Morgunblaðið - 29.12.1994, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jegor Gajdar gagnrýnir hernaðaraðgerðir Rússa í Tsjetsjníju
Yarar við hermdarverkum
sem gætu staðið í mörg ár
Moskvu. Reuter.
Loftárásir á Tsjetsjena
Tsjetsjenar sökuðu Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á úthverfi
höfuöborgarinnar Grosni í gær, að sögn
rússnesku Ítar-Tass fréttastof unnar
JEGOR Gajdar, fyrrverandi for-
sætisráðherra Rússlands, sagði í
gær að Borís Jeltsín forseti réði
ekki lengur við deiluna um
Tsjetsjníju og sagði að sú mynd
sem forsetinn hefði af ástandinu
þar væri ekki í samræmi við raun-
veruleikann.
Gajdar var einn af nánustu
bandamönnum Jeltsíns og er leið-
togi Rússnesks valkosts, flokks
umbótasinna. Hann varaði við því
að deilan gæti leitt til hermdar-
verka í Tsjetsjníju sem gætu stað-
ið í mörg ár eins og á Norður-
írlandi.
Jeltsín einangrast
Gagnrýni Gajdars er til marks
um vaxandi óánægju með hem-
aðaraðgerðirnar í Tsjetsjníju
meðal áhrifamikilla stjórnmála-
manna í Rússlandi. Jeltsín virðist
hafa einangrast og sætir nú
harðri gagnrýni umbótasinna og
fijálslyndra blaða, sem hafa hing-
að til stutt hann. Áhrifamiklir
hershöfðingjar hafa einnig hvatt
til þess að hernaðaraðgerðum
Rússa verði hætt, þeirra á meðal
Borís Gromov aðstoðarvarnar-
málaráðherra.
Fær villandi upplýsingar
Gajdar sagði að fregnir um
árásir Rússa á Grosní í gær
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra
ísraels, sneri á þriðjudagsmorgun
aftur heim úr tæplega eins dags
heimsókn til Omans við Persaflóa.
Qaboos bin Said soldán bauð honum
til landsins til að styrkja friðarþróun
í Miðausturlöndum en að sögn ráðu-
neytisstjóra Rabins var það skilyrði
sett að heimsóknin yrði leynileg.
Ekki var skýrt nánar frá því
hvað rætt var um í Múskat, höfuð-
stað Ómans. ísraelska útvarpið
komst á snoðir um ferðina meðan
Rabin var enn í Óman en þetta mun
vera í fyrsta sinn sem ísraelskur
forsætisráðherra sækir heim ríki á
Arabíuskaga.
Ekkert Flóaríkjanna hefur áður
haft nein formleg samskipti við
BILL Clinton er dáðasti maður
Bandaríkjanna, samkvæmt skoð-
anakönnun sem gerð var af Gallup
fyrir CNN/USÁ Today og birt var
í gær.
í öðru sæti í könnuninni lenti
Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkja-
forseti, sem mikið hefur verið í
fréttum á árinu vegna milligöngu
sinnar í N-Kóreu, Haítí og Bosníu.
gengju í berhögg við þá yfirlýs-
ingu Jeltsíns í sjónvarpsávarpi á
þriðjudag að hann hefði gefið
ísrael. ísraelar sömdu fyrir skömmu
við Jórdani um full stjórnmála-
tengsl og samstarf á ýmsum svið-
um. Er Rabin hélt heim frá Wash-
ington 1993 eftir að hafa undirritað
samninga við Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, kom hann
óvænt við hjá Hassan Marokkókon-
ungi í Rabat. Nýlega sömdu ísrael-
ar við Marokkómenn og Túnismenn
um að skiptast á viðskiptafulltrú-
um.
Óman er eitt sex arabaríkja sem
eiga aðild að Samstarfsráði Flóa-
ríkja, hin eru Bahrain, Kúveit, Qat-
ar, Saudi-Arabía og Sameinuðu fur-
stadæmin. í september aflétti ráðið
45 ára gömlu viðskiptabanni gegn
Israel.
Þær konu , sem Bandaríkjamenn
reyndust dá mest voru eiginkona
Bandaríkjaforseta, Hillary Clinton,
og Móðir Teresa. Vermdu þær sam-
eiginlega 3. sætið í könnuninni.
í fjórða og fimmta sæti lentu þær
Margaret Thatcher, fyrrum forsæt-
isráðherra Bretlands, og sjónvarps-
konan Oprah Winfrey.
fyrirmæli um að árásunum á
borgina yrði hætt.
„Ég var mjög ánægður þegar
DANSKUR áhugamaður um
fornleifafræði hefur fundið fjár-
sjóð frá víkingatímabilinu, þús-
und ára gamla silfur- og gullpen-
inga og armbönd, að sögn Ritzau-
fréttastofunnar á þriðjudag.
forsetinn fyrirskipaði að
sprengjuárásunum á Tsjetsjníju
yrði hætt, en við höfum upplýs-
ingar um að árásimar á Grosní
haldj áfram í dag,“ sagði Gajdar.
„Ég tel hættuna á því að deil-
an leiði til langvarandi óstöðug-
leika í Tsjetsjníju, Íngúshetíu og
Dagestan mjög alvarlega," sagði
hann og vísaði til nágrannahér-
aða Tsjetsjníju.
„Þá yrði að öllum líkindum
ekki um beina bardaga að ræða
heldur hermdarverk eins og á
Norður-írlandi sem gætu staðið
í mörg ár.“
Gajdar sagði að Jeltsín reiddi
sig á villandi upplýsingar frá
rússnesku leyniþjónustunni.
„Menn ráða ekki við ástandið ef
þeir fá ekki raunsæja mynd af
ástandinu."
Shevardnadze
ver aðgerðirnar
Edúard Shevardnadze, leiðtogi
Georgíu, réttlætti í gær hern-
aðaraðgerðir Rússa í Tsjetsjníju
og sagði að ef ekki tækist að
koma í veg fyrir aðskilnað hér-
aðsins frá Rússlandi myndi það
leiða til glundroða „á evrópska
meginlandinu og ekki aðeins í
Evrópu“.
Daninn notaði málmleitartæki og
fann fjársjóðinn í Ramlose, ná-
lægt Kaupmannahöfn. Hann
fann alls 450 muni og er þetta
einn mesti víkingafjársjóður sem
fundist hefur í Danmörku.
Eftirmað-
ur Epsys
skipaður
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti tilnefndi í gær Dan Glick-
man sem eftirmann Mike Epsy
landbúnaðarráðherra. Glick-
man er demókrati frá Kansas,
sem tapaði í kosningum til öld-
ungadeildarinnar í nóvember.
Lukashenko
gegn þinginu
ALEXANDER Lukashenko,
forseti Hvíta-Rússlands, sak-
aði í gær þing landsins, fjöl-
miðla og þá sem stæðu að
skipulagðri glæpastarfsemi,
um að rýra traust almennings
á sér. Sagðist hann ekki
myndu láta koma sér frá emb-
ætti og lofaði því að greiðslur
og laun til eftirlaunaþega,
námsmanna og verkamanna
yrðu hækkaðar.
Fatlaður á
Suðurpólinn
HANDLEGGJALAUS Norð-
maður varð á þriðjudagskvöld
fyrsti fatlaði maðurinn til að
komast á Suðurpólinn. Cato
Zahl Pedersen, 34 ára, var í
för með tveimur öðrum mönn-
um. Hófst ferðin 4. nóvember
sl og hefur Zahl Pedersen
dregið um 100 kg. þungan
sleða með vistum. Náð verður
í mennina 6. janúar.
Mannskætt
umferðarslys
AÐ minnsta kosti fimmtíu
manns létu í gær lífið er rúta,
sem þeir voru farþegar í, rakst
á gasleiðslu við borgina Matur-
in í Venesúela. Við áreksturinn
varð gríðarleg sprenging.
Fjölgun Erm-
arsundsferða
LESTARFERÐUM á milli
Lundúna og Parisar um Erm-
arsundsgöngin verða tvöfalt
fleiri frá og með áramótum,
fjölgar úr tveimur í fjórar. Þá
verður helmingsfjölgun á ferð-
um á milli Lundúna og Bruss-
el.
Afsögn
stjórnarand-
stöðuleiðtoga
LEIÐTOGAR stjórnarand-
stöðunnar á þingi Bangladesh,
sögðu í gær af sér. Er afsögn-
in tilraun til þcss að koma
stjórninni frá. Óeirðalögregla
gætir nú þinghússins en
stjómarandstaðan hefur boðað
frekari aðgerðir gegn stjóm-
inni.
Fergie dreg-
ur úr eyðslu-
seminni
SARAH Ferguson, hertoga-
ynja af York, hefur strengt
þess heit að draga úr eyðsiu-
seminni á komandi ári. Þá
heitir hún þess einnig að reyna
að ýta undir sjálfstraustið.
Þetta kom fram í viðtali í nýj-
asta hefti Hello.
Fyrsta heimsókn ísraelsks
forsætisráðherra til Flóaríkis
Omanar leitast
við að styrkja
friðarþróunina
Jerúsalem. Reuter.
Danskur víkingafjársjóður
Clinton dáðastur
New York. Reuter.