Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sonur Eds
Kennedys í
framboð
Prividence. Reuter.
PATRICK Kennedy, yngsti sonur
Edwards Kennedy öldungardeildar-
þingmanns, vann öruggan sigur í
forkosningum demókrata á Rhode
Island á þriðjudag. Komist Kennedy,
sem er 26 ára, á þing í nóvember
verður hann þriðji fjölskyldumeðlim-
urinn sem þar verður, fyrir eru faðir-
inn og fulltrúadeildarþingmaðurinn
og frændinn Joseph Kennedy.
Á þriðjudag voru forkosningar
hjá demókrötum og repúblikönum í
tíu ríkjum; Arizona, Connecticut,
Maryland, Minnesota, New Hamps-
hire, New York, Rhode Island,'
Vermont, Washington D.C. og Wisc-
onsin.
Kennedy situr nú þriðja kjörtímabil
sitt á ríkisþingi Rhode Island. Hann
komst á þing er hann var 21 árs og
varð sú kosningabarátta sú dýrasta
í sögu ríkisins. Stjómmálafræðingar
segja Kennedy hafa aðgang að mikl-
um sjóðum vegna fjölskyldutengsla
og að hann vonist til þess að sigra '
andstæðing sinn úr röðum repúplik-
ana með dýrri og öflugri kosninga-
baráttu.
Reuter
Deilumálin lögð til hliðar
SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, og
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLOJ, takast í hendur á tónleikum sem
efnt var til í Osló í fyrrakvöld í tilefni þess að ár
er liðið frá því sögulegt friðarsamkomulag ísraela
og PLO var undirritað í Washington. í hléinu und-
irrituðu Peres og Arafat svokallaða „Oslóar-yfir-
lýsingu" um að ísraelar og PLO leggi deilumál
sín til hliðar á ráðstefnu með ríkjum sem hyggj-
ast leggja fram 2,5 milljarða dala, 170 milljarða
króna, í efnahagsaðstoð við sjálfstjórnarsvæði
Palestínumanna. Fundur með ríkjunum fór út um
þúfur á föstudag vegna deilunnar um framtíð Jerú-
salem-borgar.
Búlgarska lögreglan finnur
mikið magn geislavirkra efna
sagt um hversu mikið magnið er fyrr en sérfræð-
ingar hafa rannsakað efnin.“
Todorov sagði að í fyrra hefði kjarnorkumála-
stofnunin vitað um 75 óskráð fyrirtæki þar sem
geislavirk efni hefðu verið notuð. „Svo virðist
sem í mörgum þeirra hafi efnin verið afhent til
losunar eða flutt annað án heimildar frá okkur.
Stundum vitum við um nýju staðina, stundum
ekki.“
Todorov kvaðst hissa á vanþekkingu þeirra
sem stálu þessum hættulegu efnum, þeir hefðu
líklega verið berskjaldaðir fyrir geislavirkninni.
BÚLGARSKA lögreglan hefur fundið 19 gáma
sem innihéldu geislavirk efni, svo sem plúton,
sesíum og strontíum, í tvéimur kjöllurum í Sof-
íu. Lögregjan hefur aldrei áður fundið svo mikið
magai af geislavirkum efnum í einu. Efnunum
var annaðhvort stolið í Búlgaríu eða smyglað
til landsins, að sögn búlgarskra dagblaða.
Sex Búlgarir voru handteknir vegna málsins
og lögreglan sagði að þeir væru „líklega viðvan-
ingar“. Einn af gámunum, sem innihélt sesíum-
137^ var þúsund sinnum geislavirkari en eðlilegt
er. I öðrum, sem var með plúton-239, var geisla-
virknin 250-falt meiri en eðlilegt er.
Lögreglan sagði að ekki væri vitað hvort
hægt væri að nota plútonið í kjarnorkusprengjur.
Furðuleg vanþekking
Petar Todorov, yfirmaður öryggisdeildar
kjarnorkumálastofnunar Búlgaríu, sagði að efn-
unum hefði líklega verið stolið í Búlgaríu. „Hér
á landi hafa geislavirk efni verið framleidd í litlu
magni, einkum til nota í sjúkrahúsum," sagði
hann. „Að öllum líkindum var þeim stolið frá
búlgörskum iðnfyrirtækjum. Við getum ekki
Enginn
fylgdist
með rat-
sjánum
Washington. Reuter.
MAÐURINN, sem brotlenti lítilli
flugvél við Hvíta húsið sl. mánudag,
var drukkinn og líklega undir áhrif-
um annarra fíkniefna. Hefur það
komið fram við rannsókn málsins
og einnig, að starfsmenn flugturns-
ins á National-flugvellinum voru
ekki að fylgjast með ratsjánum þeg-
ar atburðurinn átti ,sér stað.
Fullyrt hefur verið að flugmaður-
inn, Frank Eugene Corder, hefði
verið „mikið drukkinn" þegar hann
brotlenti vélinni við Hvíta húsið en
talsmaður bandarísku leyniþjón-
ustunnar sagði, að ekki væri aíveg
ljóst hve mikið hann hefði innbyrt
af áfengi. Þá hefðu fundist merki
um, að hann hefði neytt kókaíns.
Starfsmenn flugturnsins á Nati-
onal-flugvellinum voru ekki að fylgj-
ast með ratsjánum þegar Corder
flaug flugvélinni að Hvíta húsinu.
Var það fullyrt í dagblaðinu The
Washington Post í gær og þess
vegna vissu öryggisverðir forsetans
ekkert um flugvélina fyrr en í þann
mund að hún brotlenti. Sagði blaðið,
að ástæðan hefði verið sú, að
snemma morguns er umferð um
flugvöllinn mjög takmörkuð vegna
hávaða frá henni og því hefðu starfs-
mennirnir brugðið sér frá.
Sex létust þegar landgangur ferju brotnaði í Ramsgate
Reuter
RANNSÓKNARMAÐUR stendur í þeim hluta landgangs belg-
ísku ferjunnar scm eftir stendur.
Féllu á
steyptan
bakka
Ramsgate. Reuter.
SEX manns létust og sjö slösuðust
þegar landgöngubrú út í feiju
hrundi niður í bresku hafnarborg-
inni Ramsgate í gær. Var fallið 18
metrar og undir steyptur bakki.
Sænskur framleiðandi brúarinnar
hefur sent sérfræðinga til að rann-
saka hvað fór úrskeiðis en sams
konar brýr hafa lengi verið notaðar
áfallalaust í öðrum höfnum.
Brúin, sem var yfirbyggð, er í
nokkrum einingum og svo virðist
sem festingar milli þeirra á einum
stað hafi gefið sig. Voru 13 farþeg-
ar í þeim hluta gangsins, sem féll
niður, og létust fimm strax en sá
sjötti á sjúkrahúsi. Hinir sjö slösuð-
ust rnikið og einn alvarlega. Lagð-
ist brúin saman við fallið og varð
að nota tjakka til að ná burt látnu
fólki og slösuðu.
Brýrnar reynst vel
Sænska fyrirtækið FEAB, sem
framleiddi landganginn, hefur sent
þijá sérfræðinga á vettvang til að
fylgjast með rannsókn málsins en
brúin var tekin í notkun i apríl sl.
I-Iafa sams konar brýr reynst mjög
vel og eru viðurkenndar af Lloyd’s.
Trjóna
dettur af
þotu
BOEING 747-þota missti
tijónuna með öllum ratsjár-
búnaði sínum í hagléljum í
gær, en flugmönnunum tókst
að lenda þotunni án teljandi
vandræða í Zurich. Þotan er í
eigu Korean Airlines og var á
leiðinni frá Róm til Zurich,
með 108 farþega, þegar
óhappið varð. Hreyflar þot-
unnar skemmdust einnig, en
brugðust þó ekki.
SPD tapar
fylgi
Jafnaðarmannaflokkur Þýska-
lands (SPD) heldur áfram að
tapa fylgi en Kristilegir demó-
kratar sækja í sig veðrið, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem
birt var í gær. Fylgi jafnaðar-
manna var 33% í síðustu vik-
unni í ágúst, en var 34,2% í
vikunni áður, samkvæmt
könnuninni. Kristilegir demó-
kratar (CDU) voru með 42,3%,
en höfðu 40,3%. Fylgi Ftjálsra
demókrata er 7,1%, ef marka
má könnunina, en í síðustu
fylkjakosningum hefur flokk-
urinn verið undir 5%-mörkun-
um og ekki fengið menn
kjörna.
Forseti Alsírs
tekur áhættu
LIAMINE Zeroual, forseti Als-
írs, hefur tekið áhættu með
því að sleppa nokkrum leiðtog-
um íslömsku hjálpræðisfylk-
ingarinnar (FIS) úr fangelsi,
til að freista þess að binda
enda á átökin í landinu. Tveir
hæst settu leiðtogarnir voru
settir í stofufangelsi en þrír
fengu að fara fijálsir ferða
sinna. Talið er að forsetinn
vilji heíja samningaviðræður
við samtökin, en starfsemi
þeirra hefur verið bönnuð.
Síðbúin máls-
höfðun
FJÖLSKYLDUR ísraelskra
íþróttamanna sem biðu bana á
ólympíuleikunum í Munchen
1972 ætla að höfða mál gegn
þýska ríkinu og krefjast 40
milljóna marka, 1,7 milljarða
króna, í skaðabætur. Palest-
ínskir byssumenn réðust inn á
dvalarstað ísraelsku íþrótta-
mannanna, drápu tvo og tóku
níu í gíslingu. Þýska lögreglan
reyndi að bjarga gíslunum en
þeir biðu allir bana í skotbar-
dögum, auk fimm Palestínu-
manna og lögreglumanns.
Lögmaður fjölskyldnanna sak-
aði lögregluna um að klúðra
björgunartilrauninni.
Barist í
Búrúndí
HERMENN og byssumenn
börðust í gær og í fyrradag i
einu úthverfa Bujumbura, höf-
uðborgar Búrúndís, og emb-
ættismenn sögðu að fimm
byssumenn hefðu fallið í bar-
dögum í bæ í grenndinni. Tal-
ið er að þeir séu í hreyfingu
öfgamanna úr röðum liútúa.
Tútsar ráða lögum og lofum í
her landsins og óttast hefur
verið að blóðugt stríð blossi
upp milli ættbálkanna.