Morgunblaðið - 15.09.1994, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
£
HASKOLABIO
SIMI 22140
Sjáðu Sannar lygar í DTS Digital
tiasKoiaoio
Arnold Schwarzenegger, Jamie Lee Curtis og Tom Arnold
koma hér í mögnuðustu spennu- og hasarmynd ársins. James
Cameron magnaðasti spennumyndaleikstjóri okkar tima.
Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.10. B. i. 14 ára.
FJOGUR BRÚÐKAUP OG JARÐARFÖR
BLORABOGGULLINN
Jj/^our Wedditigs
and a Funeral '.
brGUDMi 0
AKUREYRI
Guðdómlegur gleðileikur með Hugh Grant,
Andie McDowell og Rowan Atkinson.
Vinsælasta mynd Breta fyrr og síðar.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.10 og 11.15.
„Stórfyndin og vel gerð mynd,
þrjár stiörnur" Ó.H.T. Rás 2.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
BLAÐIÐ-THE PAPER
Dramatísk gamanmynd um ævintýralegan sólarhring á
dagblaðinu The Sun í New York þar sem sannleikurinn
lendir í harðri samkeppni við fjárhag blaðsins og
eiginkonuna sem þolir ekki alla þessa yfirvinnu!
Stórleikararnir Michael Keaton, Glenn Close, Robert
Duvall og Marisa Tomei í nýrri mynd frá Ron Howard.
Frumsýnd á laugardag.
KIKA
Ny mynd frá Pedro Almodóvar.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.10.
STÆRSTA BÍÓIÐ. I
ALLIR SALIR ERU j
FYRSTA FLOKKS. I
SKÍÐAKAPPARNIR sem tóku þátt í öldungamótinu í Kerlingarfjöllum.
Vel heppnað öldungamót
í Kerlingarfj öllum
NOKKRIR reykvískir áhugamenn
um skíðaíþróttina stóðu fyrir
skíðamóti í Kerlingarfjöllum í síð-
asta mánuði. Þetta er í fjórða
skipti sem mót þetta er haldið.
Stefnt er að því að þetta verði í
framtíðinni árviss viðburður í
skíðalífí landsmanna.
Skráðir-keppendur voru 43. Því
er um að ræða eitt stærsta mót
í fullorðinsflokkum, sem haldið er
á íslandi 1994. Veður á mótsdag
var eins og best verður á kosið,
sól og blíða. Skíðafæri var með
miklum ágætum, sem best má sjá
á því að sama brautin var notuð
fyrir báðar umferðir.
Fyrirkomulag keppninnar er á
þann veg, að keppt er í tveim
greinum. Annarsvegar alvaran,
svig eða stórsvig eftir atvikum og
hinsvegar svigbraut með léttum
þrautum. „Alvörubrautin" var
lögð af Þórði Hjörleifssyni skíða-
þjálfara og var gerður góður róm-
ur að því verkj hans.
Grínbrautin var með þraut sem
var fólgin í því að henda snjóbolta
í mark. Hver keppandi fékk þrjá
bolta. Ef viðkomandi hitti í mark,
mátti hann fara beint niður braut-
ina. Ef ekki varð viðkomandi að
fara hliðarbraut og síðan inn í
aðalbrautina nokkru neðar. Höf-
undur og brautarlagningarmaður
var Hinrik Hermannsson.
Skíðamót af þessari stærðar-
gráðu verður ekki haldið nema
með hjálp góðra kvenna og
manna. Ekki er á neinn hallað að
nefna sérstaklega hjónin Walter
Hjartarson og Kristbjörgu Stein-
grímsdóttur, sem hafa starfað við
þetta mót frá upphafi. Þau sáu
um að ræsa keppendur og taka
tíma með fullkomnustu tækjum,
sem völ er á.
Um kvöldið var verðlaunaaf-
hending og flugeldasýning, áður
en dúndrandi dansleikur, söngur
og gleði, hófst hjá þeim ágætist
mönnum, sem reka og stjóma
skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum.
Morgunblaðið/Halldór
Hárið selst best
SÖLUHÆSTA HUÓMPLATA sumarsins er platan með lögunum
úr söngleiknum Hárinu, sem sýndur hefur verið fyrir fullu húsi
í íslensku óperunni í sumar við gífurlegar vinsældir. Nú nýver-
ið komu aðstandendur plötunnar saman í Skífunni á Laugavegi
og árituðu hina vinsælu afurð sína og sungu fyrír gesti og gang-
andi í hinum gamla góða „gæru-bongo hippastíl". Myndin var
tekin við það tækifæri.
Brokk-
gengur
Best
► GEORGE Best, einn mesti
snillingur knattspyrnusögunn-
ar, hefur þótt æði brokkgengur
um dagana þótt minna hafi bor-
ið á honum nú í seinni tið, enda
kappinn kominn fast að fimm-
tugu. Hann komst þó á síður
bresku blaðanna nýveríð þegar
upp komst um samband hans við
22 ára gamla flugfreyju, Alex
Pursey, sem hann hitti á nætur-
klúbbi, en samkvæmt bresku
pressunni hefur Best verið að
handfjatla pytluna full mikið að
undanförnu. Sambýliskona hans
til sjö ára, Mary Shatila, var að
vonum lítt hrifinn af framferði
Georges, enda hefur hún oft átt
erfiða daga í sambúðinni og svo
fór í þetta skipti, að hún flutti
út. Fylgir sögunni að George
hafi grátbeðið hana um að koma
aftur og samkvæmt öruggum
heimildum eru þau nú sameinuð
á ný. „George notaði orð sem
ég hef aldrei heyrt hann nota
áður: „Fyrirgefðu" og vonandi
gefur það fyrirheit um að batn-
andi manni sé best að lifa,“ er
haft eftir Mary i einu af bresku
George og Mary saman á ný.