Morgunblaðið - 15.09.1994, Síða 33

Morgunblaðið - 15.09.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 33 Nú hefur hann kvatt þennan heim svo skyndilega, svo alltof fljótt og eftir stöndum við sem þekktum hann og nutum vináttu hans. Það er horfinn stafur úr stafrófi tilver- unnar og litbrigði hennar eru ekki söm. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur sendi ég til Hörpu, Guð veiti henni styrk í nútíð og framtíð. Einnig vil ég votta fjölskyldunni á Varmalæk og aðstandendum öll- um samúð mína. Guð geymi góðan dreng, vin og félaga sem svo sannarlega kunni að lifa lífinu lifandi. Sigurður Björnsson. Það vantaði eina rödd í kórinn „Áfram ísland" á Laugardalsvellin- um á miðvikudaginn 7. september sl. þegar leikið var gegn Svíum. Það var rödd vinar míns Jóhanns Péturs Sveinssonar eða Jóa sem nú heyrist ekki lengur. Og raddar hans verður sárt saknað en Jói kom víða við á leikvelli lífsins. Jói var svo margt. Hann var ein- lægur Skagfirðingur, lögmaður, söngmaður, hestamaður, gleðimað- ur, framsóknarmaður eins og þeir gerast bestir og félagsmálafrömuð- ur en þó minnist ég hans fyrst og fremst sem vinar og félaga. Það var fyrir tæpum 20 árum að móðir mín Áslaug Sigurbjörns- dóttir, hjúkrunarfræðingur, bað mig að heimsækja einn sjúklinginn sinn á Barnaspítala Hringsins. Hann væri að lesa sömu bækurnar og ég fyrir landsprófið og hann væri hálfeinmana innan um öll þessi smábörn. Fyrir áeggjan móður minnar lét ég til leiðast og var það upphafið að vináttu okkar Jóa og síðar einnig frgenda míns og vinar Ólafs Garðarssonar, vináttu sem átti eftir að endast þar til yfir lauk. Við áttum ógleymanlegar stundir við undirbúning undir landsprófið. Spurðum við hvor annan útúr og þá gjarnan um smáatriði til að reyna að klekkja hvor á öðrum. Mér þótti nú samt alltaf skrítið hvernig Jói gat lært innan um öll þessi veiku smábörn með tilheyr- andi gráti og hávaða. En það var eins og Jói gæti alveg lokað sig frá þessu. Ég fann strax að Jói var skarp- greindur, kappsamur og hafði þá léttu og gáskafullu lund sem gerði það að verkum að fundum okkar fór sífellt fjölgandi á þessum árum. Við þrír, ég, Óli og Jói, fórum að vísu hver í sinn menntaskólann en héldum alltaf góðu sambandi og vorum svo samferða í lagadeildinni og Óli og Jói stofnuðu fljótlega sína eigin lögmannsstofu sem þeir hafa rekið síðan. Mér líður seint úr minni fyrsta bíóferð okkar Jóa í Hafnarbíó. Lagt var af stað frá Landspítalanum og Jóa ekið í hjólastól. Myndin var þess eðlis að hún var stranglega bönnuð innan 16 ára en við þá nýlega orðnir 15. Vandaðist nú málið þegar í miðaafgreiðsluna var komið og spurt um nafnskírteini. Mér vafðist tunga um tönn en þá sperrti Jói sig í stólnum og kvað við snjallt. „Eg er 32 ára gamall dvergur og þetta er sonur minn sem ekur stólnum." Þetta dugði. Stúlkan í miðaafgreiðslunni lét okkur um- svifalaust hafa miðana. Þessi saga hefur margoft verið sögð til skemmtunar en hún er líka táknræn fyrir það að Jói átti oft eftir að koma að luktum dyrum. Og Jói vissi að dyrnar lykjust ekki upp af sjálfu sér. Hann var ófeim- inn við að biðja aðra að hjálpa sér og honum fannst það bara sjálfsagt og skipaði vel fyrir enda var ávallt vandræðalaust að hjálpa Jóa. Hann yfirvann hvetja hindrunina á fætur annarri. Hann tók bílpróf, lærði að synda, tók stúdentspróf, lögfræðipróf, gekk í hjónaband og svo mætti áfram telja. Hann af- sannaði með lífi sínu fjölda fordóma gagnvart fötluðu fólki og var því og öðrum sem hann hitti á lífsleið- inni mikil hvatning. Ef ég var eitt- hvað daufur í dálkinn sló ég gjarn- an á þráðinn til Jóa og eftir að hafa talað við hann hressan og kátan, hvaða ástæðu hafði ég þá til að vera dapur? Það var blátt áfram óhugsandi. Jóhann varð sjálfskipaður for- ystumaður í samtökum fatlaðra og hafði hann unun af félagsmálastörf- um. Hann var einarður málsvari þess að fatlaðir ættu að geta lifað sem eðlilegustu lífi í þessu þjóðfé- lagi og það ætti að gera ráð fyrir þeim í hvívetna. Tröppum og öðrum hindrunum var sagt stríð á hendur og þá lá Jói ekki á liði sínu. í for- ustusveit fatlaðra er höggvið stórt skarð sem verður vandfyllt. Jói var einstakur maður og fyrir mig var það mikil gæfa að kynnast honum, dýrmæt reynsla sem ég bý að alla ævi. Ég sé fyrir mér kank- vísa brosið, glottið og glampann í augunum. Alltaf tilbúinn til að gantast eða spjalla um allt milli himins og jarðar. Jói var gæfumaður á margan hátt. Hann átti góða fjölskyldu, foreldra og systkini, sem voru hon- um bæði vinir og félagar. Það var alltaf gott að koma að Varmalæk. Þá var það mikið gæfuspor fyrir Jóhann þegar hann kynntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Hörpu Ingólfs- dóttur. Þau heimsóttu okkur hjónin fyrir skömmu. Þau voru að vanda hress og glöð í bragði, ræddu um barnið sem var í vændum og fram- tíðaráform sín um að byggja hús á Varmalæk og flytja þangað. Á Jóa var ekkert fararsnið. Mér fannst það dásamlegt að þau æsttu innan skamms von á barni og að sama skapi ömurlegt og sárt að þurfa að sætta sig við að Jói fái ekki að sjá það. Við Kristín sendum Hörpu og móður hans Herdísi og systkinum Jóa innilegustu samúðarkveðjur og vonum að Guð styrki þau í mikilli sorg. Sigurbjörn Magnússon. Það var mitt happ fyrir fimm árum að fá að kynnast Jóhanni Pétri Sveinssyni. Strax eignaðist ég vináttu hans og traust. Betri vin er ekki hægt að hugsa sér. Vinur sem hlustar, vinur sem hjálpar, vin- ur sem gleðst, vinur í raun. Allt þetta og miklu meira átti Jói og gaf með gleði. Jói var leiðtogi, hann var höfð- ingi, hann hafði svo margt til brunns að bera og margt mátti af honum læra. Og nú er hann dáinn. Þvílík skelfileg tíðindi. Harpa mín. Ég votta þér mína dýpstu samúð. Megi minningin um góðan dreng sem elskaði þig og dáði, verða þér, og barninu ykkar ófædda, ljós um ókomna framtíð. Móður hans, systkinum og öðrum ástvinum sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Jóhanns Pét- urs Sveinssonar. Tryggvi Friðjónsson. Kynni okkar af Jóhanni Pétri Sveinssyni voru ekki aðeins ánægjuleg, heldur einnig mjög þroskandi fyrir okkur sem persón- ur. Við lærðum það af Jóhanni að vera þakklát fyrir það sem okkur er gefið en vera ekki að væla undan því sem okkur finnst á vanta. Jóhann Pétur Sveinssn varð að sækja nám af spítalastofu allt til 14 ára aldurs. En Jóhann sýndi það hugrekki að mæta til skólavistar í landspróf í Vörðuskóla og þaðan lá leiðin í Menntaskólann við Hamra- hlíð. Þar kynntumst við þessum baráttumanni sem var ákveðinn í því að ná æðstu metorðum í mennt- un. Hann var óvenjulega drífandi persóna sem átti létt með að hrífa fólk með sér. Hann lauk mennta- skólanámi á styttri tíma en flestir aðrir. Þaðan lá leiðin beint í lög- fræði í Háskólanum og síðan í fram- haldsnám í Noregi. Jóhann var félagslyndur maður sem vildi alltaf hafa stóran kunn- ingjahóp í kringum sig. Það leið ekki langur tími frá þvi að við kynntumst Jóhanni að við gleymd- um fötlun hans. Oft vorum við ósammála um skoðanir og þá vorum við ekkert feimnir við að segja hvor öðrum til syndanna. Er ekki að efa það að Jóhanni líkaði það að kunn- ingjar hans voru ekki að hlífa hon- um neitt við skömmum. Enda náðu menn alltaf fljótt sáttum og gleymdu eijum. Jóhann er af dugmikilli og merkri fjölskyldu frá Varmalæk í Skaga- firði. Við félagarnir áttum því láni að fagna að fá að kynnast fjölskyld- unni, því Jóhann bauð okkur oft að koma norður með sér um Versl- unarmannahelgar á árunum 1978-83. Þar kynntist maður því frá hvaða meiði Jóhann er sprott- inn, dugmiklu og vel greindu fólki. Eftir því var tekið hve söngelsk fjöl- skyldan er, sem á djúpar rætur í lífsgleðinni sem einkennir hana. Jóhann lét ekki sitt eftir liggja í þeim efnum, því hann var um ára- bil í Skagfirsku söngsveitinni. Kynni okkar félaganna af Jó- hanni og fjölskyldu hans auðgaði okkur alla og mótaði á margan hátt lífsviðhorf okkar. Við erum þakklátir fyrir kynnin við hann. Við sendum eiginkonu, móður og systk- inum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Árni K. Bjarnason, Isak Örn Sigurðsson, Þórður G. Möller. Dauðinn kemur ætíð á óvart og hann spyr ekki að aldri. En þegar hann sækir heim ungan mann á miðri starfsævi verður bara spurt: Hvers vegna nú og hvers vegna þú? Þegar við skildum snemma morg- uns eftir stjórnarfund norræna bandalagsins í Finnlandi fyrir nokkrum vikum voru kveðjuorðin: „Við heyrumst." Við ætluðum að halda áfram umræðunum um nor- ræna samstarfið og hvað við þyrft- um að gera til þess að fá norræna stjórnmálamenn til að skilja sjónar- mið okkar á því hvernig á að skapa skilyrði fyrir því að hreyfihamlaðir geti lifað eðlilegu lífi. Við vorum líka að skipuleggja norræna þingið sem verður haldið hér á íslandi og þú varst fullur hugmynda um hvernig það ætti að halda og hvern- ig við ættum að halda upp á 50 ára afmælið. Því miður, Jóhann, við lukum aldrei þessum samræðum. Jóhann Pétur. Þú sast í stjórn Bandalags fatl- aðra á Norðurlöndum frá 1988 og varst formaður síðustu tvö árin. En þú byijaðir löngu áður að taka þátt í norrænni samvinnu á þessu sviði. Þú komst inn í stjórnina eins og frískur vorvindur. Þú spurður nýrra spurninga, þú komst með tillögur, þú varst vítamínsprauta í norræna samstarfinu. Þú komst með margar hugmyndir um hvernig við gætum bætt starfið og sem formaður fylgd- ir þú þínum málum eftir af krafti. Þú tókst snemma fyrir þörfina á því að láta unga fólkið taka þátt í starfinu og þú sást ætíð til þess að fulltrúi þess var með á fundum okkar. Annað mál sem þér var annt um var réttaröryggi hreyfihaml- aðra, sem í sjálfu sér þarf ekki að koma á óvart með tilliti til starfs þíns. Þú sást snemma að alþjóðlegt samstarf væri mikilvægt fyrir hreyfingu okkar og þú lést það oft í ljós, ekki síst hjá samstarfsfélög- um okkar á alþjóðavettvangi. En Jóhann Pétur, þú varst ekki aðeins fulltrúi Sjálfsbjargar í nor- rænni samvinnu. Þú varst vinur og félagi sem alltaf varst fús að ræða málin. En þú gast líka hleypt fjöri í þöglar samkomur með söng þínum og löngum vinnudegi lauk oft seint á kvöldin. í starfmu hlífðir þú þér aldrei og oft undruðumst við hvernig þú megnaðir að sinna öllum verkefnum þínum. Við héldum að þú hefðir sem mottó í lífi þínu: „Lítið afl, rétt notað, er mikið afl“ og þannig tókst þér að ná markmiðum þínum. Norrænu félögin, Dansk Handicapforbund. Invalidforbundet í Finnlandi, Norges handikapfor- bund og De handikappades riksfor- bund þakka þér fyrir það starf sem þú vannst hreyfihömluðum. Þú hlífðir þér aldrei. Þætti þínum gleymum við aldrei. Boo Fogelbei'g, framkvæmda- sljóri Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐBJÖRG SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR frá Hafurstöðum, lést í Héraðssjúkrahúsinu, Blönduósi þann 13. september sl. Jarðarförin auglýst síðar. Hólmfrfður Sigurðardóttir, Sveinbjörn Sigurðsson, Svava Leifsdóttir, Hafþór Sigurðsson, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Hörður Kristinsson, Hlíf Sigurðardóttir, Ólafur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Útför föður okkar, tengaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS JÓNSSONAR, Óslandi, Skagafirði, sem andaðist aðfaranótt 8. september sl., fer fram frá Viðvíkur- kirkju laugardaginn 17. september kl. 14.00. Margrét Kristjánsdóttir, Þóra Kristjánsdóttir, Jón Guðmundsson, Jón Kristjánsson, Margrét Einarsdóttir, Svava Kristjánsdóttir, Pétur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ALDÍS PÁLSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrrum Austurbrún 2, er lést 8. september sl. verður jarð- sungin frá Langholtskirkju föstudaginn 16. september kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega af- þakkaðir en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofn- anir. Margrét Jörundsdóttir, Kristinn Sveinsson, Karl Jörundsson, Valgerður Frímann, Páll Trausti Jörundsson, Inga Indiana Svala Vilhjálmsdóttir, Jórunn Jörundsdóttir, Geir Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og systir, EDDA BORG STÍGSDÓTTIR, 1 Strom Terrasse 20 B 3046 Drammen, Norge, sem lést 7. september í sjúkrahúsi í Drammen, Noregi, verður jarðsungin föstudaginn 16. september í Drammen. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Magnús Óskar Magnússon, Gerður Ósk Magnúsdóttir, Herdís Erla Magnúsdóttir, Jóakim Magnús Tómasson, Jón Stigsson, Heimir Stfgsson, Dagbjartur Stígsson, Þórhallur Stígsson. + Útför ástkærs eiginmanns míns, EINARS SKAFTA EYLEIFSSONAR, bifreiðastjóra, Laugarbraut 25, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 16. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minn- ast hans, er bent á Skógræktarfélag Akraness, tékkareikningur nr. 7064 í Landsbanka (slands, Akranesi. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarns, Guðný Erna Þórarinsdóttir. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR ÞORGILSDÓTTIR, Rauðalæk 19, Reykjavik, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. september kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar eru vinsam- legast bent á Blindrafélagið. Sigrún Jónsdóttir, Thorsten Folin, Þorgrímur Jónsson, Guðrý Árnadóttir, Hafsteinn Jónsson, Bryndfs Jónsdóttir, Jón Björnsson, Sigurður V. Sigurjónsson, Lilja Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.