Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 1
Meö annan fótinn í veruleikanum ** SUNNUDAGUR SUNNUUAGUR 29. JANUAR 1995 BLAÐ B jA r|' i ÍJ • ÞRÁTT fyrir alla þá tækni, sem samtíminn býr yfir, eru sér- fræðingar komnir lítt áleiðis í rannsóknum á starfsemi og stjórnun mannslíkamans. Eitt af því sem augu manna beinast að í æ ríkari mæli eru hugsanleg áhrif rafsegulsviós á heilsu og vellíðan manna. Jóhanna Ingvarsdóttir fjallar um þennan nýja „heilsuspilli“, sem sumir vilja meina að sé í beinum tengslum við húsasótt og sí- þreytu. • VÍÐAST hvar er til fólk, sem er sannfært um aó rafsegul- mengun hafi einhver áhrif á lík- amann og það jafnvel töluverð. Rafsvið og segulsvið mynda rafsegulsvið, sem er allt í kring- um okkur, mismikið þó og fer eftir því hversu sterkur straumur- inn er. Yfir 30 ár eru nú liðin síðan menn fóru fyrst að velta vöngum yfir hugsanlegum áhrif- um rafsegulsviós á heilsu manna og á síðari árum hafa grun- semdir einkum beinst að krabbameinshættu. Ekki hefur neitt verið sannað í því efni þó norrænar, bandarískar og breskar rannsóknir hafi sýnt fram á tengsl milli hvítblæðis í börnum og búsetu í nálægð við raf- magnsmannvirki. I kjölfarið brugðu dönsk yfirvöld á það ráð að skipuleggja raforkuver og raflínur með tilliti til grun- semda, sem uppi voru. Þá hafa Norðmenn nýlega sett í reglu- gerð að leikvelli og skóla megi ekki byggja í námunda við spennistöðvar. • SJÓNUM hefur verið beint aó ónæmiskerfinu hvað varðar tengslin milli líkamskvilla og raf- segulsviðs, en að mati margra rannsakenda virðist sem segul- svið hafi neikvæð áhrif á getu líkamans til að bregðast við sjúk- dómum auk þess sem það virð- ist viðhalda bakteríum og mat- aróþoli af ýmsum toga. • RAFSEGULÓÞOL er sagt lýsa sér m.a. með útbrotum, kláða og sviða í húð, þreytu, öndun- arerfiðleikum, höfuðverk og svitaköstum. Einnig getur borið á þurrki í munni, rauðum augum og tárum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.