Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÁNÚAR 1995 B 25 Vín og drykkir í Perlunni MATUR OG FYRSTA íslenska vínsýn- ingin, „Vín og drykkir 1995“, var haldin í Perl- unni helgina 13.-15 jan- úar. Mikið var lagt í sýningarbása og margar skemmtilegar nýjungar kynntar. Það er greinilegt að það er mikil getjun í þessum geira. Sýning af þessu tagi hefði vart verið framkvæmanleg fyrir ári. Ahugi almennings var einnig veru- legur og sóttu nokkur þúsund manns Perluna heim þessa helgi. Það er kannski tímanna tákn að þrátt fýrir að þeim þúsundum sem þarna komu gæfist fræðilega séð kostur á að innbyrða eins mikið áfengi og þau lysti í þrjá daga samfleytt sást varla vín á nokkrum manni. Gestir, hvort sem um var að ræða fagfólk eða áhugasama einstaklinga, nutu þess að ganga um básana, spá í nýjungar, ræða við fulltrúa þeirra fyrirtækja er voru með bása á sýningunni og hitta aðra áhuga- menn um góð vín. Það eina við sýninguna, sem að minu mati var umdeilanlegt, er sú aðferð að blanda saman öllu: Rauðvíni, hvítvíni, bjór, styrktum vínum, líkjörum, koníaki, vískýi, vodka og svo framvegis. Auðvitað væri skynsamlegast að hafa hrein- ræktaða vínsýningu því að eftir að hafa smakkað eitt koníak eða tvö eru bragðlaukamir orðnir ónæmir fyrir öllum þeim góðu rauðvínum sem kunna að koma á eftir. Staðreyndin er samt sú að eins lítill og vanþróaður (í þeim skiln- ingi að hefðir fyrir sýningum og uppákomum af þessu tagi eru vart til staðar) og íslenski mark- aðurinn er ennþá, þó að hlutirnir gerist nú hratt, þá er annað vart raunhæft en að blanda þessu sam- an. Annað væri fjárhagslega óframkvæmanlegt. En ágætt var úrvalið samt og hér á eftir gefst einungis tækifæri að tæpa á því Sýningin Vín og drykkir var vel heppnuð, segir Steingrímur Sigurgeirsson, og ljóst að mikil gerjun á sér stað í íslenskum vínmálum. helsta. Ýmislegt sem þama bar fyrir augu verður að bíða betri tíma og ítarlegri umfjöllunar. ítalskt ljúfmeti í bás Rolfs Johansens bar hæst fjölmörg vín frá ítalska fyrirtæk- inu Pasqua í Verona en einhver þeirra munu vonandi verða fáan- leg hér á landi í framtíðinni. Kom forstjóri fyrirtækisins, Carlo Pasqua, hingað til lands vegna sýningarinnar og kynnti gestum vín sín. Þrjú vín frá Pasqua hafa raunar verið fáanleg í ÁTVR undanfarið og þó um sé að ræða einföldustu vín Pasqua-fjölskyldunnar em þau samt sem áður ágæt kaup miðað við verð. Auk þessara þriggja vína (Pinot Grigio, Merlot og Negarine Valpolicella Classico) mátti á sýn- ingunni smakka úrval annarra sem vonandi verða fáanleg á frí- svæði í framtíðinni. í hvítu vil ég nefna Lugana (skarpt og skemmtilegt Trebbiano-vín í góðu jafnvægi) og Valdari Pinot Grigio (fallega rúnnað, skemmtilegur (sí- trus)ávöxtur) og í rauðu Cabernet- Merlot (alþjóðlegt en ljúft með kirsubeijum í öndvegi), Vigneti Castema Valpolicella Classico Su- periore (fínlegt og létt), Morago Riserva (vel þroskað með þægi- legri sým, gæti verið léttur Borde- aux eða Cab. Sauv frá t.d. Chile) og loks Vigneti Casterna Amarone Recioto (hindber og blábeijasulta, vel áfengt vín sem á töluverðan líftíma fyrir höndum). Tilhlökkun- arefni! Ensk vín og sænsk Ensk vín verða ekki á vegi manns á hveijum degi. Breska sendiráðið var með bás á sýning- unni þar sem hægt var að smakka á nokkrum enskum vínum, m.a. frá framleiðandanum Denbies. Þó að vingerð hafi borist til Englands líkt og fleiri landa með Rómveijum var það ekki fyrr en á sjötta ára- tug þessarar aldar sem vísir að enskum víniðnaði komst á laggirn- ar. England er með nyrstu vín- framleiðslulöndum veraldar og vínunum svipar um margt til þýskra vína. Flest þau vín sem voru á sýningunni reyndust ágæt, komu skemmtilega á óvart og vöktu það mikla forvitni gesta að þau kláruðust löngu áður en sýn- ingunni lauk. Sænsk vín eru enn sjaldgæfari en ensk. Fyrirtækið S.K. Ingi- mundarson kynnti m.a. þijú vín frá Hasslö Vinmakare. í raun eru þessi vín ekki sænsk að öllu ieyti. Þrúgusafínn er fluttur inn frá Suður-Afríku og getjaður og sett- ur á flöskur í Svíþjóð. Sænska fjöl- skyldan, sem framleiðir þessi vín, stundaði víngerð í Kaliforníu um margra ára skeið. Vínin þijú, Röd Calle (Cabemet Sauvignon með 5% sólbeija- blöndul), Chenin Blanc og „Blush“ eru öll lítil og nett. Ekki vín sem maður hrífst beinlínis af en samt ekki fráhrindandi. Ég hafði mest gaman af hugmyndinni og flösk- umar em mjög smartar og gætu einar og sér eflaust aflað þessum vínum vinsælda. Verðið er heldur ekki slæmt eða 655-690 krónur fyrir 50 cl flösku. Einna mest úrval góðra léttvína var að fínna hjá Austurbakka. Nefna má mjög skemmtileg Rioja- vín frá fyrirtækinu Beronia, sem væntanleg eru á reynslulista með vorinu, og fjölda Búrgundarvína frá Pierre Ándré, m.a. ágætan Pouilly-Fuissé, glæsilegan Pul- igny-Montrachet og í rauðu allt frá einföldum en stílhreinum og gallalausum Pinot Noir uppi í magnaðan Corton-Pouget. Persónulega fannst mér þó meira koma til Bordeaux-vínanna hjá þeim ef tekið er mið af verði. Indæl St. Emilon vín: Chateau Roc St. Michel og ekki síður Chateau Gaillard de la Gorce. Chateau Pape Clement (Graves) var yndis- legt en dýrt. Aftur á móti sýndist mér Moulin de T („deuxiem“-vínið frá Talbot) gefa frábærlega mikið fyrir hóflegt verð. Glóbus er annað mjög umsvifa- mikið og framsækið fyrirtæki á þessu sviði. Höfuðáherslan hjá þeim var á nýtt Bristol Cream og Morgunblaðið/Þorkell CARLO Pasqua frá Verona kynnir vín sín. LÆKNARNIR Einar Thoroddssen og Börkur Aðalsteinsson héldu fræðslunámskeið fyrir gesti á sýningunni. Finlandia Cranberry, sem vænt- anleg eru á markað innan tíðar. Á sýningunni var einnig staddur hinn welski Terry Price frá Bouc- hard Ainé & Fils (þekktastir hér á landi fyrir m.a. Pouiliy Fuissé og Beaujolais Nouveau og nú síð- ast Hospice de Beaune og Fixin á sérlista) og hjá honum var m.a. hægt að bragða á jafnt hvítvíni sem rauðvíni frá Mercury. Þessi Búrgundarvín hefur verið hægt að fá á veitingahúsum undanfarið ár og hafa þau fallið mér mjög vel í geð. Góð Búrgundarvín fyrir gott verð. Moltó kynnti úrval þýskra vína, sem því miður eru einungis fáan- leg á frísvæði og í dýrara lagi (1.200-1.600 krónur). Fyrir unn- endur þýskra gæðavína eru þetta þó líklega þau bestu, sem hér standa til boða. Af þeim sem ég smakkaði hreifst ég sérstaklega af Schliengener Burg Neuenfels Gewúrztraminer 1992 Spátlese og Schliengener Sonnenstuck Muska- teller Trocken. Skemmtilega á óvart kom líka rauðvínið Schlieng- ener Sonnenstuck Spátburgunder 1990. Þó að litur og ilmur hafi gefíð til kynna ákveðið léttvægi reyndist bragðið mun þyngra. Milliþungt rauðvín sem gæti pass- að mjög vel með forréttum eða léttum aðalréttum. Hagstæð Eiswein Annað fyrirtæki sem bauð upp á skemmtileg vín úr hinum þýsku- mælandi hluta Evrópu var Suður- nesjafyrirtækið Bassi. Hjá þeim voru kynnt Beaujolaisvín frá Pierre Ferraud, Elsass-vín frá Pfaffenheim og austurrísk vín frá Weinkellerei Burgenland. Hin síðarnefndu reyndust mjög frambærileg. Þurru vínin Muscat og Pinot Blanc vönduð og þétt og sætu dessertvínin tvö Beerenaus- lese og Eiswein voru hreinasta ljúfmeti, ekki síst þar sem verðið reyndist vera mjög viðráðanlegt miðað við mörg sambærileg þýsk vín. Önnur athyglisverð vín, sem þama voru kynnt og vel em þess virði að gefa gaum, vom til dæm- is Mirafiore Barolo 1988 og Ca- stello Gancia'” Brat, sem EÍdhaka kynnti; ágætt Mouton Cadet rósa- vín frá Vínlandi; Domaine Saint Benoit Chataeuneuf de Pape frá Vínlist; Martini Asti frá G. Helga- syni og Melsteð og ljúffengir Ástr- alir framleiddir af Wolf Blass, sem Júlíus P. Guðjónsson flytur inn. Ekki síst Shiraz President’s Collection er vel þess virði að leggja á sig umstangið í kringum frísvæðispantanir. Þetta ER ógeðslegt! GAMLAR hefðir þurfa ekki endilega að vera góðar. Sumar era þess eðlis að þær mættu vel falla í gleymsku. Ég geri mér fyllilega grein fyrir að ég tilheyri mjög fámennum minnihluta þessarar þjóðar þeg- ar ég held því fram að þorramatur sé slík hefð. En það verður bara að hafa það. Þorra„matnum“ verður liklega ekki út- rýmt úr íslenskum fæðuvenjum úr þessu. En hann skánar ekki við það. Auðvitað er það sem borið er fram á þorratrogunum ekki alvont. Harðfiskur og hangikjöt era til dæmis ágætis matur. Jafnvel sviðatung- ur geta verið ljúffengar ef hráefnið er gott (hins vegar er framsetningin ekki lystauk- andi). Þetta er samt matur sem íslendingar borða meira og minna allt árið. Það eru súrmetið, selshreifarnir, hákarlinn og annað af því tagi sem fá magann á mér til að herpast saman. Ég ætla að gera stuttlega grein fyrir hvers vegna. Matur er heildarupplifun. Hann er menningarlegt fyrirbæri og hann höfðar til allra okkar skynfæra: •ÚTLIT. Það skiptir miklu máli hvernig matur lítur út. Fagurgrænt grænmeti, blóð- rautt nautakjöt eða litríkir ávextir endur- spegla líf og ferskleika. Það gerir þorramat- urinn ekki. Hann er litlaus, náfölur, grár °g gugginn og hefur yfír sér skemmt og óheilbrigt yfírbragð. •ILMUR. Áður en maður tekur fyrsta bit- ann nemur maður oftast ilm matarins. Hann segir meira en margt annað enda lyktarskynið mun fullkomnara en bragð- skynið. Þorramatur ilmar ekki. Það er af honum óþefur. Hrútspungar, súrt slátur og annað af því tagi lyktar líkt og mjólkurvara sem gleymdist í ísskápnum áður en maður hélt í langt frí til útlanda. Skápurinn bilaði degi síðar og það kom hitabylgja. Annar þorramatur, s.s. hákarl, minnir aftur á móti einna helst á einhver efni sem hægt væri að nota ef salernið stíflaðist. •BRAGÐ. Það er nautn að finna bragðið af góðum mat. Þorramatur bragðast hins vegar þannig að menn sjá sig tilknúna til að skola því burtu með brennivíni. Miklu brennivíni og helst áður en þeir fínna bragð- ið. •LÍKAMLEG ÁHRIF. Að lokinni góðri máltíð líður manni vel á líkama og sál og maður er sáttur við Guð og menn. Að lok- inni þorramáltíð hefur maður ónotatilfínn- ingu og það er greinilegt að líkamanum hefur verið misboðið. Slíkt getur ekki haft góð sálræn áhrif. •MENNINGARLEGI ÞÁTTURINN. Hver er menningin á bak við vinsældir þorramat- arins? Ég held að hluti skýringarinnar sé að hann höfði til frumeðlisins, einhverrar víkingataugar í þjóðarsálinni. Eitt af því helsta sem skilur manninn frá dýranum er siðmenningin við matarborðið. í þorraveislu er hægt að strika þá siðmenn- ingu út með einu pennastriki, grípa sviðakj- amma með höndunum, plokka út augun með puttunum, ropa, kneyfa öl og hafa hátt. Mannasiðir verða afkáralegir í þessu umhverfi. Það hversu illa þessi matur bragðast gerir hann einnig að mannraun. Menn sanna eitthvað fyrir sjálfum sér og öðrum með því að háma í sig. Eitthvað frumstætt og „macho". Þorramatur skipar því svipaðan sess og það að drekka vodkaflösku í einum teyg eða vera raddalegur við kvenfólk. Hjá mörgum virðist þorramaturinn fyrst og fremst vera afsökun fyrir því að drekka ótæpilega mikið af áfengi. Og raunar skil ég vel að fáir geti hugsað sér að láta svona lagað ofan í sig ef þeir eru ekki undir áhrif- um. En er þá ekki betra að viðurkenna það hreinlega að manni þyki gott að fá sér áfengi með matnum og borða og drekka i staðinn eitthvað sem að auki bragðast vel? Ég hefði haldið það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.