárasonar sem fmmsýnd verður í lok marsmánaðar. Auk fyrrnefndra sýninga mun leikfélagið sýna á leikárinu þijú önn- ur verk, Karamellukvömina, Barpar frá síðasta leikári og GUÐ/jón sem sýnt verður á kirkjulistahátíð en Við- ar Eggertsson tók saman. Miðasala er opin frá kl. 14-18 virka daga nema mánudaga og þar em veittar allar upplýsingar um að- gangskort á sýningar vetrarins, sem veita 25% afslátt af almennu miða- verði og kosta 3.900 krónur. Verð á fmmsýningarkortum hefur einnig stórlækkað en slíkt kort sem gildir á þijár sýningar kostar 6.800 kr. Kennarar vilja að samið verði um breyttan vinnutíma Á AÐALFUNDI Bandalags kenn- ara á Norðurlandi eystra, sem haldinn var að Laugum í Reykjad- al, var m.a. samþykkt ályktun þar sem segir að tafarlaust þurfí að ganga til samninga við kennara um breyttan vinnutíma og hærri gmnnlaun. Verði raunhæfar samningaviðræður ekki komnar á innan mánaðar verði efnt til vinnu- staðafunda í skólum landsins. Fjárveitingar verði tryggðar Þá var ítrekuð samþykkt 7. full- trúaþings Kennarasambands ís- lands frá apríl síðastliðnum, um yfírfærslu á kostnaði af rekstri grunnskólans til sveitarfélaga, sem fyrirhugaður er 1. ágúst á næsta ári, en þar var þess m.a. krafíst að áður en til flutnings kemur verði ríki og sveitarfélög búin að tryggja fjárveitingar til sveitarfélaga þannig að þau geti staðið undir kostnaði af skóla- starfí, að ekki dragi úr þjónustu stoðkerfís skólanna, rekstrar- gmndvöllur sérskólanna verði ör- uggur og öll samnings- og lög- bundin réttindi kennarastéttarinn- ar og að einn viðsemjandi fari með samningsumboð fyrir öll sveitarfé- lögin sameiginlega. Sveinbjöm M. Njálsson í Dalvík- urskóla er formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra, Brynhildur Þráinsdóttir, Hafra- lækjaskóla, varaformaður en aðrir í stjóm em Tómas Láms Vilbergs- son, Glerárskóla, Rósa Dóra Helgadóttir, Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar og Mannfreð Lemke, Stóru-Tj amarskóla. HAWCÚUNN AAKUREVRI „Undan oki kyn-legra hlutverka“ (Freeing Men and Woman, Freeing Boys and Girls) Laugardaginn 17. september nk. efna kennaradeild og endur- menntunarnefnd Háskólans á Akureyri til ráðstefnu sem ber yfirskriftina „Undan oki kyn-legra hlutverka“- þjálfun samskipta og sjálfstæðis hjá ungum sem öldnum. Á ráðstefnunni verður m.a. Ijallað um kynhlutverk og fullorðna. Einnig um það hvernig má með sérstakri þjálfun vinna upp þá eiginleika sem börn eru svikin um í krafti kynferðis. Þannig er gerlegt að stækka sjálfsmynd bæði stúlkna og drengja og gefa þeim möguleika á fjölbreyttari eiginleikum heldur en kynbundnu hlutverkin gera. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða þær Dr. Nina Colwill, sálfræðingur, og Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri. Tími: Laugardagur 17. september kl. 09.00-12.00 og 13.00-16.00. Staður: Háskólinn á Akureyri, stofa 24, 2. hæð. Verð: Ráðstefnugjald er kr. 1.000. Skráning fer fram í afgreiðslu Háskólans á Akureyri v/Þingvallastræti í síma 30900. Morgunblaðið/Rúnar Þór SYSTKININ Olöf Þuríður og Pétur Þór, sem búa á Baldursheimi I í Mývatnssveit, voru að hjálpa til við bústörfín og leika sér í sandkassanum heima við bæinn með litla bróður sínum, Bjarna Þór, I gærdag. meðan fullorðna fólkið deilir um skólahaldið. Sendinefnd kynnir niðurstöður ÞRIGGJA manna sendinefnd suðursveitunga í Mývatnssveit átti í gær fund með menntamálaráð- herra, Ólafi G. Einarssyni, um stöðuna sem upp er komin í skóla- málum í sveitinni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu nefndarmenn hafa fengið góðar viðtökur í ráðuneytinu, en þeir kynna sveitungum sínum niður- stöður fundarins í dag. Garðar Karlsson, skólastjóri Grunnskólans í Reykjahlíð, hélt fund í Skútustaðaskóla síðdegis í gær með foreldrum og forráða- mönnum bama úr suðurhluta Mý- vatnssveitar, þar sem skólamálin voru rædd. Um 20 böm suðursveitunga hafa ekki verið send í skólann í Reykjahlíð og segjast foreldrarnir nýta sér neyðarrétt sinn; bömun- um sé boðið upp á of langan akst- ur í og úr skóla, en á miðri leið sé ekið fram hjá fullbúnum skóla á Skútustöðum. Þar vilja foreldr- amir að börnunum sé kennt, en sveitarstjórn hefur ákveðið að færa allt skólahald undir eitt þak í Reykjahlíð. o\ D/J x 'ov /y BAR OPIÐ: miövíkudaga: 20:00 - 01:00 fimmtudaga: 20:00 - 01:00 föstudaga: 20:00 - 03:00 laugardaga: 20:00 - 03:00 sunnudaga: 20:00 - 01:00 Gyltunum slátrað GYLTUNUM fímm sem fluttar vom frá Noregi í éjnangrunarstöð Svínaræktarfélags íslands í Hrísey í fyrravetur hefur verið lógað. Hræin voru í vikunni send með skipi frá Akureyri áleiðis til Vest- mannaeyja þar sem þau verða brennd, en í sorpbrennslunni þar er hæsta bræðslumark sem völ er á hér á landi. „Þær höfðu lokið sínu hlutverki, sem var að ala grísi hér í stöðinni og því luku þær með sóma, eignuð- ust 118 grísi,“ sagði Kristinn Ama- son umsjónarmaður einangrunar- stöðvarinnar. Þeir bestu að mati kynbótanefndar, 40-50 talsins, verða valdir á næstu dögum til áframhaldandi ræktunar. -----» ♦ ♦----- Opið hús SAMTÖK um sorg og sorgarvið- brögð verða með opið hús í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju í kvöld, fimmtudagskvöldið 15. september frá kl. 20.30. Vetrarstarfið er nú að hefjast og aðalfundur verður seinnihluta októbermánaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.