Morgunblaðið - 15.09.1994, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.09.1994, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ROSA JÓHANNSDÓTTIR + Rósa Jóhanns- dóttir fæddist á Gjögri i Árnes- hreppi á Ströndum 24. mars 1911. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Garð- vangi í Garði 4. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jó- hann Karl Hjáim- arsson og Ragn- heiður Benjamíns- dóttir. Rósa fluttist sem barn að Stóru- Arvík í Kaldrana- neshreppi. Réðst hún síðar ung að árum í vist hjá Karli G. Magnússyni lækni og konu hans Elínu G. Jónsdóttur. Bjó hún hjá þeim fyrst á Hólmavík, þá í Keflavík og síðar í Reykjavík. Fylgdi hún þeim ætíð og síðar dóttur þeirra, Guðrúnu S. Karlsdóttur og fjölskyldu henn- ar, en dvaldi einnig síðustu árin í Keflavík. Útför Rósu fer fram frá Fossvogskapellu i dag. VIÐ systkinin erum nú að sjá á eftir miklum vini sem studdi við bakið á fjölskyldu okkar alla tíð. Hún var fóstra okkar. Þannig höf- um við ekki aðeins átt góða for- eldra, afa og ömmur; við áttum líka hana Rósu sem vakti yfír velferð okkar. Við viljum minnast Rósu Jóhannsdóttur í nokkrum orðum. Rósa átti oft við veikindi að stríða, en bar ávallt höfuðið hátt og undi sér ekki nema að geta tekið til hend- inni. Hún fékk góða hvfld eftir langa og farsæla ævi, en samt var eins og lát hennar kæmi á óvart því hún var vön að sigra. Rósa fæddist á Gjögri í Ámes- hreppi á Ströndum, en fluttist síðar níu ára gömul á Stóru-Ávík í Kaldr- ananeshreppi. Ung að árum gerðist hún síðan ráðskona hjá afa okkar og ömmu. Bjuggu þau fyrst í Hólmavík, þá í Keflavík og síðar á Ægisíðunni í Reykjavík, þar sem við ólumst upp. Þannig var hún ekki aðeins okkar fóstra, heldur leit móðir okkar, Guðrún Sesselja, ætíð á hana sömu augum og er söknuðurinn mikill. Það var lengst- um þannig á Ægisíðunni að Rósa bjó niðri ásamt ömmu okkar heit- inni og við uppi. Keflavík átti sterk Eríklrvkkjur Glæsileg kaífi- lilaðlw)rð íallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar ísúna22322 FLUGLEIDIR UéTEL LOFTLEIIIR ítök í henni og svo fór að Rósa flutti þangað á gamals aldri og sett- ist að á Suðurgötunni þar í bæ, en í þeirri götu hafði hún einmitt búið með afa okkar, ömmu og móður okkar. Hana hafði lengi lang- að að eignast eigið heimili, en tengslin voru svo sterk að hún var oft langdvölum hjá okkur á Ægisíðunni áfram. En Rósu leið líka vel í Keflavík og átti þar góða vini og systkini í nágrenninu. Síðustu árin dvaldi Rósa á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði. Það eru mýmargar svipmyndir sem aidrei fara úr huga okkar og tengdar eru Rósu. Við ærsluðumst út um allt hverfíð okkar og oftar en ekki var Rósa hlaupandi á eftir á inniskónum og með klútinn um höfuðið. Svo kom það fyrir að kunn- uglegur ilmur barst úr eldhús- glugganum í kjallaranum. Þá hlup- um við heim með vinahópinn í eftir- dragi og Rósa rétti hverja pönnu- kökuna af annarri út um gluggann, brennheita með sykri. Þegar kvölda tók settist hún á rúmstokkinn hjá okkur, kenndi okkur vísur og sagði sögur. Sumar voru af konungsson- um og erindum þeirra við kotbænd- ur, sumar af álfum og huldufólki, en sveitin og gamli tíminn var Ieik- sviðið. Rósu voru kærir gömlu góðu dagarnir og sagði okkur frá þeim. Allt verklag sem tilheyrði gamla tímanum hafði hún á hraðbergi. Hún sagði sögur af afa okkar sem við sáum aldrei, en í sögunum henn- ar sáum við löngu liðna atburði Ijós- lifandi og fólkið okkar eins og það leit út fyrir okkar tíð. Hún þekkti okkur öll - sennilega betur en við sjálf. Rósa las mikið og hlustaði á út- varp. Þess vegna var mikið frá henni tekið þegar sjónin versnaði fyrir nokkrum árum, en hún hafði þokkalega heym og hlustaði á frétt- ir og ýmsar frásagnir í útvarpi. Athygli hennar var óskipt þegar sagðar voru veðurfréttir og hún fann til með sjómönnum þegar gerði slæm veður. Hún fann líka til þegar hún heyrði fréttir af slysum og bað okkur að fara varlega. Rósa fýlgd- ist vel með þjóðmálum og hafði oft ákveðnar skoðanir á þeim. Stundum rökræddum við um allt milli himins og jarðar við Rósu. Hún varðist eða sótti af hyggindum sínum. Hennar skoðanir voru okkur svo mikilvæg- ar. Oftast kom hún vitinu fyrir okk- ur, en Rósa sá líka að við gátum haft nokkuð til okkar máls og þá varð hún kímin, sló á lær sér og hló. „Ja héma, þetta unga fólk!“ sagði Rósa og umburðarlyndið var handa okkur. „Ég vildi bara reyna að leiðbeina ykkur,“ sagði hún. „En kunnið þið þessa vísu?“ spurði hún og skipti kankvís um umræðuefni. ERFIDRYKKJUR P E R L A n sími 620200 + Innilegar þakkir fyrir áuðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför stjúpföður okkar, tengdaföður og afa, GUÐBJARTS CECILSSONAR, Grundargötu 17, Grundarfirði. Kristín M. Guðmundsdóttir, Guðbrandur Jónsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Kristján B. Larsen, Ingunn L. Guðmundsdóttir, Guðjón B. Baldvinsson, Hraundis Guðmundsdóttír, Björn Oddsson og barnabörn. Og þá hlógum við öll og Rósa fór með kviðlinginn. Hún hélt áfram að leiðbeina okkur og það gerði hún alla tíð. Hún snerist í kringum okk- ur, fyrst sem lítil böm til að kenna okkur muninn á réttu og röngu, síðar til að þekkja muninn á sönnum verðmætum og ptjáli. Seinna þurft- um við að fylgjast með því að hún færðist ekki of mikið í fang, því hugurinn var oft á undan því sem líkaminn áorkaði. Hún hjálpaði öðr- um, en var ekki vön því að vera hjálpað. Og hún var enn að hjálpa til á Garðvangi. Hugsunin var skýr þar til yfír lauk. Rósa var sjálfstæð kona og lét gott eitt af sér leiða. Hún var stolt, fyrst og fremst fyrir hönd þeirra sem henni þótti vænt um. Þess vegna var hún eitt mesta lán í lífí okkar og raunar fjölskyldunnar allr- ar. Þannig var það ætíð að Rósu leið ekki vel nema hún vissi hvar við væram. Fæmm við í ferðalag þurfí að láta Rósu vita strax þegar heim var komið, annars leið'henni illa og hafði áhyggjur. Það breyttist ekkert þótt við yxum úr grasi og enn síður þótt hún byggi ekki að staðaldri hjá okkur seinustu árin - fyrsta verk er komið var heim var að hringja og láta Rósu vita. Þann- ig var það líka til síðustu stundar; Rósa fékk að vita að mamma og við vomm hjá henni og hún þrýsti hönd okkar. Ef við bemm gæfu til einhverra góðra verka í þessu lífí þá á Rósa þar dijúgan hlut að máli. Við vitum að guð geymir hana fyrir okkur. Elín Vigdís Hallvarðsdóttir og Einar Karl Hallvarðsson. Strandir hafa margan góðan son- inn og dótturina alið. Þar sem norð- anstormurinn æðir upp á ströndina og brotnar á björgum. Þar sem vomóttin blíða bætir önd og þegar nótt verður dagur. Það fer ekki hjá því að náttúran mótar að einhveiju leyti manninn. Undir sterku látbragði leynist blíð- an eins og opin und. Ein af þessum dætmm landsins var Rósa Jóhanns- dóttir. Ég var svo lánsöm að kynnast Rósu og því fólki sem hún vann hjá þegar ég kom til Keflavíkur ung að ámm. Hún strauk bömum mín- um kærleiksríkum höndum, því að öll böm sem hún annaðist vom hennar, slík var umönnunin. Snemma á. ævinni kom hún á heimili læknishjónanna Karls G. Magnússonar og Elínar Jónsdóttur, sem þá vom á Hólmavík, og vann hún hjá þeim meðan þau lifðu. Þar naut sín það hjálpareðli hennar sem hún ól í bijósti og það fylgdi henni meðan líf entist. Áð hjálpa öðmm og gefa sérstaklega bömum var hennar eðii. Rósa giftist ekki og átti ekki böm, en Guðrún dóttir læknishjón- anna og bömin hennar vom Rósu kæmst og stóðu henni næst. Ekk- ert var ofgjört fyrir þau. Seinustu sex árin dvaldist hún á Garðvangi. Þar vildi hún líka gefa, gefa starfsstúlkunum munngát, „því þær em svo góðar við mig,“ var hún vön að segja, þegar ég heimsótti hana. Ættingjum hennar votta ég samúð mína. Bjarnveig. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem íjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. SIGURJON EINARSSON + Siguijón Ein- * arsson, Neðri- Mörk, Skaftár- hreppi fæddist í Mörk 21. ágúst 1902. Hann lést í Heiðabæ, dvalar- heimili aldraðra á Kirkjubæjar- klaustri, 7. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hans voru Einar Jónsson bóndi í Mörk (f. 1871) og kona hans Ásta Eiríksdóttir (f. 1873). Systkini Sigurjóns voru Eiríkur (f. 1906, d. 1971) og Steinunn Ragnheiður (f. 1909, d. 1932). Sigurjón stóð fyrir búi með móður sinni og bróður í Mörk um áratuga skeið. Hann er einnig þekktur fyrir orgelleik sinn við ýmsar athafnir í Prestbakkakirkju á Síðu um langan tíma. Sigurjón dvaldist síðustu árin í Heiðabæ. Útför hans fór fram frá Prestbakka- kirkju 13. ágúst. UM VORTÍMA vann fólk austur á Síðu við að koma sér upp blóma- garði og gróðursetja í hann tré. Það vann undir stjóm garðyrkju- konu, sem hafði verið fengin í sveitina. Á bænum var tvíbýli og var það annar bærinn, sem átti garðinn. Því bættust nú hjálpfúsar hendur. Maður á besta aldri kom úr hinum bænum til að hjálpa. Garðyrkjukonan leit stórt á sig, hún kunni sitt fag, og lauk þeim samskiptum svo að hún hellti úr skálum reiði innar yfír manninn, sem hvarf til síns heima. Skömmu síðar bárust orgelhljómar út í fag- urt vorkvöldið. Garðyrkjukonan varð miður sín, þegar henni var sagt hver væri að spila. Hvem hafði hún verið að snupra? Sjálfan kirkjuorganistann. Siguijón Ein- arsson í Mörk, greindan mann og listrænan, sem við erfiðari aðstæð- ur en við þekkjum í dag hafði brot- ist til þess að læra á órgelið. Þegar hér var komið sögu bjó Siguijón með Ástu Eiríksdóttur, móður sinni, og Eiríki, bróður sín- um. Steinunn, systir hans, hafði látist úr berklum 1932 og Einar Jónsson, faðir hans, lést ekki löngu seinna. Einar og Ásta höfðu fyrst búið á allri jörðinni, sem nú var tvíbýli. Einar var maður hjálpsam- ur og greiðvikinn og vildi allt fyr- ir alla gera. Þetta sá fólk á næstu bæjum og misnotaði sér greiðvikni hans. Hábjargræðistíminn kom og brakandi þerrisdagar. Einar var sendur suður á fjörur. Þetta var meira en búið þoldi. Ásta, kona hans, sá að hveiju stefndi og leit- aði til fólksins síns í Mörtungu og með hjálp síns fólks tókst Eiríki Ólafssyni að kaupa jörðina. Eiríkur Ólafsson reyndist Ástu besti vinur. Ósjaldan gerði hann sér ferð „vestur í bæ“ eins og það var kallað og sat á baðstofupall- inum og spjallaði við Ástu og piltana, sem hann nefndi svo, og áttu þau sinn part í jörðinni. Fyrir tryggð við sitt fólk bjó Siguijón allan sinn starfs- aldur í Mörk, enda þótt hann væri ekki fyrir búskap. Ásta, móðir hans, lést seint á árinu 1960. Ei- ríkur Ólafsson lést haustið 1971 og nafni hans í vesturbænum hálf- um mánuði seinna. Þá var Sigur- jón fluttur í nýtt hús, en ekki var á allt kosið. Siguijón hafði næmt auga fyrir fegurð. Trén, sem hann hafði hjálpað til við að gróður- setja, en ekki fengið neina óþökk fyrir, skyggðu á fallega útsýnið frá húsinu hans. Hann langaði til að selja húsið og flytja til Reykja- víkur, en var talinn frá því. Hann vildi ekki fara á elliheimilið á Klaustri, en fara heldur austur á Höfn. Því fékk hann heldur ekki ráðið. Hann dvaldist því í húsinu sínu meðan kraftar entust, þar til hann stálminnugur og með skýra hugsun var fluttur á sjúkrahúsið á Selfoss skömmu fyrir níræðisaf- mæli sitt. Þaðan kom hann ekki samur maður og var fluttur á hjúkrunarheimilið á Klaustri. „Mér hefur enn ekki tekist að hitta neinn af mínu fólki,“ sagði hann, þegar hann var kominn að Klaustri. Gömlu húsin í Mörk hafa nú verið jöfnuð við jörðu. Allt er for- gengilegt. Dauðinn er fljót og lífíð er strá, en nú gæti það ræst, sem Siguijón þráði svo heitt, að fá að hitta sitt fólk. Mér heilsar nú ársól. Hún opnar mér hlið. Ásjóna dagsins rís upp í gluggann, - og brekkurnar líta brosandi við. Bjargsvipir léttast. Þeir stijúka af sér skuggann. - Hafið er skínandi sjónanna svið, þar sólfákur speglast með blóðdrifna tauma. Heimurinn geymir mín heitstrengdu mið. Handan býr Iandsýn gamalla drauma. Það er einhvem bylgja, sem brýst mér í sál. Hún beinist frá öllum jarðarálfum. Mín innsta hugsun, hún á ekki mál, en ósk og bæn, sem hverfur mér sjálfum, - að senda hátt yfir heimsins sól hljómkast af annarrar veraldar orðum, - að standa upp fyrir alveldis stól, þar eilífðar hirðin situr að brðum. (E. Ben.) Ragnhildur frænka. INGIGERÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR + Ingigerður Þorsteinsdóttir fæddist 17. maí 1923 að Vatnsleysu I Biskupstungum. Hún lést í Borgarspítalanum 25. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Foss- vogskirkju 2. september. FYRIR rúmu ári, er Inga varð sjö- tug, lét hún af störfum í erlendum viðskiptum í Búnaðarbanka ís- lands. Hún hlakkaði til að eiga náðuga daga að loknu ævistarfí, en annað var henni ætlað. Tók nú við erfið barátta við sjúkdóminn er að Iokum ,hafði: yfírhöndina. Á kveðjustund er margs að minnast frá liðnum árum með Ingú, Okkur eru þó efst í huga þau skipti er við gerðum okkur glaðan dag. Þá naut Inga sín vel, var hrókur alls fagnaðar og alltaf svo fín og vel til höfð. Inga var skapstór og mikil til- fínningavera, en þó að yfirborðið virtist stundum vera nokkuð hijúft, sló undir hjarta úr skíra gulli. Það vitum við sem kynnt- umst henni best, því hún var ákaf- lega raungóð og trölltrygg. Við þökkum henni samveruna og send- um hennar nánustu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Starfsfólk í erlendum viðskiptum Búnaðarbanka íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.