Morgunblaðið - 29.01.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR1995 B 3
LEITIN A Ð MISViEGI ORKUNNAR
VIUUM SKYRA HLUTI
SVO SKIUANLEGT SÉ
z
5
VINNUEFTIRLITI ríkisins
berst á ári hverju fjöldi fyrir-
spurna um áhrif rafmagns á
heilsu manna. Flestar fyrir-
^ spurnimar koma frá fólki,
sem vinnur tiltölulega „þrifa-
■■ lega“ vinnu, en athygli vekur
I_ að minna er um slíkar spurn-
mm ingar frá starfsmönnum í
■B „efnamengaðra" umhverfi.
“■ Að mati Vilhjálms Rafnsson-
þa ar, yfirlæknis hjá Vinnueftir-
kk litinu, er fráleitt að rekja
JJJ vanlíðan fólks og truflaða lík-
3 amsstarfsemi til rafsegul-
\ sviðs. Mikilvægara sé að líta
5 til annarra þátta svo sem við-
^ móts annarra starfsmanna,
^ álags, áreitis og aðbúnaðar á
vinnustað og síðast en ekki síst
til andlegs heilbrigðis.
„Við læknar viljum hjálpa fólki
og skýra hluti á þann hátt sem
okkur er skiljanlegur þannig að
skýringarnar falli að líffræðinni,
læknisfræðinni, eðlisfræðinni,
efnafræðinni og jafnvel sálfræð-
inni í stað þess að stökkva á „bil-
legar“ lausnir og gefa falskar von-
ir. Eg tel það vera skjóttekna lausn
að segja að rafmagn trufli hugsun
manna eða skarpskyggni, valdi
höfuðverk, einbeitingaskorti eða
annarri vanlíðan. Við teljum að
fólki sé óhætt að umgangast raf-
magnstækin sín og sömuleiðis
ættu menn ekkert að verða undar-
legir af því að vera í sterku rafseg-
ulsviði,“ að mati Vilhjálms. Sem
dæmi um vinnuumhverfi, sem býr
yfir sterku rafsegulsviði, nefnir
hann kerskála álversins í Straums-
vík. Hjarta- eða heilalínurit þeirra
starfsmanna, sem þar vinna, trufl-
ast ekki þrátt fyrir þetta sterka
svið. Aftur á móti getur rafstuð
truflað líkamsstarfsemina þannig
að hjartað nái ekki að slá eðlilega.
Með öðrum orðum getur rafstuð
ruglað það innbyggða rafmagn,
sem líkaminn býr yfir. Þá má geta
þess að myndavélar og armbands-
úr eru í stórhættu ef farið er með
það inn í kerskála álversins og
mönnum er eindregið ráðlagt frá
því að fara með greiðslukortin sín
inn í þetta vinnuumhverfi þar sem
að segulröndin á þeim getur
ruglast alvarlega við það.
Að sögn Vilhjálms eru uppi illar
grunsemdir um að rafsegulsvið
geti hugsanlega valdið krabba-
meini. „Ef svo er, er það auðvitað
mjög alvarlegur hlutur og sjálfsagt
er að fylgjast með rannsóknum á
þessu sviði og jafnvel að gera okk-
ar eigin rannsóknir," segir Vil-
hjálmur. Við Vinnueftirlitið er
ætlunin að fylgjast með fólki, sem
starfar í rafsegulsviði með tilliti
til krabbameinshættu. Niður-
staðna er þó ekki að vænta í bráð.
Vilhjálmur leggur að lokum
áherslu á að því fari fjarri að allt
sé skýranlegt í þessum heimi.
„Við læknar þykjumst ekki geta
skýrt alla hluti, af hverju fólk verð-
ur veikt og af hverju því líður eins
og því líður. Stundum verðum við
einfaldlega að játa að við vitum
ekki hvað um er að vera. Og
kannski skiljum við ekki hvaða
áhrif örmagn í loftinu kann að
hafa á heilsu fólks. Það er meðal
annars hlutverk okkar að gera
rannsóknir og finna skýringar á
hugsanlegu sambandi umhverfis-
áhrifa og heilsufars fólks.“
Vilhjálmur
Raf nsson, yf ir-
læknir Vinnu-
eftirlits rikis-
ins, segir aö
sjálfsagt sé ad
fylgjast meó
rannsóknum
þó hann telji
fráleitt aó
rekja megi
vanliöan fólks
til rafsegul-
sviós.
VERÐLÆKKUN
SUZUKIVITARA
Okkur er mikil ánægja að tilkynna verulega verðlækkun á hinum sívinsæla Suzuki Vitara JLXi, sem nú
fæst á betra verði en nokkru sinni fyrr.
Vitara JLXi 5 dyra, S gíra, beinskiptur, kostar nú aðeins kr. 2.175.000.
Vitara JLXi 5 dyra, 4ra gíra, sjálfskiptur, kostar nú aðeins kr. 2.345.U00.
Suzuki Vitara JLXi er einstaklega vel búinn jeppi, sem uppfyllir allar kröfur þeirra, sem leita aflmikils
og vandaðs jeppa á vægu verði og vilja balda rekstrarkostnaði í lágmarki.
Meðal ríkulegs staðalbúnaðar í Vitara JLXi má nefna:
96 hestafla 16 ventla vél.
Samlæsingu hurða.
Rafstýrðia spegla.
Höfuðpúða á fram- og aftursætum.
Dagljósabúnað.
• Upphituð framsæti.
• Framdrifslokur.
R Byggður á grind.
• Aflstýri.
• Rafmagnsrúðuvindur
Veltistýri.
Vönduð innrétting.
Hreinsibúnaður fyrir aðalljós.
Styrkt rafkerfi fyrir Norðurlönd.
Litaðar rúður.
Nýr valkostur — Suzuki gœói á lágmarksverói!
Fyrir þá sem leita að ódýrari 5 dyra jeppa, og gera ekki eins miklar kröfur um búnað, getum við nú boðið
Suzuki Sidekick JX 5 dyra, beinskiptan, á einstaklega hagstæðu verði, aðeins kr. 1.880.000.-
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
Komið og reynsluakið Suzuki Vitara — hann kemur verulega á óvart.
M 9501