Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ '"''KV IKMYNDI Rvwxxv Hverjir verba útnefndir til Óskarsins? Reyfamkennt úrval ÞAÐ er komið að því að spá í Óskarsspilin eina ferðina enn. Eftir tæpan mánuð verður tilkynnt hverjir hljóta útnefningar til eftirsóttustu verðlauna kvikmyndaheims- ins, sem afhent verða 27. mars, og að þessu sinni er alls óvíst hvemig spilin raðast upp ólíkt því sem gerðist í fyrra þegar nokkuð öruggt þótti að Steven Spielberg rakaði saman styttum útá Lista Schindlers og Júragarðinn. HIN og þessi gagnrýn- endasamtök og stofn- anir vestra hafa þegar verð- launað myndir síðasta árs og sýnt með því hveijar helst mmmmmmmmmmm eru í um- ræðunni. Gagnrýn- endur í bæði Los Angeles og New York hafa valið Quentin Tarantino eftir Arnald Indriðason sem besta leikstjóra ársins og besta handritshöfund auk þess sem myndin hans, Reyf- ari, er víðast á toppnum yfir bestu myndir síðasta árs. Tarantino mun því koma mjög sterklega til greina og leikararnir hans, sérstaklega Samuel L. Jackson fyrir „Eldmessuna" í lok Reyfara og jafnvel diskógoðið Tra- volta, sem átt hefur mögnuð- ustu endurkomu síðustu ára- tuga. Þá er 100% öruggt að „Forrest Gump“ mun hljóta Qöldann allan af útnefning- um; Robert Zemeckis fyrir leikstjórn, Tom Hanks fyrir Gump, einnig handritið, kvik- myndatakan og tónlistin. Robert Redford kom enn á óvart sem leikstjóri með myndinni „Quiz Show“, sem spáð er nokkrum útnefning- um. Aðrar myndir sem enn hafa ekki náð hingað en þykja verðugir keppinautar eru fangamyndin „The Shawshank Redemption“ eftir Frank Darabont, „Little Women“ eftir Gillian Arms- trongog„Legends of the Fall“ eftir Edward Zwick. Það má vera að Oliver Stone hafi verið full grófur akademíuna í myndinni Fæddir morð- ingjar en Woody Harrel- son og Juli- ette Lewis að ógleymd- um Robert Downey eða Tommy Lee Jones eiga skil- ið að fá útnefn- ingu. Og Jan De Bont mætti vel fá útnefn- ingu fyrir Leift- urhraða en lík- lega er hún of reyfarakennd fyrir Óskar. Hanks stóð fremstur í flokki karlleikara síðasta ár en aðrir sem til A HANN ekki skilið að fá Ósk- ar?; Samuel L. Jackson í Reyfara. greina koma eru m.a. Martin Landau fyrir „Ed Wood“, Gary Oldman fyrir Beetho- venrulluna í „Immortal Beloved", Lee Jones fyrir hafnaboltahetjuna Ty Cobb, Ralph Fiennes í „Quiz Show“ og vonandi Terence Stamp fyrir eyðimerkur- drottninguna Pricillu. Erfiðara er að spá í leik- konurnar enda lítið um bitastæð kvenhlut- verk í Hollywood nema þau séu lespísk morðkvendi. Meryl Streep fær varla Óskar fyrir ofurmömmuna í Ógnar- fljótinu en Jodie Foster er orðin fastur liður og fær út- nefningu fyrir„Nell“. Þá þykir Jessica Lange góð í „Blue Sky“ og Sigoumey Weaver hefur verið nefnd fyrir leikinn í Polanskimyndinni Dauðinn og stúlkan. Einnig Miranda Richardson fyrir að leika Viv í Tom og Viv, annarri bíó- mynd byggðri á leikriti. Liam Neeson ískotapilsi IRSKI leikarinn Liam Neeson leikur skoska þjóðhetju í nýjustu mynd sinni sem heitir „Rob Roy“ og segir frá samnefndum vini litla , mannsins, einskonar Hróa hetti Skotanna, frá því fyrr á öldum. Leikstjóri er Skotinn Michael Caton-Jones en móttleikkona Neesons er Jessica Lange, sem ekki hefur verið mjög áberandi á hvíta tjaldinu að undanfömu. Aðrir leikarar era John Hurt, Tim Roth, sem báðir koma frá Bretlandi, og bandaríski leikarinn Eric Stoltz. Verður fróðlegt að sjá hvemig þetta sambland virkar á skosku heiðunum. Neeson þykir taka sig sérlega vel út í skota- pilsi a.m.k. er leikstjórinn í sjöunda himni. „Það var ekki fyrr en ég sá hann í pilsi sem ég skildi hvað í hann er spunnið,“ er haft eftir Caton-Jones. SKOSK hetja; Neeson- í„Rob Roy“. SÝND á næstunni; Robbins og Meg Ryan í„I.Q“. 8000 hafa séð Skógarlíf ALLS höfðu um 8.000 manns séð ævintýra- myndina Skógarlíf í Laugarásbíói eftir síð- ustu helgi. Þá sáu um 5.000 manns spennumyndina Tímalögguna eða „TimeCop“ fyrstu sýningar- helgina bæði í Laugarásbíói og Bíóhöllinni og meira en 34.000 hafa séð Grímuna. Næstu myndir Laugarásbíós eru„Corrina, Corrina" með Whoopi Goldberg, „Milk Money“ með Melanie Griffith og fljótlega í mars fram- sýnir bíóið Jim Carrey-myndina „Dumb and Dumber“. I enn lengri framtíð bíða myndir eins og Dauðinn og stúlkan eftir Roman Polanski, „I.Q“ með Tim Robbins eftir Fred Schepisi og hryll- ingsmyndin „Demon Knights" ásamt víkinga- myndinni sem tekin var upp hér á landi í fyrra og heitir nú Víkingasaga. ER möguleiki að sigra Gump?; Hanks í líklegu ósk- arsverðlaunahlutverki. Litlar fregnir eru af myndum sem koma til greina sem besta erlenda myndin. Bíódagar er út- nefnd af íslands hálfu. Kín- vetjar munu eiga eina að venju en Frakkar sigra með Þremur litum: Rauðum. Ann- ars hefur Óskar aldrei skipt sér af frelsi, réttlæti og bræðralagi við verðlaunaaf- hendinguna. Jeremy Irons í „Die Hard 3“ TÖKUR standa nú yfír á hasarmyndinni „Die Hard 3: With a Vengeance" og það er eng- inn annar en breski leikarinn Jeremy Irons sem fer með hlutverk óþokkans á móti Bruce Willis, sem leikur lögguna John McClane í þriðja skiptið. Samuel L. Jackson fer einnig með stórt hlut- verk og leikstjóri er John McTiernan, sem varð eftirsóttasti hasarmyndaleikstjóri Bandaríkjanna eftir fyrstu myndina. Irons leikur bróður skærul- iðans sem Alan Rickman lék í fyrstu myndinni og Willis henti fram af Fox-byggingunni í Los Angeles. Nú er hann kominn til New York og ætlar að hefna sín ógurlega. Willis hefur byggt feril sinn í kvikmyndunum á John McClane og gerir líklega ráð fyrir að þriðja myndin tryggi hann enn í sessi í draumaverksmiðj- unni. Irons er happafengur í illingjahlutverkinu og Jackson er óborganlegur leikari, sérstaklega eftirminnilegur í Reyfara. IBIO NÝBYLGJAN í ástr- alskri kvikmynda- gerð er dauð enda forkólf- ar hennar fluttir til Holly- wood. En nú þegar mörg ár eru frá jarðarförinni sprettur upp draugur for- tíðar í undurfurðulegri og frábærlega skemmtilegri ástralskri gamanmynd um karlmenn í kjólum. ' Þetta er Pricilla drottn- ing eyðimerkurinnar sem sýnd er í Háskólabíói og jafnast hún á við það besta sem gert var þegar ný- bylgjan var og hét. Hún er skemmtilegasta vega- mynd sem sýnd hefur ver- ið í mörg herrans ár og óborganleg lýsing á lífí þriggja kyn- og klæðskipt- inga úti á heimsenda ástr- ölsku óbyggðanna. Þeir dýrka sænsku súpersveit- ina ABBA og eiga saurug- an minjagrip frá Agnethu Faltskog (Abbaafurðin mun reyndar vera til í al- vörunni) en myndin er eitt draggrín út í gegn undir forystu Terence Stamp, sem er í framan eins og norðlensk bóndakona komin af léttasta skeiði. • Þú færð ekkert frumlegra í bíó. ALLT er þegar þrennt er; McTiernan, Willis og Jackson við tökur á „Die Hard 3“ í New York. ■ Vestrar eru að komast aft- ur í tísku, sérstaklega þeir sem byggðir eru á bandarísk- um sjónvarpsþáttum og nú er móðir allra sjónvarps- vestra að verða bíómynd því áform eru uppi um að kvik- mynda „Bonanza“, eina langlífustu sjónvarpsþætti veraldar. Universal-kvik- myndaverið ætlar að fram- leiða. Enn á eftir að ráða í hlutverkin sem Michael Landon og Lome Green og félagar fylltu í gamla daga. MHún hefur ekki riðið feitum hesti frá kvikmyndunum að undanförnu en Sharon Stone er alltaf jafn eftirsótt og fær sex milljónir dollara fyrir hveija mynd. Tvær era í burðarliðnum. Önnur er gerð af Warner Bros. og byggist á myndinni „Les Diaboliques“ frá 1955 er segir af eiginkonu og hjá- konu skólastjóra sem báðar ætla að myrða sinn heittelsk- aða. Hin myndin er framleidd af Touchstone og heitir „Last Dance“. Hún segir af morðkvendi sem bíður aftöku í fangelsi en lögfræðingur hennar, Rob Morrow, fær henni frestað og verður yfir sig ástfanginn í leiðinni. Hann ætti að athuga síðustu myndir Michael Douglas áður en hann flækist frekar í málið. ■Gus Van Sant sendir á næstunni frá sér myndina „2 Die 4“ með Nicole Kid- man í aðalhlutverki konu sem reynir allt til að verða fræg sjónvarpsstjarna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.