Morgunblaðið - 29.01.1995, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LEITIN A Ð MISV/EGI ORKUNNAR
TÆKNIN
MÁ EKKI
SKAÐA
OKKUR
Morgunblaðið/Rúnar Þór
RAFMAGN þarf ekki að vera
hættulegt ef það fær að vera
í friði í sínu umhverfi fram að ákveð-
inni styrkleikaspennu. En því miður
höfum við slakað á kröfunum og
gætt hefur ákveðinnar afturfarar
þó ég leyfi mér að fullyrða að ís-
lenskir sérfræðingar í rafmagnsmál-
um hafí unnið sitt starf mjög vel
og af heilindum. Þeir vissu bara
ekki betur þá. Nú er hinsvegar að
koma fram ný og aukin þekking,
sem bendir til þess að við höfum
ekki verið á beinu brautinni hvað
varðar uppbyggingu rafkerfa. Við
teljum okkur komna á sporið við
að sjá út vandamálin. Erum komnir
með ákveðnar vísbendingar, sem
þurfa frekari sannana við og til
þess erum við að fá til landsins
nýtt og dýrt mælitæki. Þessi nýju
sannindi snúast um það að við höf-
um verið á vissum villigötum í upp-
byggingu rafkerfa þó að mörgu leyti
séum við líka í góðum rnálurn," seg-
ir Brynjólfur Snorrason, sjúkra-
nuddari á Akureyri.
Þó hann sé lærður sjúkranudd-
ari, beri þann titil og stundi það
starf að hluta til er aðeins hálf sag-
an sögð því Binni, eins og hann er
kallaður fyrir norðan, hefur undan-
farin 14 ár heigað sig áhugamálinu,
sem snýst um áhrif rafsegulsviðs á
menn og dýr. Síðan hefur hann aldr-
ei reynt að bakka út vegna þess að
árangurinn, sem hann hefur orðið
vitni að, hefur gefið honum sífellt
meiri innblástur í því að halda
ótrauður áfram á sömu braut. Upp-
hafíð segir hann hafa verið það að
sem sjúkranuddari hafi hann furðað
sig á því að í sumum tilfellum hafí
fólk náð sér að fullu, en í öðrum
tilvikum hafi fljótt sótt í sama farið
að nýju. Hann var með öðrum orðum
farinn að sjá að ýmsir fleiri þættir
spiluðu inn í veikindi fólks en aug-
ljóst þótti enda er áru ekki aðeins
að fínna í kringum mannfólkið held-
ur er sams konar orkusvið að fínna
í náttúrunni allri. Og það er einmitt
misvægi orkunnar, sem Brynjólfur
hefur hin síðari ár fengist við að
Ieiðrétta - jafnvægisstilla menn og
dýr, eins og hann orðar það, ýmist
af völdum náttúrulegra jarðgeisla
eða tilbúins rafsegulsviðs af mann-
anna völdum.
Á undanförnum árum hafa til
hans leitað hundruð Islendinga, sem
glímt hafa við misjöfn „umhverfis-
vandamál“, sem læknavísindin hafa
átt bágt með að útskýra. En Brynj-
ólfur hefur skýringar á reiðum
höndum enda sér hann, ólíkt mörg-
um vísindanna mönnum, rafsegul-
svið sem áhrifavald í þessu sam-
bandi. Sjúkranuddarinn norður á
Akureyri segist hafa fylgt ákveðinni
hugsjón á sínum tíma þegar hann
fór á bólakaf í þessi mál, en biður
mig að virða það við sig þó hann
vilji ekki tala um persónuleg mál á
borð við ákveðna dulskyggni, sem
mér var tjáð að hann byggi yfir, en
eins og gjaman er sagt í pólítískum
fréttum þá hvorki „neitaði hann né
játaði" þegar á hann var gengið.
Binni hefur m.a. gegnt formennsku
í Sálarrannsóknarfélagi Akureyrar
og í gegnum tíðina hefur honum
orðið það æ ljósara að ýmsir mikil-
vægir þættir skipta sköpum varð-
andi heilsufar og vellíðan fóiks sem
gerði það að verkum að hann ákvað
að fara ótroðnar slóðir.
Orsök og afleióing
Brynjólfur er ekki í nokkrum vafa
um að rafmagn geti verið hættulegt
heilsu manna enda hefur hann fyrir
þeirri staðhæfíngu sinni þúsundir
sannana, sem hann hefur að eigin
raun fengist við bæði hérlendis og
erlendis síðan hann fór að sökkva
sér niður í „fræðin". Auk þess að
hafa verið starfandi hérlendis hefur
hann starfað mikið erlendis og sinnt
fólki, fyrirtækjum, dýragörðum,
dýraspítölum, heimilum og bænda-
býlum í Noregi, Danmörku, Þýska-
landi, Belgíu, Hollandi og Englandi.
Og nú er draumurinn sá að íslensk-
ir sérfræðingar með mismunandi
þekkingu snúi bökum saman og
myndi einskonar breiðfylkingu svo
hægt verði að sinna þessum málum
af fullum þunga. Hann segir að oft
hafí verið þörf, en nú sé nauðsyn
enda ísland kjörið til slíkra rann-
sóknastarfa. Því fyrr, sem við gríp-
um í taumana, þeim mun fyrr getum
við komið í veg fyrir að lenda í sömu
„krísu“ og aðrar þjóðir eru nú í.
„Ef settur yrði saman hópur ís-
lenskra sérfræðinga með tækni- og
verkfræðikunnáttu er ég ekki aðeins
sannfærður um að sá hópur gæti
látið gott af sér leiða hérlendis,
heldur gæti það starf orðið að út-
flutningsvöru þar sem vandamálin
eru miklu stærri í sniðum erlendis.
Þrátt fyrir allt eigum við íslending-
ar bæði toppmenn og bestu rafkerf-
in þó nú séu farnir að koma í ljós
veikir punktar, en sem betur fer
erum við mun betur sett «n flestir
aðrir í dag. Við gætum á svo mörg-
um sviðum komið með lausnir fyrir
aðra, sem eru að eyða hundruðum
milljóna í að leita að orsökum. Ég
hef verið að hreyfa við þessum hug-
myndum við Breta og Þjóðveija og
þeir hafa mikinn áhuga á því að
koma til íslands með hóp vísinda-
manna til að gera tilraunir, sem
hægt yrði að nýta annars staðar.
Við þurfum t.d. að komast að því
hvort rafmagnið er orsök eða afleið-
ing og kanna ýmsa aðra þætti, sem
koma við sögu. Sem stendur er ver-
ið að kanna fjármálin svo af slíku
alþjóðlegu verkefni geti orðið," seg-
ir Brynjólfur.
Hann er lítt gefínn fyrir fjölmiðla-
fár í kringum sig, en lét þó til leið-
ast í þetta skiptið eftir smá fortöl-
ur. Hann er gjarnan kallaður til
með mælitækin sín þar sem vart
verður óróleika eða spennu í lofti,
jafnt í • híbýlum manna sem dýra.
Brynjólfur
Snorrason hefur
haft i mörg horn aó
lita, bœói hjó
mönnum og dýrum,
siðan hann
fór aó gera
heilsufarslegar
athuganir á
áhrifum
rafsegulsviós.
Hann tekur það þó skýrt fram að
rafmagnstækjum sé ekki alltaf um
að kenna. Náttúrulegir jarðgeislar
valdi í mörgum tilvikum usla og í
sumum löndum, t.d. í Austurríki og
Japan, fáist ekki byggingarleyfi fyr-
ir nýbyggingum nema fyrir liggi
vottorð um jarðgeislamælingar. Þá
séu Þjóðveijar sömuleiðis famir að
hugsa sinn gang í þessu tilliti og
Húsnæðisstofnun Dana Iánar ekki
út á hús, sem lenda innan ramma
ákveðinnar orkumengunar.
Berskjölduó þjóó
Brynjólfur beitir svokallaðri Kirl-
ian-ljósmyndatækni við mælingar á
orkuútstreymi frá lifandi efni og
segir að vegna mengunar hafí orku-
hjúpur jarðar skaðast. Vegna þess
séum við veikari fyrir en áður og
berskjaldaðri fyrir utanaðkomandi
raf- og bylgjusviðum og sömuleiðis
náttúrulegum sviðum, sem raskast
hafa vegna ójafnvægis af mannanna
völdum. Orkumengun sé alvarlegt
vandamál um heim allan enda höf-
um við með tækni nútímans blandað
saman ólíkum tíðni- og orkusviðum,
sem reynst geta skaðleg. Hann seg-
ir að rafmagn framleiði í sjálfu sér
ekki skaðleg bylgjusvið svo fremi
sem þau blandist ekki ólíkum kerf-
um. En um leið og fleiri ólík orku-
■kerfí blandist saman fari þau að
takast á um virknina. Þessi orku-
mengun geri það að verkum að
mörg hús og jafnvel heilu íbúða-
hverfin séu orðin skaðleg heilsu
þeirra, sem þar búa.
Að sögn Brynjólfs skiptir orku-
svið tækjanna engu máli í þessu
sambandi, heldur hvort rétt sé raðað
saman og rétt sé frá þeim gengið
eða ekki. Þannig geti eitt lítið ljós
valdið verulegu tjóni á meðan stærð-
arinnar tölva geti verið tiltölulega
meinlaus í sínu rétta umhverfi. Því
miður vanti mikið upp á að tekið
sé nægjanlegt tillit til tenginga raf-
magnstækja og uppsetningar ljósa-
búnaðar. Sá þáttur ætti að vera
jafn eðlilegur og hönnun mann-
virkja.
Kúrfan bjagast
Þegar Brynjólfur er spurður út í
þá staðreynd hvers vegna það berist
meiri kvartanir frá skrifstofubygg-
ingum en frá efnamengaðri vinnu-
stöðum segir hann að á því sé afar
einföld skýring. „í skrifstofubygg-
ingum skortir á að tækin séu rétt
staðsett miðað við vinnslugetu hvers
þeirra. Mörg orkusvið blandast sam-
an með þeim afleiðingum að hin
eðlilega kúrfa bjagast. Aftur á móti
á þeim vinnustöðum, sem flestir
myndu vænta kvartana frá, t.d. frá
álverinu í Straumsvík og öðrum
álíka orkufrekum vinnustöðum, er
aðeins um eitt orkusvið að ræða,
lokað inni í ákveðnu rými þannig
að ekki komast aðrar tegundir raf-
magnsmengunar að. Þar er ekki um
að ræða mörg samverkandi svið,
sem togast á um virknina enda hef
ég margsagt að rafmagn þarf ekki
að vera hættulegt eða valda okkur
erfiðleikum ef það fær að vera í
friði í sínu umhverfi. Því fer sömu-
leiðis fjarri að allar spennistöðvar
séu hættulegar, heldur aðeins þær
sem eru ranglega staðsettar. Þessu
er eins farið með manninn. Þegar
hann fær að vera í sem jöfnustu
hlutfalli miðað við sína eigin
vinnslugetu, verður röskunin engin.
Upphleðslan í umhverfinu veldur
fyrst og fremst vandamálum, en
þess ber að geta að fólk er misnæmt
fyrir þessum áhrifum.“
Ertingu og álag segist Brynjólfur
geta séð á fólki með sérstakri
myndavél, sem hann hafí yfír að
ráða. Hvort menn vinni mikið við
tölvur heima hjá sér eða í vinnunni,
hvers konar tölvur það vinni við og
hverjir séu komnir með svokallað
rafofnæmi og hverjir ekki. „Mikil
geislun viðheldur bæði bakteríum
og mataróþoli, sem svo minnkar
yfírleitt með tímanum þegar búið
er að koma hlutunum í lag. Sveppa-
sýkingu er ég þó ekki tilbúinn að
setja á matarreikninginn þó matar-
æði og gæði vara geti spilað stórt
hlutverk. Ég hugsa hinsvegar með
hryllingi til innflutnings á landbún-
aðarvörum vegna þess að við eigum
eitt besta matarbúr í heimi. Ef Ieyfð-
ur yrði innflutningur á hvaða drasli
sem væri, yrðum við í slæmum
málum. Það er ekki aðeins nóg að
hugsa um verðið. Gæðin þurfa líka
að vera í lagi. Því hærra sem orku-
innihald vörunnar er sem við neyt-
um, því fyrr byggjum við upp orku-
hjúpinn, sem heldur í skefjum utan-
aðkomandi ertingu."
Tilveruréttur tækja
Nýja mælitækið, sem nú er að
bætast við tækjabúr Brynjólfs, kem-
ur m.a. til með að skera úr um
hvar heppilegast sé að staðsetja
spennistöðvar. „Þær mega t.d. ekki
vera á jarðgeislasvæðum, helst ekki
innan dyra og fleira þarf að taka
tillit til. í tengslum við staðsetning-
ar spennistöðva þarf að liggja fyrir
hvaða byggingar eru fyrirhugaðar
í nágrenninu og ijarlægðir á milli
þeirra."
Eitt af því, sem oftar- en ekki
kemur upp á borð Brynjólfs, er
tölvuumhverfí á vinnustöðum enda
getur það skipt sköpum fyrir starfs-
fólk hvernig þau rafmagnstæki, sem
fylgja nútíma fyrirtækjum, eru stað-
sett. Og þegar rætt var við Brynj-
ólf var hann á leiðinni suður með
mælitækin tií að kanna aðstæður í
fyrirtækjum og stofnunum. Einnig
hafði hann verið pantaður í tvö fisk-
eldisfyrirtæki á suðvesturhominu.
„Sá mikli tækjabúnaður, sem
fylgir nútíma fyrirtækjum, er
byggður upp á mismunandi geisla-
og vinnslusviði. Við staðsetningu
þeirra þarf að taka tillit til þessa
mikilvæga þáttar svo að þau fari
ekki að betjast um tilverurétt sinn
í umhverfinu og fari að hafa áhrif
á þann efnis- og loftmassa, sem
starfsfólkið býr við. í öðru lagi má
ekki staðsetja móðurtölvuna við
hliðina á aðalrafmagnsinntaki húss-
ins því þá fer rafmagnið að hafa
áhrif á tölvuna."
Spenna og
heimilisfriöur
Brynjólfur hefur sér til halds og
trausts fjölda sérfræðinga, sem
starfa með honum að ýmsum við-
fangsefnum á þessu sviði. Hann
segir að svokölluð jónatækni leysi
ákveðinn vanda og leynast „spólurn-
ar“ hans Brynjólfs nú víða. Spólurn-
ar eru sívalningar, sem hann hann-
aði sjálfur, og em þær framleiddar
hjá fyrirtæki á Akureyri. Þær gegna
því hlutverki að hreinsa óæskilega
tiðni og rafmagn úr loftinu.
Spólurnar vinna ekki á rafsviðinu
heldur á sviði, sem Brynjólfur kallar
geótískt stresssvið og hefur áhrif á
súrefnið ogjónahlutfallið í andrúms-
loftinu. „Spóíumar eyða þessu
stresssviði, sem veldur okkur oft
meiri skaða en rafsegulsviðið en
getur myndast af völdum rafsegul-
sviðs, rafsviðs eða hátíðnisviðs. Við
geótískt stresssvið geta komið upp
ótal vandamál, t.d. spenna og vöðva-
bólga, sveppasýkingar og júg-
urbólga í kúm. I þeim minkabúum,
þar sem tekist hefur að ná þessu
sviði út, hefur minkurinn þrifist mun
betur en áður og það á sömuleiðis
við um menn í sínum híbýlum. Fólk-
ið sefur betur, fær ekki síendurtekn-
ar sýkingar og síðast en ekki síst
dregur úr heimiliseijum. Þetta hef
ég einnig sannreynt í skólastofum
viðvíkjandi spennu og árásargirni,
en þegar nemendur eru farnir að
benda á sérstakar álmur í skólum
sem slæmar tek ég að sjálfsögðu
mark á því.“
Að lokum leggur maðurinn með
mælitækin á það áherslu að nútíma
tækniframfarir þurfí ekki að vera
óvinur í reynd. Þær séu bæði óum-
flýjanlegar og nauðsynlegar. Við
þyrftum hinsvegar að læra að nota
tæknina þannig að hún skaði okkur
ekki. Kapp sé best með forsjá.