Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 48
 RISC System / 6000 <Ö> NÝHERJI Í m HEWLETT PACKARD H P Á iSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVtK, SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Vestmaimaeyjar Sex ára telpa lést BANASLYS varð í Vestmannaeyj- um í gær. Sex ára telpa lést þegar snörp vindhviða skellti útihurð fjöl- býlishúss aftur, en telpan varð milli stafs og hurðar. Slysið varð um kl. 15 í gær, en að sögn lögreglunnar í Vestmanna- eyjum var þá allhvasst og gekk á með mjög snörpum vindhviðum. Telpan var strax flutt á sjúkra- húsið í Vestmannaeyjum, en talið er að hún hafí látist samstundis. Ekki er unnt að birta nafn litlu telpunnar að svo stöddu. ♦ ♦ ♦----- Flugleiðir ekki í Holi- dayInn NÚ LÍTUR út fyrir að ekkert verði af kaupum Þróunarfélags íslands á Holiday Inn hótelinu við Sigtún, en félagið ætlaði að leigja Flugleiðum hótelið. Samvinnulífeyrissjóðurinn, sem eignast að öllum líkindum hótelið með makaskiptum á því og Sam- bandshúsinu, er nú í viðræðum við Kaupgarð hf. um kaup á því. Kaupgarður hf. á Hótel Reykja- vík á Rauðarárstíg og hefur einnig átt í viðræðum við eigendur Skíða- skálans í Hveradölum um kaup á skálanum. ■ Rætt við Kaupgarð/Bl Flugeldar fyrir LANDSMENN skjóta flugeldum á loft um áramót fyrir um hálfan milljarð króna. Margir eru að berjast um hituna í flugeldasölu og samkeppnin hefur gert það að verkum að verðið hefur sums Morgunblaðið/Árni Sæberg hálfan milljarð staðar lækkað frá því í fyrra. Myndin var tekin síðdegis í gær, þegar flugeldasýning var haldin við Perluna. ■ Ljósadýrð/14 Síðasti fundur í sjúkraliðadeilu fyrir áramót var árangurslaus Sjúkraliðar segja kröfurnar breyt- ast á nýju ári SEINASTA samningafundi ársins í deilu sjúkraliða lauk án árangurs í gær. Viðsemjendur hittast að nýju 2. janúar nk., en Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Félags sjúkraliða, kveðst ekki sjá mikinn tilgang með boðuðum fundi. „Kröfur okkar hljóta að verða skoðaðar eftir áramót með tilliti til þess að við erum að fara að semja á sama tíma og aðrir viðsemjendur ríkisvaldsins og að ekki hefur verið samið við okkur í tvö ár, sem kallar væntanlega á þá breytingu á kröfum að eitthvað komi inn sem vegi upp á móti þeim tíma sem við höfum verið samningslausar,“ segir Kristín og kveðst telja sjúkraliða geta hald- ið út alllangt verkfall til viðbótar. Málið breytt eftir áramót Á fundinum í gær var lagt fram ítrekað tilboð frá 9. desember um að sjúkraliðar gengju frá kjarasamn- ingi sem gilda mundi til áramóta og eftir það færi launadeila sjúkraliða fyrir nefnd sem úrskurða myndi um launakjör í samræmi við aðrar heil- brigðisstéttir. Sjúkraliðar höfnuðu endanlega þessu tilboði. Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefnd- ar ríkisins, kveðst hafa kosið að leysa deiluna á grundvelli þeirra hug- mynda sem lagðar voru fram 9. desember, og um farsælli kost hafí verið að ræða en þann sem blasir við á nýju ári. Niðurstaðan nú sé vissulega vonbrigði. Ljóst sé að málið í heild mun breytast eftir ára- mót. „Þá verðum við að miða við samning til lengri tíma og skamm- tímalausnir eru þar með úr sögunni. Einnig erum við komnir með samn- ingsgerð á tíma sem svo til allir aðrir samningar eru einnig lausir, sem veldur auðvitað vanda,“ segir Þorsteinn. Vinna sú sem fram hafi farið til þessa muni þó vonandi skila sér í mörgu tilliti. Kristín segir sjúkraliða hafa skoð- að hvort þeir gætu nálgast tilboð ríkisins frekar þegar bryddað var upp á hugmyndum um að frumvarp um lögverndun til handa sjúkraliðum yrði lagt fram að nýju. Reyndar sé búið að ganga frá því að lögverndun yrði tekin úr frumvarpinu, þar sem sýnt þótti að það ákvæði væri í al- gjörri andstöðu við hugmyndir verkalýðshreyfingarinnar. I frum- varpinu sé aftur á móti grein sem geri sjúkraliðum kleift að starfa með læknum, jafnframt störfum á hjúkr- unarsviði, er gæti stuðlað að lausn. „Við lögðum til þann möguleika að úrskurður gerðardóms gæti bæst ofan á þann samning sem liggur fyrir, sem skila myndi 8-10% launa- hækkun í heildina, og að tryggt væri að frumvarpið færi fram. Mér skiist að fjármálaráðherra sé alfarið á móti því að hreyfa sig í þá átt,“ segir Kristín. Þorsteinn segir þessar hugmyndir sjúkraliða óraunhæfar. Vinnslustöðin gagnrýnir afgreiðslu skráningar á Yerðbréfaþingi Óskað eftir að viðskipta- ráðherra rannsaki málið VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vestmannaeyjum og verðbréfafyrirtækið Handsal hf., sem hefur umsjón með 300 millj. kr. hlutafjárútboði Vinnslustöðvarinn- ar, hafa gert alvarlegar athugasemdir við afgreiðslu stjómar Verðbréfaþings íslands á umsókn um skráningu Vinns'ustöðvarinnar á Verðbréfaþingi. Eirík- ur Guðnason, stjórnarformaður Verðbréfaþingsins, vísar gagnrýninni á bug og segir að umijöllun stjórnarinnar hafí verið með eðlilegum hætti. Hún hafí þegar samþykkt að skrá Vinnslustöðina á Verðbréfaþingi en vilji hins vegar ekki taka hlutabréfín á skrá fyrr en hlutabréfaútboðinu sé lokið. Alþjóðaviðskiptastofnunin Island stofnaðili ÍSLAND verður stofnaðili að Al- þjóðaviðskiptastofnuninni sam- kvæmt samkomulagi sem tekist hefur meðal allra stjórnmálaflokk- anna á Alþingi. Þingsályktunartil- laga verður lögð fyrir Alþingi í dag, þar sem ríkisstjórninni er heimilað að fullgilda samning þessa efnis. í tillögunni er ennfremur kveðið á um að óbreytt fyrirkomu- lag gildi um innflutning landbúnað- arvara þar til lagabreytingar hafí verið gerðar Halldór Blöndal, landbúnaðar- ráðherra, lýsir yfír ánægju með samkomulagið og segir að það sé í samræmi við fyrri samþykktir og stefnu ríkisstjórnarinnar. Jón Bald- vin Hannibalsson, utanríkisráð- herra, sagði að samkomulagið tryggði að Island yrði stofnaðili og það væri sögulegur viðburður sem myndi hafa áhrif fram á næstu öld. ■ Landbúnaðarráðherra/25 Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að stjórn Verðbréfaþingsins hafi meðhöndlað fyrirtækið á ósanngjarnan hátt. Hann segir að Vinnslustöðin bíði verulegan skaða af því að fá ekki hlutabréfin skráð á þinginu fyrir áramót. Hafa Sig- hvatur og fulltrúar Handsals sent viðskiptaráðherra bréf og farið fram á rannsókn á málinu. Að sögn Sig- hvats gerði stjórn Verðbréfaþings athugasemdir við útboðsgögn, sem voru strax teknar til greina, en í framhaldi af því hefðu komið fram nýjar og sérkennilegar athugasemd- ir, m.a. ,um lágt eiginfjárhlutfall. Gagnrýnir samsetningu stjórnar Verðbréfaþings Sighvatur sagði að samsetning stjórnar Verðbréfaþingsins vekti upp spurningar, en þar væru aðilar sem væru kannski ekki vilhallir Vinnslu- stöðinni. „Við teljum að það sé ekki rétt, í ljósi atburðarásarinnar undan- farna mánuði, að það séu þarna ákveðnir aðilar í stjórninni sem eru að fjalla um okkar umsókn," segir hann. „Við vildum fá þetta afgreitt fyrir áramót til þess að taka þátt í áramótasölunni á hlutabréfum og ég hef áhyggjur af því að Verðbréfa- þingið hafí beinlínis verið að reyna að ftesta afgreiðslu málsins til þess að draga úr sölu," segir Sighvatur. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að hver einasti maður í stjórn Verðbréfaþingsins fjalli um skráningu hlutabréfa málefnalega og eingöngu með hagsmuni verðbréfa- markaðarins í huga,“ segir Eiríkur Guðnason. í stjórninni sitja, auk Ei- ríks, Guðmundur Hauksson og Gunn- ar Helgi Hálfdánarson, skipaðir af þingaðilum, Árni Vilhjálmsson og Þorkell Sigurlaugsson, skipaðir af hlutafélögum, Þorgeir Eyjólfsson, skipaður af lífeyrissjóðasambönd- unum og Erna Bryndís Halldórsdótt- ir, skipuð af viðskiptaráðherra. Aðspurður livort fordæmi væru fyrir því að allt hlutafé í útboði þyrfti að seljast áður en skráning þess gæti hafist sagði Eiríkur að ekki væri löng reynsla af skráningu hluta- bréfa, síst af öllu á sama tíma og útboð stæði yfír. Sighvatur Björgvinsson viðskipta- ráðherra staðfesti í gærkvöldi að hann hefði fengið umrædd bréf en væri ekki búinn að kynna sér málið. Morgunbtaðið/Sigurður Jónsson Gekk 1 km á náttfötunum ájólanótt ANDRI Einarsson, þriggja ára drengur á Selfossi, reis úr rekkju á miðri jólanótt, fór í stígvélin sín og gekk á náttfötunum heim til vinar síns, um eins kílómetra leið. Faðir Andra, Einar Gunnar Sigurðsson, telur víst að hann hafi gengið í svefni hluta af leið- inni. Á myndinni er Andri á tröppunum hcima hjá vini sínum, Skarphéðni Njálssyni. ■ Sá jólaljósið/4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.