Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 12

Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ | S 1 E N s H A K I Ö T B Ö K I N II u n db ó k fy r r r h j v (h a u i> ( ■ n d u r NEYTENDUR * Islenska kjötbókin UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA _ land- búnaðarins hefur gefið út íslensku kjötbókina, handbók fyrir kjöt- kaupendur. Að sögn Guðjóns Þor- kelssonar matvælafræðings hjá RALA, verður bókin notuð til kennslu í kjötiðn og matreiðslu, en er einnig ætluð neytendum. Fyrst um sinn verður bókin aðeins til sölu hjá Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins þar sem hún kostar 3.400 krónur. Bókinni er skipt i kafla um. hveija kjöttegund sem seld er hér á landi, nauta- dilka- svína- hrossa- og fuglakjöt. Litmyndir eru af öll- um hlutum skrokks og er hver þeirra merktur tilvísunarnúmeri, sem vísað er til þar sem það á við. Á blaðamannafundi þar sem bókin var kynnt, kom fram að tekið var mið af erlendum sambærilegum bókum, aðallega þeim sem gefnar hafa verið út í Bretlandi og Banda- ríkjunum. RÚMLEGA þriðjungs verðmunur er á hæsta og lægsta verði á samtals átta algengum vöruteg- undum er niðurstaða verðkönn- unnar, sem gerð var sl. mánudag í sjö stórmörkuðum á Reykjavík- ursvæðinu. Vörurnar sem settar' voru í innkaupakörfuna að þessu sinni teljast ekki allar til brýnustu nauðsynja, en eru engu að síður vinsælar á mörgum heimilum. Blómkál, nautahakk, súkkulaði- kex, Cheerios-morgunkorn, kók, kaffi, ólífuolía og tannkrem fékkst fyrir 1.689 kr. í Bónus í Kópavogi en 2.291 kr. í Garða- kaupum í Garðabæ. Munurinn er 602 kr. eða 35,6%. Hátt verð á nautahakki og blómkáli er Garðakaupum einkum í óhag í heildarniðurstöðunni. Aðrar vör- ur í versluninni voru örlítið yfir miðlungsverði. Ekki gæðasamanburður á nautahakki Að nautahakkinu undanskildu má fullyrða að umræddar vöru- tegundir eru sambærilegar að gæðum enda um sömu vörumerki að ræða. í töflunni er verð á nautahakki miðað við 1. flokk, KULDAGALLAR tyrir veiOimennl SKÚLAGÖTU 51 SIMI: 91 - 11520 OG FAXAFENI 12 SÍMI: 91 - 886600 Hvað kostar í litlu innkaupakörfuna? X/x Blómkál, 1 kg Nautahakk, ‘ Frón súkkulaðikex, Marj Kók, 2 Irtrar Bónus, Kópa- vogi 10-11, Borgar- kringlunni Fjarðar- kaup, Hafnarf. Nóatún, Kópa- vogi Kjöt& fiskur, Mjódd Hagkaup, Kringl- unni Garða- kaup, Garðabæ 109,- 198,- 199,- 119,- 159,- 198,- 298,- 530,- 599,- 628,- 679,- 649,- 689,- 721,- 65,- 98,- 107,- 89,- 105,- 98,- 89,- 202,- 236,- 220,- 239,- 224,- 237,- 229,- 141,- 154,- 153,- 155,- 159,- 155,- 157,- 310,- 348,- 339,- 349,- 369,- 349,- 349,- ‘183,- 238,- 240,- 266,- 254,- 239,- 249,- 149,- 178,- 169,- 206,- 223,- 178,- 199,- 1.689,- 2.049,- 2.055,- 2.102,- 2.142,- 2.143,- 2.291,- Merrild kaffi (meilemristet), 500 gr ÓlífuolíaÍFIippo Berio, 0,51 Colgate tannkrem, bis mint gei, 100 Samtals ' Ólifuolían fékkst aðeins i 11 flöskum í Bónus. Samanburðurinn er m.v. 0,5 litra og er verðið i hér fengið með þvi deila verðinu í tvennt. sem inniheldur 8-10% fitu. í Fjarðarkaupum fékkst 2. flokks nautahakk á 568 kr. kg., í Bónus á 503 kr. kg. og í Hagkaupum var hakk úr naut- gripa- kjöti með Kaffikorgur mýkir húðina! ÞAÐ MÁ nýta ótrúlegustu hluti. í Svíþjóð geyma sumir kaffikorginn fram á kvöld og nota hann þá til að nudda með hendur og fætur. Kaffikorgurinn á að mýkja húðina eins og svokölluð „skrúbbkrem" og þar með ættu einhverjir að geta sparað þúsundir! Kaupmannahöfn Bílaleiga fyrir út- lendinga í KJÖLFAR verðkönnunar á bílaleig- um í Kaupmannahöfn síðastliðinn fimmtudag hafði samband við okkur Fylkir Ágústsson sem vildi benda lesendum á annan möguleika en að panta bílaleigubíl í gegnum íslenska ferðaskrifstofu. Bílaleigan Bo-biler leigir bíla sína eingöngu útlendingum í Danmörku og fær þess vegna bílana tollfijálsa. Af þeim sökum hafa þeir náð verði niður og að sögn Fylkis Ágústssonar sem hefur leigt hjá þeim fararskjóta er um að ræða góða bíla. Sem dæmi má nefna að Opel Vectra í viku kostar um tuttugu og tvö þúsund krónur og VW Golf er á nálægt nítján þúsundum. Sé Golf tekinn á leigu í mánuð er leigan nálægt sextíu þúsundum. Innifalið er kaskótrygging, ótak- markaður akstur og skattur. fituinnihaldi frá 16-20% á 639 kr. kg. Ekki fékkst ólífuolía í Bónus nema í 1 lítra fiösku, sem kost- aði 365 kr. Samanburðurinn er miðaður við hálfan lítra og því er verðið á olíunni í Bónus á meðfylgjandi töflu fengið með því að deila í með tveimur. Enn- fremur er verð á nautahakki á sama stað ekki miðað við verð- merkingu heldur er dreginn frá 10% afsláttur, sem fæst af öllurtj kjötvörum þegar greitt er vicl kassa. í öðrum verslunum en Bónus og Garðakaupum var verðið á bilinu frá 2.049 kr. til 2.143 kr. og verðmunurinn þar 4,5%. Ef borið er saman næst lægsta verðið, 2.049 kr. í 10-11-búðinni í Borgarkringlunni, og hæsta verðið, 2.291 í Garðakaupum, er verðmunurinn 11,8%. Uppskriftin Sætkökur að hætti Skota SKOSKAR krásir hafa síðustu daga staðið á hlaðborði í Skrúði, Hótel Sögu, í tilefni , af skoskum dögum, sem hér eru haldnir í samvinnu Hótels Sögu, skoska ferðamálaráðsins og Flugleiða. Gestir hafa m.a. fengið tækifæri til að kynn- ast skoskri menningu og matargerðarlist, en skoskum dögum lýkur annað kvöld. Matreiðslumeistar- inn Stephen Johnson frá veitingastaðnum „The Buttery“ í Glasgow hefur staðið yfir pottunum á Hótel Sögu ásamt íslenskum matreiðslumönnum Sögu og eldað skoska rétti ásamt hinu sérstæða „haggis“, sem lýkist einna helst slátri á okkar vísu. Þá hefur skoska sveitin „Scotia’s Hardy Sons“, auð- vitað íklædd skótapilsum, séð um tónlistina á meðan gestir snæða, en sveit þessi spilar allt frá hefð- bundinni þjóðlagatónlist yfir í nú- tímatónlist með skosku ívafi. Stephen Johnson lét okkur í té uppskrift vikunnar að þessu sinni, skoskar sætkökur, sem bornar eru fram með kaffi. Sætkökur _______200 g ósaltað smjör______ 100 g flórsykur 2 eggjarauður MATREIÐSLUMEISTARINN Stephen Jo- hfnson frá veitingastaðnum „The Buttery" í Glasgow. 260 g hveiti Hrærið saman flórsykur og smjör þangað til að það er orðið mjög létt. Bætið við eggjarauðun- um, einni í einu. Bætið síðan við hveiti og hrærið varlega saman. Látið bíða í 20-30 mínútur. Stráið hveiti á borðið. Hlutið deigið niður í þijá parta og fletjið út. Stingið það síðan út með hring í litlar kökur. Látið smjörpappír á bökunar- plötu og raðið kökunum á, ekki þó of þétt. Stillið ofninn á 170 gráður á Celcius og bakið í 15 mínútur. Takið kökurnar út úr ofn- inum þegar þær eru orðnar ljós- brúnar við endana og stráið yfir með sykri. Látið kólna. Kökurnar geymast eins og aðrar smákökur. Þess má að lokum geta fyrir þá, sem smakka vilja á lystisemdun- um, að hlaðborðið í Skrúði er opið í hádeginu í dag og á morgun kl. 12-14 fyrir 1.370 kr. og kl. 18-22 á kvöldin fyrir 2.130 kr. Verðkönnun vikunnar Átta algengar vörutegundir létta pyngjuna mismikið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.