Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfisfræðsla
Leikþáttur fyrir grunn-
skólabörn
LEIKÞÁTTURINN Ruslaskrímslið
verður frumsýnt í dag, fimmtudag,
í Austurbæjarskóla, höfundur er
Dagný Emma Magnúsdóttlr. Leik-
þátturinn er ætlaður sem umhverf-
isfræðsla fyrir grunnskólabörn á
aldrinum 6-8 ára og er áætlað að
verkið fari í sem flesta grunnskóla.
Leikarar í Ruslaskrímslinu eru
Davíð Þór Jónsson, Guðrún Marin-
ósdóttir, Erling Jóhannesson, Björk
Jakobsdóttir og Þorsteinn Bach-
mann. Leikstjóri er Jónína Ólafs-
dóttir.
Söngstarf Kvenna-
kórs Reykjavíkur
að hefjast
SÖNGSTARF Kvennakórs Reykja-
víkur á nýju starfsári hefst nú senn
að loknu annasömu sumri, en kór-
inn fór sina fyrstu tónleikaferð til
útlanda, á Nordiskt Forum í Finn-
landi í ágúst sl.
Stjórnandi kórsins er sem fyrr
Margrét J. Pálmadóttir, raddþjálf-
ari Björk Jónsdóttir sópransöng-
kona og píanóleikari Svana Vík-
ingsdóttir. Vetrarstarf kórsins hefst
með—námskeiði hjá hinni þekktu
Scala-söngkonu Eugeniu Ratti og
mæta kórfélagar 7. september á
sína fyrstu æfingu. .Vox feminae-
hópurinn mun starfa áfram einu
sinni í viku og tekur þátt í jólatón-
leikum kórsins og eru þeir fyrirhug-
aðir í byijun desember. Fullskipað
er nú í kórinn og verður ekki hægt
að taka inn nýja félaga að svo
stöddu.
Kórskóli Kvennakórs Reykjavík-
ur verður starfræktur áfram í vetur
og er hann ætlaður áhugasömum
konum með litla eða enga reynslu
af söngstarfi. Þar verður kennd
raddbeiting, tónfræði og samsöng-
ur, og hefst kennsla 13. september
kl. 18.30. Söngkennari verður Mar-
grét J. Pálmadóttir. Einnig mun
skemmtikórinn verða starfræktur
áfram, en hann er ætlaður konum
sem áður hafa komið að söngstarfi
og verða æfingar einu sinni í viku.
Þar verður fyrsta æfing 13. septem-
ber kl. 20. Leiðbeinendur verða
Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Mar-
grét J. Pálmadóttir.
Síðast en ekki síst verður settur
á fót Gospelhópur í léttum dúr og
er hér um nýmæli að ræða í starfi
kórsins. Þessi hópur er ætlaður
konum með söngreynslu og lýkur
starfinu með gospeltónleikum í des-
ember. Æfingar verða einu sinni í
viku, fyrsta æfing 13. september
kl. 20. Söngkennari verður Margrét
J. Pálmadóttir.
Allar æfingar verða í nýja hús-
næði Kvennakórs Reykjavíkur á
Ægisgötu 7.
I vetur verður einnig eftirfarandi
söngstarfsemi í húsnæði kórsins:
Einsöngsdeild; söngtímar, undir-
leikur, ítalska, tónfræði og tón-
heyrn, og Kórskóli Margrétar J.
Pálmadóttur, ætlaður börnum á
aldrinum 5-11 ára. Kennt verður
í þremur aldurshópum.
Innritun og fekari upplýsingar
alla virka daga kl. 9-12 og 17-19.
Titrandi myndheimur
MYNDLIST
Listasafn ASÍ
MÁLVERK
Þórdís Rögnvaldsdóttir. Opið alla
daga (nema miðvikudaga) kl. 14-19
til 25. september. Aðgangur ókeypis.
SU tæknilega útfærsla sem
hver listamaður velur sér að vinna
með er með vissum hætti tilvísun
í þann veruleik, sem viðkomandi
vill koma á framfæri. Klippitækni
Matisse endurspeglaði áhuga hans
á ríkulegum litum pappírsins, og
„loftmálun“ Jackson Pollock var í
raun ekki síðri mótun myndefnis
en aðrar aðferðir, þó þess sæjust
lítil merki, þegar málningin lenti
á léreftinu undir þeim fjölbreyttu
áhöldum, sem hann beitti við vinnu
sína.
Á sýningu sinni í Gallerí einn
einn fyrir tveimur árum kom Þór-
dís sterkt fram með þá aðferð, sem
hún beitir enn og hefur þróað
áfram í verkum sínum. Þessi fín-
lega ásetning litanna í stuttum,
þéttum pensilförum, er ákaflega
tímafrek, og krefst þess að mynd-
verkið sé í raun fullmótað þegar
verkið er hafíð; en þegar einstök
málverk eru skoðuð í heild sinni,
kemur í ljós titrandi heimur, þar
sem nokkur tilverustig virðast ska-
rast í fletinum.
Það hefur birt nokkuð yfir
myndum Þórdísar frá síðustu sýn-
ingu, og um leið hefur myndmálið
orðið fjölbreyttara. Áður voru hús
í meginhlutverki í myndunum, en
nú eru myndefnin fjölskrúðugri,
og inn í þau má lesa fleiri tákn-
myndir, hvort sem það er ætlun
listakonunnar eður ei; fiskar, fugl-
ar og fiðrildi leika nú um fletina,
sem og goðsagnalegar kvenverur
og aðrir hlutir.
í raun má tala um að
í hveiju málverki megi
finna þijú svið, sem vinna
saman til að mynda eina
heild. í grunni Jiverrar
myndar er teikning af
geometrískum formum
eða öðrum óskyldum
ímyndum eða mynstrum,
en ofan á kemur síðan hin
fígúratífa mynd; loks
skapar ásetning litanna
vissa hrynjandi með mis-
munandi stefnu pensilfar-
anna, sem taka mið af
línuspili beggja þessara
teikninga og tengja þessa
þætti alla saman.
Það er aðeins í vissri
fjarlægð, sem áhorfand-
inn getur notið þessa sam-
spils mismunandi þátta,
en gangi hann nær verk-
unum leysast þau upp í
fjölskrúðugt litaflæði, sem
er ekki síður ánægjulegt
að fylgja, einkum í bjart-
ari myndunum. Þannig
eru málverkin ekki aðeins
sköpuð á mismunandi sviðum,
heldur má einnig njóta þeirra á
ólíkan hátt út frá því ferli þeirra.
í þeim íjórtán málverkum, sem
Þórdís sýnir hér, má greina þijú
meginviðfangsefni. I nokkrum
þeirra ríkir ákveðin glettni, t.d.
„Meinhorn" (nr. 1) og „Flæði“
(nr. 3), þar sem segja má að lífið
streymi fram; í öðrum virðist
áherslan vera á táknræna þætti,
eins og í „Land míns föður“ (nr.
10), „I hálfa gátt“ (nr. 14) og
„Sáttmáli“ (nr. 9), þar sem móðir
náttúra birtist í öllu sínu veldi. í
enn öðrum verkum virðist lista-
konan fyrst og fremst vera að
athuga mögulega samþættingu
forma og lita, mynsturs og þeirrar
hrynjandi, sem þessi atriði ná að
skapa, eins og í „Hendi“ (nr. 6),
„Þríein" (nr. 12) og „Stóll" (nr.
13), þar sem segulsvið hringast
um einfalt formið.
Það er ánægjulegt að sjá á
hvern hátt Þórdís hefur þróað
áfram þau vinnubrögð, sem hún
hafði áður tileinkað sér, og útfært
hér í flóknari og áhugaverðari
myndheim en áður. Slík framþró-
un hlýtur að vera keppikefli hvers
listamanns um leið og hún er það
sem listunnendur vonast til að
finna á hverri nýrri sýningu; er
rétt að hvetja sem flesta til að líta
inn á sýningu Þórdísar í Listasafni
ASÍ.
Eiríkur Þorláksson
Leikfélag Fljótsdalshéraðs setur
upp og sýnir Dagbók Onnu Frank
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Fljótsdalshéraðs hef-
ur ákveðið að setja upp og frum-
sýna í mars á næsta ári leikritið
Dagbók Önnu Frank í leikgerð
Frances Goddrich og Alberts Hac-
ketts, í þýðingu Sveins Víkings,
endurskoðaðri af Stefáni Baldurs-
syni. Æfíngar hefjast eftir áramót
og hefur Guðjón Sigvaldason verið
ráðinn leikstjóri.
Óvenjuleg ráðning leikstjóra
Að sögn Sigurborgar Kr. Hann-
esdóttur, • formanns Leikfélags
Fljótsdalshéraðs, var nokkuð
óvenjulega að ráðningu leikstjóra
staðið, þegar miðað er við áhuga-
mannaleikfélag. Stjórn félagsins
hafði valið þijú leikrit sem kæmu
til greina og hafði hún samband
við tvo leikstjóra og bauð þeim að
leggja sína túlkun í leikverkin.
Stjórnin valdi síðan úr efni .þeirra
og ákvað að leita eftir samstarfi
við Guðjón Sigvaldason. Það gekk
eftir og hefur hann störf í byijun
janúar við æfingar.
Nú í haust verður sett upp dag-
skrá tileinkuð Hauki Morthens, þar
sem lögin hans verða leikin og sung-
in. Mikið unglingastarf hefur verið
hjá leikfélaginu, sérstaklega eftir
að það setti upp Kardimommubæ-
inn eftir Thorbjörn Egner á þarsíð-
asta starfsári. Mikill ljöldi unglinga
tók þátt í þeirri sýningu og hefur
hópurinn mikinn áhuga á áfram-
haldandi starfi og er jafnvel fyrir-
hugað að stofna unglingadeild við
félagið. Hugmyndir eru uppi um
að unglingar setji upp og sýni leik-
rit í haust: