Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 20

Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ / LISTIR Ur hádrama í grín og léttleika Ábótinn og sígaunakon- an Preziosilla í Valdi örlaganna eru gerólíkar persónur sem vita þó báðar sínu viti. Elsa Waage og Ingveldur Ýr Jónsdóttir skipta með sér hlutverki Preziosillu og Viðar Gunnarsson og Magnús Baldvinsson eru í hlutverki ábótans. HUGSJÓNAÓPERA hefur Vald ör- laganna verið kölluð og höfundurinn Giuseppi Verdi notaði það orð í bréfí til vinar síns í Napólí. Þar sagði hann að til væru „intenzione“-óperur og aðrar með dúettum, skrauti og litlum aríum. Þær gætu hentað stjömunum í óperuhúsi bæjarins, en allra síst vildi hann Vald örlaganna þar. Svona voru ítölsk óperuhús gjarna, með nokkrum stjömum en í meðallagi að öðru Ieyti. Enda höfðu óperurnar sjálfar gjarna örfá glanshlutverk sem yfirskyggðu öll önnur. Aðalpersónur voru helst kynntar í byijun, hver með sinni aríu, og leiddar saman um miðja sýningu. Verdi hafði aflagt þennan hátt þegar hann samdi Vald örlaganna. Hann var metnaðarfullur og vann sífellt að því að bæta sig, maður leikhúss og drama. Þar byijar hann einmitt óhikað og formálalaust í þessari óperu, elskendurnir Alvaro og Leonóra hittast og markgreifinn faðir hennar, sem vill ekki að þau eigist, deyr af voðaskoti úr byssu Alvaros. Áður bölvar hann dóttur sinni og hún afneitar Alvaro í ör- vinglan. Þar með skilja leiðir þeirra tveggja og liggja ekki saman aftur fyrr en í lokaatriðinu. Það á að ger- ast mörgum árum seinna, eftir mikil örlög og harðneskju. Vegna þessa langa og sviptinga- sama tíma sem líður í óperunni eru atriðin mörg og ólík. Verdi segir enda ýmsar sögur í einni; af ástum og hatri Alvaros, Leonóru og Don Carlo bróður hennar, af ábótanum og munkum hans í klaustrinu, og af almúga í stríði og friði. Verdi sinnti stjórnmálum á Ítalíu, var ákaf- ur þjóðernissinni, en gagnrýnir stríð- ið í óperunni. Þar reynir hann að fara að dæmi átrúnaðargoðs síns, Shakespeares, og hefur sitt á hvað alvarlegar glæsisenur og grín. Um árangurinn sýnist sitt hveijum, en óneitan- lega hressir persóna eins og sígauninn Preziosilla upp á óper- una. Hún ferðast um með leikflokki Trabuc- os og kemur öðru hvoru fram á sviðið. í Þjóðleikhúsinu er hún ýmist sungin af Elsu Waage eða Ingveldi Ýr Jónsdóttur. Þær voru í vikunni spurðar um hlutverkið. „Preziosilla er ein- fari þótt hún sé leið- togi og hrífi alla með sér,“ segir Ingveldur. Hún er skyggn og hef- ur slíkt vald á fólki að henni tekst að fá það til að lofsyngja stríðið. Ég held að í rataplan- kórnum þekkta geri hún í raun grín að fólkinu. Hún veit að þótt það missi aleig- una og jafnvel líkams- hluta fer það alltaf aftur í bardagann. Það er ekki hægt að halda aftur af því frekar en þar sem stríð geisar í dag. Preziosilla er slæg og óútreiknanleg og mér finnst hún ofsalega skemmtileg. Henni er ekki ætluð fallegasta músíkin, en afar sterk og drífandi melódía." Ingveldur verður á Islandi á næst- unni og kemur fram á tónleikum í íslensku óperunni í október auk upp- færslunnar í Þjóðleikhúsinu. Elsa söng Jörðina í Rínargulli Wagners í vor og segir hana hafa verið alvitra eins og Preziosillu. „Jörðin var einungis áhorfandi, en Preziosiila nýtir vitund sína til að hafa áhrif á fólk. Hún er raunsæ sígaunakona og gengur stundum langt í að gæða harðan raunveruleika spennu. En mér fínnst hún ekki vera stríðsæsingamanneskja. Raunar sést að hún hefur gott hjarta og á til hjálpsemi við þá sem eru í erfíðleik- um.“ Elsa segir hlutverk Preziosillu krefjast mikils raddsviðs og styrks til að drífa gegnum kórana. Sumum finnist þeir svolítið rúss- neskir og haldi að Verdi hafi verið að koma til móts við ráðmenn leik- hússins í Pétursborg sem pantaði óperuna. Elsa býr á Ítalíu og áformar þar tónleika skömmu fyrir jól. Eftir áramót syngur hún á tónleikum í Þýskalandi pg fyrir umboðsmann á Italíu í vor. Hún segist frekar vilja vera lausráð- in en með fastan samn- ing, tónleikaverkefni séu farin að koma, en óperan sé hennar uppáhald. Ekki hreyft við ábótanum Verdi vandaði val á efni ópera sinna, mynd- aði sér skoðanir á sviðs- setningu og gerði strangar kröfur til úr- vinnslu textans. Þar kom Piave til sögunnar og byggði Vald örlag- anna á leikriti Spánverj- ans Saavedra. Eins og gengur í óperum þurftu þeir Verdi að breyta ýmsu frá upphaflega leikritinu, sameinuðu oft persónur og höfðu til dæmis þijá menn í Don Carlo, bróður Leonóru. Smærri hlutverk sem þó ber eitthvað á eru öll samsett, utan eitt. Það er ábótinn, vís og mildur trúmaður, sem tekur við Leonóru og veitir síðar Alvaro athvarf í klaustrinu. Hann sameinar þau að lokum, á sinn hátt. Ábótinn er bassahlutverk og í uppfærslu Þjóðleikhússins skipta því með sér þeir Viðar Gunnarsson og Magnús Baldvinsson. Viðar segir Elsa Waage Magnús Baldvinsson VIÐAR Gunnarsson í hlutverki ábótans. Morgunblaðið/Kristinn INGVELDUR Ýr Jónsdóttir sem Preziosilla. ábótann Iiðsinna Leonóru af fremsta megni, líkt og hver prestur myndi gera. í klaustrinu taki hann móti örvingluðum, ljúfur og föðurlegur. Máttur hans komi ekki síst fram í lokin, þegar þau Leonóra knýi Alvaro til að iðrast og biðja um fyrirgefn- ingu. Bassar og völd Ábúðarmiklir prestar Verdis eru ágætir kunningjar Viðars, hann hef- ur sungið slík hlutverk í Nabucco og Aidu. Þetta eru alvarlegir eldri menn og spuming hvort Viðar þurfí ekki að hrista af sér drunga bassans eftir vinnu. Hann segist alltaf skilja vinn- una eftir í leikhúsinu, annað dugi ekki, því hann syngi mikið og fari úr einni óperu í aðra kvöldið eftir. í vetur syngi hann til dæmis í 15 upp- færslum í ríkisóperunni í Wiesbaden. Þar hefur hann verið fastráðinn í íj'ögxir ár og Iýkur samningi næsta haust. Eftir það fer hann til tveggja ára að óperunni í Essen. Magnús starfar líka í Þýskalandi og byijar í janúar tveggja ára tíma- bil við óperuna í Detmold. Þar hefur hann verið í gestahlutverkum að undanförnu og líkað vel. Hann er eins og Viðar vanur þungum og al- varlegum hlutverkum. „Ætli það sé ekki meira mark tekið á djúpum röddum,“ segir hann. Magnús segir ábótann í Valdi örlaganna valdamik- inn manh sem hefur heyrt og séð allt. „Það er helst hann sýni mann- lega hlið í samskiptum við Melitone. Þá stígur hann af stallinum." Skrif stofutækni!! 250 najwU- Fyrir aðeins kr. 3.990,- á mánuði* Skrifstofutækni er starfsmenntunarnám fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og samkeppnishæfni og búa sig undir krefjandi störf á vinnumarkaði. Námsgreinar: Bókfærsla Tölvubókhald Windows Ritvinnsla Töflureiknir Gagnagrunnur | Verslunarreikningur Ekki fiika lengur - opnaðu þér nýja leið ílífinull! Starfsmenntun - fjárfesting til framtíðar o. ti Tölvuskóli íslands Höfðabakka 9 • Sími 67 14 66 ’Upphœðer miðuð við jafnar afborganir í24 mánuði Kvartett Shepps sá magnaðasti TONUST Ilótcl Saga ARCHIE SHEPP OG KVARTETT OG TALA TRÍÓ Á RÚREK-DJASS Flytjendur: Archie Shepp tenór- saxófónn og söngur, Richard Cle- ment flygill, Wayne Dockery kontrabassi og Steve McCraven trommur. Óskar Ingólfsson bassetthorn, Birg- ir Bragason rafbassi og Steingrím- ur Guðmundsson darbuka, tabla og slagverk. ARCHIE Shepp kvartettinn sló síðustu hljómana á RúRek-djasshá- tíðinni að þessu sinni. Shepp, sem er 57 ára gamall, er ein af goðsögn- unum í djassheiminum. Hann var á sjöunda áratugnum einn af spor- göngumönnum stílbijótanna i djassi og þótti reiður og pólitískur tónlist- armaður en hann hefur mýkst með árunum. í Súlnasal lék kvartett hans blús með örlitlum skammti af fönki. Shepp blæs á afar óvenjulegan hátt i saxófóninn og greinilégt er að hann hefur ekki fulla stjórn'á tónmyndun- inni. Stakkato getur hann ekki spilað nema með því að bíta í blaðið. Þetta helgast af því að Shepp varð fyrir því óláni að missa tennurnar og þurfti að láta smíða í sig nýjan góm en það getur reynst afdrifaríkt fyrir blásara. Skemmst er að minnast að Chet Baker varð aldrei samur maður eftir að hann missti tennurnar. Shepp hefur þó unnið á meistaraleg- an hátt úr vandanum og skapað sér stíl sem er nokkurs konar blanda úr Webster með hringöndun og Ad- ams. En Shepp er einnig frábær söngv- ari. Hann jóðlaði C-jam blues og Richard Clement, píanistinn sem hljóp í skarð Horace Parlan, var sjóð- .heitur. Wayne Dockery sló djúpa og breiða hljóma á bassann og Steve McCraven hélt öllu saman með smekklegum trommuleik. Þetta er einn magnaðasti djasskvartett sem hingað hefur komið. A undan kvartettnum lék Tala- tríóið sem kom skemmtilega á óvart með frumsaminni „heimstónlist" þar sem áhrif frá arabískri tónlist voru hvað mest áberandi. í Að heiman lék Morgunblaðið/Kristinn ARCHIE Shepp Steingrímur Guðmundsson slag- verksmeistari á darbuka og fyrir hugskotssjónum svifu magadans- mær um gólfið og bassetthorn Oskar Ingólfssonar léði tónlistinni enn frekar framandi blæ. Birgir nýtti sér svokallaðan „harmonizer" til að magna upp hljóðveggi. Einnig léku þeir félagar eitt lag eftir Charles Mingus. Prógrammið var greinilega vel æft og tónlislin er einföld og útúrdúralaus. Gott innlegg í RúRek og vonandi að mönnum gefíst kostur að heyra þessa tónlist aftur. Guðjón Guðmundsson. I I I \ i i > i Í i í t i i l i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.