Morgunblaðið - 29.01.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995 B 5
LEITIN Uj MISVÆGI ( ) R K U N N A R
Fannst betta vera
hin mesta
firra í byriun
JP EIÐUR Gunnlaugsson, annar
O eigandi og framkvæmdastjóri
|q Kjarnafæðis hf. á Akureyri,
lk hafði ekki mikla trú á því að
^ segulsvið gæti haft áhrif á
2 líðan fólks þegar eiginkonan
t Sigríður Sigtryggsdóttir fór
að hugleiða þessi mál af al-
■5 vöru og hafa orð á því að það
Ö væri ekki vitlaust að fá Brynj-
ólf til að skoða heimilið. „Mér
þótti þetta hin mesta fírra, hálf-
gert kukl, lét þó til leiðast og verð
að játa það nú að ég sé svo sannar-
lega ekki eftir því.“
Eiður segir að Brynjólfur hafi
aukið jarðtengingar og sett upp
spólur á heimilinu, aðra uppi á
stofuskáp og hina inn í baðinnrétt-
ingu. „Andrúmsloftið gjörbreyttist
við þetta eða eins og 12 ára dóttir
mín orðaði það, þá var eins og
veggur hefði verið fjarlægður úr
húsinu. Ég finn mikinn mun á mér
og nú sofa börnin eins og englar
á nætuma, en áður hafði borið þó
nokkuð á svefntruflunum hjá þeim.
Það er í raun erfítt að útskýra
þetta svo vel fari, en það er ein-
hvern veginn eins og það liggi
meiri kyrrð í loftinu nú en áður.“
í kjölfarið á þeim breytingum,
sem gerðar voru heima, var hafist
handa við að mæla jónahlutfallið
í húsnæði Kjamafæðis við Fjölnis-
götu 1 á Akureyri, en fyrirtækið
stendur mitt á milli útvarpshússins
og pósts og síma þar í bæ. „í ljós
kom að mikið skorti á að jónahlut-
fallið væri í jafnvægi og ákveðinn
strengur lá í gegnum húsið, þar
með talið í gegnum skrifstofuna
mína. Ég fann alltaf fyrir ákveðn-
um pirringi, sem líktist einna helst
hárfínu hátíðnihljóði, þegar ég sat
Morgunblaðið/Rúnar Þór
í stólnum mínum enda kom í ljós
að strengurinn lá rétt fyrir aftan
hann og mér fannst alltaf eins og
ég væri að spóla inn á mig óæski-
legum straumum á meðan ég sat
þarna.“
Eiður lét gera þær ráðstafanir,
sem Brynjólfur taldi nauðsynlegar
og em starfsmenn fyrirtækisins
nú á einu máli um að aðgerðirnar
hafi haft í för með sér jákvæð
áhrif á líðan fólks, en hjá Kjarna-
fæði á Akureyri starfa hátt í 50
manns við matvælaframleiðslu.
„Við verðum einhvern veginn ekki
lengur fyrir þessu óskilgreinda
ytra áreiti, sem mannskepnan finn-
ur oft fyrir en á erfitt með að festa
hendur á.“
Ekki er enn
vitaó hvort
eóa hvaóa
áhriff seg-
ulsvió hef-
ur á seió-
in,segir
Július.
SEIÐAELDIÐ TEKST BETUR
ai
SENNÞÁ er of snemmt að segja
til um áhrifin af völdum þeirra
■ aðgerða, sem gripið hefur ver-
£ ið til að ráði Brynjólfs í tveim-
m ur seiðaeldisstöðvum okkar.
Aftur á móti hefur betur tek-
| ist til með seiðaeldið frá því
að þessar framkvæmdar voru
gerðar, en áður, hvort sem það
er tilviljun eða ekki,“ segir Júlíus
Kristinsson, framkvæmdastjóri lax-
eldisstöðvarinnar Silfurlax hf.
Júlíus, sem er doktor í líffræði,
segist hafa leitað til BrynjóLfs
Snorrasonar að ráði „kollega" í eld-
isbransanum vegna ákveðinna
vandamála, sem hefðu verið viðvar-
andi í tveimur af fjórum seiðaeldis-
stöðvum Silfurlax. „Þetta er al-
gengur flokkur kvilla, sem kallast
einu nafni tálknveiki og hefur m.a.
í för með sér bólgur og skemmdir
á tálknum. Brynjólfur kom og skoð-
aði stöðvarnar, vopnaður mælitækj-
unum og eigin næmi, sem mér sýn-
ist að sé mjög mikið. Hann benti á
ýmislegt, sem mætti betur fara, og
sem fyrsta áfanga skyldum við jarð-
binda og samtengja stoðir og stál-
bita til að koma í veg fyrir myndun
mismunandi spennusviða. Þetta
gengur m.a. út á að spennujafna
byggingarhluta úr málmi.“
Júlíus segist ekki treysta sér til
að segja af eða á til um árangur í
kjölfar framkvæmda, sem gripið
hefur verið til. Of stuttur tími sé
liðinn. „Við vitum ekki hvaða áhrif
mismunandi segulsvið hafa á seiðin.
Aftur á móti get ég fullyrt að mun
betur hefur tekist til með seiðaeldið
nú en fyrir breytingar. Rétt er að
geta þess að samhliða þeim, vorum
við að gera ýmsar aðrar aðgerðir,
ótengdar ráðgjöf Brynjólfs, til að
freista þess að ráða bót á þessu
meini.
Okkur þótti aftur á móti heim-
sókn Brynjólfs til okkar afar merki-
leg og persónulega hef ég mikinn
áhuga á að skoða frekar það, sem
hann hefur fram að færa. Ég tel
að full ástæða sé til að gefa þessu
meiri gaum og nota til þess vísinda-
legar aðferðir í sambland við aðrar
aðferðir, sem þegar eru til.“
„Vió veróum ekki
lengur ffyrir þessu
óskilgreinda ytra
áreiti, sem mann-
skepnan f innur oft
fyrir en á erfitt meó
aó festa hendur á,"
segir Eióur Gunn-
laugsson hjá
Kjarnafeeói hf. á
Akureyri.
•frííWVfí'tó
—bwi
Paskatilboð
Heimsferða
frá 39.900*
f pr. mann
SértHboð okkar í síðustn viku schlist upp
Bókaöu á meban enn er laust
50 vlðhótarsœti
á tilbobsveröinu um páskana.
Tryqqðu þérfrábæran abbúnab ífríinu oq njóttu þess ab dvelja á nýjum
gististöbum Heimsferba í sól og hita um páskana.
Benidorm
Brottför 11. apríl - 12 dagar
Kr. 39.900
Kanarí
pr. mann,
m.v. hjón með 2 börn, 2ja-11 ára.
Kr. 49.900pr mann
m.v. 2 í íbúb, El Faro íbúbarhótelib.
Glæsilegur nýr gististaður, El Faro
pr. mann,
Brottför 5. apríl - 17 dagar
Kr. 55.900
m.v. hjón með 2 börn, 2ja-14 ára.
Kr. 69.700prmann,
m.v. 2 í studio, Green Sea.
Frábær aðbúnaður á Kanarí
Þjónusta:
• Líkamsrækt. Farþegar Heimsferöa fá frítt
tvisvar í viku.
• Sjónvarp og sími.
• Gufubað.
• Veitingastaöur.
• Bar.
• Móttaka er opin allan sólarhringinn.
• Kvöldskemmtanir öll kvöld.
• Þvottahús
Flugvallaskattar og forfallagjöld:
Kr. 3.660 fyrir fulloröin, kr. 2.405 fyrir barn.
Ekki innifalið í veröi feröar
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17 2 hæö, sími 562 4600
Þjónusta:
• Stór sundlaug.
• Tennisvöllur.
• Móttaka opin allan sólarhringinn
• Leiktæki fyrir börnin.
• Veitingastaður.
• Bar.
• Skemmtidagskrá á kvöldin.
• Þvottahús.
• Verslun.
• 300 metrar á strönd.
• 20 mínútna gangur í miðbæinn.