Morgunblaðið - 15.09.1994, Qupperneq 52
m HEWLETT PACKARD
HPÁ ÍSLANOI HF Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika
pyi-|-i i - - Titmíiifirwni#i>iiw>MnrawMnriTWi«iyirinMwawiiwriIT
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
*
Norðmenn segja afla Islendinga í Barentshafi 50.0001
XIU telur aflann
30 þúsund tonn
AFLI skipa í íslenzkri eigu í Barentshafi er að öllum líkindum
orðinn um 30.000 tonn á þessu ári, samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna. Um ágizkun
er að ræða, þar sem nákvæmar tölur um afla upp úr sjó eru lengi
að berast til landsins. Pétur Örn Sverrisson hjá LÍÚ segir hins
vegar að 50.000 tonn, sem er tala sem Einar Hepso, formaður
Norges Fiskarlag, og fleiri Norðmenn hafa nefnt, sé fjarri lagi.
Morgunblaðið/Kristinn
Allir í jójó
JÓJÓ-æði hefur gripið um sig
meðal barna og unglinga síðustu
dagana. Jójó renna út í verslun-
um og eru viðskiptavinirnir á
aldrinum 4 til 18 ára. Samkvæmt
lauslegri könnun kosta leikföng-
in frá 99 krónum til á fjórða
hundrað króna eftir því úr hverju
þau eru. Æðið virðist hafa hafist
með heimsókn heimsmeistarans
í jójó, Brasilíumannsins Ivans
Hagens, og Islandsmeistara-
keppninnar í jójó sem nú stendur
yfir. A myndinni leikur Hafþór
Páll Bryndísarson listir sínar
með jójóið á Lækjartorgi.
Staðfestar, opinberar tölur frá
Fiskistofu um landanir á afla úr
Barentshafi, eru 13.000 tonn frá
skipum skráðum hér á landi, 1.600
tonn frá hentifánaskipum í eigu ís-
lendinga og 1.000 tonn, sem landað
hefur verið erlendis.
Samtals eru þetta 15.600 tonn.
Hins vegar gefa þessar tölur ekki
rétta mynd af þvi hver aflinn er
orðinn upp úr sjó, þar sem hátt í
50 skip eru á veiðum eða á heimleið
og hafa ekki landað afla sínum.
Aukinheldur tekur einhvern tíma
fyrir löndunarhafnir að skila af sér
tölum til Fiskistofu.
Hentifánaskip þurfa ekki
að tilkynna afla
Um miðjan ágúst tók gildi ný
reglugerð um veiðar íslenzkra skipa
utan fiskveiðilögsögunnar. Þar er
meðal annars kveðið á um að óheim-
ilt sé að halda út fyrir lögsöguna til
veiða án þess að tilkynna Fiskistofu
það.
Jafnframt er tekið fram í reglu-
gerðinni að fyrir 20. hvers mánaðar
beri skipum, sem stundað hafa veið-
ar utan fiskveiðilögsögunnar, að til-
kynna Fiskistofu afla undangengins
mánaðar.
Fiskistofa ætti því að hafa áreið-
anlegar tölur um afla íslenzkra skipa
í Barentshafi í kring um 20. septem-
ber. Hins vegar þurfa hentifánaskip-
in, sem ekki eru skráð hér á landi,
ekki að fara eftir ákvæðum reglu-
gerðarinnar. 1
Morgunblaðið/NTB
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, fór í útsýnisferð
um nágrenni Tromsö, en í norskum fjölmiðlum kemur skýrt fram
að norskum fiskimönnum finnst hann ekki velkominn gestur.
Fundur Barentsráðsins í Tromsö
Jón Baldvin vill
hitta Kozyrev
FUNDUR Barentsráðsins hófst í
Tromsö í Noregi í gær. í ráðinu sitja
utanríkisráðherrar íslands, Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands og Rússlands.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra hefur óskað eftir því að
hitta starfsbróður sinn rússneska,
Andrej Kozyrev, og ræða við hann
undir fjögur augu um fiskveiðar í
Barentshafi. Fiskveiðimál eru ekki
formlega á dagskrá fundar utanríkis-
ráðherranna.
Barentsráðið var stofnað í byrjun
síðasta árs og samanstendur af utan-
ríkisráðherrum ríkja, sem hagsmuna
eiga að gæta í Barentshafi. Ráðherr-
arnir eiga að hittast árlega til að
ræða umhverfismál, tækni- og vís-
indasamstarf, efnahagsmál, ferða-
mál, málefni frumbyggja, mannvirki
og menningar- og menntamál.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hann hefði óskað viðræðna við Koz-
yrev utan dagskrár fundarins til að
tala um fiskveiðimál í Barentshafi.
Jafnframt myndi hann ræða við
Bjorn Tore Godal, utanríkisráðherra
Noregs, um undirbúning fyrirhug-
aðra viðræðna embættismanna Is-
lands og Noregs um fiskveiðimál og
tímasetningu funda þeirra.
-------♦ ♦ ♦--------
Tveir menn björgxiðust naumlega af brennandi báti á Tálknafirði
„Logínn sveið
af mér hárið“
Tálknafirði. Morgunblaðið.
TVEIR MENN björguðust naum-
lega af brennandi báti úti á miðjum
Tálknafirði í gær. Eldur blossaði
fyrirvaralaust uppi í báti sem not-
aður er til laxafóðurgjafar og tókst
^mönnunum með naumindum að
komast upp á flotkvína sem þeir
ætluðu að setja fóður í.
Það var um klukkan 9.30 í
gærmorgun að Haraldur Björns-
son og Indriði Guðjónsson héldu
frá Iandi til fóðurgjafar. Skömmu
áður höfðu þeir fyllt fóðurgjafann
af laxafóðri og eldsneytistank fóð-
urgjafans, en hann er knúinn af
bensínvél og úðar fóðrinu yfir lax-
eldiskvína. Óhappið varð þegar
komið var að fyrstu kvínni.
Eldur blossar upp
„Ég var afturá og ræsti vélina,
þegar eldurinn blossaði upp fyrir-
varalaust,“ sagði Haraldur í sam-
tali við fréttaritara blaðsins. „Log-
inn sveið af mér hárið og ég sviðn-
aði í framan því ég var alveg við
vélina. Það var ekkert annað að
gera en að koma sér úr bátnum
og við Indriði gátum stokkið strax
út á flotkvína. Rétt á eftir komst
eldurinn í bensíntank utanborðs-
vélarinnar og eftir það varð ekki
við neitt ráðið.“
Tveir bátar til
bjargar mönnunum
Félagarnir ýttu bátnum frá flot-
kvinni og úr landi sást hvað var
að gerast. Sómabáturinn Gyðan
kom fyrstur á vettvang og komust-
mennirnin af kvínni í hann. Stuttu
síðar kom dragnótarbáturinn Jón
Júlí BA, en þar um borð var slanga
sem notuð var til að slökkva eldinn
í bátnum. Slökkvistarfið tók rúm-
an hálftíma, en þá var báturinn
allur brunninn, aðeins skelin eftir.
Tólf laxeldiskvíar
Haraldur og Indriði starfa hjá
laxeldisfyrirtækinu Þórslaxi hf. og
hafa haft það verkefni í sumar að
fara þrisvar á dag og gefa fóður
í tólf kvíar sem fyrirtækið elur lax
í úti á firðinum. Fóðurbáturinn
sem brann var fyrrverandi skak-
bátur og hafði verið notaður við
fóðurgjafirnar í nokkur ár.
Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir
GYÐAN og Jón Júlí BA komu til bjargar þegar eldur blossaði
upp í fóðurbáti Þórslax hf. í Tálknafirði í gær.
Bifreiða-
skoðun fær
samkeppni
BIFREIÐASKOÐUNARSTOFA
verður opnuð eftir áramót í Hafnar-
firði. Stofnað hefur verið hlutafélag
um rekstur hennar, Aðalskoðun hf.
Að hlutafélaginu standa 22 ein-
staklingar. Að sögn Gunnars Svav-
arssonar verkfræðings þekkja þeir
vel til bíltæknilegra þátta, skoðunar
ökutækja, gæðakerfa og faggilding-
ar skoðunarstofa en faggilding er
forsenda þess að skoðunarstofur fái
starfsleyfi hjá stjórnvöldum.
Gunnar segir að markmið Aðal-
skoðunar hf. sé að setja á fót al-
menna skoðunarstofu í Hafnarfirði
sem annist almenna skoðun öku-
tækja á höfuðborgarsvæðinu.
... ♦ ♦ ♦------
Nýr sér-
eignasjóður
KAUPÞING hf. hefur hafið starfsemi
Lífeyrissjóðsins Einingar. Að sögn
forráðamanna fyrirtækisins er Ein-
ing fyrsti séreignasjóðurinn með
tryggingavernd.
Samkvæmt útreikningum Kaup-
þings getur ungt fólk náð góðum líf-
eyrisspamaði, því sparnaðurinn
ávaxtast mikið á löngum tíma.
■ Fyrsti séreignasjóður/B3